Þjóðviljinn - 07.04.1955, Side 9
f
Fimmtudagur 7. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (»
A ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRI. FRlMANN HELGASON
Iþróttabandalags Reykjavíkur
Ársþing Iþróttaban,dalags R-,
víkur hófst 22. marz og lauk
s. 1. mánudagskvöld í Félags-
heimili KR. Þingið sátu 70
fulltrúar frá 23 aðilum banda-
lagsins, en innan þess eru nú
22 félög og 7 sérráð.
Eitt af þeim stórmálum, sem
á döfinni eru nú,. er bygging
nýs íþróttahúss, sem íeyst geti
íþróttahúsið við Hálogaland af
hólmi. Var þingið einhuga um
nauðsyn þess að reyna að
koma skrið á framkvæmdir
þessa stærsta nauðsynjamáls í-
þróttahreyfingarinnar í dag, í
samvinnu við þá aðila, sem
hlut eiga að því.
Meðal þeirra mála, sem þing-
ið afgreiddi var tillaga um að
gera að skyldu fyrir alla þátt-
takendur í íþróttamótum að
láta íþróttalækni skoða sig,
enda munu flestir á einu máli
um nauðsyn þess. Samþykkt
var að heilbrigðisvottorð út-
gefið af íþróttalækni sé ófrá-
víkjanlegt skilyrði fyrir þátt-
töku íþróttamanna yfir 16 ára
aldri í keppnum og keppnisferð-
um á vegum ÍBR eða aðila
þess.
Iþróttabandalagið hefur siðustu
árin séð um skautasvellið á
Tjörninni, en vegna ýmissa or-
saka er erfitt og kostnaðar-
samt að halda því við þar, og
var stjórn bandalagsins falið
að annast um útvegun á nýju
svæði fyrir skautasvell almenn-
ings í hennar stað. Einnig
taldi þingið nauðsynlegt að
komið yrði upp nýjum skauta-
svæðum á föstu landi fyrir
börn og unglinga og að þau
væru staðsett sem víðast um
bæinn, og ættu slíkir leikvang-
ar, sem notaðir yrðu í þágu al-
mennings, að rekast af Reykja-
víkurbæ á sama hátt og barna-
leikvellir og almenningsgarðar.
Einnig væru slíkar framkvæmd-
ir líklegar til þess að draga úr
hinni miklu slysahættu og laða
börn og unglinga af götunni.
Meistaramót íslands í badmin-
ton fer að þessu sinni fram í
Stykkishólmi og verður nú um
páskahelgina.
Frá Reykjavík fara 8 keppend-
ur, 6 karlar og tvær konur: Hall-
dóra Thoroddsen (einliðaleik, tví-
liðaleik og tvenndarkeppni) Ell-
en Mogensen (tvíliðal. og tvennd-
ark.), Vagner Valbom (einl. tví-
Formaður bandalagsins næsta
ár var einróma endurkjörinn
Gísli Halldórsson arkitekt, en
aðrir í framkvæmdastjórn þess
eru kjörnir af fulltrúaráði
þess.
Endurskoðendur voru kjörnir
Gunnar Vagnsson og Gunnlaug-
ur Briem, og í stjórn skíða-
sjóðs skólabarna var kjörinn
Stefán Kristjánsson. 1 héraðs-
dómstól ÍBR var kjörinn Þor-
gils Guðmundsson, og til vara
Gunnlaugur Lárusson.
Þingforsetar voru Jens Guð-
björnsson og Erlendur Ó. Pét-
ursson, en rita,ri- þingsins var
Sveinn BjÖrftsson.
'b t ' W*"*" r\
liðal. og tvenndark.), Einar Jóns-
son (tvíliða og tvenndarkeppni),
Lárus Guðmundsson, Ragnar
Thorsteinsen, Haukur Gunnars-
son og Karl Maack (keppa allir
í einliða- og tvíliðaleik).
Hópurinn fer á páskadagsmorg-
un og kemur heim á þriðjudag
eða miðvikudag eftir því hvernig
keppnin gengur.
Badmintomnót Islands íer fram í
ólnti um páskana
Gunnar M. Magnúss:
Börmn frá Víðigerði
Annars hugsa ég, að þið þurfið ekki að óttasf
gulmenni eða svartmenni á þessu skipi, sem við
förum með. Ég hugsa, að það séu Englendingar,
sem ráða þar, en þeir eru nú alveg voðalegir
fantar, ef þeir reiðast. Ég hef séð Englending
fjúkandi vondan. Það var í verzlunarbúð í Reykja-
vík. Englendingurinn var að kaupa kartöflur,
og kaupmaðurinn lét skemmdar kartöflur með
þeim ætu. En þegar Englendingurinn tók eftir
þessu, greip hann skemmdu kartöflurnar og
senti þeim af öllu afli í kaupmanninn. Kaup-
maðurinn varð að flýja inn í skrifstofu, en Eng-
lendingurinn lét kartöflurnar dynja á skrifstofu-
hurðinni. Síðan kastaði hann upp um allar búð-
arhillurar, braut postulínshunda, sem kostuðu
krónu, bolla og diska og hvaðeina. En svo tók
hann það, sem hann langaði til að eiga, bæði bláar
peysur og handklæði og hélt leiðar sirinar, án
þess að nokkur. skipti sér af honum, af því að
þetta var Englendingur. Svona geta nú Englend-
ingar verið“.
Stjáni var símasandi og lét dæluna ganga, þó að
fáir tækju undir við hann. Fullorðna fólkið var
annars hugar, en Stjáni var í essinu sínu við að
segja krökkunum frá, þangað til Geiri var orðinn
hálfvondur og hreytti út úr sér:
„Æ, góði þegiðu, þú ert svo mikill grobbrass,
að það er ekki hlustandi á þig. Við erum búin að
fá að heyra nóg af þessu gor'ti.“
„Ja, svei, svei, þú átt nú sjálfur eftir að sjá,
hvort ég er ekkert nema grobbið. En mundu
það að ég ætla að reynast þér vel, ef þú þarft á
hjálp að halda“.
UMMISTIMPLAR
Uiriboðsmenn:
Reykjavík:
Bókabúð Norðra
Bókabúð Kron
Bókaverzlun M.F.A.,
( Alpýðuhúsinu)
Hafnarfiröi:
Valdemar Long
framleiddir með oð/erð, sem
var áSur óþekkt hér á landi. —
Þeir eru dýpri, endingarbetri
og ódýrari, en hér hefur áÓur
þekkzt.
Fyllilega samkeppnisfœrir
við erlenda stimpla.
Reynið viðskiptin — Eins dags afgreiðsl uf restur
Sími 80615 — Njarðargötu 3
:-*r^---