Þjóðviljinn - 27.02.1955, Side 4
rMMMfaiiiaaflitflflaaaiiiiiaiiiiiiiiflifiiiiiitfMiiiaiiiiaiuiiiiiiiiitifliiiiiiiflauiaai
4) _ ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 27. febrúar 1955
Vestmannaeyjabréí — Lofið alltaf gott
stund Gröndals eða hlustenda?
Ös'ka-
G. G. SENDIR eftirfarandi bréf
frá Vestmannaeyjum:
,,Ég get ekki látið hjá líða
að biðja þið, kæri Baejar-
póstur, að koma á framfæri
fyrir mig bezta þakklæti til
forráðamanna Þjóðviljans fyrir
Oskastund barnanna, sem ný-
lega er byrjað að birta í blað-
inu. Það er kærkomið fyrir
yngstu lesendurna. Ég á 9
ára gamlan dreng sem telur
dagana þar til Óskastund birt-
ist í blaðinu. Hann langar svo
mikið að eignast möppu utan
um blöðin og nota ég nú tæki-
færið til að senda þér þessar
línur um ieið og ég panta
möppuna. Ég hef heyrt fólk
láta í ljós þá skoðun, að Þjóð-
viljinn sé smekklegasta dag-
blaðið að öllum frágangi sem
gefið sé út hér á landi, og tek
ég eindregið undir það álit. Vil
ég því líka í því sambandi
nefna heimilisþáttinn í blað-
inu. Hann er oftast mjög
skemmtilegur og gagnlegur.
Svo er það þátturinn hans
Gupnars Benediktssonar um út-
varpið. Það eru oft verulega
skemmtileg skrif. Þakka fyrir-
fram ef þú getur birt þessar
línur. Skrifa meira seinna ef
þetta fer ekki i bréfakörfuna.
Blessaður á meðan. — G.G.“
ÖLLUM ÞYKIR lofið gott og er
það gaman að heyra að Óska-
stund barnanna gerir líka
lukku í Vestmannaeyjum. En
það eru fleiri óskastundir til
en Óskastund barnanna í Þjóð-
viljanum. Það er lika til Óska-
stundin hans Benedikts Grön-
dals í útvarpinu og sjálfsagt
á hún sína áhangendur, en
sumir hafa ýmislegt að henni
að finna eins og sjá má af
eftirfarandi bréfi.
Arnkell skrifar:
„Hálfsmánaðarlega í klukku-
tima í hvert skipti ræður Bene-
dikt Gröndal ríkjum í útvarp-
inu. Hann hefur nefnt þennan
þátt sinn Óskastund og á
manni að skiljast að í henni sé
leitast við að verða við óskum
hlustenda sem koma þeim á
framfæri með því að skrifa
þættinum. En margir eru
þeirrar skoðunar að þarna séu
það óskir Benedikts Gröndals
sjálfs sem njóti sín umfram
allt, því að lítið þýði að senda
inn bréf með tiltölulega sann-
gjörnum óskum, þær séu alls
ekki teknar til greina. Ekki
skal ég dæma um hvað rétt er
í þessu en kunnugt er mér um
tvö bréf sem bæði voru send
inn þó nokkru fyrir áramót og
hafa enga úrlausn fengið enn.
Annað bréfið var frá krakka
sem síðan hefur setið- við-, Út-
varpið lon og don og beðið
eftir laginii sínu en án árang-
urs. Ef til vill er skýringin sú
að svo mikið af óskum berst
að, að röðin er alls ekki komin
að þessum bréfum, én síðan
þau bæði voru skrifuð hafa ó-
tal mörg lög verið spiluð æ ofan
í æ. Og nú er spurningin. Eftir
hverju er farið þegar vinzað er
úr óskunum? Er miðað við
smekk forstöðumanns þáttarins
og hitt látið eiga sig sem ekki
fellur honum í geð? Er mögu-
leiki á að koma ósk sinni á
framfæri og ef svo er hvernig
á þá að fara að því? Marga
fýsir að fá þessum spurning-
um svarað. Með þökk fyrir birt-
inguna. Arnkell.“
SKIPAIITCCRD
RIKISINS
Baldor
Tekið á móti flutningi til
Arnarstapa, Sands og Flateyj-
ar á morgun.
