Þjóðviljinn - 07.04.1955, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 7. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7
Thor Vilhjálmsson:
Höfundur kvikmyndannnar
OTHELLO:
OR$ON WELLES
höfuðkostir hennar voru til í
■Orson Welles var bráðger
maður. Ég hef séð í bók að
fram til tvítugsaldurs hafi
hann einkum verið talinn
girnilegur fróðleiks sálfræð-
ingum í því landi þar sem
fólk hleypur upp til * handa
og fóta og ákallar læknis-
fræðilega brasara og hjálpar-
kokka ef vart verður nokkurs
fráviks frá því sléttborgara-
lega hegðunamormi sem al-
mennt hefur samizt um að
hlíta: USA. En 20 ára gömlu
var þessu undrabarni trúað
fyrir stjóm leikhúss.
Fyrst vakti Orson Welles
vemlega athygli á sér fyrir
frumlegar útvarpsdagskrár
og á þeim vettvangi gat hann
sér varanlega frægð fyrir að
valda ofsahræðslu um Banda-
ríkin þver og endilöng svo
fólk þusti kveinandi út á göt-
ur og hélt heimsendir væri í
nánd: Þetta gerði hann með
lipurlega saminni dagskrá sem
hann byggði á sögu H. G.
Wells um innrás Marzbúa
sem Sverrir Kristjánsson
flutti með ágætum en minni
árangri í íslenzka útvarpið
fyrir nokkmm árum. Með því
uppátæki varð Orson Welles
komungur svo kunnur að
Hollywood hélt að hér væri
maður fyrir sig. R.K.O. kvik-
myndafélagið réð hann til sín
25 ára gamlan með meiri
völdum en tíðkaðist um stjóm-
endur kvikmynda og má
segja að honum væri í sjálfs-
vald sett hvert verkefni hann
tæki sér, þetta var mjög ó-
Venjulegt í Hollj'wood þar
sem keppzt var við að
kaupa stór nöfn en bæla þá
persónuleika sem illu heilli
fylgdu kaupunum.
Þegar Orson Welles sá
kvikmyndaverið sem hann átti
að .stjórna sagði hann hinn
gleiðasti: Atarna er það fal-
legasta leikfang sem hægt er
að gefa einu barni.
Fyrsta kvikmynd Qrson
Welles var Citizen Kane (sýnd
hér fyrir mörgum ámm), sí-
gild mynd. Hún er að nokkm
leyti byggð á ævi blaðakóngs-
ins William Randolph Hearst
sem erfði mikinn auð og varð
einn ríkasti maður heimsins
á þvi að ljúga eftir kerfi að
1 fólki og segja því jafnan það
sem færði honum helzt fé í
hendur og segja það þannig
að hægt væri að græða á því:
skirskota til lághneigða og
sjúkleika í fari manna, á sið-
ferðilausri og sóðalegri sorp-
blaðamennsku í gróðaskyni
þannig sem . við íslendingar
þekkjum helzt af Mánudags-
blaðinu. Hann var pater fami-
lias hinnar gulu pressu.
i Myndin Citizen Kane þótti
T ganga svo nærri hinni svo-
kölluðu æru dólgsins Hearst
að hann lét sín hundrað blöð
hamast sem óð væru til að fá
hana bannaða en það var vit-
anlega betri auglýsing en
nokkuð annað. I þessari mynd
kom fram mikið geníalítet á
kvikmyndavísu, óvenjulegt
plastískt skyn eða myndnæmi
og hugkvæmni svo af bar,
dirfska og persónulegur stíll
og handbragð ef ég má orða
svo og ber mikið á nýjunga-
gimi sem leiðir af sér ýmsar
misjafnlega rökstuddar og
réttlætanlegar sérvizkubrell-
ur. Framsetning efnis er öll
með nýstárlegum hætti.
Myndrásin gengur ýmist fram
eða aftur í tímann, sagan
er sögð af ýmsum aðiljum,
allskonar tilraunir eru gerð-
ar í ljósmyndun og með
hljóðið og er myndin náma af
tækninýjungum. Ýmsir efnis-
legir gallar eru á myndinni:
sálfræðí hennar ristir ekki
mjög djúpt; en sem kvikmynd
er hún varða við veginn.
