Þjóðviljinn - 07.04.1955, Page 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 7. apríl 1955
Kirkjuhátíð íraraundan — „Torvelt íyrir þá sem auð-
æfin eiga að ganga inn í guðsríkið” — Verkfalls-
páskar og kristindómiir
OG NÚ RENNUR senn upp mikil
kirkjuhátíð, í tilefni af dauða
og upprisu Krists, eins mesta
mannvinar sem sagan getur
um-. E>að verður messað marg-
íinnis á hverjum degi, útvarp-
ið endurómar ,af sálmasöng,
guðsorði og kirkjutónlist.
Skemmtanir liggja niðri, því að
:rú er ártíð þess manns sem lét
iíf sitt á krossi fyrí bráðum
2000 árum. Og er því ekki til-
hlýðilegt að rifja eitthvað upp
um þær kenningar sem drógu
hánn til píslarvættisdauða? Og
manni kemur í hug sagan um
höfðingjann sem til hans kom
og spurði hvað hann ætti að
gera til þess að öðlast eilíft líf.
Hann hefði fylgt öllum boð-
arðum guðs frá æsku sinni. En
Kristur sagði við hann: Enn er
þér eins vant; sel þú allar eig-
ur þínar og skipt þeim meðal
fátækra og munt þú fjársjóð
eiga í himnunum og kom síð-
an og fylg mér. En þegar höfð-
inginn heyrði þetta varð hann
hryggur þvi ,að hann var mjög
auðugur, og mönnum var líka
sárt um aurana sína í þann tíð.
En er Jesús tók eftir harmi
hans, sagði hann: Hversu tor-
velt mun verða fyrir þá, sem
auðæfin eiga að ganga inn í
guðsríkið! Því að auðveldara
er fyrir úlfaldann að ganga
gegnum nálaraugað en fyrir
ríkan mann að ganga inn í
guðsríkið.
UM PÁSKANA 1954 er háð víð-
tækt verkfall hér í Reykjavík.
Hinir fátæku riota hin eintk
vopn sín tii að berjast fyr’ir
bættum kjörum, leggja niður
vinnu, heyja verkfall. En hiriir
auðugu sem vilja reisa Hall-
grímskirkju til minningar um
sálmaskáldið íslenzka sem í
sárustu neyð orti sígilt lista-
verk um píslarsögu Krists, sem
flutti m. a. þann boðskap ,að
hinir auðugu skyldu selja eig-
ur sínar og skipta meðal fá-
tækra, þeir virðast hafa gleymt
þessari kenningu. Og þó eru
þeir ekki beðnir um gjafir,
heldur mannsæmandi greiðslur
fyrir óhjákvæmileg störf. Svo
langt eru þessir menn sem vilja
byggja kirkjur í stað húsa fyr-
ir íbúa bragganna komnir burt
frá hinum raunverulegu kenn-
ingum Krists. Skyldu annars
ekki prestarnir taka þetta at-
riði til meðferðar í kirkju-
ræðum sínum um þessa verk-
fallspáska? Nú ætti að vera
kærkomið tækifæri fyrir kirkj-
unnar þjóna að heimfæra kenn-
ingar Krists yfir á dægurmál-
in, boða mannúðarhugsjónir
hans og náunganskærleika. Það
mun sýna sig hverja afstöðu
þeir taka.
ALMENNM PÁSKASAMKOMUR í AÐVENT-
KIRKIUNNI:
Séra L. Murdoch
mun flytja erindi um eftir- :
. farandi efni;
Föstudaginn langa:
Hvers vegna fær þjáning, sorg :
og dauði að ríkja í heimi
vorum ?
Páskadaginn:
Upprisuboðskapurinn og
nútíminn.
Annan páskadag:
Kirkja nútímans undir smásjá :
Guðs.
Á föstudaginn langa mun Guðmundur Jónsson, óperu-
söngvari, syngja nokkur lög með undirleik Fritz Weiss- :
liappel. — Allar samkomurnar verða haldnar kl. 5 .eh. :
Allir velkomnir
Hjartans þakklæti mitt til frænda, vina, félaga-
samtaka og stofnana, nær og fjær, sem glöddu
mig á 70 ára afmæli mínu 4. þ.m., meö veglegu
samsæti, stórgjöfum, blómahafi, skeytum
og ljóðum,
Lifið heil! Guð blessi ykkur.
Sigurður E. Hlíðar
ff! Dvalarheimllls aldraðra sjómanna
byrjar nýtt happdrættisár frá 1. maí 1955 til 1. maí 1956
Happdrættið stækkar
Heildarverðmæti vinninga
kr. 2.400.000.00
Skattirjálsir vinningar
Vinningar hækka
unnL 314
L V
Vinningum fjölgar
Sala á nýjum miðum
er hafin
Endurnýjun heíst 18. apríl til 1. maí
— Ath. Ársmiða þarí að endurnýja
þá. — Verð ársmiða kr. 120,00 —
Verð endumýjunarmiða kr. 10,00
EinbýlisMs
(raðhús) í Réykjavík, 4-5 herbergja og
eldhús — Útdregið í 12. flokki —
verómæti kr. 350.000,00
2 jeppar
með stálhúsi,
verðmæti kr. 350.000.00
8 Vespa bifhjól
verðmæti kr. 10.000,00 hvert
í VINNINGUM:
2 íbúðir
í Hamrahlíð 21, Reykjavík — 3 herbergi
og eldhús — 83 ferm. hvor.
Útdregnar í 1. flokki og 6. flokki.
Hvor að verðmæti kr. 255.000,00
ATH. Fyrri íbúðin verður til sýnis á annan í
péiskum kl. 2 til 10, og eftir þaö á laugar-
dögum og sunnudögum fram að því aö
dregið veröur.
3 vélbátar
4 tonn með Lister dieselvél 16 ha. og Bendix-
dýptármæli. — Smíðaðir í Bátasmíðastöö
Breiðfiröinga, Hafnarfirði.
Hver að verðmæti kr. 100.000,00
11 bifreiðar
af eftirtöldum geröum:
Morris-Oxford, verðmæti .. kr. 67.000,00
Nash, verömæti .. kr. 100.000,00
Chevrolet, verðmæti .... .. kr. 100.000,00
Ford, verðmæti 100.000,00
Dodge, verömæti 100.000,00
Hillman-Husky, verðmæti .. kr. 43.000,00
Buick, verðmæti 110.000,00
Happdrœtti D.A.S. veitir það sem hugurinn girnist
Öllum ágóða varið til byggingar dvalarheimilisins
Skriístoía og aðalumboð: Austurstræti 1, Reykjavík — Sími 7 7 5 7