Þjóðviljinn - 11.01.1955, Page 12
Hæstiréltur dæmir tvo meglesra
á 3 og 4 mánczðcs iangelsisvist
Komu islenzkum sfúlkum í kynni við her-
námsmenn og erlenda sjómenn
Nýlega var í Hæstarétti kveöinn upp dómur í máli
tveggja ungra íslendinga, Ingvars Diðriks Júníussonar og
Hauks Sigurjónssonar, sem voru ákæröir og dæmdir fyrir
að koma karlmönnum, aðallega erlendum hermönnum
og sjómönnum, í kynni við stúlkur og láta þeim í té
húsnæði til holdlegs samræðis og annarra kynferðismaka
gegn þóknun í peningum, áfengi, tóbaki o. fl. Var Ingvar
Diðrik (21 árs) dæmdur í 4 mánaða fangelsi, en Haukur
(23 ára) í 3 mánaöa fangelsi. Báðir voru þeir sviptir
kosningarétti og kjörgengi og dæmdir til aö greiða sak-
arkostnað í héraði og fyrir Hæstarétti.
Málavextir eru raktir mjög
ýtarlega í héraðsdómi og er frá-
sögn, sem hér fer á eftir, byggð
á honum.
Kvartaði yfir hávaða
og ónæði
í júlí eða ágústmánuði 1952
tók Haukur Sigurjónsson eitt
herbergi á leigu í bakhúsi á
Leifsgötu 4 hér í bæ, en Gunn-
laugur Þorvaldur Sigurðsson
foókbindari hefur séð um hús-
eign þessa og leigt út nokkur
lierbergi. Greiddi Háukur 300
kr. í húsaleigu á mánuði fram
til áramóta 1952/53. Stúlka
nokkur, sem bjó í næsta her-
bergi við Hauk, kvartaði und-
an því við Gunnlaug Þorvald
að Haukur drægi til sín í her-
bergi sitt hermenn og stúlkur
og hefði hávaði og óþægindi
orðið af því. Talaði Gunnlaug-
ur Þorvaidur við Hauk um
þetta og lofaði hann að fara
úr herberginu 1. des. 1952.
Drykkjusvall um helgar og á
miðvilíudagskvöldum
Við yfirheyrslu skýrði stúlka
sú, er áður var greint frá,
svo frá að hún hefði búið í
umræddu bakhúsi síðan í júlí
1952. Kvað hún allsukksamt
hafa verið í herbergi Hauks
Sigurjónssonar þá um haust-
ið, einkum um helgar og á
miðvikudagskvöldum, en þá
hafi komið þangað margar ís-
lenzkar stúlkur og hópur af
hermönnum. Stúlkan kvaðst
aldrei hafa komið inn í, herbergi
Hauks, er hinsvegar orðið
sjónarvottur að faðmlögum
stúlkna og hermanna í skotum
i gangi hússins. Á kvöldin og
næturnar hafi hún ekki komizt
hjá því að heyra sitt af hverju
af samtali þessa fólks. Hafi
henni skilizt á samtölunum, að
þeir Haukur og Ingvar Diðrik
Júníusson næðu í stúlkur
handa hermönnunum, sem
greiddu peninga fyrir ntvegun-
ina, Aidrei hafi hún þó heyrt
ákveðnar fjárhæðir nefndar.
Hermennirnir hafi lagt til á-
fcngi og peninga fyrir því og
hafi þeir svo og stúlkurnar og
þeir félagar Haukur og Ingvar
Diðrik neytt þess í herberginu
og oft orðið ölvuð.
Samtöl í herberginu og
á ganginum
Stúlkan kvaðst einu sinni
hafa heyrt hermann segja við
annanhvorn hinn dómsfelldu,
líklega Hauk, að hann (her-
maðurinn) væri búinn að greiða
honum peninga og mætti Hauk-
ur ekki svíkja hann heldur út-
vega honum tvær stúlkur, og ef
honum líkaði þær ekki, þá að
fá þá þriðju, sem hann máski
vildi nota („use the girl“).
Hafi sér skilizt að hér væri
átt við samfarir við stúlkuna.
Einnig kvaðst stúlkan oft
hafa heyrt úr herbergi sínu
þá Ingvar og Hauk spyrja her-
menn í ganginum að því, hvort
þeir hugsuðu sér eða ætluðu
að hafa samfarir við stúlkur,
sem væru í herbergi þeirra.
Hafi þeir félagar notað orða-
lagið: „Are you going to fuck
her“. Þá hafi hermenn haft orð
á því við Ingvar og Hauk, að
þeir væru búnir að hafa sam-
farir við stúlkur í herberginu
og hafi hermennirnir þá látið i
ljósi hvernig þeim hafi líkað
við stúlkurnar til samfara. Hafi
samtöl hermannanna og þeirra
tveggja félaga á ganginum
snúizt fyrst og fremst um
samfarir hermanna og stúlkna
í herberginu. Allur þessi ólifn-
aður og hávaði og vökur hans
vegna hafi knúið sig til að
kvarta við húsráðandann.
Sú þriðja getur verið
„extra“.
