Þjóðviljinn - 11.02.1955, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 11.02.1955, Blaðsíða 12
Tugþúsundir manna hrakt- ir frá heimilum sínum VopnuS lögregla flytur 80.000 Afrikumenn frá heimilum þeirra i Jóhannesarborg Vopnuð lögregla hóf í dögun í fyrramorgun brottflutn- ing 80.000 Afríkumanna úr úthverfum í vestui’hluta Jóhannesarboi’gar. Þurfti hún aö beita fólkið, sem ekki vildi yfirgefa fátækleg heimili sín, valdi og hótunum. Brottflutningur þessa fólks er í samræmi við stefnu stjórn- ar Suður-Afríku undanfarin ár, Pinay gafst upp Antoine Pinay gafst upp að mynda stjórn í Frakklandi í gærmorgun. Hann tók þá á- kvörðun eftir að stjórn Ka- þólska flokksins (MRP) hafði neitað honum um stuðning. Áð- ur höfðu sósíaldemókratar og kommúnistar lýst yfir and- stöðu sinni við hann. Coty forseti reyndi að fá •Pinay til að halda áfram til- raunum sínum, en þegar það tókst ekki, fól hann Pfimlin, einum leiðtoga kaþólskra, að reyna. Pfimlin gegndi embætti landbúnaðarráðherra í átta rík- isstjómum frá 1947—1951. að aðskilja eftir því sem frek ast er unnt kynþættina, sem í landinu búa. Fluttir út fyrir borgina Á miðvikudaginn voru 100 fjölskyldur fluttar burt frá heimilum sínum til nýrra heim kj-nna, sem reist hafa veríð um 15 km frá Jóhannesarborg. Brottflutningurinn hófst kl hálffjögur um morguninn og kom hann flestum á óvart, þar sem tilkynnt hafði verið, að hann ætti ekki að hefjast fyrr en eftir nokkra daga. Þó höfðu 30 fjölskyldur, sem átti að flytja þennan morgun, komið sér undan og fundust hvergi. Vopnuð vélbyssum Lögregla, vopnuð vélbyssum, ruddist inn á heimili fólksins, vakti það af svefni og smalaði þvi saman út á götur. Þar Búnaðarþing sett í gær Setning Búnaðarþings hófst kl. 10 f.h. í Góðtemplara- húsinu, þar sem þingið verður haldið. Fonnaöm* Búnað- arfélags fslands, Þorsteinn Sigurösson bóndi á Vatnsleysu setti þingið með ræðu. Næst á eftir talaði Steingrím- ur Steinþórsson landbúnaðarráð- herra. Var þá kosin kjörbréfa- nefnd og fundi síðan frestað. Nokkrir fulltrúar voru ókomn- ír. Þar sem hér er um að ræða nýkjörið þing hafa nokkrar breytingar orðið á skipun þess, þannig að nú sitja þingið sex nýir fulltrúar. f ræðu sinni minntist formað- ur á ýms helztu mál landbúnað- arins. Ræddi m. a. nokkuð um þrjú lagafrumvörp er nú eru á döfinni um þau mál og hann taldi mjög nauðsynlegt að Ný IvíjalniA verður reist við Réttarholtsveg Bæjarráð samþykkti í fyrra- dag að úthluta Mogens Mogensen lyfjafræðingi lóð undir lyfjabúð á horni Réttarholtsvegar og Sogavegar. Skemmtim ÆFR! ÆFR heldur skemmtikvöld í ingabúð (uppi) 20.30. spila- og | Breiðfirð- i kvöld kl. I DAGSKRÁ: 1. Félagsvist (verðl. veitt). | 1 2. Viðhorf í kaupgjaldsmál- i unum. Guðm. J. Guð-: ■ mundsson). 3. DANS. 1 Félagar geta vitjað að-: göngumiða fyrir sig og gesti: sína í skrifstofu ÆFR kl. ; 5-7 e. h. í dag. fengju sem bezta afgreiðslu. Eru það frumv. um tilraunastarf- semi í þágu landbúnaðarins, frumv. um breytingar á jarð- ræktarlögunum og frumv. un breytingu á lögum um ræktunar- og húsagerðarsamþykktir sveitum. Þá minntist formaður einnig á búnaðarfræðsluna og taldi mjög mikið á skorta að hún væri nógu góð. Taldt nauðsyn að fjölga héraðsráðunautum og væri það fyrst og fremst fá- menni er gerði minnstu sam- böndunum erfitt