Þjóðviljinn - 22.12.1954, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 22.12.1954, Blaðsíða 6
t&) t— ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 22. desember 1954 þlÓOVILJINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð- mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 20 á rnánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Hættuleg braut Það er alkunna að ógeðið á bandaríska hernámsliðinu hefur farið vaxandi ár frá ári og mánuð frá mánuði. í upphafi voru gerðar tilraunir til þess að láta hina er- lendu menn komast í sem nánust tengsl við þjóðina; það voru skipulagðar að heita mátti daglegar árásir á höfuð- horgina og ferðir um landið, og ýmsir íslendingar gerð- ust svo lítilsigldir að skríða fyrir hermönnunum; hér risu meira* að segja upp hóruhús. En andstaðan magn- p.ðist að sama skapi, og nú er það ríkjandi skoðun hjá meginþorra þjóðarinnar að allt samneyti við hernáms- liðið sé ósæmandi. Hafa hermennirnir kvartað mjög um kulda íslendinga) í bandarískum blöðum. Þetta ástand var síðan staðfest af núverandi utanríkisráðherra þegar hann lýsti yfir því að gerðar yrðu mannheldar girðingar utan um hernámsliðið og settar hefðu verið mjög strang- ar reglur um ferðir þess (enda. þótt ráðherrann hafi af einhverjum annarlegum ástæðum ekki séð sér fært að tkýra frá því í hverju reglur þessar eiga að vera fólgnar.) Að sjálfsögðu hefur þessi þróun orðið ráöamönnum hernámsliðsins mjög hvimleið, og þeir halda enn áfram að reyna að koma á sambandi við ísl. þjóöina. Nýjasta til- tækið og eitt það hvimleiðasta er að fá íslenzk líknar- íélög til þess að stunda áróður fyrir hemámsliðið. Hljóm- sveit af flugvellinum hefur verið látin leika til ágóða fyrir barnaspítalasjóð Hringsins og Slysavarnafélag ís- lands, og þessar stofnanir eru síðan látnar skora á ís- lendinga að hlusta á hernámsmenn leika. Af hálfu her- námsliðsins er þetta pólitísk brella en enginn áhugi á hknarstörfum, enda er fátt fráleitara en að tengja saman atvinnumenn í morðum og barnaspítala eða slysavarnir. Stofnanir þær sem hér er um að ræöa eru komnar inn á hættulega braut með samvinnu sinni við hernáms- liðið. Þær hafa til þessa notið stuðnings allra íslendinga, og því verða þær að halda áfram ef góður árangur á að nást. En þá mega þær ekki taka upp starfsaðferðir sem nieginþorri þjóðarinnar hlýtur að hafa ógeð á. Sósíalistaflokkurinn einn hélt fram rétti láglaunafélksins Starfsmenn ríkisins fá þessa dagana að finna hvemig ríkis- fctjórn íhalds og Framsóknar telur rétt að haga launahækkun- um. Uppbótin sem ríkisstjórnin og flokkar hennar telja hæfi- legt að veita öllum þorra láglaunafólksins í ríkisþjónustu eru 2—5% grunnlaunahækkun, en þykir hinsvegar sjálfsagt að létta hæstlaunuðu embættismönnum ríkisins 10% glaðning, láglaunafólkið á að fá 300 til 500 kr. hækkun á ári, en embættis- maðurinn með sín 70 þúsund króna laun fær einar 5500 krónur. Sósíalistaflokkurinn einn þingflokka mótmælti þessari að- ferð, og bar Einar Olgeirsson fram breytingartillögur um að launauppbótin í lægstu flokkunum, 10. til 16. fl. launalaga yrðu 30%, í miðflokkunum, 4. til 9. fl., 25% og í 1. til 3. flokkij hæstlaunuðu flokkunum 20%. Með því móti hefðu menn í lág- launaflokkunum fengið 2000 til 3000 kr. uppbót á árslaun sín, og lagði Einar áherzlu á, að minna mætti það ekki vera. En þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar máttu ekki heyra á það minnzt og felldu tillögur Einars við 3. umr. fjárlaganna. Þeir voru hæstánægðir með launauppbótina og sögðu að íhalds- prófessorinn sem er forseti Bandalags starfsmanna ríkis og fcæja, væri einnig hæstánægður! Hitt vekur nokkra furðu að Alþýðublaðið skuli nú hamast gegn þessari aðferð ríkisstjórnarinnar við launahækkun til starfsmanna ríkisins. Gylfi Þ. Gíslason og Haraldur Guðmunds- son báru fram þær breytingartillögur af hálfu Alþýðuflokksins aö uppbótin hækkaði ekki í 20% heldur í 25%. Það þýddi að vísu að lægstu flokkamir hefðu fengið 8% hækkun en