Þjóðviljinn - 27.02.1955, Síða 1
Sunmidagur 27. febrúar 1955 — 20. árgangur — 48. tölublað
íhaldið fer hamförum gegn jbvi oð samningar takist
Gjaldeyrisbraskarcirnlr hóta að hætta úi
gerð verði samið við verkafólk!
Þeim nægir ekki að hala ræní þjóðina 20 miiljón-
uin króna með róðrarhanninu í Vestmannaey|um
Gjaldeyrisbraskaramir við Faxaflóa — þeir hinir
sömu sem rændu af þjóðinni 20 milljónum króna
með róðrarbanninu í Ves'tmannaeyjum — sendu í
gær frá sér yfirlýsingu, þar sem þeir segja að kaup-
gjald á íslandi sé allt of hátt og hóta því að hætta
allri útgerð ef samið verið við verkafólk um kjara-
bætur!!
Hnsbruni og
• p
Ihaldið virðist hafa skipulagt
það að nú skuli daglega dynja
á þjóðinni nýtt áróðursplagg
þar sem hamazt er á móti því
að gengið verði til samninga
við vertdýðsfélögin. Hrinan í
gær kom frá gjaldeyrisbrösk-
urunum í Landssambandi ís-
lenzkra útvegsmanna. Voru það
fjögur vélrituð blöð, þar sem
braskaramir lýsa yfir því að
þeir séu alltaf að tapa á út-
gerð sinni og stafi það af „of
háu kaupgjaldi". Niðurstaðan
er hins vegar þessi furðulega
hótun:
„Verði samið um kauphækk-
anir, án þess að bæta útgerð-
inni jafnhliða útgjaldaaukning-
una, sem af þeim stafar, er
bæði vélbáta og togaraútgerð-
inni íþyngt svo, að ekki verður
kleift að halda útgerðinni á-
fram. Samþykkir fulltrúaráðs-
fundur L.í.tJ. því, að tilkynna
deiluaðilum og ennfremur Al-
þingi og ríkisstjóm, að útgerð-
armenn geti ekki haidið áfram
útgerð vélbáta og togara með
auknu tapi frá því sem nú er“.
'jér Ös'vífin fyrra
Það er ósvífin firra að halda
fram að hagur útgerðarinnar
sé erfiður vegna þess að kaup-
gjald sé of hátt. Afurðir út-
gerðarinnar eru greiddar í
gjaldeyri, og miðað við gjald-
eyri hefur kaupgjald verka-
fólks á íslandi lækkað mjög
stórlega á undanförnum árum.
1947 hafði Dagsbrúnarverka-
maður 2.10 dollara í kaup um
tímann; nú er kaup hans að-
eins 0.90 dollarar um tímann.
íslenzkir verkamenn hafa
langtum lægra kaup en t.d.
bandarískir, séu borin saman
annarsvegar afköst íslenzku
Kosið í Félagi ísl.
rafvirkja í dag
frá kl. 2—10
í dag er seinni dagur alls-
herjaratkvæðagreiðslunnar um
stjóm og aðra trúnaðarmenn í
Félagi ísl. rafvirkja. Kosið er
frá kl. 2—10 í skrifstofu fé-
lagsins Edduhúsinu.
Kjósið x B-listi.
útgerðarinnar og hins vegar
kaupgjaldið sést að kaup-
greiðslurnar til sjómanna eru
hér aðeins lítið brot af þvi sem
annarsstaðar tíðkast og langt-
um minni hluti af rekstrar-
kostnaðinum. íslenzkur sjómað-
ur aflar að meðaltali 70 tonna
á ári, en meðaltal á sjómann
hjá Norðmönnum sem næstir
koma, er 10 tonn!
