Þjóðviljinn - 29.01.1955, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 29.01.1955, Qupperneq 12
hafa þegar sagt • Verkamannafélagið Dagsbrún hefur sagt upp samn- ingum sínum við atvinnurekendur og ganga þeir úr gildi 1. marz n.k. Samtals munu nú þegar nokkuð yfir 10 verkalýðsfélög hér í bænum og nágrenninu hafa sagt upp samningum sínum. Auk Dagsbrúnar hafa eftirtal- ín félög sagt upp samningum: Hlíf í Hafnarfirði, Félag járniðn- aðarmanna, Sveinafélag skipa- smiða, Mjólkurfræðingafélag ís- lands, . ASB, félag afgreiðslu- stúlkna í brauða- og mjólkur- sölubúðum, Fóstra, Félag bif- vélavirkja og ennfremur Laun- þegadeild Verzlunarmannafélags Reykjavíkur. f nágrenninu er þegar vitað um Hlíf í Haínar- firði, Verkalýðsfélagið í Sand- gerði og Verkalýðs- og sjó- mannafélag Keflavíkur mun hafa lausa samninga. Ókeypis aðstoð vi5 skattaframtöl Nú fer hver að verða síðastur að skila skattaframtali, en skattaskýrslueyðublöðin voru borin út fyrir skömmu. Þeim til athugunar sem e. t. v. hefðu hugsað sér að leita til einhvers þeirra sem stunda þá atvinnu að telja fram fyrir fólk, og taka fyrir það meira eða minna gjald, að leiðbeiningar og aðstoð við framtöl sín geta menn fengið í Skattstofunni daglega frá kl. 9 að morgni til kl. 9 að kvöldi —- og fylla starfsmenn Skattstofunnar út ókeypis fyrir þá sem óska aðstoðar þeirra. í gær hófst allsherjaratkvæða- greiðsla hjá Múrarafélagi Reykja víkur um uppsögn samninga. Heldur hún áfram í dag og lýk- ur í kvöld. Þá munu einnig nokkur félög til viðbótar ræða uppsögn samn- inga þessa dagana. Fundir Norður- landaráðs hafnir Fundur Norðurlandaráðsins hófst í Stokkhólmi í gær og fór fram kosning forseta. Sig- urður Bjarnason var kosinn einn af þremur varaforsetum. Hann flutti ræðu í gær, og sagði að hingað til hefði starf ráðsins valdið Islendingum von- brigðum. Æftingjum fanga í Kína hannað að fara þangað Bandaríska utanríkisráðuneyiið neitar að gefa þeint vegabréf Bandaríkjastjórn hefur tilkynnt, að hún muni ekki veita ættingjum bandarískra fanga í Euna vegabréf þangað. Utanrikisráðuneytið gaf út til- kynningu í fyrrakvöld, þar sem tekið er fram að ekki verði unnt að veita þeim mönnum vegabréf, sem kynnu að vilja taka. boði kínversku stjórnarinnar til ætt- ingja þeirra 17 Bandaríkja- manna, sem sitja í kínverskum fangelsum, að heimsækja þá. Foster Dulles utanríkisráð- herra hefur sent öllum ættingj- um fanganna bréf þar sem hann segir að Bandaríkjastjórn þyki miður að þurfa að taka þessa ákvörðun. Hins vegar telji hún ■*«** Ný Islandskvikmynd sýnd í Gamla bíó er Nordisk Tonefilm tók s.l, sumar í dag veröur frumsýnd í Gamla bíó íslandskvikmynd, sem sænska kvikmyndafélagið Nordisk Tonefilm tók hér á landi í fyrrasumar, og er þetta ein af þremur kvik- myndum, sem Svíarnir tóku þá. Þessi mynd, sem er 45 mín- útna mynd í. hinum fegurstu lítum, var gerð fyrir samvinnu- sambönd allra Norðurlandanna. Er myndin fyrst og fremst ís- landsmynd, ætluð til sýninga er- lendis, en leggur þó aðaláherzlu á að sýna í svipmyndum starf samvinnufélaganna. Nordisk Tonefilm sendi sér- stakan leiðangur þriggja manna til þess að taka „Viljans merki“ en notaði auk þess ýmsa sér- fræðinga og tæki, sem hér voru vegna „Sölku Völku“. Kvik- myndastjóri var rithöfundurinn Jöran Forsslund, sem kunnur er af greinum og bók, sem hann hefur skrifað um ísland. Mynda- tökumaður var einn af reynd- ustu og viðurkenndustu mönnum Svía á því sviði, Elner Akeson, en þriðji maður í ferðinni var Erik Park. Kvikmynd þessi hefur þegar verið frumsýnd í Stokkhólmi. en búið er að gera texta við hana á íslenzku, sænsku, dönsku, norsku, finnsku og ensku. Má því heita öruggt, að milljónir manna erlendis muni sjá mynd- Framhald á 3, síðu. að það sé óviturlegt eins og mál standa nú að leyfa Bandaríkja^ mönnum að fara til Kina. Útvarp Bandaríkjahers sagði í gær, að foreldrar sumra fang- anna hefðu látið í Ijós sár von- brigði yfir þessari ákvörðun stjórnarinnar og teldu að hún hefði brugðizt þeim. TAI V AN Framhald af 1. síðu. Hann sagði að Bandaríkin hefðu engan rétt til að verja eyjar eins og Kvimoj og Matsu. Samþykkti þingið