hæst- launuðu embættismennirnir heíðu fengið 15% hækkun! Það var foaráttumál Alþýðuflokksins. Starfsmenn ríkisins munu læra af þessari launahækkun, um forustuhæfileika íhaldsprófessora í stéttarsamtökum og um hug stjómarflokkanna til láglaunafólks. Það er á valdi fólksins sjálfs, í samvinnu við önnur launþegasamtök, að láta ekki bjóða ifcér slíka „launahækkun'* oftar. Bréf til Jéns Aðalsteins Reykjavík, 18. desember 1954. Kæri vinur! Nú sezt ég niður til að pára þér nokkrar línur í tilefni af sextugsafmæli þínu. Ég verð að biðja þig að umbera það með þolinmæði, að fyrri hluti bréfs- ins verður skelfileg raunasaga. En svo birtir yfir. Ég efast um, að nokkur ís- lendingur hafi litið vonglaðari fram á veg lífsins en ég leit á árunum 1939 til 1941, þrátt fyrir mikið myrkur, sem þá lagði yfir heim alian frá þessu veslings geðbilaða landi kring- um Liineborgarheiði. Ég var þá að koma mér upp heilli fylkingu- sérfræðinga í flestum greinum vísinda, mann- félagsmála, heimspeki, dulspeki og lista. Þessir sérfræðingar áttu að gefa mér öðru hverju skýrslu um þau efni í sérgrein- um sínum, sem ég óskaði að fræðast um í það og það skipt- ið. Fiestir tóku þeir við emb- ættum þessum fagnandi hjarta og hétu miklum skýrslugjöfum, hvenær sem ég þarfnaðist, og ég sá sjálfan mig kominn nokkuð á veg að því takmarki, sem ég hafði þráð alia ævi: að verða fjölfróður og djúpvitur. Það var mín mikla vongleði. Ég get ekki annað sagt en flestir þessir embættismemr mínir stæð.u vel í stöðu sinni fyrst framan af og að skýrslu- gjafir gengju mér að óskum. Jafnvel ennþá lifa fullu lífi innan í mér nokkrar skýrslur, sem sérfræðingar mínir gáfu mér á þeim árum, til dæmis tvær skýrslur um nokkrar mannlegar náttúrur, skýrsla um tortímingarmátt stærstu sprengna, sem vitfirringarnir bjuggu til á þeim tímum, skýrsla um loftárás á Reykja-' vík, skýrsla um kontrapunkt- inn, skýrsla um ástamál og erótík, skýrsla um samfara- kúltúr ungs fólks nú til dags og fleiri. Og mér fór fram. En þessi menningarhátíð stóð ekki lengi. Áður en varði sótti í það horfið, að sumir sérfræð- ingar mínir yrðu þurrausnir, sumir nenntu ekki að kynna sér aðkallandi viðfangsefni, sumir tóku að daufheyrast við skýrslu- gjöfum. Nokkra þessara rak ég úr embættum. Sumir þeirra fengu uppreisn og voru settir aftur í sín fyrri embætti, aðrir skipaðir til annarra starfa. Þetta var gert til þess að gefa þeim tækifæri að hætti forsjón- arinnar. En allt kom fyrir ekki. Aldrei hefur þó fyrirtækið far- ið alveg á hausinn. Gegnum blítt og strítt hafa nokkrir rækt embætti sín ágætlega og gefa öðru hverju vandaðar skýrslur. Þú varst, vinur, í hópi sérfræð- inga minna, og sérfræði þín var gufuvélin, og mótorinn auka- grein. Á þér hafði ég einna mest traust allra sérfræðinga minna, því að á þér lá sá almannarómur, að þú værir einn af færustu vélfræðingum landsins, og að samvizkusemi þín væri með afbrigðum. En á hinn bóginn var svo ástatt um mig, að gufuvélin var það fyrir- bæri, sem ég þráði mjög að fá um mikla og vandaða fræðslu, því að hijómur hennar og hnykkir og slög höfðu æv- inlega látið í eyrum minum eins og symból upp á hjartslátt al- lífsins, sem ég hef löngum hlust- að eftir. En hver varð svo reynsla mín? Ég bað þig margsinnis að gefa skýrslu um hitt og þetta í gufu- vélinni. En þá vékst þú talinu alltaf að öðrum efnum og gafst aldrei neina skýrslu, ekki brot úr skýrslu, ekki eina setningu úr skýrslu. Þú og Halldór Stefánsson voru - einu sérfræð- ingaj- mxnir, sem aldrei gáfu nokkra skýrslu. Þegar ég bað þig að veita mér fræðslu um eitthvað í þinni vél, til dæmis um samband stimpilsins og rell- unnar aftan á skipinu, þá fórst þú að tala um silungsveiði í Baulárvallavatni eða rjúpna- skyttiri uppi á Mýrum, sem hvorttveggja var mjög andstætt mínum siðferðishugsjónum. Ég er einfaldur, eins og allir Jón Aðalsteinn Sveinsson vita, og þess vegna botnaði ég lengi vel ekkert í þessari fram- komu þinni. Höfðu þeir, sem þekktu þig bezt, gefið mér rang- ar upplýsingar um