Þjóðviljinn - 11.02.1955, Síða 6

Þjóðviljinn - 11.02.1955, Síða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 11. febrúar 1955 llJÓOVIUINN Útgefandt: Sameinlngarflokkur alþýðu — Sósialistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guö- mundur Vigfússon, Xvar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig 19. — Sími 7500 ( 3 línur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði i Reykjavik og nágrennl; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintaklð. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. ______________________________________________________/ J Morgunblaðið hefur áhrif Morgunblaðið gerir nú tíðrætt um Vestmannaeyjar og ham- ast ákaflega gegn því að sjómenn fái fullt verð fyrir hlut sinn, þrátt fyrir það þótt Hæstiréttur hafi með dónri staðfest af- dráttarlausan rétt sjómanna. Þessi afstaða blaðsins hefur þegar haft mikil áhrif í Vestmannaeyjum. Eins og Þjóðviljinn hefur skýrt frá var fyrir skömmu aðal- fundur Verkalýðsfélags Vestmannaeyja. 1 því félagi hefur alla tíð verið hægri sinnuð stjóm og íhaldið haft úrslitatök þegar til átaka hefur komið. Lagði íhaldið hið mesta ofurkapp á að halda þessari aðstöðu sinni áfram, og reyndi enn með samning- um að koma á laggimar stjóm sem engir sósíalistar ættu sæti í. En þessi tilraun mistókst herfilega; verkamenn neituðu al- gerlega að fara í nokkm eftir leiðsögn íhaldsins. Og þegar bor- Inn var f ram listi, þar sem hin stéttvísu vinstri öf 1 sameinuðust án tillits til flokkspólitiskrar afstöðu, var svo af íhaldinu dregið að það þorði ekki einu sinni að bjóða fram; listí vdnstri manna varð sjálfkjörinn. Ihaldið vissi sem var að ef til kosninga kæmi fengi það svo herfilega útreið að það myndi vekja þjóðarathygli, og þá var skárra að skríða í skjól. Það er engum efa bundið að þessi ánægjulegu úrslit em af- leiðing af skrifum Morgunblaðsins um málefni Vestmannaey- inga. Verkafólk þar eins og annarstaðar finnur nú betur en nokkm sinni fyrr að Sjálfstæðisflokkurinn er aðeins tæki auð- mannastéttarinnar, braskara og milliliða, að hann beitir allri aðstöðu sinni til að traðka á réttindum verkafólks. Það er því ástæða til að biðja Morgunblaðið að halda ósleitilega áfram á iSömu braut. ! Dómur um „bjargráð" I Morgunblaðinu í gær er birt níðgrein um réttlætiskröfur sjómanna í Vestmannaeyjum, og er þar m.a. vikið að þróun fisk- verðsins á undanförnum árum. Segir þar svo orðrétt: „Með gengislækkuninni var almennt búizt við að fiskverð myndi hækka, en þegar á árið leið þóttí sýnt að hagur útgerðar- innar færi ört versnandi, þar sem verðlag á nauðsynjum útvegs- Ins hafði stórhækkað á erlendum markaði, en fiskverð hafði hins vegar ekki hækkað á árinu heldur lækkað." Þetta er stórathyglisverður dómur um gengislækkunina í blaði sjálfs forsætisráðherrans. Eins og menn muna hélt Morgun- blaðið því fram af miklum ákafa að gengislækkunin væri „bjargráð" sem sérstaklega ætti að bæta hag útgerðarinnar, þannig að hún yrði „arðbær“ á nýjan leik. Reynslan varð þó sú að gengislækkunin varð nýtt tækifæri fyrir milliliðina til þess að arðræna útgerðina. Er þessi niðurstaða Morgunblaðsins þeim mun athyglisverðari, sem þetta sama blað hefur nú dag eftir dag í hótunum um nýja gengislækkun til þess að „rétta við hag atvinnuveganna."!! ' Framsékn hefur í hétunum í Blað utanríkisráðherrans ræðir í gær um hin ofboðslegu níð- skrif brezkra blaða og aðra framkomu Breta í okkar garð og kemst m.a. svo að orði; „Fari hins vegar svo, að við fáum enga leiðréttingu mála okkar í samtökum sem hafa frið og frelsi að kjörorðxun, hljóta tslendingar að endurskoða þá afstöðu sína, hvort þeir eigi nokkra samleið með því fólki, sem gerir sér það til dundurs að reyta af þeim æruna. Ef við megum bara lána landið okkar und- ir herstöðvar, en fáum engan framgang okkar mikilvægustu •mála eða uppreisn æru, þá vaknar sú spurning, hvort valda- menn Islands eigi áfram að sitja hjá fulítrúum Breta í Atlanz- hafsbandaiaginu og Evrópuráðinu, og skeggræða við þá í ein- ingu andans og bandi friðarins.