Þjóðviljinn - 04.12.1954, Side 6
%) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 4. desember 1954
þióoyiuiNN
Útgefandi: Samelnlngarflokkur alþyftu — Sósíalistafloklturlnn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson. Sigurður Guðmundsson (úb.)
FVéttastjóri: Jón Bjarnason
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson. Bjarnl Benediktsson, GuB-
mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfi ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýslngar, prentsmiðja: Skólavörðusti*
19. — Simi 7600 (3 línur).
Áskrlftarverð kr. 20 ú mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17
annars staðar á landlnu. — Lausasöluverð 1 kr. elntakið.
Prentsmiðja Þjóðviijans h.f.
Sósíalistaflokkurinn hefur ætíð stutt
málefni landbúnaðarins
' Á flokksstjórnarfundi Sósíalistaflokksins, sem nýlega
var haldinn í hinu nýja húsi flokksins Tjarnargötu 20,
var samþykkt ýtarleg ályktun um landbúnaðarmálin og
stéttarlega aöstöðu bændanna í þjóöfélaginu. Hefur hún
nýlega verið birt hér í blaöinu.
Ályktun þessi er hvorttveggja í senn, vitnisburöur um
starf og stefnu flokksins í landbúnaöarmálum allt frá
stofnun hans, og enn fremur vottur þess að hann mun
íylgja eftir framvegis þeirri stefnu sem landbúnaöinum,
bændastéttinni og þjóðinni allri mun reynast til mestra
'heilla. Öll þau ár, sem liðin eru síðan áhrifa hans fór aö
gæta í íslenzkum stjórnmálum, hefur hann stutt mál-
efni landbúnaöarins á allan þann hátt, sem unnt var.
Áreiðanlega má fullyrða aö án stuðnings Sósíalistaflokks-
ins heföi sexmannanefndarsamkomulagið aldrei orðið
eö veruleika. En með því var, sem kunnugt er, bændum
tryggt jafnrétti viö aðrar vinnandi stéttir þjógarinnar og
var það gert fyllilega í trássi viö þá flokka, sem nú fara
með völdin. Þetta jafnrétti var tryggt með samningum
milli stéttanna eða kjörinna fulltrúa þeirra. En í því
sáu hinir pólitísku flokksleiðtogar borgaraflokkanna,
sem vilja halda vinnustéttunum ósamþykkum innbyröis,
hættu fyrir sig og völd sín. Þess vegna stóðu þeir á móti
því samkomulagi svo lengi sem stætt var, og töfðu með
hverskonar vífilengjum og flækjum.
Annað stórmál sem Sósíalistaflokkurinn hefur barizt
fyrir vegna landbúnaðarins, eru lögin um landnám, ný-
byggðir og endurbyggingar í sveitum. Þaö mál var ut-
kljáö á Alþingi, og auðvitað með atkvæðum fleiri þing-
manna en sósíalista, en þeir sem kunnugir voru meöferð
þessa máls vissu vel, að þar naut fyrst og fremst viö
haröfylgis Sósíalistaflokksins, og þess aö þá var hann
í stjórnaraðstöðu og var því ekki hægt að sniðganga til-
lögur hans. Síöan hefur það skeö, að úr gildi þessarar
merku löggjafar hefur verið dregið stórlega meö hvers-
konar opinberum stjórnarráðstöfunum, s.s. gengislækkun
og öörum slíkum, er stórkostlega hafa aukið kostnaö
við framkvæmdir allar, án þess á nokkurn hátt væri séö
fýrir því aö auka fjái’magnið að sama skapi.
: Þá hefur Sósíalistaflokkurinn ætíð staðið sem einn
xhaður á Alþingi með hverju því máli, er til hagsbóta hef-
'uir horft fyrir landbúnaöinn þau ár sem liðin eru síðan
hann fór úr ríkisstjóm. Er það einkum um að ræða út-
vegun lánsfjár o. fl. Er þess skemmst að minnast, að
lögin um að breyta nokkrum tilteknum lánum til Bún-
öðarbankans, sem samþykkt vom á þinginu 1952, í fast
framlag, voru fyrst flutt í frumvarpsformi af einum
jiingmanni Sósíalistaflokksins. Á eftir reyndu svo báðir
stjómarflokkarnir aö eigna sér hugmyndina.
