Þjóðviljinn - 29.01.1955, Síða 3

Þjóðviljinn - 29.01.1955, Síða 3
Laugardagur 29. janúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Björgun skipverjanna á Agli rauÖa Framhald af 1. síðu. ana í björgunarstólinn og var það erfitt verk og kalt þar sem sjór gékk stöðugt yfir hið strandaða skip. Ólendandi á strandstaðnum Fréttaritari Þjóðviljans ræddi í gær við stjórnanda björgun- armannanna, Símon Helgason. Sagðist honum svo frá að kl. hálfsjö um kvöldið hefði til- kynningin um strandið borizt og slysavarnasveitin verið köll- uð. Björgunarsveitin lagði af stað með vb. Heiðrúnu kl. 9:30 um kvöldið og kom á strandstað- inn um miðnætti. Ógerningur var að lenda nokkurstaðar á ströndinni í grennd við strand- staðinn og urðu þeir því að fara. inn til Hesteyrar og lenda þar. björgunarsveitin hafði komið línu um borð í togarann vildu skipverjar þeir sem eftir voru um borð allir fai'a í land frekar en að vera bjargað jrfir í bát- inn. Gekk björgunin tiltölulega greiðlega og var björgun hinna 16 manna lokið um kl. 3. Heppnin með Þegar björgunarmennirair fóru á strandstaðinn urðu þeir að fara hátt upp í fjallið þar sem ófært var með sjónum. Þegar björguninni var lok- ið var komin fjara og var því hægt að komast um fjör- una fyrir klettinn þar sem ó- fært hafði verið áður. Stytti þetta og auðveldaði mjög leið- ina að eyðibýlinu Sléttu, enda voru skipbrotsmennimir og björgunarmennirnir allir komn- ir þangað eftir tvær stundir. lagðist á hliðina og f>mmta manninn sem fórst mun hafa tekið fyrir borð. Frostlaust var um nóttina þó hríð væri og gátu skipverjar hafzt við um nóttina í brúnni og kortaklefanum, en það var eini staðurinn á skipinu sem var uppi úr sjó. ★ Skipbrotsmennirnir af Agli rauða eru væntanlegir hingað til bæjarins í dag. Upphaf stórnt- gerðar á Norður- landi á 19. öld Á morgun, sunnudaginn 30. jan. kl. 2 e. h. heldur próf. dr. Þorkell Jóhannesson háskóla- rektor fyrirlestur í hátíðasaln- um, er hann nefnir Uppkaf stór- útgcrðar við Norðurland á 19. öld. Mun þar rætt um breytingu þá, er verður á sjávarútvegi með tílkomu þilskipa og uppgang hákarlaveiðanna fram um miðja öldina. Margeir Steingrímsson varð skákmeistari Xorðurlands en Gaðjón M. Sigurðsson fékk flesta vinninga — Hann teflir við 39 menn á morgun Akureyri. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Snjóbuxur Skíðabuxur j á börn og fullbrðna og all- ; ar aðrar tegundir af síðbux- j um úr vönduðum og góðum 5 ullarefnum. ÁLAFOSS, | Þingholtsstræti 2. Keppni í meistaraflokki á skákþingi Norð'urlands er lokið og vann Margeir Steingrímsson titiliim skákmeist- ari Noröurlands meö 4 vinningum en Guöjón M. Sigurðs- son, er tefldi sem gestur á mótinu, fékk flesta vinninga 5Í4 af 6 mögulegum. Erfíð ferð Um kl. 5 vora þeir komnir á land á Hesteyri og lögðu þá af stað á strandstaðinn, sem er löng leið og erfið. Björgun- armennirair voru 19 talsins, 6 frá ísafirði, 12 af togaranum Austfirðingi og 1 af Ægi. Veð- ur var mjög hvasst og vo"t og voru þeir ekki komnir á strand- staðinn fyrr en kl. 1:30 eh. um daginn. ( Björgun gekk greiðlega Frá landi voru ekki nema 20-30 metrar út í Egil og þegar Aðalfundur Ferðamálafélags Reykjavíkur Aðalfundur Ferðamálafélags Reykjavíkur var haldinn s. 1. miðvikudag. Formaður félagsins flutti skýrslu um starfsemina á liðnu ári, en haldnir höfðu verið 48 fundir frá því félagið var stofnað í desember 1953. Hafði stjómin haldið fjölmarga fundi með ýmsum aðilum, svo sem ráðherrum, borgarstjóra, banka- stjórum, vegamálastjóra, varð- andi ferðamál. Fjörugar umræður urðu á fundinum um margvísleg mál, sem skyld eru þeirri hugsjón að gera ísland að fjölsóttu ferða- mannalandi. Virtust menn sam- mála um það, að ísland hefði marga kosti til að bera, sem ákjósanlegir eru fyrir ferða- mannaland, en þó væri langt í land enn, að fslendingar gætu kinnroðalaust tekið á móti mörg- um erlendum ferðamönnum. Þyrfti mikið átak og almennan skilning hjá landsmönnum til þess að geta skapað jafn þýð- ingarmikinn atvinnuveg og mót- taka erlendra ferðamanna er. Stjórn' Ferðamálafélagsins var endurkjörin, en • hana skipa: Agnar Kofoed-Hansen, formaður; Gísli Sigurbjörnsson, varaform.; Halldór S. Gröndal, ritari; Lúð- víg Hjálmtýsson, gjaldkeri og meðstjómendur Ásbjörn Magn- ússon, Eggert P. Briem og Njóll Símonarson. 