Þetta var 1941. Þá var Orson
Welles 25 ára gamall.
Næsta mynd hans var The
Magnificent Ainbersons sem
kom út í janúar 1942, þar seg-
ir af hnignun fjölskyldu land-
lorða og uppgangi iðjuhölda.
Ekki var Oraon Welles eins
óháður og í upphafi, þeir sem
kostuðu myndina skáru mjög
af henni og stýfðu og stór-
skemmdu hana með því. Þessi
mynd er langdregin mjög og
lakari en Citizen Kane, hún er
ofhlaðin og þunglamaleg. Ég
sá hana hér í Reykjavík 1946
ef ég man rétt og fannst
nokkuð til um hana þvi hún
kom mér á óvart, maður var
ekki vanur svo góðu. Síðar
sá ég Citizen Kane og þá varð
mér ljóst að The Magnificent
Ambersons hafði mistekist,
Citizen Kane og nutu sín þar
betur, þó voru bjórar í þessari
mynd.
Það þarf ekki mikla þekk-
ingu til að renna grun í að
svo sterkur persónuleiki og
frumlegur hæfileikamaður
myndi ekki vera lengi að því
að koma sér út úr húsi í
Hollywood: því auma bæli
dauðra sálna þar sem Mamm-
on beygir alla í duftið sem
ekki dæma sig sjálfir í út-
legð þaðan: þar rikir vændið
ofar hverri kröfu.
Myndirnar tvær sem Orson
Welles hafði gert færðu ekki
félagi hans þann auð sem
vænzt hafði verið og R.K.O.
lenti auk þess undir harðvít-
ugri og umburðarlyndislausri
fjármálastjórn Morganbank-
ans sem heimtaði bara hard
cash, beinliarða peninga —
en ekkert helvítis slæpingja-
slúður og bull eins og list.
Þeir Morganbankamenn
sögðu: markaðurinn herrar
mínir, ef fólk vill borga fyrir
það sem þú gerir ertu OK,
annars geturðu farið til and-
skotans. Þessi ömurlega góð-
borgaralega rökfræði sem
flestir mikilhæfir listamenn
verða einhvern tíma fyrir
barðinu á hefur gert voðaleg-
an usla í kvikmyndagerð. All-
ir mestu kvikmyndahöfundar
hafa fengið að kenna á þessu
borgaraideali að meta allt til
fjár — jafnvel list. Borgara-
stéttin hefur aldrei eignaztþá
menningarhugsjón sem var
uppi meðal aðalsmanna fyrir
að frægja sjálfa sig með
stuðningi við listimar þó þess
gerist dæmi meðal borgara
annars staðar en á íslandi.
Hér takmarkast menningará-
hugi borgaranna helzt við að
rétta mönnum skilding til að
þeir geti lært að syngja.
Nú var röðin komin að Or-
son Welles. Morganbanki og
R.K.O. kölluðu hann heimfrá
Suður-Ameríku þar sem hann
var sem óðast að filma, þurftu
nú ekki lengur þjónustu hans
og hann hraktist aftur til út-
varpsins og leikhúsanna. Þá
hófst dauður kafli í kvik-
myndaferli hans, árum saman
stjórnaði hann engri mynd.
Loks gerði hann aftur mynd
árið 1947: Það var The lady
from Slianghai með hinni lík-
amsfögru frú Ritu Hayworth í
aðalhlutverkinu. Það væru
ýkjur að orða frúna við leik
en margan karlmanninn hefur
hún kitlað um dagana með
þokka sínum. Hendur Orsons
Welles voru mjög bundnar
þegar hann gerði þessa mynd
enda stóð hún langt að baki
áðurnefndum myndum, í henni
kennir mjög beizkju. Uppi
voru bjálfalegar raddir í
Bandaríkjunum að kalla þá
L síðan rífst vi$ 8.
Heildsalablaðið Vísir birtir í
gær froðufellandi forsíðufrétt,
þar sem það reynir enn að æsa
menn upp til verkfallsbrota og
ofbeldisverka gegn verkfallsvörð-
um sem gegna löglegum skyldu-
störfum í þágu alþýðusamtak-
anna. Sérstaklega er blað pabba-
drengjanna i lúxusbílunum æft
yfir því að ekki skuli leyft að
smygla benzíni í bæinn.