í ályktun þeirri, sem fyrr getur, heitir aðalfundur
fiokksstjómar Sósíalistaflokksins á bændastéttina aö
fylkja liði með öörum vinnandi stéttum þjóðarinnar,
gegn hemámi Bandaríkjanna og þeim klíkum íslenzkra
fjárgróðamanna, er nú gera sér hernámið að féþúfu, og
beil^a síðan illa fengnu fjármagni til áhrifa á ríkisvaldið.
Þarf engum aö blandast hugur um, að eðli sínu sam-
kvæmt á bændastéttin fyrst og fremst heima innan
Slíkrar samfylkingar. Jafnframt leggur flokkurinn mikla
áherzlu á lausn þeirra vandamála, er nú kalla brýnast aö
Vegna landbúnaöarins. Og er þar fyrst að nefna aukiö
lánsfé svo koma megi ræktun landsíns sem allra fyrst
í það horf að vélaaflið nýtist sem bezt til framleiöslu-
aukningar, og ennfremur að tryggja nægilega snemma
érlendan markað fyrir þann hluta framleiðslunnar, sem
innlendi markaöurinn ekki tekur á móti þegar fram-
leiðslan vex. $n þess verður áreiðanlega ekki langt aö
bíða.
: Sósíalistaflokkurmn mun halda áfram sem hingað til
áð vinna að málefnum landbúnaðarins á hvern þann
hátt er orðið getur bændastéttinni og þjóðinni til sem
jnestra heilla.
Fjármálaspílling og fylgispekt við
Bandaríkin eru að fella Japansstjórn
Nýr borgaraflokkur krefsf stjórnmálasam-
bands og viSskipta við Kina og Sovéfrikin
Kreppan í atvinmdífi Japans hefur valdið hörðum vinnu-
deilum á undanförnum mánuðum. Myndin sýnir jap-
anska verkamenn á verkfallsfundi.
egar Shigeru Joshida, forsaet-
isráðherra Japans, sneri
heim til Tokyo í síðustu viku
eftir tveggja mánaða ferðalag
til Bandaríkjanna, KandÖa og
helztu höfuðborga Vestur-Ev-
rópu, var aðkoman heldur ó-
skemmtileg. Flokkur hans, sem
er ihaldssamasti flokkur lands-
ins en kallar sig FrjálsJynda
flokkinn, er í upplausn. Jos-
hida var ekki fyrr kominn heim
en hann varð að segja af sér
formennsku i flokknum til þess
að hindra að hann liði með
öllu undir lok. En fylkingar á
þingi hafa riðlast svo að >allar
horfur eru á að sex ára óslitn-
um stjórnmálaferli Joshida
Ijúki einhvern næstu daga, þeg-
ar þingmenn greiða atkvæði
um tillögu um vantraust á
stjórn hans.
Rætur þessa uppreists í jap-
önskum.stjórnmálum liggja
djúpt og víða, eins og síðar
verður að vikið, en tilefni
klofningsins í frjálslynda
flokknum og vantraustsins á
stjórnina er á yfirborðinu slór-
felld spilling í opinberu lífi og
mútuþægni ráðherra og ann-
arra nánustu samstarfsmanna
Joshida. Komið er á annað ár
síðan það kom á daginn, að
japönsk skipafélög og önnur
stórfyrirtæki hafa greitt stór-
ar fjárfúlgúr í kosningasjóði
eða beint í vasa stjórnarþing-
manna. í staðinn höfðu eigend-
ur fyrirtækjanna hlotið ómælda
ríkisstyrki og stórlán til at-
vinnurekstrar síns. Mál þetta
hefur ekki enn komið til dóm-
stólanna, þingnefnd hefur haft
það til rannsóknar og sífellt
fundið nýja og nýja gullþræði
milli fésýslumanna Japans og
ýmissa áhrifamestu manna
Frjálslynda flokksins. Enginn
botn hefur þó fengist í málin,
einkum vegna þess að Joshida
hefur virt að vettugi allar
stefnur um að mæta fyrir rann-
sóknarnefndinni til yfirheyrslu
um misgerðir samstarfsmanna
sinna.