Oddur
fer til Ólafsvíkur, Grundar-
fjarðar og Stykkishólms á
þriðjudag. Vörumóttaka á
morgun.
Félagslíf
Aðalfundur K.D.R.
verður haldinn sunnudaginn
6. marz kl. 2.15 í félagsheimili
KR við Kaplaskjólsveg. —
Dagskrá: Venjuleg aðalfund-
arstörf. — Stjórnin.
Vefnaðarvörur
Hvítt og svart loðkragaefni
Taft
Ullarjersey
Gluggatjaldaefni
Plasticefni
Sirs
Nylonprjónasilki
Rayonprjónasilki
Rayon crepe
Dacron gaberdine
Nylongabardine
Taft Morie
Sans. taft
Rayon twill
Handklæðadregill
Hvítt nylonefni
Doppótt nylonefni
Nylon gluggatjöid
Herrafataefni
Húsgagnaáklæði
Hannyrðaefni
Dúkaefni
Sumarkjólaefni
Hvítt blússuefni
Nylontyll
Georgette svart
Kápuefni
Satín gallaefni
Shantung kjólaefni
Rayonmyndaefni
Tilbúinn fafnaður
Sportsokkar
Ullarsokkar
Nylonsokkar
Nyloncrepesokkar
ísgamssokkar
Bómullarsokkar
Ullarhosur
Nylonblússur
Nylonundirkjólar
Nylonundirpils
Rayonundirkjólar
Rayonundirpils
Blúndukot
'Baðsloppar
Telpunáttkjólar
Nylonnáttföt
Nylonnáttjakkar
Náttfatasett
Nylonbuxur
Rayonbuxur
Sundbolir
Sundbuxur
Ullarpeysur
Telpuregnkápur
Treflar
Barnavettlingar
Blúndudúkar
Bildi
Treflar
Piasfic-vörur
Bollabakkar
Konfektskálar
Seðlaveski
Drykkjarmál
Herðatré
Títuprjónabox
Borðplattar
Stafabækur
Skrautbox
Handsápuhylki
Raksápuhylki
Spilapeningar
Rakvélar
Rakvélar
Fataburstar
Hárburstar
Greiður
Hárkambar
Öskubakkar
Sundbelti
Matarsett
Svuntur
Fatahlífar
Sparibaukar
Pottasleikjur
Eggjabikarar
Flaggstengur
W. C. pappírshöldur
Flautur
Kúlupennar
Smávörur
Nylonhárnet
Stoppugarn
Smellur
Títuprjónar
Naglasköfur
Hárspennur
Rakblöð
Varalitur
Steinpúður
Barnapúður
Augnabrúnalitur
Creme
Tannburstar
Bendlar
Teygja hvít og svört
Stímur
Gluggatjaldakögur
Lampaskermakögur
Sjalakögur
Kjólaleggingar
Hlýrabönd
Hárbönd
Tyllblúnda
Bómullarblúndur
Nylonblúndur
Tauhanzkar
Slæður
Belti
Pilsstrengur
Milliverk
Nylonbroderieblúndur
Heildsölubirgðir
ISLENZK-ERLENDA VERZLUNARFELAGIÐ Hf.
Sími 5333 Garðastræti 2
l■■■■■■■■■■■■•■■■■•■■■■■■l■■■■•»■■■■■■■■■■•■•■■•■■■■■M■■M■■■■■••■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■••■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■M■■■■■»
■ •■■■■■••■■••■■■■■■■■•■••■■••■•• •■•■•■••■■■■•■■■•••■•■■■•MMMMMMMMMMBMMMMMMMMBMMMMMMMMM «■■■•■•■!
Karlakór Reykjavíkur
Hlutavelta os happdrætti
í Listamannaskálanum kl. 2 í dag
FJÖLDI ÁGÆTRA MUNA
í happdrættinu er flugferð til Norðurlanda og far á 1. farrými með m.s. Gullfoss til Kaupmannahafnar
og m. m. fl.
Inngangseyrir 1 kr. fyrir fullorðna
Ókeypis fyrir böm
ii|IHfWMMIWIUMIÉ|WMMMM»MWIWIMWWWHWU«W>i