fyrir með að hafa ráðunauta. Eitt bókarverð frá hver.iuni bónda til að auka búnað- arfræðsluna Þá minntist formaður einnig á að framlag bændanna sjálfra til Framhald á 3. síðu. Forseti efrideild- ar ávítir Eggert Þorsteinsson Þau tíðindi gerðust á fundi efri deildar í gær, að forseti hennar, Gísli Jónsson, skýrði frá að engin ástæða væri til umkvörtunar með störf nefnda þeirri deild Alþingis, enda hefði engin kvörtun um það borizt frá þingmönnum, að mál þeirra tefðust óhóflega í nefnd- um. Ávítaði hann þingfréttaritara Alþýðublaðsins (sem blaðið hefur skýrt frá að sé Eggert Þorsteinsson alþingismaður) fy|ir óréttmæt ummæli í garð þingnefnda efri deildar. var það látið upp á vöruþifreið- ar þar sem lögreglumenn gættu þess og því ekið til hinna nýju heimkynna. Vopnuðum lögreglu mönnum hafði verið komið fyr- ir meðfram allri leiðinni sem ekin var. Komast ekki til bæjarins Enda þótt hin nýju húsa- kynni séu ekki verri en þau sem fólkið hefur búið í, hefur allur þorri þess neitað að fara af frjálsimi vilja. Ræður þar miklu um, að fyrirvinnur fjöl- skyldnanna geta ekki komizt til vinnu sinnar frá hinum nýju heimkynnum, fæstir þeirra eiga nokkur farartæki, enda hefur enginn vegur verið lagður það- an til Jóhannesarborgar. Húsin jöfnuð við jörðu Hús þessa fólks í úthverfum Jóhannesarborgar verða jöfnuð við jörðu og byggð ný hús handa fólki af evrópskum ætt- um. Engu máli skiptir hvort Afríkumennimir eiga húsin sem þeir búa i og lóðirnar sem þau standa á; þeir verða allir reknir burt og hús þeirra lögð í eyði. Jóhannesarborg hefur verið eini staðurinn í Suður- Afríku, þar sem Afríkumenn hafa fengið eignarrétt á landi, sem þeir og forfeður þeirra fæddust í. ftJÓÐVIUINN Föstudagur 11. febrúar 1955 — 20. árgangur — 34. tölublað Brezki sendiherrann hér telur ofmikið gert úr níðskrifunum Skipshöinum hættara við óveðrum vegna stækkunar fiskveiðilandhelginnar? Þjóðviljanuxn barst í gær eftirfarandi frá brezka sendi- herrunum í Reykjavík: „Vegna blaðaummæla und- anfarið um afdrif brezku tog- aranna „Lorella“ og „Roderigo“ úti fyrir norðurströnd íslands vildi ég gera mönnum Ijóst, að ábyrgir blaðamenn á Bretlandi láta sér á engan hátt koma til hugar að hægt sé að ásaka ís- lenzk j-firvöld. Þrátt fyrir það, 3em vissir einstaklingar hafa gefið i skyn, er það útilokað, að nokkrir á- byrgir, brezkir aðilar haldi fram neinum „ákærum’1. Allir réttsýnir íslendingar munu sjálfsagt skilja það, að brezkum sjómönnum virðist svo, eins og íslenzkum sjómönn um mun einnig virðast, að skipum og skipshöfnum sé hættara við óveðrum i opnu hafi vegna þess, að reglurnar frá 1952 geri bæði íslenzkum og erlendum skipum erfiðara að leita landvars, þegar storm- ar nálgast. Eg vil leggja áherzlu á það að það ríkir sorg í Englandi vegna þess að íslenzkir sjó- menn fórust á sama tíma og áhafnir brezku togaranna týnd- ust. Eg vil og láta í ljós samúð FuIItruar Helsingforsborgar gestir Reykjavíkur næsta snmar Fulltrúai* borgarstjórnarinnar í Helsingfors koma hing- að á sumii komanda sem gestir bæjax'stjórnar Reykja- víkur. Snemma í janúar s. 1. var borgarstjóminni í Helsingfors skrifað og henni boðið að senda hingað fulltrúa í heimsókn næsta sumar. Er nýkomið svarbréf frá * yfirborgarstjóranum í Helsing- fors, Ero Rydman, þar sem hann þakkar boðið