Þjóðviljinn - 07.04.1955, Side 1
Fiindur verkfalls
manna í Gamla
bíói í gær:
Eínhuga yerkalýðssamtök getur
ekkert afl í þessu landi brotið
Ef hver og einn gerir skyldu sína er sigur vís framundan
i
Auðsöfnunin í landinu hefur
aldrei verið eins mikil og á
undanförnum árum, er því til-
gangslaust með öllu að' reyna
að halda því fram að verka-
menn geti ekki fengið hærra
kaup og betri kjör. Þótt auð-
stéttinni þyki hagkvæmt að
láta útgerðina tapa, græða olíu-
félög, frystihúsaeigendur,
bankar og aðrir slíkir millilið-
ir. Hvernig auðstéttin skiptir
gróðanum kemur verkalýðnum
ekki við. Hann heimtar sinn
hlut í þjóðartekjunum, arðinn
af vinnu sinni.
Eðvarð vék að verkfallsbrot-
um olíufélaganna og skipulagn-
ingu slagsmálaliðs gegn verka-
mönnum, er sannaði tilgang
þeirra að brjóta verkalýðssam-
tökin á bak aftur, og verða
einráðir um að skammta verka-
lýðnum kaup á þessu landi.
Verkalýðssamtökin þyrftu því
aldrei meir en nú að standa
saman sem einn maður, verja
samtök sín og sigra. Árásum
slagsmálaliðs auðstéttarinnar
yrði að svara með margfaldri
eflingu verkfallsvörzlunnar. —
Það er heiðursstarf að vera
verkfallsvörður, eins og það er
fyrirlitlegt að vera verkfalls-
brjótur.
Fjandsemi atvinnurekenda
verður alþýðan að svara með
Framhald á 12. síðu.
Einn ai iarustnmannunum í árásarliði Sjtílistœðisilohhsins
Reyndi að nauðga 14 ára telpu; hófaði
að drepa 15 ára bróður hennar
ÞaÖ eru slikir menn sem Visir og MorgunhlaBiS reyna
nú oð œsa til árása á verkfatlsverSi oð lögtegu starfi
Eins og skýrt var frá í blaðinu í gær var einn helzti
forsprakki Sjálfstæöisflokksins í árásunum á verkfalls-
veröina aöfaranótt þriöjudags, Guömundur Guöjóns-
son bifreiöarstjóri, Barmahlíð 29, margdæmdur glæpa-
i maður. Nú síðast hefur hið opinbera höföað mál á hend-
j'ur honum fyrir aö hafa gert tilraun til aö nauöga 14 ára
telpubarni við Þverárrétt 22. sept. í haust og hóta aö drepa.
bróður hennar 15 ára.
Þjóðviljanum þykir rétt að
kynna þennan forustumann í
bardagaliði Sjálfstæðisflokksins
nokkru nánar. Haim er ágætur
fulltrúi fyrir þann lýð sem att
er gegn verkfallsmönnum og
sem Vísir og Morgunblaðið
reyna að æsa til óhappaverka
með taumlausum æsingaskrif-
um og öskri dag eftir dag.
Átta sinnum dæmdur
Guðmundur þessi Guðjóns-
son bifreiðarstjóri, Barmahlíð
29, hefur átta sinnum komizt
í tæri við lögregluna, áður en
na.uðgunarmálið var hafið gegn
honum. Sakavottorð hans lítur
þannig út:
26. júlí 1949 var hann dæmd-
ur fyrir brot á bifreiðalögum.
29. apríl 1951 var hann dæmd-
ur fyrir ölvun á almannafæri.
18. júní 1952 var hann dæmd-
ur fyrir brot á lögreglusam-
þykktinni.
12. nóv. 1952 var hann dæmd-
ur fyrir brot á lögreglusam-
þykktinni.
2. marz 1953 var hann kærður
fyrir þjófnað en málið fellt nið-
ur skilorðsbundið í fimm ár.
15. sept 1953 var hann dæmd-
ur fyrir brot á bifreiðalögum.
20. jan. 1954 var hann dæmd-
ur fyrir brot á bifreiðalögum.
22. febr. 1954 var hann sekt-
aður og sviptur ökuleyfi í f jóra
mánuði fyrir ölvun við akstur.
^ Hótaði að drepa
drenginn
22. sept. í haust gerðist svo
næsta afrek þessa leiðtoga í
baráttuliði Sj álfstæðisflokksins.
Þá urðu þau tíðindi í Þver-
árrétt kl. 10 um kvöldið að 15
ára piltur kom til löggæzlu-
manna þar á staðnum, Jóhann-
esar Björgvinss. og Þorvarðar
Trausta Eyjólfssonar, og bað
þá að hjálpa sér að ná systur
sinni, 14 ára að aldri, úr bif-
reiðinni R. 6404, en þar væri
hún ásamt karlmanni sem hefði
læstr öllum dyrum á bílnum,
Hefði drengurinn ætlað að ná
í systur sína, en maðurinn hót-
aði þá að drepa hann ef hann
færi ekki burt.
Framhald á 3. síðu.
R1619
Frentvilla varð í listanum
yfir bíla þá sem þátt tóku í
árásarferð íhaldsins aðfara-
nótt þriðjutlags. Stóð þar að
R 119 hefði verið með í ferð-
inni, en það er rangt, og biðst
Þjóðviljinn afsökunar á því.
Númerið átti að vera R 1619
og eigandi þess bíls er Guð-
mundur Guðjónsson, sem sagt
er nánar frá á öðrum stað I
blaðinu.
Gamla bíó var íullt út
úr dyrum á íundi verk-
fallsmanna í qær. Verk-
fallið hefur nú staðið í
þrjár vikur og er orðið
ein harðasta deila er hér
hefur verið háð.
Atvinnurekendur hafa
enn enga hækkun boðið
og tilgangur þeirra er að
svelta verkalýðinn til
hlýðni og brjóta verka-
lýðssamtökin á bak aftur.
Fundurinn í gær var
enn ein semrnn þess að
þetSa mun ekki tafeast,
framkema aivimmrek-
enda hefur hert verkíalls-
menn, . hafa verkfalls-
menn aldrei verið eins
staðráðnir í að halda út
og sigra og einmitt nú.
Eðvarð Sigurðsson ritari
Dagsbrúnar var fyrsti ræðu-
maður fundarins. Rakti hann í
stuttu máli gang verkfallsins
og viðræðumar við atvinnurek-
endur.
(Ljósmyndari Sig. Guðmundsson).
Verkamenn á fundi í Gamla bíói í gær.
i