Þjóðviljinn - 22.12.1954, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 22.12.1954, Blaðsíða 12
Hvcxð er komið af nýjum bókum? Hafið htigann dregur Þrjái' ásjætar barnabækur hafa komið út síðustu dagana. Er þar fyrst að telja HafiS huganri dreg- ur, eftir Dóra Jónsson. Gerist hún í útgerðarbæ og eru aðaisöguhetj- urnar tveir drengir og ein teipa. Strákana langar til að verða menn með mönnum þegar þeir útskrifast úr barnaskólanum og tekst báðum að komast á ný- sköpunartogara, öðrum sam- kvæmt leyfi, en hinn laumast um borð og gefur sig ekki fram fyrr en úti á hafi. En báðir reynast þeir dugandi drengir og vaxandi, ,og lenda í ýmsum ævintýrum úti á miðunum og i Englandi, því áuðvitað fá þeir að fara þangað iíka Þa.ð, er hressandi og haf- saltur blær yfir 'viðhorfi höfund- arins' og er bókin öllum drengj- um góður og hollur lestur. Dóri Jónsson hefur áður skrifað tvær vinsælar drengjasögur: Vaskir drengir og Áslákur í álögum. — Hafið hugann dregur er prýdd mörgum ágætum teiknimyndum. Bókin er 153 bls. og kostar 35 kr. í bandi. — Útgefandi er Haförninn. Ævintýri Þórs litla Það er aðeins vitað um einn íslenzkan dreng sem lenti í því ævintýri 5 ára gamall a.ð fara alla leið til undralandsins Ástral- íu. Dýrin þar eru svo fjarska skrítin að t. d. eitt þeirra ber börnin sín i poka framan á mag- anum. Ævintýri Þórs litla í Ástr- ajíú, nefnist lítil bók sem fjallar um aavintýri litla íslenzka drengs- ins i Ástralíu, þar sem hann kynn- ist kengúrum, öpum og mörgum öðrum skrítnum dýrum. Edit Guð- mundsson hefur samið bókina en Eggert Guömimdsson skreytt hana. — 1 henni er fjöldi mynda. Bókin er 36 bls. og kostar 12 kr. Ævintýrafjallið Ævintýrafjallið heitir síðasta aevintýrabókin sem Draupnisút- gáfan gefur út. Áður eru komnar Ævintýraeyjan, Ævintýrahöllin og Ævintýradalurinn. Allar þessar ung.lingasögur eru eftir Enid Bly- ton. Þá siðustu hefur Sigriður Thorlacíus þýtt. Ævintýrafjallið mun engu siður verða vinsælt les- efni unglinga en fyrri ævintýra- bækurnar. Það er 200 bls. prýdd nokkrum teiknimyndum. Vei'ð 40.00 kr. i bandi. Dularblómið Nýlega er komin út í íslenzkri þýðingu síðasta skáldsaga banda- rísku skáldkonunnar Pearl S. Buck, nefnist hún í þýðingunni Dularblómið. Sagan fjallar um örlög japanskrar stúlku og bandarisks hermanns. Pearl S. Buck er kunn hér á landi þvi nokkrar af bókum hennar hafa verið þýddar á íslenzku og hlotið miklar vinsældir. fÞýðandi er Andrés Kristjánsson. Útgefandi Gimli. Bókin er 210 bls. og kost- ar 58 kr. í bandi. Kaldalónslögin komin aftur Út er komið í nýrri útgáfu fyrsta heftið af Söngvasafni Sigvalda Kaldalóns, en í því eru einmitt mörg af vinsæl- ustu lögum hans, eins og t. d. Heimir, Ríðum ríðum rekum yfir sandinn og Ég lít í anda liðna tíð. Alls eru komin út sex hefti af Jögum Kaldalóns, en fyrsta heftið hefur verið ófáanlegt um lengri tíma. Kaldalóns hefur lengi verið eitt vinsæl- asta tónskáld þjóðarinnar og vinsældir hans varanlegar. í*á er einnig komið út í sér- prentun lagið ísland ögrum skorið, sem nú orðið eins- konar annar þjóðsöngur lands- manna. — Útgefandi er Kalda- lónsútgáfan. Forur