En á öftustu síðu sama blaðs
er önnur frétt um stórfellda eld-
hættu af völdum benzins sem
geymt er í bænum á ólöglegan
mynd klám sem er fráleitt
og heimskulegt. Orson Welles
tók saman pjönkur sínar og
fór yfrum til Evrópu.
Þar var honum tekið opn-
um örmum og hann hylltur af
ákaflyndum aðdáendum meðal
kvikmyndaunnenda. Þá höfðu
kvikmyndaklúbbar Evrópu um
skeið varla talizt gegna hlut-
verki sínu án þess að hafa
Citizen Kane á sýningarskrá
sinni (og kemur væntanlega
að henni í Filmíu). Og nú
sökkti Orson Welles sér á
bólakaf í kampavín og blíðu-
hót aðdáenda sinna og flækt-
ist milli tízkustaða Evrópu í
hlutverki síðbúins trúbadors,
— en minnti þó stundum meir
á einskonar intelektúela út-
gáfu af Farúk listaheimsing
þar sem hann reikaði um gleð-
innar dyr með hástemmdar
fjarstæður á hraðbergi sem
blaðamenn hentu á lofti og
færðu lesurum sínum. Orson
Welles baðaði sig í sífelldu
umtali en ekki bólaði á mynd
frá hans hendi. Sannleikurinn
mun hafa verið sá að þótt
menn teldu ekki eftir sér að
halda honum dýrar veizlur
voru ráðendur f jármagns hik-
andi við fá honum fé til að
iðka list sína.
Uppi varð fótur og fit þeg-
ar fréttist að Orson Welles
hefði kvikmyndað Macbeth
eftir leikriti Shakespeares.
Hún fékk herfilegar móttökur
enda kvikmynduð á 23 dög-
um, menn hneyksluðust mjög
á þeirri léttúð sem svo var
kölluð, sjálfur hefur hann
játað þá galla sem á verkinu
eru en biður um að mega
nefna málsbætur sem séu þær
að þá hafi enginn maður fund-
izt í víðri veröld sem hafi
viljað trúa sér fyrir peningum
til að vanda meira verkið,
honum hafi dugað hýran þetta
og ekki degi lengur. Hann
hafi ætlað sér að sýna að
hægt væri að gera kvikmynd-
ir með minni tilkostnaði en
tíðkaðist og losa um kyrk-
ingstak fjármálalegra einok-
unarafla. Þessa mynd sá ég
ekki en mér er sagt hún hafi
verið vond mynd.
Svo gerir Orson Welles
Othello. Sú mynd mun áreið-
anlega lifa. Loks hefur Orson
Welles efnt nokkuð fyrirheitin
frá Citizen Kane.
Sem kvikmynd er Othello
afreksverk. Ég held þetta sé
fyrsta Shakespeare-kvikmynd
þar sem stjórnandinn hefur
ekki fallið í þá gröf sem
Frakkar nefna theatre filmé:
kvikmyndað leikrit. Væntan-
lega verður tækifæri til að at-
huga hana síðar.
Hvað á að gera við ráða-
menn kvikmyndahúss sem
ekki tíma að bíða eftir að-
sókn á þvílíka mynd?
hátt. Segir blaðið m.a.: „Visir
hefur áður varað við þeirri
hættu að geyma benzín þar sem
hætta getur af því stafað, en
auk þess ber að minna á að ó-
löglegt er að geyma benzín i lög-
sagnarumdæmi Reykjavikur".
Forsíða Vísis reynir þannig að
egna Heimdallarblækurnar til
verkfallsbrota og ofbeldis í því
skyni að smygla benzini í bæinn.
Baksíða Vísis minnir á að þetta
sé bæði ólöglegt og stórhættu-
legt! Sýnir þetta glöggt hversu
miður sín dollarahyskið er; það
veit ekki sitt rjúkandi ráð af
taugastrekkingi og vanlíðan. 1.
síðan rífst við þá 8. Það ástand
á enn eftir að magnast.
Orson Welles í aðalhlutverkinu í Citizen Kane. Welles hefur
ailtaf haft inikla ánægju af að mynda sjálfan sig.
'i
Orson Welles í hlutverki Othello.
r