Þjóðviljinn - 11.01.1955, Page 7
---- Þriðjudagur 11. janúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7
:lí rO ... .• x • - T . f, r ', < -•
ALA5KA
GREENLAND |
NORWaV
CANADA
MOSCOW
SWtoEN
BRifAIN
'TURKEY'
FRANCE
SPAIN
PORTUGaL
EGYPT
U.S. SECURITY-AT STAKC IN ICELAND
THE AMERICAN BASE AT KEFLAVIK —
• Protects Easf Coasf of U. S. against Russian'bombers • Can support long-range aerial attack on Russia
• Enables U„S. to ferry short-range jets to Europe • Guards Atlantic shipping against submarines
orðnir helztu viðskiptavinir
landsmanna, og friðarsókn
Sovétríkjanna magnar fjand-
skapinn i garð þeirra 5000
bandarísku hermanna og
starfsmanna sem dveljast á
íslandi.
Af þessari ástæðu hafna
Bandaríkjamenn ekki þeim
möguleika að sú stund kunni
að vera skammt undan að
þeir verði formlega beðnir að
fjarlægja herafla sinn frá
e>Tini.“
Síðan er í greininni rætt
um hernaðarlega þýðingu ís-
lands til skýringar á mynd
þeirri sem hér er birt, en því
næst segir svo:
„íslendingar liafa alls eng-
an her. Hið fámenna lög-
reglulið er einnig óvopnað að
heita má. Kommúnistar eru
sterkir, en almenningur lætur
sig litlu skipta samsærisverk
rauðliða. Þess vegna líta ut-
anaðkomandi menn svo á að
valdataka kommúnista sé
engan veginn óhugsanleg,
enda^þótt Islendingar telji
hana fjarstæðu.
Annar möguleiki er sá að
Rússar hremmi landið á
fyrstu dögum styrjaldar.
Herfræðingar segja, að ef
Bandaríkjamenn fara burt,-
geti sovézk fiskiskip, sem
stunda að jafnaði veiðar um-
hverfis Island, sett nægilega
marga menn á land til þess
að taka landið öllum að ó-
vörum. (!)
Kommúnistar eru nú að
leita stuðnings þjóðarinnar
við kröfu um að ríkisstjómin
reki burt bandaríska herinn,
segi upp varnarsamningi Is-
lands og Bandaríkjanna frá
1951 og felli niður þátttöku
íslands í Atlanzhafsbandalag-
inu. Þeim verður mjög vel á-
gengt.
Ein skýringin á styrkleika
kommúnista hér er sú stað-
reynd að langflestir Islending-
ar hafna þeirri hugmynd að
kommúnismi sé samsærí í því
skyni að kollvarpa lýðræðinu.
Þess i stað er litið á komm-
únisma sem lögmæta . stjórn-
málahreyfingu, og beri að
snúast við honum eins og
öðram stjórnmálaflokkum. Is-
lenzku kommúnistunum er
lýst sem hugsjónamönnum og
góðum þegnum sem vilji bæta
kjör vinnandi fólks, vernda
menningu Islands og verja
sjálfstæði þess.
Þeirri hugmynd að komm-
únistar lúti boði og banni
Moskvu er hafnað. Meira að
segja Ólafur Thors forsætis-
ráðherra segir: „Leiðtogar
kommúnista eru hollir Moskvu,
en ekki óbreyttir fylgis-
menn.“
Það er sannarlega ekki lit-
ið á það sem neina smán að
vera kommúnisti í þessu landi.
I öllum stéttum, í næstum því
hverri fjölskyldu era komm-
únistar. Einn háttsettur emb-
ættismaður stjórnarinnar, sem
er í Sjálfstæðisflokknum, á
þrjá bræður og af þeim er
einn kommúnisti — „og hann
er langríkastur af okkur,“
segir embættismaðurinn og
hlær.
vist hérlendra hersveita sem
hættu fyrir sjálfstæði sitt,
tungu og menningu.
Þessi tilfinning á rætur sín-
ar' að rekja til annarrar
heimsstyrjaldarinnar, þegar
tugir þúsunda brezkra og
bandarískra hermanna sett-
ust að á eynni til þess að
koma í veg fyrir að hún
lenti í höndum Þjóðverja.