Ný bók eftir Steingrím Sigurðsson Svo nefnist nýútkomin lítil bók eftir Steingrím Sigurðsson menntaskólakennara á Akur- eyri. Hefur bókin inni að halda rúmlega 20 greinar, er flestar hafa birzt áður. Margar þeirra eru um málaralist. Þegar menn gefa út gamlar greinar þurfa og Thorolf Smith blaðamenn. Ut- gef andi er Ferðabókaútgáfan. Bókin er 207 bls. Verð 65,00 kr. í rexinbandi, Töfrar tveggja heima Sjálfsævisaga brezka læknis- ins og rithöfundarins Cronins; Töfrar tveggja heima er nýlega komin út i íslenzkri þýðingu Arnheiðar Sigurðardóttur. Bók- in er 286 bls., en er þó ekki sam- felld saga höfundarins, heldu einstakra kafla og atburða í ævi hans. Bókin einkennist af hinu sama glöggskyggni höfundarins á mannleg viðbrögð og örlög og fram kemur í skáldsögum hans. Segir hann frá baráttu sinni á námsárunum, sem sveitalæknis og námumannalæknis, er loks sezt að í fínu hverfi í London og fer að stunda auðstéttarfrúr og verða dýrseldur og tekjuhár. Enn- fremur segir þar frá þegar hann verður leiður á því starfi og fer upp í sveit til að skrifa skáldsög- ur, en þar gerist þessi heiðni kaþólikki allt í einu ramtrúað- ur og heitur aðdáandi marshall- hjálparinnar, en hvort það er eitt 1 af kímnibrögðum hans að ein síð- , . » , , . - asta setning hans í bókinni er: þeir að þræða hið vandrataða i iHerra vertu mér syndugum likn_ hil milli þess efms sem kannske Samur“, skal ósagt látið. Aðdá- liefur aðeins gildi fyrir þá endur skáldsagna Cronins munu sjálfa persónulega og þess sem ekki láta sig vanta þessa bók. Hún kostar 98,00 kr. í góðu rex- inbandi. Útgefandi er Draupnis- útgáfan. * hefur almennt gildi. Steingrím- ur á til þeirra að telja að geta komið fyrir sig orði, og hann getur skrifað þannig að eftir því sé tekið. Mörgum mun þykja gaman að lesa t.d. grein- ina hans um Akureyri, hina þrautleiðinlegu „akureyrsku" og ágæti hennar. — Bókin er 112 bls., prentuð í Prentsmiðju Björns Jónssonar Akureyri. Verð kr. 30,00 óbundin. Ævisaga Thor Jensen Fyrsta bindið af ævisögu Thor Jensen; Reynsluár, er nýkomið úr. Skráð hefur Valtýr Stefáns- son ritstjóri. Þetta fyrsta bindi skiptist í eftirtalda kafla: í for- eidrahúsum, í heimtavistarskóla, íslandsferð og upphaf Borðeyr- arvistar, Um kyrrt á Borðeyri, Leit að ,fótfestu, Verzlunar- stjóri í Borgarnesi, Heimilis- hagir og búskapur í Borgarnesi og Erfið ár í Borgarnesi. Lengra er sögunni ekki komið í fyrsta bindinu. Það er 246 bls. og kost- ar 150,00 kr. í góðu bandi. Út- gefandi er Bókfellsútgáfan. Systir heisarans Nýlega er komin út skáldsagan, Systir keisarans, eftir ástralska rithöfundinn Harrison Brent. Thorolf Sniith blaðamaður liefur þýtt söguna. Söguhetjan er Pálína Bona- parte, systir Napoleons mikla Frakkakeisara, fögur kona og ekki við eina f jölina felld. Greinir sagan frá ástríðufullu lífi hennar og örlögum. Ætti mönnum því ekki að leiðast meðan þeir lesa þessa bók. Bókin er 267 bls. og vel frá útgáfunni gengið. Undir heillastjörnu Undir heillastjörnu um höf og lönd eftir bandaríska náttúru- fræðinginn og ævintýramanninn Roy Chapman Andrews, er ný- lega komin út. Segir hann þar frá