vélamenntun þína og samvizkusemi? Um þetta braut ég heilann í ein tvö ár. Þá minntist ég heimskur loksins þess, að ég hafði verið samtíða lækni í mörg ár. Ég hafði oft leitað fræðslu hjá honum um ýmislegt, sem mér lék hugúr á að vita í læknavís- indunum. En öll fræðslan, sem hann miðlaði mér í þeim vísind- um í öll þessir ár, var sú, að það væri eitthvað að vaxa bak við eyrað á mér. Það var allt og sumt. Þó var þetta einn skarpasti og lærðasti læknir landsins. Þar á móti var hann allra manna beztur og upp- byggilegastur til viðtals um skáldskap og bókmenntir, stjórnmál og alþýðufræði, jafn- vel heimspeki, dularfull fyrir- bæri og spíritisma. Hvernig átti ég að skilja þessa óiyst hans á að miðla mér svolítilli fræðslu í læknavísind- um? Sennilega álítur hann mig allt of fávísan til að botna neitt í svo sérfræðilegum efnum. Þar væri ekki vert að eyða meiru á mig en þesSu eina bak við vinstra eyrað á mér. Má- ski er hann líka orðinn svo þreyttur á þessum stunum sjúkra manna, að hann er að reyna að halda huganum frá þeim, þegar tómstundir gefast. Nú var eins og hvíslað væri að mér: Reyndu að líta á sér- fræðing þinn í vélfræðinni frá svipuðu sjónarmiði og þennan lækni. Og ég fór að hugsa: Hann er líklega svo lærður í gufuvélinni, að hann telur sér ósamboðið að segja þar um eitt orð við jafn ólærð- an mann og mig. Kannski er hann líka orðinn svo dasað- ur af hinum sískakandi og glymjandi bullum og stimpl- um, að hann vill hvíla hugann við önnur efni, þegar stönz í höfnum veita honum tækifæri tií. Þessi samanburður á þér og lækninum forðaði þér frá þeirri niðurlægingu að vera rekinn úr efpbætti sakir fá- heyrðrar vanrækslu í skýrslu- gjöfum. Það hjálpaði þér og nokkuð, að þú tókst um þessar mundir við vélstjórn á mótor- skipi, en mótorinn hafði verið aukasérgrein þín í ernbættis- skipuninni. Þú stóðst hér þó hallara fæti siðferðislega en iæknirinn. Þú hafðir tekizt á hendur að vera sérfræðingur minn, en læknir- inn lofaði aldrei neinu slíku, enda ekki um það beðinn. Þá var sérfræðingakerfið ekki komið í gang. Þá lágu allar vor- ar leiðir til átoríteta austur til Himalaja og beint til himna. Þá voru tímar hinna miklu fneist- ara og hinna himnesku brúð- guma. Þá var gaman að lifa. Ég var orðinn dauðuppgefinn á þér sem sérfræðingi í vél- fræði. En mig vantaði sérfræð- ing í alfræði. Ég hafði leitað hans lengi, en éngan fundið. Læknirinn hefði verið til val- inn í slíkt embætti. En ég vissi, að hann myndi ekki vilja tak- ast það á hendur. Þá var það þetta sameiginlega með ykkur* auk svolítils meira, sem lokkaði mig til að reyna að kynnast þeim hliðum þínum, sem ekki sneru að gufuvél og mótor,. minnugur þeirra mörgu glæsi- legu kanta læknisins, er ekki Frapxhald é ll.' SÍðu. KVÆÐIÐ UM FANGANN eftir OSCAR WELDE ^ í þýðingu Magnúsar Asgeirssonar Gefið út í 350 töhisettum eintökum í alskinni, árituðum af þýðanda. „ .... Af þýðingunni er það skemmst að segja, að hún er gerð af þeirri orðsnilld og hug- kvæmni, sem Magnúsi er lagin, nákvæm í bezta lagi og þá snöll- ust er rímið er margslungnast og vandasamast, og ber vott um næma innlifun og skilning á kvæðinu, efni þess og æðstu markmiðum.'' Ásgeir Hjartarson í formála að bókinni. „Kvæðið um fangann er eitt af mestu þýðingarafrekum Magn- úsar Ásgeirssonar og hefur stækkað við endurskoðunina. Magnúát tekst bezt, þegar mest á reynir, ..." Helgi Sæmundsson, Alþýðublaðið, 5. nóv. 1954 „Þessi perla meðal islenzkra ljóðabóka mun vissulega verða fágæt, verði hún ekki gefin út í stærra upplagi." Jónas Þorbergsson, Timinn, 1. deS. 1954. „Þá þrekraun að flytja sárs- aukaóp Wildes úr víti dýfliss- unnar á íslenzku heíur Magnús leyst með slíkum ágætum, að þessi þýðing hans er með því bezta sem hann hefur látið frá sér fara. Bókin er prýdd tré- skurðarmyndum og þannig, úr garði gerð i hvívetna, að unun er að hafa hana handa á m4íi.“ Magnús Torfi Ólafsson, Þjóðviijinn, 11. nóv. 1954 AKRAFJALL — Sími 7737. .. a

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.