Þessi reynsla hafði mjög al-
varleg áhrif á efnahagsmál
Islendinga og þjóðlíf — og
því hafa þeir ekki gleymt
enn.
Roskið fólk óttast að þessir
5000 Bandaríkjamenn sem
nú dveljast hér muni spilla
þjóðinni, einkum æskulýðnum.
Það krefst þess að bandaríski
herinn sé algerlega einangr-
aður. Örfáir bandarískir her-
menn koma til Reykjavíkur,
en sú skoðun er ríkjandi að
bandarísk áhrif séu hættuleg.
T. d. er kvartað undan því
að útvarpssendingar frá flug-
stöð Bandaríkjanna séu að
sýkja íslenzka æsku með
jassi og bandarísku málfari.
Einnig heyrast kvartanir
um það að Bandaríkjamenn
séu að trufla efnahagslífið.
Um það bil 2.500 Islendingar
starfa á herstöðinni. Togara-
útgerðarmönnum reynist erf-
itt að fá vinnuafl, og kaup-
gjaldið hefur verið hækkað.
Um þetta er mikið rætt, en
fátt um þá almennu velmegun
sem Bandaríkjamenn hafa
fært Islandi(!).
Kommúnistar eru fljótir til
að ýkja hvern atburð og hag-
Undanfarið hafa margar
greinar birzt í bandarískum
blöðum um Island og ástand-
ið hér. Allar eiga þær það
sameiginlegt að þar er látinn
í ljós mikill uggur, það er
játað að andstaðan gegn her-
náminu fari sífellt vaxandi.
Þjóðviljinn hefur áður skýrt
frá efni nokkurra greina, og
hér fara á eftir kaflar úr
tímaritinu U.S. News & World
Report sem er eitt af helztu
málgögnum fésýslumanna í
vesturheimi. Timaritið sendi
hingað sérstakan fréttamann
í haust, og sendi hann héð-
an tvær greinar sem birtust
19. og 26. nóv. s.l. Fyrri grein-
in fjallaði um girðinguna á
Keflavíkurflugvelli, en sú sið-
ari var yfirlit um ástandið,
og er hún mjög athyglisverð.
Fara hér á eftir orðréttir
kaflar úr henni:
Bandarískur blaða-
maður lýsir sívax-
andi andstöðu ís-
lendinga við hernám
landsins
★
Það sem hjálpar rauðliðum.
Svo til einhuga andúð á
dvöl erlendra herja á íslandi
stuðlar einnig að sókn komm-
Þessi mynd aj Ólafi Thors
birtist me'ö greininni.
Undir henni stendur: „Ól-
ajur Thors forsœtisráð-
herra .. . gerir greinar-
mun á kommúnistum.“
únista til þess að grafa und-
an aðstöðu Bandaríkjanna
hér.
íslendingar, sem era tæp-
lega 160.000 talsins, líta á
„Rússar og kommúnistar
era að koma upp sterkum og
hættulegum bryggjusporði
meðal þessarar fjarlægu ey-
þjóðar, þar sem Bandaríkin
eru að gera einhverja mikil-
vægustu herstöð hins frjálsa
heims.
Athugun á staðnum sýnir
að aðstaða Bandaríkjanna á
Islandi — sem aldrei hefur
verið verulega traust — er
nú að verða ótryggari og ó-
tryggari vegna ítaka komm-
únista meðal þjóðarinnar.
Kommúnistar og annar
flokkur sem er andstæður
Bandaríkjunum fengu meira
en 22 af hundraði atkvæða í
síðustu kosningum. Rauðliðar
ráða yfir 9 Alþingismönnum
af 52. Þeir hafa hreiðrað
mjög um sig í opinberam
stofnunum og hafa vöidin í
helztu verklýðsfélögunum.