“ Þessi ummæli munu lýsa mjög skýrt afstöðu meginþorra þjóðarinnar, og það er athyglisvert að þau skuli birtast í mál- gagni þess ráðherra sem fer með utanríkismál. En orðin eru ódýr, og nú er eftir að sjá reyndina hjá þeim flokki sem áður taldi affarasælast að verkin töluðu. Hitt skulu ráðamenn Fram- sóknar gera sér ljóst að kokhraustir menn njóta lítils fylgis til lengdar ef þeir heykjast þegar á hólminn kemur. ■■■hhhhhhaihhihhhhihihiihhhhhihi UNGA STÚLKAN OG SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN ■ : ■ * s ■ Það var einu sinni ung stúlka og það er ekki lengra síðan en svo, að hún er enn- þá ung og vonandi í bezta gengi. Þessi unga stúlka vann á stórum vinnustað hér í bæ og eins og gengur bar þar margt á góma. Dag nokkurn lenti hún í stælum við ungan verka- mann á staðnum. Hún hélt því fram, að Sjálfstæðisflokkurinn væri vinveittur verkafólkinu og vildi hag þess sem beztan. Hann hélt því fram að þetta væri stundum í orði, en aldrei á borði, og full- yrti að Sjálfstæðisflokkurinn hefði aldrei stutt verkafólk í neinni vinnudeilu. Svona þráttuðu þau um þetta fram og aftur, unz hann bauð henni að veðja um það, hvort hún gæti fundið nokkurt dæmi þess, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði stutt verkafólk í vinnu- deilu. Unga stúlkan tók veðmál- inu og hóf síðan leitina. Hún kynnti sér marga ár- ganga Morgunblaðsins, en í hverri vinnudeilu sem þar var skrifað um, fann hún bara skammir um verkalýð- inn og kröfur hans. Hún gekk fyrir ráðherra og þingmenn og spurði þá hvenær Sjálfstæðisflokkur- inn hefði stutt verkalýðinn í vinnudeilu, en aldrei þessu vant misstu þeir allir málið. Hún fór til margra kunn- ingja sinna og spurði, en enginn gat svarað henni. Hún fór í Holstein og yfirheyrði yfirmenn og und- irgefna, og þar var gáð í skjöl og skilriki, en þar fundust engir pappírar henni í hag. Þó rámaði ein- hvern í að forysta Sjálfstæð- isflokksins hefði einhvern- tíma hygglað Friðleifi eitt- hvað einhverntíma, þegar honum sárlá á! En nú gat unga stúlkan ekki gert meira. Hún sá að hún hafði tap- að veðmálinu, þirátt fyrir samvizkusamlega leit. En hún sá fleira: Hún sá, að það var á einskis manns færi að vinna þetta veðmál, því að öll skrif Morgunblaðsins í öll- um vinnudeilum sönnuðu hið gagnstæða: að forysta Sjálfstæðisflokksins hafði aldrei í neinni vinnudeilu tekið afstöðu með verkafólk- inu, heldur alltaf á móti því. Hún sá, að ef afstaða Morgunblaðsins hefði ráðið, þá hefði kaupið aldrei hækkað, heldur væri það nú eins og það var fyrir ára- tugum síðan. Hinsvegar sá hún líka, að aldrei í neinu tilfelli hafði Morgunblaðið ráðizt á gífur- lega auðsöfnun og óhóf • yfirstéttarinnar, alltaf að- : eins ráðizt á verkalýðinn og : oft með ókvæðisorðum. — Þannig fór um veðmál : ungu stúlkunnar. —• Nú standa yfir tvær : vinnudeilur, önnur í Vest- : mannaeyjum, hin á flutn- : ingaskipum. I hvorugri deilunni hefur : Morgunblaðið lagt launþeg- • um Fið, heldur þvert á móti ■ dembt ókvæðisorðum yfir ■ sjómenn og forystu þeirra. ■ Framundan eru aðrar j vinnudeilur, þar sem mörg : verkalýðsfélög með þúsund- : um meðlima (hvar af margir : eru sjálfstæðismenn) telja, : að ekki sé lengur hægt að : lifa við núverandi launakjör. | Þessar launadeilur verða s nýtt stórapróf á forystu ■ Sjálfstæðisflokksins og blað : hans, Morgunblaðið. Tekur það afstöðu með : verkalýðnum eða móti? Á unga stúlkan að upplifa : einn eina sönnun þess, að : Sjálfstæðisflokkurinn leggi : verkalýðnum aldrei lið í : neinni vinnudeilu? Tugþúsundir verkafólks : og landsmanna yfirleitt : munu á næstu vikum hafa • forystu Sjálfstæðisflokksins j og Morgunblaðsins undlr ■ smásjánni. • Með eða móti verkalýðn- : um? Það er veðmálið. 