^ Burt með afætumar
Eins og sjá má af þessu
er íslenzkur útvegur ákaflega
arðbær, og munu fá dæmi fund-
in um hliðstæða gróðamynd-
un. En gróðinn er hirtur af
miklum herskara milliliða sem
ræna og rupla. Umtalið um
halla útgerðarinnar er aðeins
fölsuð bókfærsla til þess að
blekkja verkafólk — gróðinn
er falinn hjá milliliðunum. Og
gjaldeyrisbraskararnir við
Faxaflóa — þeir sem sendu út
áróðursplaggið í gær — eru að
verða fremstir í flokki ræn-
ingjanna. Þeir stela á hverju
ári milljónafúlgum frá útgerð-
inni, enda sér það ekki á per-
sónulegu líferni þeirra að þeir
séu „alltaf að tapa“! Það væri
sannarlega mikið tilhlökkunar-
efni ef þessi braskaralýður
stæði við það að hætta að
skipta sér af utgerðinni þegar
búið er að semja við verka-
fólk um sjálfsagðar kjarabæt-
ur; þjóðin myndi þá koma
skynsamlegra fyrirkomulagi á
útgerðarmálin. En það er því
miður lítil hætta á þvi að þeir
hlaupi frá gróðalind sinni ótil-
neyddir.
ára leikafmæli
Haralds Björns-
sonar
Haraldur Björnsson leikari á
40 ára leikaraafmæli á fimmtu-
daginn kemur. Þann dag mun
hann leika í Þjóðleikhúsinu í
leik eftir franska höfundinn
Anouilh. Verður þessa merka
afmælis leikarans minnzt við
það tækifæri.
gnpatjona
Patreksfirði
í gærmorgun brunnu pcn--*
ingshús, fénaður og hey á bæn—
um Sólvöllum við Patreksf jörð.
Eldsins varð vart um kl. 6
um morguninn og varð ekkl
við hann ráðið. Allt sem í hús-
unum var brann, 1 kýr og 13
sauðkindur, svo og heybirgðir.
Hænsnum í áföstum skúr vaifl
flestum bjargað.
Húsin og gripirnir voru vá"-*'
tryggð.
Hallvarður kom-
inn fram
Vélbáturinn Hallvarður frá
Súgandafirði, sem óttast var
um í fyrrakvöld kom til Súg-
andafjarðar í gær. Hafði vél-
arbilun valdið töf bátsins, en
rafgeymir taltækisins hafði
tæmzt svo hann gat ekki látið
heyra til sín.
Ifiakkunnn!
Fulltrúa- og trúnaðar—
mannafundur í Sósíalistafé-
lagi Reykjavíkur verður
þriðjudaginn 1. marz kl. 8.30
e.h. í Baðstofu iðnaðar-
manna.
Félagar eru beðnir um að
fjölmenna og mæta stund-
víslega. Stjórnin..
Bæjarstjómarmeirihlutinn í Hafnarfirði hefur feng-
ið Yilyrði fyrir láni til frystihússbyggingar
Vonir sfanda til að framkvœmdír hefjist innan skamms
Ihaldsineim börðust gegsi stolnun bæjarútgerðai*-
iimar og viama nii gegis því að hím byggi Irystilms
Um nokkurt skeið hefur meirihluti bæjarstjórnar Hafn-
arfjarðar unnið að því að útvega lán til byggingar frysti-
húss, sem einnig gæti annazt ísframleiðslu. Hefur nú
fengizt vilyrði fyrir 6 millj. kr. erlendu láni til þeirra
framkvæmda. En þar sem þetta lán er aðeins til 5 ára,
hefur jafnframt verið leitað til Framkvæmdabanka ís-
iands, sem nú hefur lofað 3.5 millj. kr. láni til 13 ára,
erlenda lánið verður afborgunarlaust fyrstu 2 árin.
Fjárfestingarleyfis og annarra
nauðsyníegra leyfa til lántök-
unnar, hefur verið aflað og
frumteikningar þegar verið gerð-
ar ásamt kostnaðaráætlun. ÖII-
um frekari undirbúningi verður
hraðað svo sem kostur er, og
standa vonir til að framkvæmd-
ir geti hafizt áður en langt imi
líður. Gísli Sigurbjörnsson for-
stjóri, sem unnið hefm' að út-
vegun lánsins, er nú erlendis
til þess að ganga endanlega frá
lántökunni.