Sovétrikin njóta hér vax-
andi trausts. Rússar era
Þetta kort birtist með greininni um ísland í U.S. News & World Report. Undir kort-
inu stendur að herstöð Bandaríkjamanna í Kejlavík verndi austurströnd Bandaríkj-
anna gegn rússneskum sprengjujlugvélum; geri Bandaríkjunum fœrt að flytja
skammjleygar þrýstilojtsjlugvélar til Evrópu; geti stutt langjlugs-árásir á Sovétríkin
og verndi skipajerðir á Atlanzhafi gegn kafbátum.
kann að vera skammt undan að Banda-
ríkjamenn verði formlega beðmr
að f jarlægja heraíla sinn“
nýta sér hann. Smávægilegut'
viðburður, sem bandarískur
hermaður og islenzk stúlka
flæktust inn í, var fljótlega
blásinn upp i alþjcðar
hneyksli —- og senn hafði sá
hluti almennings sem ekki
fylgir kommúnistum að mál-
um einnig tekið hann upp.
Það Voru einnig kommúnist-
ar sem komu þeirri sögu á
kreik að lítil hvolfbygging,
sem reist hefur verið á flug-
velli fyrir rafeindatæki, sé í
rauninni ætluð sem geymsla
fyrir kjarnorkusprengjur. —-
Stórt flugskýli í Keflavík er
kallað „vítisskýlið" eftir að
blöð kommúnista skýrðu svo
frá að þar ætti að geyma
vetnissprengjur (!).
Bandarískir atvinnurekend-
ur og ýmsir embættismenm
hersins eru einnig í vandræð-
um út af verklýðsmálum.
Ráðherrann sem fjallaði um
varnarsamning Bandaríkj-
anna og íslands sakar Banda-
ríkjamenn um að beita „ein-
ræðislegum“ aðferðum. Banda
ríkjamenn, segir hann, neita.
æ ofan í æ að sætta sig við
þá starfshætti sem hér tíðk-
ast og svíkjast um að verða
við réttmætum kaupkröfum.
Fulltrúar Bandarikjanna
segja að flést vandamálin séu
sprottin af fyrirmælum um
verklýðsmál sem komin séu
frá íslenzku ríkisstjórninni
sjálfri. En sífelldar erjur í
verklýðsmálum mata áróðurs-
kvörn kommúnista æ meir.
Stríðsóttinn: horfinn.
,Friðar‘áróður Rússa styrk-
ir enn sókn kommúnista til
þess að koma bandaríska
hernum út úr landinu. íslend-
ingar eru í vaxandi mæli
þeirrar skoðunar að ekki sé
lengur þörf á bandaríslcum
her til öryggis landinu. Og
meira að segja er litið á á-
framhaldandi vist Bandaríkja-
manna hér sem ögrun við
Rússland. ‘ Stríðsóttinn, sem
olli því að Islendingar skrif-
uðu undir varnarsamninginm
við Bandaríkin, heyrir til for-
tíðinni.
Komið hefur verið á lagg-
irnar „fjörutíu manna nefnd,“
sem í eru kunnir menn með
hinar margbreytileg'ustu
stjórnmálaskoðanir — með
aðstoð kommúnista að tjalda-
baki — til þess að dreifa á-
skorun þar sem þess er kraf-
izt að bandaríski herinn hverfi
tafarlaust af Islandi.
Meira að segja íhaldssamir
embættismenn í ríkisstjórn-
inni eru beggja blands I
þessu efni. Einn ráðlierr-
anna sagði um varnarsamn-
inginn við Bandaríkin: „Við
verðum að taka þetta mál til
athugunar á nýjan leik með
tilliti til hins breytta alþjóða-
ástands þannig að hægt sé
að breyta til með árs fyrir-
vara.“
Andstætt þvi að vinsældir
Bandaríkjamanna fara stöð-.
ugt rýrnandi fá menn sífelit
meira traust á Rússum. Því er
haldið fram að Rússar dragi
úr alþjóðlegum átökum. Rúss-
ar kaupa svo til allan fisk
Islendinga, en hann er helzta
útflutningsvara eyjarinnar, og
láta í staðinn allt sem þjóðira
þarf af olíu og benzíni.
Rússar styrkja þessa að-
stöðu sina með áróðursher-
Framhald á 8. síðu.