Þjóðviljinn - 14.04.1955, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 14.04.1955, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 14. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (5 H. C. Andersen settur á svortan listex í Bandaríkjunum Franska stjórnin hætt við smíði kj arnorkuvopna Hátíðahöldin í minningu danska ævintýraskáldsins H. C. Andersens stóðu einmitt sem hæst um allan heim, þegar sú frétt barst til heimalands skáldsins, að' það hefði verið sett á svartan lista í Detroit Danska blaðið Ekstrabladet skýrir frá þessu og hefur fréttina eftir útbreiddu bandarísku frétta- riti Newsweek. Frétt þessi hermir, að lögreglu- stjóri einn í Detroit, Her.bert W. Case að nafni, sem er forstöðu- maður stofnunar þar í borg sem Gáta „leirkera- fjallsins“ leyst Nokkrir ítalskir fornleifafræð- ingar hafa fupdið leifar af birgðum víns og olifufeiti frá tímum Rómverja hinna fornu og um léið leyst gátu, sem fræði- menn höfðu kennt við „leirkera- fjallið". Þegar gamalt og fornfálegt hús í fátækrahverfinu Testaccio í Róm var rifið niður, fannst í grunni þess sægur af tígulstein- um og leirkerabrotum. Fræði- menn sem kvaddir voru á vett- vang gátu staðfest að hér var um að ræða ámur undan víni, sem skattskyld héruð voru skuld- bundin að senda til Rómar. Þeir þykjast geta sagt með vissu að þarna hafi verið geyrrjd hundr- uð vináma. Leirkerunum sem notuð voru til að flytja í vínið til Rómar var síðan fleygt á sorphaug rétt við birgðageymsluna. Þar myndaðist smám saman hóll sem kallaður hefur verið Mons Testaveus — leirkerafjallið. Molotoff og Raab vongóðir Raab, forsætisráðherra Aust- urríkis, og Molotoff, utanríkis- ráðherra Sovétrikjanna, rædd- ust við i Moskva í gær fyrir og eftir hádegi. í síðdegisboði hjá austúrríska sendiherranum sagði Molotoff blaðamönnum, að viðræðurnar gengju vel og hann vonaðist eftir jákvæðum árangri. Það væri hinsvegar ekki undir Sov- étríkjunum og Austurríki ein- um komið hvort friðarsamning- ur yrði nú loks gerður við Austurríki, Vesturveldin yrðu einnig að koma til skjalanna. Raab kvaðst vilja taka undir ummæli Molotoffs. Fuiadu f jögur kg af perlunt Tveir fornmenjafræðingar sem voru að róta í rústum hinn- ar fornu borgar Nueva Cadis á Spáni, komu um daginn niður á hirzlu sem reyndist geyma um 2500 perlur, sem til samans vega fjögur kiló. Með núver- andi verðlagi á perlum hefur fjársjóðurinn verið um fimm milljóna króna virði þegar hann huldist moldu en perlurn- ar eru nú illa leiknar af raka og áhrifum efna í jarðveginum. í Bandaríkjunum. nefnist „Leyfis- og bannstofa Detroit" (The Detroit license and censor bureau), hafi nú lengi unnið að því að semja lista yfir bækur og rit sem hann telji ó- hæfar til lesturs fyrir borgar- búa. Það er tekið sérstaklega fram, að lista þennan, sem nefndur er á fagmáli „Detroit Line“, geti hver sú borg í Bandaríkjunum fengið sendan, sem hafi áhuga á baráttunni gegn „óhollum og klámkenndum“ bókmenntum. Case lögreglustjóri hefur einnig boðizt til að senda listann öllum þeim bókaforlögum og bóksölum sem ekki vilja láta bendla nafn sitt við slíkar bókmenntir. Hann er sagður vera harla ánægður með árangurinn af þessari iðju sinni, fjöldinn allur af forleggj- urum og bóksölum hafa þakkað honum fyrir að losa sig við þau siðspillandi áhrif sem verzlun með margnefndar bókmenntir gætu af sér leitt. Nú getur það engan furðað sem eitthvað þekkir það ástand sem í Bandaríkjunum ríkir í dag, að á lista herra Case eru nöfn höfunda á borð við Hemingway, Farrell Kyrrt að kalla í Saigon Ekki hefur enn komið til vopnaviðskipta í Saigon, höfuð- borg suðurhluta Viet Nam, þótt sagt hafi verið upp vopnahléi herja ríkisstjórnarinnar og einkaherja bófa- og sértrúar- flokka sem bjóða henni byrg- inn. Foringjar flokkanna skor- uðu í gær á Ngo Dinh Diem forsætisráðherra að segja af sér þar sem hann hefði gerzt ber að því að bregða fæti fyr- ir tilraunir þjóðhöfðingjans Bao Dai að leysa deiluna með mála- miðlun. Fréttaritarar í Saigon segja að samstarfsmenn Diems og fulltrúar Bandaríkjastjórnar saki Frakka um að halda hlífi- skildi yfir flokkunum og hindra stjórnarherinn í að ganga á milli bols og höfuðs á herjum þeirra. 