slíka heimild til forset- ans, jafngilti það stríðsj-firlýs- ingu á hendur Kína. Tundurdufl við Tasjen Fréttaritari AFP í Taipe á Tai- van símar þaðan, að skip úr flota aiþýðustjórnarinnar hafi lagt tundurdufl umhverfis Tasj- eneyjar og sé það ástæðan til, að skip sem farin voru þangað til að flytja burt hermenn Sjangs séu ekki komin aftur til Taivans. HlðÐVlUINII Laugardagur 29. janúar 1955 — 20. árgangur — 23. tölublað Þuríður Pálsdóttir tekur við hlutverki Stinu B. Melander Ura 10 þúsund manns hafa nú séð óperurnar I Pagli- acei og Cavalleria Rusticana í Þjóöleikhúsinu, en 17. sýning þeirra var í gærkvöld fyrir fullu húsi. í kvöld verða óperumar sýndar í 18. sinn og er enn uppselt. Sænska óperusöngkonan Stina Britta Melander, sem undanfarið hefur farið með eitt af aðalhlut- Stina Britta Melander í hlutverki Neddu í óperunni I Pagliaeci. verkunum í I Pacgiacci, er nú á förum til Svíþjóðar, þar sem húh er ráðin við sænska Ríkisleik- húsið. Söngkonan gat ekki feng- ið leyfi frá leikhúsinu lengur en til 1. febrúar og syngur hún því í síðasta sinn í óperunni í Þjóð- leikhúsinu í kvöld. Óperusýningar Þjóðleikhúss- ins hafa verið mjög vel sóttar eins og áður er getið og því nær uppselt á hverja sýningu. Vegna hinna miklu aðsóknar hefur leikhúsið gert ráðstafanir til að íslenzk söngkona taki að sér hlutverk það, sem Stina Britta Melander fór með í I Pagliacci, þannig að ópersýningarnar þurfi ekki að falla niður. Hefur frú Þuríður Pálsdóttir tekizt hlut- verkið á hendur og munu óperu- sýningarnar því hefjast að nýju í Þjóðleikhúsinu í lok næstu viku. Verða þá hlutverkin í báð- um óperunum eingöngu skipuð íslenzkum söngvurum. Hlíf samþykkir einróma uppsögn Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfiröi hélt mjög fjöl- mennan fund í fyrrakvöld til aö ræða uppsögn samninga og var samþykkt einróma aö segja samningum upp. Þeir ganga úr gildi 1. marz. Formaður Hl-ifar, Hermann Guðmundsson, hafði framsögu um uppsögn samninganna, en það var eina umræðuefni fundar- ins. Að ræðu hans lokinni urðu engar umræður, svo sjálfsagt fannst fundarmönnum að segja samningunum upp. Var vippsögn- in samþykkt einróma með at- kyæðum nær allra þeirra er á fundinum mættu. Verkamannafélagið Hlíf og verkakvennafélagið Framtíðin höfðvi í gær sameiginlegt spila- og' skemmtikvöld. Er þetta fyrsta sameiginlega skemmtikvöldið sem félögin halda, en fleiri verða haldin síðar í vetur. ymuhreyfingln i éfi hervæðingu f er af sfað í Hefsi með mófmœíafundi sem haldinn verÓur i Pá!skirk]u i Frankfurf Hin skipulagða og samræmda barátta allra andstæð- inga hervæðingarinnar í Vestur-Þýzkalandi gegn Parísar- samningunum og fullgildingu þeirra hefst í dag með fjölda- fundi í Pálskirkju í Frankfurt am JVlain. Til fundarins er boðað af leiðtogum sósíaldemokrata, verkalýðshreyfingarinnar og annarra samtaka, m.a. þýzku mótmælendakirkjurinar. Meðal ræðumanna verða þeir Erich Ollenhauer, foringi sósíaldemo- krataflokksins og Walter Frei- tag, formaður vesturþýzka al- þýðusambandsins. Fundarliöld um allt landið Þessi fundur verður upphaf- ið að fundarhöldum um allt landið til að mótmæla hervæð- ingunni. Allir leiðtogar sósíal- demokrata munu ferðast um landið og flytja ræður á þess- um fundum, sem mörg stjórn- mála- og menningarsamtök standa að. Þessi fundarhöld munu standa allan febrúarmán- uð, eða þartil þingið í Bonn fær Parísarsamningana til end- anlegrar afgreiðslu 24.—26. febrúar. Bomistjórnin óttaslegin Forystumenn stjórnarflokk- anna komu saman á fund í Bonn í gær og var Adenauer í forsæti. Á fundinum var rætt um á hvern hátt stjórnin og flokkar. hennar gætu stöðvað sókn andstæðinga hervæðingar- innar. Á fundinum var ákveðið að stjórnarflokkarnir skyldu boða til funda um allt landið til að reka áróður fyrir her- væðingunni, og tilkynnti Aden- auer eftir fundinn, að hann myndi sjálfur halda meirihátt- ar ræður á þrem stöðum, í Hannover, Dortmund ogFrank- furt. Þá verða gefnir út bæk- lingar þar sem hervæðingin er vegsömuð og þeim dreift um allt land og áróðursspjöld fest upp í borgum og bæjum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.