Tvær aðrar stúlkur, sem
bjuggu um skeið í fyrrnefndu
bakhúsi við Leifsgötu, báru
vitni í málinu og var fram-
burður þeirra mjög á sömu
lund og stúlkunnar sem áður er
getið. Önnur þessara stúlkna
skýrði m.a. svo frá að eitt sinn
hafi hún heyrt hermann segja
við Hauk, að hann (hermaður-
inn) væri búinn að greiða hon-
um peninga fyrir að útvega
honum tvær stúlkur og sú
þriðja gæti verið ,,extra“. Hafi
hermaðurinn sagzt skyldu
drepa hann, ef hann gérði það
ekki. Haukur hafi þá farið út
Nýársfagnaður
og komið með tvær stúlkur að
minnsta kosti. Þá hafi hún
heyrt þá Ingvar Diðrik og Hauk
segja við hermenn, að þeir
gætu útvegað hermönnum
stúlkur hvenær sem þeir vildu,
og ef hermennirnir væru ekki
ánægðir með þær, sem þeir
hefðu, gætu þeir fengið aðrar,
en ekki hafi þeir útskýrt þetta
frekar. Hermennirnir hafi tek-
ið boðum þessum vel.
Á veitingastofu í
Aausturstræti
Tvær afgreiðslustúlkur í veit-
ingastofunni Austurstræti 14
liér í bænum komu einnig fyrir
rétt og báru það, að Ingvar
Diðrik liafi komið nær daglega
í fyrrgreinda veitingastofu og
þá hitt oft hermenn og stúlk-
ur þar inni eða verið í fylgd
með þeim. Þá hafi Ingvar skýrt
þeim nokkrum sinnum frá
„partýum'1 heima hjá honum,
Framhald á 3. síðu.
Stjórn Bjarma
endurkjörin
Aðalfundur verkalýðs- og
sjómannafélagsins Bjarini var
haldinn sl. sunnudag. Stjórn fé-
Iagsins var öll endurkosin, en
hana skipa:
Björgvin Sigurðsson formað-
ur, Helgi Sigurðsson varafor-
maður, Guðmundur Ingjalds-
son ritari, Frímann Sigurðsson
gjaldkeri, Gísli Gíslason með-
stjórnandi.
Sjóðseignir félagsins námu
um sl. áramót rúmlega 90
þúsund krónum.
Árgjöld félagsmanna fyrir
árið 1955 voru ákveðin á fund-
inum: kr. 235.00 fyrir karl-
menn og kr. 168.00 Fyrir
konur. Fundurinn var mjög
fjölmennur.
Tveir liilar
rekast á
t
ÆFR efnir til nýársfagnaðar í
Skátaheimilinu við Hringbraut
n. k. sunnudagskvöld, fyrir fé- j
iaga sina og gesti þeirra. Dag-j
skrá verður í höfuðatriðum1
þessi:
Bjarni Benediktsson fiytur,
frásögn frá Austurþýzkalandi.1
Hendrik Ottósson flytur erindi
er hann nefnir Hervæðing yfir-
stéttarinnar og fjallar um bar-
dagann um rússneska drenginn
hans Ólafs Friðrikssonar. Jó-
hannes Jónsson fiytur gaman-
þátt. Þá koma ennfremur fram
Karl Guðmundsson leikari, og
Öskubuskur. Munu þær syngja
nokkur iög á dansieiknum, sem
fagnaðinum lýkur með.
Samkoman hefst kl. 8.30. Nán-
ar síðar.
HJÓÐVIUINN
Þriðjudagur 11. janúar 1955 — 20. árgangur — 7. tölublað
Viðsjár í Hið-Amerlku
CosSa Rica kærir Nicaragua íyrir
að uudirbúa árás
Stjórn Costa Rica í Mið-Ameríku hefur kært stjórn
nágrannaríkisins Nicaragua fyrir aö undirbúa árás á
land sitt.
Kæran er borin fram við Sam- I bandaríska auðfélagsins United
Aðfaranótt sunnudagsins rák-
ust tvær fólksbifreiðar á ná-
lægt vegamótum Reykjanes-
brautar og Sléttuvegar í Foss-
vogi. Bílstjórinn í 4ra manna' hann °§ einræðisherra Hondur-
band Ameríkurikja, sem hefur
aðsetur í Washington.
i
Liðsamdráttur
Á fundi í gær gerði sendiherra
Costa Rica í Bandaríkjunum
grein fvrir kærunni. Kvað hann
það lengi hafa verið vitað, að
ævintýramenn og valdabraskar-
ar frá Costa Rica hefðu fengið
griðland í Nicaragua og aðstöðu
og fé til að afla sér vopna og
þjálfa lið til að ráðast inn í
landið, steypa þjóðkjörinni stjórn
José Figueres forseta frá völd-
um og hrifsa þau sjálfir.
Nú er þessi viðbúnaður kom-
inn á það stig, sagði sendiherr-
ann, að taka verður skjótt í
taumana ef ekki á verra af að
hljótast. Mikið lið hefur verið
dregið saman í Nicaragua rétt
við landamæri Costa Rica. Stjórn
Nicaragua, sem hafði þegar öfl-
ugasta flugher í Mið-Ameríku,
hefur fest kaup á 25 Mustang
orustuflugvélum í Svíþjóð.