521 njósnari handtekinn Austurþýzk stjórnarvöld hafa skýrt frá því að á skömmum tíma hafi 521 maður verið hand- tekinn fyrir þátttöku í njósnum og skemmdarverkum í þágu leyniþjónustna Vesturveldanna og aðila 1 Vestur-Þýzkalandi. Meðal þeirra eru menn sem gerzt hafa sekir um íkveikjur, skemmdarverk í verksmiðjum og að eitra fyrir búpening. Aðr- ir hafa njósnað fyrir leyniþjón- ustur Bandaríkjamanna, Breta og Frakka. Njósnunum og skemmdarverkunum var stjórn- að frá miðstöð í Vestur-Berlín. Franska ríkisstjórnin hefur hætt við a'ð láta undirbúa framleiðslu á vetnissprengjum. og O’Hara, en fæsta mundi hafa grunað að H. C. Andersen væri líka orðinn svo spilltur í augum réttþenkjandi Bandaríkjamanna, að þeim fyndist ástæða til að vara sérstaklega við honum. En hann er einnig á þessum lista, og varð Dönum spurn hvort mr, Case hefði orðið var við lýðspill- andi hugsanir í ævintýrinu um nýju fötin keisarans, eða þá hvort hann héfði fundið klámið í sög- unni af prinsessunni á bauninni. Bann við útflutn- ingi bóluefnis við lömunarveiki Faure forsætisráðherra skýrði blaðamönnum frá þessu eftir Flugslys á Kínahafi Framhald af 12. síðu. ÍBrezka flotastjórnin í Singa- pore skýrði frá því í gær að einn fallbyssubátur hennar væri á leið til hafnar með þá þrjá menn af áhöfn indversku vélar- arinnar sem af komust og þrjú lík sem fundust. Aður hafði ver- ið skýrt frá að sex menn hefðu bjargast en það reyndist rangt. Pólska stjórnin sendi í gær brezka sendiherranum í Varsjá orðsendingu og kveðst taka und- ir vítur Kínastjórnar á van- rækslu yfirvaldanna í Hong- kong. Einn pólskur blaðamaður fórst með vélinni. ráðuneytisfund í gær. Hann kvað ráðherrana hafa ákveðið að Frakkland yrði að gerast kjarn- orkuveldi og einbeita bæri öll- um kjarnorkurannsóknum í Frakklandi að því að hagnýta kjarnorkuna til friðsamlegra þarfa. Rannsóknum á notkun kjarnorku til hernaðar yrði hætt. Fyrir fáum vikum boðaði Faure að franska stjórnin myndi hefjast handa um að láta smíða vetnissprengjur. Kvað hann þau ein ríki sem yfir þeim vopnum réðu geta, talizt tii stórvelda eins og nú væri komið. Jules Moch, fulltrúi Frakklands í afvopnun- arnefnd SÞ, hvatti skömmu síðar til þess að Frakkar leiddú ’hjá sér kapphlaupið um smíði kjarnorkuvopna. Nokkrum klukkutímum eftir að lyfjaeftirlit Bandaríkjanna leyfði sölu á bóluefni því við lömunarveiki sem læknirinn Jonas Salk hefur framleitt og reynt hefur verið með góðum árangri, tilkynnti viðskipta- málaráðuneytið í Washington að bannað væri að selja bólu- efnið úr landi nema með sér- stöku leyfi. Segir ráðuneytið að þetta sé gert til þess að tryggja það að Bandaríkjamenn gangi fyrir þeim birgðum af bóluefn- inu sem fyrir hendi eru. Talsmaður Heilbrigðismála- stofnunar SÞ sagði í Genf í gær, að þótt sýnt væri að bólu- efni Salks gerði töluvert gagn gæti það ekki ráðið niðurlögum lömunarveikinnar í sinni núver- andi mynd. Rannsóknum væri haldið áfram víða um heim og allar líkur bentu til að enn traustara bóluefni myndi finn- ast áður en langt um liði. Löm- unarveikin væri ekki enn yfir- unnin en sigur í viðureigninni við hana væri nú fyrirsjáanleg- ur. Yfirframmistöðustúlka ! ■ ■ ■ ■ ■ (Hostess) ■ ■ ■ ■ óskast í 1. fl. veitingahús hér í bænum. ■ - ■ Málakunnátta nauðsynleg. — Hátt kawp. Eiginhandarumsókn, meö upplýsingum um mennt- [ un og fyrri störf, svo og mynd, sendist blaöinu j fyrir 15. þ.m. merkt ,,Starf — 941“. REKORD-BÚÐINGAR Romm Ananas Appelsín Sítrón Hindberja Jarðaberja Karamellu Butter scotts Efnagerðin Rekord, Brautarholti 28 —Sími 5913. Aðalfundur tim, Sh=. Rangæingaiélagsins í Reykjavík veröur haldinn í Skátaheimilinu viö Snorrabraut föstudaginn 15. þ.m. og hefst kl. 8.30. Venjuleg aðalfundarstörf, kvikmyndasýning og dans. STJÓRNIN Beztu hamingjuóskir, með einlœgu pakklæti, sendast öllum þeim, sem minntust mín á áttatíu ára afmælisdegi mínum, 11. apríl síðastliðinn. Reykjavík, 13. apríl 1955 STEINN DOFRI œttfrœðingur. oi •) líiií

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.