Þjóðviljinn - 14.04.1955, Qupperneq 1
Reykvískt verka-
fólk
mætið til verkfallsvörzlu.
Hafið samband við skrif-
stofurnar í Alþýðuliúsinu og
Hverfisgötu 21.
■ ■
Hluti af þúsundunum á Lœkjartorgi í gœr. Auk fjöldans á torginu stóö fólk þétt ug'p eftir Bankastrœti.
Alþýða Reykjavíkur kreíst samn
inga við verkalýðsfélögin
Verkðallsmenn munu halda stillingu sinni og æðru-
leysi og gera allt til að vinna varanlegan sigur
Á annan tug þúsunda sótti útifund verkalýðsfélag-
anna í gær og fylkti sér um kröfu reykvískrar alþýðu:
Samninga um bætt kjör verkalýðsins.
Fundur þessi var fjölmennari en útifundirnir 1.
maí og sýnir það alvöruþungann að baki kröíum
verkfallsmanna, sýnir að málstaður verkfallsmanna
er málstaður reykvískrar alþýðu.
Ekki mannsæmandi líf.
Snorri Jónsson, formaður Fé-
lags járniðnaðarmanna setti
fundinn. Fyrstur talaði Eðvarð
Sigurðsson, ritari Dagsbrúnar.
Minnti hann á að liðinn væri nú
mánuður frá þvi þetta verkfall,
eitt víðtækasta verkfall í sögu
landsins, hófst.
Réttlátari skiptingu.
Hann rakti í stuttu máli
hvernig kjörum verkalýðsins hef-
ur hrakað allt frá 1947 og hvern-
ig þjóðartekjurnar og gróði auð-
stéttarinnar, þ. e. arðránið á
vinnandi fólki hefur aukizt,
Gegn þessari þróun er bar-
áttan háð. Hún er háð fyrir rétt-
látari hlutdeild verkalýðsins í
arðinum af eigin vinnu.
SainipUur
í nótt
Samningafundur verkamanna,
atvinnurekenda og sáttanefnd-
ar hófst klukkan 9 í gærkvöldi.
Þegar Þjóðviljinn hafði sam-
band við samninganefnd verk-
lýðsfélaganna um miðnættið sat
allt við það sama og fyrr, ekk-
ert hafði gerzt. Búizt var við
að fundurinn héldi eitthvað á-
fram eftir nóttu.
Það er augljóst að ekki er
hægt að lifa mannsæmandi lífi
af 2000—3000 kr. tekjum. Gegn
því að kaup þessa fólks hækki
hefur nú öll atvinnurekenda-
fylkingin snúið sér með stjórn
Vinnuveitendasambandsins í
broddi fylkingar. Þessir menn,
sem sjálfir segjast vera blá-
snauðir hafa nú lagt í hinn stór-
kostlega herkostnað til að halda
launum verkafólksins niðri, til
þess hafa þeir nóga peninga.
Nóg fé í herkostnað gegn
verkalýðnum.
Olíufélögin hafa efni á því
að borga 60 þús. kr. biðpeninga á
dag í erlendu skipin. Hinir blá-
snauðu útgerðarmenn hafa efni
á því að leggja togurum yfir
mesta aflatímann.
Eimskip, sem eingöngu hefur
verkamenn á lægstu launum
getur látið skip sín liggja aðgerð-
arlaus í höfninni. — Hvað v^æri
hægt að lækka flutningsgjöldin
mikið fyrir það fé sem Eim-
skip sóar í herkostnað gegn
verkamönnum?
Atvinnurekendur skortir ekki
fé í herkostiiað gegn verkalýðn-
um, þótt þeir þykist ekki geta
hækkað kaup verkamanna.
Það á að taka af þeim
söluumboðið.
Ríkisstjórnin hefur í mánuð
horft aðgerðarlaus á að atvinnu-
lifið sé stöðvað. Aðgerðarlaus
með atvinnurekendum. Hennar
framlag hafa verið útreikningar
til að reyna að hræða fólk.
Ríkisstjórnin og olíufélögin
hafa storkað verkalýðssamtök-
unuin með verkfallsbrotum. Rík-
isstjórnin er aðili að innflutningi
olíunnar. l>að er lágmarkskrafa
verkaiýðsins í dag að ríkisstjórn-
in hætti að styðja þessi auðfélög
í árásum þeirra á vcrkalýðs-
hreyfinguna, — og að hún geri
það með því að taka af þehn
söluuinboðið á olíunni.
Eitt öruggt ráð.
Auðstéttin ætlar að svelta
verkalýðinn til hlýðni. Það er
mjög sennilegt að næsta spor
hennar verði smánarboð, í formi
sáttatillögu. Verkalýðurinn mun
standa saman og hafna öllum
smánartilboðum. Allar tilraun-
ir auðstéttarinnar til sundrung-
ar, pólitískrar og stéttarlegrar
hafa mistekizt.
Morgunblaðið flutti i gær hót-
anir auðstéttarinnar. Það hótaði
að allar bætur sem ynnust
skyldu teknar af verkalýðnum
aftur. Það er eitt öruggt ráð við
því —: að kjósa aldrei aftur þá
menn sem nú fara með völd.
Framhald á 3. síðu.
Sósíalistafélag
Reykjavíkur:
Deildarfundir
verða í ölluni deildum í kvöld
klukkan 8.30 á venjulegum
stöðum. — Áríðandi mál á
dagskrá.
Stjórnin.
¥ erhfallss) óðurinn
330 þúsund krónur
í gærbættust í verkfallssjóðinn 30 þúsund krónur.
Þessi verkalýðsfélög sendu framlög: Verkalýðs- og
sjómannafélag Álftfirðinga kr. 1000,00, Stéttarfélag-
ið „Fóstra" kr. 2.500,00, Verkalýðsfélagið „Súg-
andi", Súgandafirði kr. 3000,00. Frá verkalýðsfé-
lögunum í Keflavík barst söfnun kr. 6.640,00 og frá
Neskaupstað barst söfnun kr. 10.400,00. Auk þessa
var skilað af söfnunarlistum nærri sjö þúsund krón-
um.Höldum þannig áfram. Þá verður söfnunin okk-
ur til sóma.
Alþýðusambandið hefur suúið sér til
brezku og norrænu verkl vðssamband-
™ •/
anna og til Alþjóðasambandsins
Hannibal Valdiínarsson, for-
seti Alþýðusambands tslands,
skýrði frá því á útifundinum
á Lækjartorgi í gær að Al-
þýðusambandið hefði snúið
sér tiil verkalýðssambanda í
Bretlandi og á Norðurlöndum
og tii Alþýðusambandsins í
Briissel og skýrt frá verkföll-
um þeim sem nú hafa staðið
hér í heilan mánuð. Hefði AI-
þýðusambandið farið þess á
leit að þessi sambönd veittu
verkfallsmönnum allan þann
stuðning sem þau megnuðu til
þess að stuðla að skjótum og
miklum sigri íslcnzku verka-
lýðssamtakaniia.