Krefst ráðstefnu
Sendiherrann gerði þá kröfu
fyrjr hönd stjórnar sinnar, að
utanríki: ráðherrar Ameríkjuríkj-
anna ko.ni saman á ráðstefnu
þegar í stað til að ákveða að-
gerðir til !>ess að friður haldist
í Mið-Amei íku.
Sendiheri > Nicaragua í Banda-
ríkjunum kvað sakirnar sem á
stjórn sína væru bornar álygar
einar. Að beiðni hans var um-
ræðum um kæruna frestað þang-
að til. í dag.
ELnar lýðræðisstjórnin
Stjórn Figueres í Costa Rica
er eina lýðræðislega kjörna
stjórnin í Mið-Ameríku síðan
stjórninni í Guatemala var
steypt af stóli með innrás frá
einræðisríkjunum Honduras og
Nicaragua í sumar. Somoza for-
seti Nicaragua, sem hefur stjórn-
að þar með einræðisvaldi í rúma
tvo áratugi, er í miklu afhaldi
hjá Bandaríkjastjóm. Rétt fyrir
innrásina í Guatemala gerðu
bílnum lilaut skurð á andlit,
og tönn brotnaði í munni hans;
og stúlka sem hjá honum sat
skarst í andliti og liggur nú í
sjúkrahúsi. Hinn bílstjórann
sakaði ekki, og var hann einn
í sínum bíl.
Orsök árekstursins mun hafa
verið sú að bílstjórinn á stærri
bíinum fékk aðsvif sem snöggv-
ast, og rann þá bíll hans í veg
fvrir liinn.
as hernaðarbandalag við Banda-
ríkin og samtímis hófust þangað
miklir vopnaflutningar með
flutningavélum bandaríska flug-
hersins.
United Fruit Co.
Ein meginástæðan til þess að
Bandaríkjastjórn studdi innrás-
ina í Guatemala var að þjóð-
kjörin stjórn landsins hafði gert
upptækt nokkuð af jarðeignum
Kosnmgin í Sjómannafélaginu
Kjósið B-Iista, lista starfandi sjómanna. Kosning fer
fram daglega í skrifstofu Sjómannafélags Reykjavíkur
frá klukkan 10 til 12 og 3 til 6.
Fruit Co„ sem hefur mikil ítök
í öllum ríkjum Mið-Ameríku.
Svo vill til að Figueres forseti
í Costa Rica hefur einnig átt
í útistöðum við United Fruit upp
á síðkastið. Því verður þó ekki
trúað að óreyndu að Bandaríkja-
stjórn varpi sér út í nýtt Guate-
malaævintýri, slík áhrif sem
það hafði á almenningarálitið
um alla rómönsku Ameríku.
halda skemmtíin
Næstkomandi fimmtudags-
kvöld 13. janúar er skeinmti-
kvöld í Skátaheimilinu, sem
lúðrasveitir bæjarlns og Lúðra-
svelt Hafnarfjarðar standa fyr-
ir.
Verður þar spiluð félagsvist
og dansað og einnig verða önn-
ur skemmtiatriði.
Lúðrasveitirnar hafa ákveðið
að halda slík skemmtikvöld einu
sinni í mánuði það sem eftir er
vetrar, og skiptast þær á um
að sjá um skemmtiatriði fyrir
hverja skemmtun.
Skemmtikvöld þessi, sem eru
að frumkvæði Lúðrasveitar
Reykjavíkur, eru ætluð til að
efla starfsemi lúðrasveitanna
og auka kynni félaganna, en
eins og allir vita er starfsemi
lúðrasveita ekki mikil um vetr-
armánuðina og vantar þær oft-
ast verkefni til að starfa að.
Þama gefst aðdáendum lúðra-
sveita einnig gott tækifæri til
að hlusta á skemmtilegan
lúðrasveitarleik.
Kína og Júgóslavía
skiptast á sendi-
herrum
Tilkynnt var í gær í Peking,
að Kína ög Júgóslavía hefðu
oi'ðið ásátt um að taka upp
stjórnmála3amband og skipt-
ast á sendiherrum. Sendiherrar
ríkjanna í Moskva önnuðust
viðræðurnar, sem leitt liafa til
þessa samkomulags. Júgóslavía
viðurkenndi alþýðustjórn Kína
strax og hún var mynduð 1949
en tilkynningunni um það var
ekki svarað fyrr en í haust.
í dag kemur Mendés-France,
forsætisráðherra Frakklands, til
Rómaborgar til bess að ræða við
Scelba, forsætisráðherra Ítalíu.
Ætlar Mendés að reyna að fá
hinn ítalska starfsbróður sinn til
að styðja frönsku tillöguna um
að sett verði á laggirnar .stofn-
un, sem fái i hendur yfirstjórn
allrar vopnaframleiðslu í Vestur-
Evrópu. Stjórnir Bandaríkjanna,
Bretlands og Vestur-Þýzkalands
finna tillögunni allt til foráttu.