námsárum sínum, starfi við nátt- úrugripasafnið í New York, hvalarannsóknum við Bandarík- in og Japan og rannsóknarferðum í Kóreu og Gobieyðimörkinni og ævintýrum víðar í Kína. Þetta er bók fyrir þá sem gaman hafa af hressandi ævintýraferðum. Þýðendur eru Hersteinn Pálsson Töfrastafurinn Nýlega er komin út skáldsagan Töfrastafurinn eftir Svönu Dún og er það fyrsta saga höfundar- ins. Fjallar hún um erfiðleika og velgengni stúlku, Önnu Stefáns- dóttur. Bókin er 316 blaðsíður, gefin út á kostnað höfundar og prentuð í Hólum. Hún kostar 58 kr. óbundin og 75 kr. í bandi. IÓÐVILJIN Miðvikudagur 22. desember 1954 ;— 19. árg j '292. tölubjað OddfeSEowhúsið opnað oftur Á annan í jólum verða veitingasalir Oddfellowhússins opnaðir fyrir almenning að nýju eftir gagngerar breýt- ingar og lagfæringar. Eru salarkynni hússiris nú oröin mjög vistleg og skemmtileg. Ný lýsing hefur verið sett í loft og á veggi og aðalsalurinn stækk- aður allverulega þannig að þar rúmast nú hæglega um 200 gest- ir við sameiginlegt borðhald í stað um 160—170 áður. Þá hefur og' ný loftræsljmg sett í húsið. Snyrtiherbergi hafa verið flutt fram í forstofuna, fatageymslan endurbætt og útbúinn sérstakur símaklefi til afnota fyrir gesti. Litir í aðalsal eru ljósir og þægilegir, en veggir eru allir klæddir plastdúki sérstakrar teg- undar. Hafliði Jóhannsson, bygginga- meistari, gerði teikningar að öll- um breytingum á salarkynnum og hafði yfirumsjón með verkinu. Eggert Guðmundsson, listmálari, gerði víraskreytingar og vegg- myndir í sal og forstofu, Halldór IVJagnússon, imálarameistari sá um málun. Húsgögn eru frá Tré- smiðjunni Valbjörk og gólfteppi frá Gólfteppagerðinni h.f. Oddfellowreglan, sem á hús- ið, kostaði allar breytingar á því ,en salirnir eru leigðir Tjarn- arkafé h.f. til veitingareksturs og er Egill Banadiktsson veitinga- maður. Hefur Egill haft á hendi veitingar í Oddfellowhúsinu alla tíð síðan það var byggt fyrir 24 árum, að undanskildum þrem fyrstu árunum. Yfirþjónn í Tjarn- arcaíé er Guðmundur H. Jónsson og matreiðslumaður Brynjólfur Brynjólfsson. Fimm manna hljóm- María Magdalena Þýdd hefur yerið á íslenzku bók Frank G. Slaughters: María Magðalena. Er þetta mikil bók, 336 bls. Skáldsaga þessi fjallar um efni gamalkunnugt kristnum mönnum, Mariu og Jósef frá Galíleu, Pontíus Pílatus o. fl. í sögu hans gerist Ma.ría Magða- lena fræg dansmey er reynir að hefna á Rómverjum fyrir yfir- gang þeirra. Eru atþurðir þeir sem þar er sagt frá hinir marg- víslegustu. Þýðandi er Hersteinn Pálsson. Útgefandi er Sóley. Frá gangur bókarinnar er góður. Verð 95 kr. í rexínbandi. Stjórnarkjör í Verkalýðsíélagi Borgarness Framsókn leggst enn auðmjúk og bljúg á höggstokk íhaldsins Borgarnesi. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Stjórnarskipti eru ákveðin í Verkalýðsfélagi Borgarness. '— í 6 ár hefur Framsóknarflokkurinn haft stjórnarforustu í verkalýðs- félaginu, en hættir þvi nú og styður til stjórnarkjörs framboðs- lista Sjálfstæðisflokksins (íhalds- ins), sem lengi hefur þráð að ná stjórn í félaginu. Þegar hernámsvinnan hófst á Keflavíkurflugvelli þótti þessum forustumönnum félagsins eðlilegt að atvinnuleysi væri hér í Borg- arnesi, svo menn héðan leituðu eftir vinnu á vellinum. Hafa menn héðan því farið burt í at- vinnuleit og margir þeirra flutt burtu. Lítið hefur verið um fundi í verkalýðsfélaginu og það litil á- hrif haft um atvinnumál hér. Þó að S.jálfstæðisflokknuin tækist að ná stjórnarforustu i fé- laginu myndi það ekki valda neimun straumhvörfum til bóta. Ilinsvegar rná búast við því að þetta traust Framsóknar á Sjálf- stæðisflokknum í verkalýðsmál- um verði notað til þess að vinna Mýrasýslu af Framsóknarflokkn- um í næstu alþingiskosningum og þakka þaiuiig fyrir traustið á Sjálfstæðisflokknum. r—------------------------------- sveit undir stjórn Josefs Felz- man mun leika þar í vetur. _ , Göngustafir blinda menn Þó bliudir meun, ba?ði hér á landi og í öðrum löndum noti hln svonefndu blindra merki, sér til ómetanlegs öryggis á götum úti, þá eru víða erlendis notaðir lultir stafir sem hafa þann eigiiileika, að lýsa í myrki-i. Þessir stafir eru mjög mikið örj-ggi fyrír hina blindu og góð leiðbeining fyrir aðra vegfarendur. Nú hefur verið horfið að því ráði, að blindir menn hér í Reykjavík notuðu þessa stafi. Það hefur verið sótt um leyfi til lögreglustjórans, - um að blindir menn fengju einir leyfi til að nota þessa stafi. En meðan þetta er ekki komið í lögreglusam- þykktina, þá eru það vinsamleg tilmæli Blindravinafélags í^- lands, að ekki aðrir noti þessa stafi. Það eru vinsamleg tilmæli félagsins til vegfarenda, að þeir veiti hinum blindu alla þá hjálp, sem nauðsynleg er í minni iniklu umferð. Jólahljómleikar í Foreldrafélag Laugarnesskóla hefur tekið upp þá nýbreytni að gangast fyrir svokölluðum jóla- tónleikum skólabarnanua nokkr- uin dögum fyrir jól. Voru fyrstu tónleikar þessarar tegnndar haldnir 16. þ. m. og fóru fram í kirkjunni, með því að ekki var hægt að koma því yið að hafa þá í skólaluisinu. Ingólfur Guðbrandsson söng- kennari stjórnaði skólakórnum og lék uhdir á orgelið. Fyrst var lagið ,,Procession“ . eftir epskt tónskáld, Benjamin Britten, sung- ið af stúlkubörnum, sem gengu jafnframt í skrúðgöngu inn í kirkjukór, og hélt hver um sig á logandi kerti. Síðan voru flutt hin og þessi falleg jólalög frá ýmsum löndum, og má þar nefna enska lagið „Betlehemsstjarnan“, lag Sigvalda Kaldalóns við „Jóla- kvæði“ séra Einars frá Eydölum, þýzka miðaldalagið „Það aldin út er sprungið" og „Heims um ból“. Fátt er eins ánægjulegt á að horfa og hlýða og syngjandi böm, og all tókst þetta prýðilega eftir atvikum og bar vitni um dugnað og áhuga söngkennarans. Guðbjörg Vigfúsdóttir kennari las upp vel sagða jólasögu eftir Þóri Bergsson. Guðjón Jónsson, fisksali kaus nýlega í Sjómannafélagi Reykj'avíkur. Sjó- mannafélagar, fellið stjórn hreppstjóra, foi'stjóra, sútara, sldfulagningameistara, skósmiða, beykja o. fl. Kjósið lista starfandi sjómanna, B-listann. Kosið er í dag frá kl. 2—10 e h. í skrifstofu félagsins Hveríis- götu 8—10 (Alþýðuhúsinu). Drag.ið ekki fram á síð- ustu stundu að kjósa. Iíosið í dag frá kl. 2—10 e.h. X B-listi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.