11 Amerískt tákn 11 í Vísi, mánudaginn 10. jan- úar 1955, er grein eftir séra Sigurð Einarsson, er hann nefnir: Inflúenzan, Adam og Ameríka. Grein þessi er mjög skemmtilega skrifuð, og auk þess f jallar hún um mikilvægt vandamál, sem margar þjóðir heims hafa nú við að stríða og þar á meðal Islendingar. Efni hennar á erindi til allra hugsandi manna, hvaða stjórnmálaskoðanir sem þeir annars hafa. Nú er það vitað mál, að þótt margir kaupi Vísi, þá eru þeir líka senni- lega margir sem sjá hann ekki. Mér datt þess vegna í hug að vekja athygli manna á grein þessari og um leið að lesa hana vandlega. Eg get ekki stillt mig um það úr því að ég er að minn- ast á greinina, að taka upp úr henni nokkrar setningar, sem sýnishom. Efni greinarinnar er aðal- lega um bækur sem séra Sig- urður las á ferðalagi er- lendis, á meðan að hann lá þar í inflúenzu. Enda kall- ar hann lestur þessara 3ja bóka lyfseðil í inflúenzulegu. Og hér kemur þá sýnishomið af honum. „Spguhptjan í Let it come down heitir Nelson Dyar og hann er í rauninni svo amer- ískur, að hamingjan má vita, hvort hann á ekki eftir að lifa í vitund sem amerískt tákn, eins og t.d. Babbitt. Og á yfirborðinu lítur Nelson Dy- ar út eins og meðaltals Bandaríkjamaður, sem í marg- víslegum árekstmm og reynslu lífsins er að lappa upp á siðferðishugmyndir sín- ar og basla við að breyta þeim. En hér em verri hlutir í efni, en svo heillavænleg lífsþróun. Hið óhugnanlega um Nel- son Dyar er einmitt það, að í honum er ekki snefill af sið- ferðilegri vitund. Það sem kemur honum í stað siðferði- legrar vitundar er sú ástríðu- fulla löngun meðaltalsmanns- ins að rekast hvergi á, falla árekstralaust inn í hvaða um- hverfi, sem er. Þetta lífsvið- horf heitir á amerísku to con- form.------— Hann getur aldrei staðið einn á gmnni, sem er hans eigin. Og þegar hann loks lendir í hringiðu þeirrar spill- ingar, sem er erfðasynd Evr- ópu frá sjónarmiði Nelsons Dyar og Cóuls Bowles, höf- undar bókarinnar, þá er sá einn munur á henni og spill- ingu Nelsons Dyar, að hún er meðvituð, lifuð og skynj- uð án fárlegra blekkinga um eigið sakleysi. Og þegar svo Nelson Dyar hefur gert sig sekan um nokkumveginn öll lögbrot og glæpi, sem hugs- anlegt er að manni sé auðið að drýgja, þar á meðal morð, þá verður ekki hjá því komist að lesandanum verði ljóst að þetta hefur hann allt gert í einhverju dularfullu sakleys- isástandi, sem ekki er í ætt við rándýrsins eðlisbundnu grimmd, og þaðan af síður við nokkum mannlegan lífs- gmndvöll. Og þar sem hann er hér staddur, sem brotamaður að reglum hvers mennsks samfé- lags, sem hann kynni að eiga stundardvöl í, kemur ástmey hans og varar hann við þeim dauða, sem vofir yfir honum, þá er fyrsta ósjálfráða við- bragð hans og fyrsta sjálf- ráða orð hans, ekkert annað en andsvar hins væmna, há- væra, úrræðalausa ameríska vanaþræls. Því að þessi ó- mennski satan í mynd manns, hefur í rauninni aldrei átt annað áhugamál en að rek- ast ekki á, semja sig að að- stæðunum, vera ,nice‘ við alla og alstaðar. Höfundurinn leiðir arabiska stúlku sem Hadija heitir inn á lífsbraut þessa manns og takast með þeim miklar ást- ir. En ást hans til hennar á sér engan fastan undirgmnn í neinu, sem kallast mætti mennsk tilfinning, fremur en Framhald á 9. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.