Skömmu áður en Joshida lagði
af stað í ferðina í kring-
um hnöttinn i haust hótaði
nefndin að beita við hann valdi
sínu til að varpa þeim í fang-
elsi, sem þverskallást við að
hlýða stefnum hennar. Forsæt-
isráðherrann hafði þessa hótun
að engu og þegar hann kom
heim var fyrsta verk hans að
vísa á bug enn einni stefnu
út af múturannsókninni. En þá
var mælirinn fullúr. Hinir
smærri borgaraflokkar Japans,
sem verið hafa í stjórnaránd-
stöðu, sameinuðust í einn flokk,
sem nefnist Lýðræðisflokkur-
inn, undir stjórn Itsjiro Hato-
jama, svarins óvinar Joshida
og keppinauts hans um völdin.
Þrjátíu og fimm þingmenn úr
Frjálslynda flokknum gengu í
nýja flokkinn og við það missti
stjórn Joshida meirihluta á
þingi. Eftir eru í Frjálslynda
flokknum 185 þingmenn, 121
styður Lýðfæðisflokkinn,
vinstr} sósialdemokratar eru 71
og hægri sósíaldemokratar 64.
Báðir sósíaldemokrataflokkarn-
ir ög Lýðræðisflokkurinn semja
nú um sameiginlega atlögu til
að fella Joshida,
IIMútuhneykslið er haft á odd-
inurp í stjórnmálaátökun-
um, en undirrót klofningsins
í röðum japanskra ihaldsmanna
og atvinnurekenda, sem standa
Erlend
tíðindi
—~-- ■■ .--a
bæði að Frjálslynda flokknum
og Lýðræðisflokknum, eru átök
um utanríkisstefnu Japans,
einkum afstöðuna til négranna-
ríkjanna á meginlandi Asíu,
Kína og Sovétríkjanna. Joshida
samdi sérfrið við Bandaríkin
og fylgiríki þeirra þvert ofan í
mótmæli Kína og Sovétríkj-
anna. Síðan gerði hann við
Bandaríkin samning um hern-
aðarbandalag, leyfði þeim her-
setu í Japan og afnot af flug-
og flotastöðvum. Sósíaldemo-
krataflokkarnir báðir og hinn
bannaði Kommúnistaflokkur
Japans snerust gegn hernaðar-
bandalaginu við Bandaríkin.
Japanskir kaupsýslumenn létu
sér það hinsvegar vel líka með-
an Kóreustríðið stóð og varð
þess valdandi að dollarar
streymdu inn í landið (frá
bandarísku herstjórninni og
baridarískum hermönnum í
leyfi frá Kóreu.
Nú er tekið fyrir þessa fjár-
uppsprettu. Japan v'erður
að lifa á útflutriingi sínum í
harðri samkeppni við aðra
framleiðendur, eittkum brezka
og bandaríska. Mikill halli er á
utanríkísverzluninni og eru þvi
japanskir framleiðendur farn-
ir að renna hýru auga til við-
skipta við Sovétríkin og Kína.
Þar er að finna kornmeti og
ýms hráefni, sem Japani van-
hagar um og mikill markaður
fyrir japanskan iðnaðarvarn-
ing er í Kína. En utanríkis-
stefna Joshida stendur í vegi
fyrir auknum viðskiptum í
þessa átt. Leiðarstjarna hans
hefur frá upphafi verið alger
fylgisspekt við Bandaríkja-
stjórn og skilyrðislaus hlýðni
við bann hennar á viðskiptum
við Kína og Sovétríkin. Joshida
hefur gert sér vonir um, að
hann myndi fá ríflega doilara-
styrki að launum fyrir þægð
sina. Þær vonir brugðust þegar
hann heimsótti Washington um
daginn. Það eina sem hann gat
herjað út úr Bandaríkjastjóm
var loforð um 110 milljóna
dollara virði af varningi a£ of-
framleiðslubirgðum hennar.
Japan getur ekki byggt upp
framtíð sina á svo rýrri öl-
musu. Þess vegna brauzt út
uppreisn gegn Joshida og utan-
ríkisstefnu hans í hans eigin
flokki. Helzta stefnumái hins
nýja borgaraflokks, Lýðræðis-
flokksins, er að sögn ílokksfor-
ingjans, Hatojarna, að „taka
upp sjálfstæða og raunsæja
utanríkisstefnu . . . Hatojama
sagði að Joshida hefði stjórnað
utanríkismálum Japans illa.
Einkum benti hann á að ríkis-
stjórnin hefði látið undir höfuð
Framhaid á 11. síðu.