og tilkynnir að því sé tekið með þökkum. Ekki mun afráðið hvenær hin- ir finnsku gestir koma en allar líkur til að það verði síðari hluta júnímánaðar. Á s. 1. sumri bauð Helsingfors bæjarstjórn Reykjavíkur í heim- sókn og tóku þátt í förinni bæj- arráðsmennirnir Geir Hallgríms- son, Guðm. H. Guðmundsson, Guðmundur Vigfússon, Magnús Ástmarsson, dr. Sigurður Sig- urðsson, 1. varaforseti bæjar- stjórnar og Tómas Jónsson, Alþýðaher Kína endurskipulagðnr Tilkynnt var i Peking í gær, að alþýðuher Kína verði endur- skipulagður. Verður hann ekki lengur byggður á sjálfboðaliðum, en almenn herskylda tekin upp í landinu. Liðsforingjum verður fjölgað og verða foringjastigin 14. Hið nýja skipulag hersins er byggt á reynslu Rauða hersins. borgarritari. Dvöldu þeir viku- tíma í Helsingfors; Mendes snýr sér að áfengisvörnum Mendes-France, fyrrv. for- sætisráðherra Frakklands, var í forsæti í gær á fundi nefnd- ar sem stjórn hans skipaði til að vinna gegn áfengisbölinu. Hann sagðist vona, að sú stjórn sem við völdum tæki styddi nefndina í starfi hennar og veitti henni nauðsvnlegt fé. Utanríkisráðu- neyti í öllum sovétlýðveldum Tassfréttastofan skýrði frá því í gær, að forsæti Æðsta- ráðs Sovétríkjanna hefði heim- ilað einstökum lýðveldum Sov- étríkjanna að taka upp eigin utanríkisþjónustu og landvarna ráðunejti . Hingað til hafa aðeins þrjú af lýðveldunum, Rússland, Hvítarússland og Úkraína haft eigin utanríkisþjónustu. með fjölskyldum þeirra, sem fórust. Brezka þjóðin þakkar þá hjálp, sem Slysavarnafélag Islands, varðskipið Ægir og flugher Bandaríkjanna veittu við leit að skipunum meðan ó- veðrið stóð. Björgunartilraunir Slysavarnarfélagsins og land- helgisgæzlunnar hafa jafnan sýnt hver bræðrahugur rikir hér í garð sjómanna annarra þjóða í anda hinnar beztu sjó- mennsku.” Nýtt útvarps- stöðvarhús við Hagatorg Hin fyrirhugaða nýbygging Ríkisútvarpsins verður reist við Hagatorg, vestan íþróttavallar- ins. Samþykkti bæjarráð í fyrra- dag tillögu skipulagsnefndar um þessa staðsetningu hússins, sem raunar er staðfesting á gömlu fyrirheiti til Ríkisútvarpsins er gefið var þegar húsbyggingar- málið var á döfinni fyrir um áratug síðan. Gerði þá banda- rískur arkitekt uppdrætti að byggingunni en ekki mun af- ráðið hvort þeir verða nú notað- ir óbreyttir er ráðizt verður í byggingu hússins. *)*) Faxi44 fékk neitun Samþykkt var á fundi bæjar- ráðs í fyrradag að verða ekki við umsókn Björgúlfs Sigurðsson- ar o. fl, um að mega reka bif- reiðastöðina Faxa að Hafnar- stræti 23. Eins og áður hefur verið skýrt frá er „Faxi“ þessi klofningur út úr harkarafélag- inu, sem íhaldið veittl stöðvar- réttindi við Langholtsveg. 3500 virkir félagar sækja um 9000 æf- ingatíma á ári Framkvæmdastjórn íþrótta- bandalags Reykjavíkur hafði fund með blaðamönnum í gær og skýrði þeim frá helztu störfum á liðnu ári og því sem framundan er nú í sumar. í skýrslunni kom fram að kostn- aður hinna 20 starfandi íþrótta félaga hér í bænum vegna kennslu nam á liðnu ári um 530 þús. krónum, en nú eru innan þessara félaga um 3500 virkir félagar sem sækja um 9 þúsund æfingatíma á ári á íþróttavöllum, í fimleikasölum og skíðalöndum. — Verður nánar sagt fi'á yfirlitsskýrslu ÍBR á Iþróttasíðu blaðsins á morgun.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.