80 næturgestir — og leiá vel Skömmu síðar kom annar leiðangur björgunarmanna, skipverjar af togurum og skíðamenn af fsafirði, með fatnað og matvæli og le’-ð því öllum vel um nóttina, þótt um 80 manns muni hafa verið í bænum. Þótt bærinn hafi verið í eyði í nokkur ár eru húsa- kynni þar enn allgóð. Kl. 9 í gærmorgun var farið út í skip hjá. Sléttu, því sjó hafði lægt mjög. Sparaði það öllum hina löngu og mjög erf- iðu leið á landi alla leið til Hesteyrar. Komu skipbrots- menn til ísafjarðar um hádeg- ið. Brotnaði fijótlega Egill rauði mun hafa brotnað í tvennt 10-15 mínútum eftir að hann strandaði og munu þá tveir menn hafa farizt. Aðrir tveir munu hafa. farizt niðri í vélarrúmsganginum er skipið Annar Norðlendinga í meist- araflokki varð Július Bogason með 3% vinning. Jón Ingimars- son og Sigurður Jónsson fengu 3 vinninga og Kristjón Jónsson 2. í I. flokki eru keppendur að- eins 5 og er Sigurður Jónsson efstur með 4Yz vinning og bið- skák og næstur Randver Karls- son með 4 vinninga. í II. -flokki er keppni lokið. Efstur varð Ingimar Friðfinnsson með 4 vinninga. Næstir eru Jón- as Elíasson og Marinó Tryggva- íslandskvikmynd Framhald af 12. síðu. ina á nokkrum næstu árum. Frumsýningin í dag verður að- eins fyrir boðsgesti, en önnur sýning verður á morgun, sunnu- dag, klukkan þrjú, og verður þá seldur aðgangur meðan húsrúm leyfir. son með 3% vinning hvor. í gærkvöld tefldi Guðjón fjöl- skák við 10 meistaraflokksmenn á Akureyri og á morgun teflir hantj fjölskák við 30 menn sam- tímis. H9911 1 ® i 8 i ■ iHMIRIiaiHIIIRIIRIBIIIIHIIIIIHIIHiltlllllllHIIIHIIIIItllllllHIIIVBIIIIIIIIIIIIIIIIIHM Skattairamtöl Þeir, sem ætla að fá hjá mér aðstoð við sk&ttaframtöl sín, eru beðnir að tala rið mig sem allra fyrst. Þorvaldur Þórai'insson, lögfrœ$ingar, Þórsgötu 1. Símar 6345, 5391. !■»■■■■■■■•■••••■■■■•■■■■■•■•■■■■■■•■■■■■■■■■• Veiti aðstoð við skattoframtöl Opi'ð til kl. 7 í kvöld og frá kl. 2—7 á morgun, sunnudag. INGI B. HÉLGAS0N, lögfrœðingur, Skólavörðustig 45, sími 82207. ■■■■■■■••■■•■■■■■■••■*■•■•■•••■•■•«•■■■•■••••■■•■•< Félag íslenzkra hljóðfæraleikara Kauptaxti 4. Frá og með 1. febrúar 1955 koma eftirfarandi breyt- ingar á kauptaxta Félags íslenzkra hljóðfæraleikara til framkvæmda. 1. Tímakaup haldist óbreytt (kr. 40.50 pr. klst. grunn- kaup) kr. 55.92 með öllum uppbótum, samkvæmt núverandi vísitölu. 2. Á hátíðisdögum þjóðkirkjunnar, öllum laugardögum, öllum almennum fridögum (öðrum en óbreyttum sunnudögum) skal greiða 25% ála.g á almennt tíma- vinnukaúp. 3. Almennir frídagar teljast: Sumardagurinn fyrsti, 1. maí, fyrsti mánudagur í ágúst og 1. desember. — 17. júni og gamlárskvöld haldist óbreytt frá því sem verið hefur. Yfirvinna reiknast frá kl. 2 eftir miðnætti alla laug- ardaga, en frá kl. 1 eftir miðnætti alla aðra daga ársins, og greiðist hún með sama álagi eins og verið hefur. Fyrir plötuupptöku skal greiða kr. 250.00 lágmarks- gjald á plötusíðu fyrir hvern hjóðfæraleikara, og er innifalin í því greiðsla fyrir 2y2 klst. æfingu og upp- töku. Fari vinna við æfingu og upptöku fram úr 2y2 klst., skal greiða fyrir hverja byrjaða V2 klst. sam- kvæmt gildandi kauptaxta félagsins. Taxti sá, sem um getur í 5. lið skal ná yfir 500 ein- tök af plötum. Ef steyping skyldi fara fram úr þvi, skal greiða hljómsveitinni 5% af útsöluverði plöt- unnar af hvei'ri plötusíðu og deilist sú upphæð jafnt á alla hljóðfæraleikara sem inn á plötuna leika. Miða skal við steypingu á plötum en ekki sölu. Kauptaxti félagsins haldist að öðru leyti óbreyttur. Kauptaxti félagsins ásamt framangreindum breyt- ingum gildir til 1. júlí 1955. Uppsagnarfrestur skal vera einn mánuður. Sé taxtanum ekki sagt upp sam- kvæmt framansögðu framlengist hann um sex mán- uði í senn með sama uppsagnarfresti. Reykjavík, 28. janúar 1955.' Félag íslenzkra hljóðfæraleikara

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.