Mikilvægt hagsmunamál
Þarflaust er að rekja fyrir
hafnfirzku verkafólki, hvílík
nauðsyn er á því að þetta hrað-
frystihús komist upp, þvi að
undanfarin sumur hafa Hafn-
firðingar orðið að horfa upp á
það að togarar þeirra hafa orðið
að leggja upp afla sinn utan
bæjarins, vegna þess að frysti-
hús í bænum hafa ekki megnað
að taka á móti aflanum. Hafa
þannig ómældar fjárhæðir glat-
azt Hafnfirðingum.
Bygging þessa væntanlega
hraðfrystihúss Bæj arútgerðarinn-
ar mun bæta úr þessu ófremdar-
ástandi og tryggja að hafnfirzkir
togarar geti landað afla sínum
öllum til vinnslu í Hafnarfirði,
enda afkastageta þess miklum
mun meiri en nokkurs þeirra
frystihúsa, sem fyrir eru í bæn-
um.
íhaldið á móti
Þetta mikla átak meirihluta
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar
mun þannig valda þáttaskilum
í atvinnumálum bæjarins og
auka verulega atvinnumöguleika
og atvinnuöryggi verkafólks á
sjó og landi.
Bæjarstjórnarmeirihlutinn og
verkalýðssamtökin hafa ávallt
lagt áherzlu á það, að Bæjarút-
gerðin eignaðist sitt eigið hrað-
frystihús.
Sjálfstæðisflokksmenn hafa
hinsvegar verið andvigir því.
Þáttur þeirra í þessu máli er
athyglisverður og ætti að vera
verkafólki lærdómsríkur, enda
er hann í fullu samræmi við
afstöðu þeirra til Bæjarútgerðar-
innar bæði fyrr og síðar. En
eins og kunnugt er börðust þeir
gegn stofnun Bæjarútgerðarinnar
í upphafi, en þykjast nú bera
hag hennar mjög fyrir brjósti
með því að vera á móti því að
hún auki starfsemi sína með
byggingu liraðfrystihúss!!
Vildu ná undirtökunum
sjálfir
Þegar fyrst var farið að ræða
um að Bæjarútgerðin byggði
hraðfrystihús, létust Sjálfstæðis-
flokksmenn vera málinu fylgj-
andi, þar sem þeir töldu að erf-
iðleikarnir á útvegun lánsfjár til
byggingarinnar myndu reynast
óyfirstíganlegir, en ekki væri
vænlegt að ganga í berhögg við
yfirlýstan vilja*1 verkalýðsfélag-
anna og flestra bæjarbúa um að
bærinn eignaðist sitt eigið
frystihús.
En þegar allar líkur bentu til
þess síðast liðið sumar, að tak-
ast myndi að útvega nægjanlegt
lánsfé til framkvæmdanna,
breyttist afstaða Sjálfstæðis-
flokksmanna skyndilega, og
tóku þeir að berjast gegn því,
að Bæjarútgerðin reisti frysti-
hús. I þess stað vildu þeir stofna
hlutafélag um fyrirtækið, þar
sem þeir sjálfir hefðu undirtök-
in um stjórn alla og arðgreiðsl-
ur, en Bæjarútgerðin legði fram
stórar fjárhæðir, svipað og átti
sér stað um Lýsi & Mjöl h. f.
Það fyrirtæki á bærinn að hálfu'
eða rúmlega það, en hefur
aldrei fengið einn eyri í arð af
650 þús. kr. hlutafé. Jafnframt
var ætlun þeirra, að lán það,
sem meirihluti bæjarstjórnar út-
vegaði, rynni til hlutafélagsins.
I
Almenn ánægja
Þessi stefna Sjálfstæðisflokks—■
manna ætti ekki að koma nein—
um á óvart, því að Sjálfstæðis-^ '<
Framhald á 12. síðu.