Þjóðviljinn - 17.04.1955, Side 6
16) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 17. apríl 1955
(IIÓOVIUINN
Útgefasdl: Sameinlngarflokkur alþýSu — Sósíallstaflokkurlnn.
Rltatjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður GuBmundsson C&b.)
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
BlaOamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjaml Benedlktsson, Gu5-
mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfi Öiafssoau
A.uglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritatjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustlg
1». — Síml 7500 (3 línur).
Áskrlftarverð kr. 20 & m&nuði i Reykjavík og n&grenni; kr. 17
annars staðar & landinu. — Lausasöl uverð 1 kr. éintakið.
Prentsmlðja Þjóðviljans h.f.
j Eru verkföllin pólitísk?
„Verkfallið er pólitískt* hrópar Morgunblaðiö á mörg-
um stöðum í gær, og „Verkfallið má ekki verða pólitískt"
heitir forustugrein Tímans. Það er því augljóst að stjórn-
arflokkarnir og atvinnurekendaklíkan eru farin að ótt-
ast mjög pólitískar afleiðingar verka sinna, og einkum er
ótti íhaldsins augljós.
Auðvitað eru verkföliin orðin pólitísk — vegna athafna
stjórnarflokkanna og sérstaklega Sjálfstæðisflokksins. Á
Alþýðusambandsþinginu í haust var samþykkt einróma
af fulltrúum allra stjórnmálaflokka að hefja kjarabaráttu
sem ætti að tryggja það að átta stunda vinnudagur hrykki
verkamönnum til mannsæmandi lífs. Þegar til fram-
kvæmda kom voru haldnir fundir í öllum þeim félögum
sem að verkföllunum standa, og í hverju einasta félagi
var samþykkt einróma, af kjósendum allra flokka, að
leggja til baráttunriar. Kröfur þær sem fram voru bornar
voru á sama hátt samþykktar í einu hljóði. Innan verk-
lýðssamtakanna var þannig ekki unnt að finna nokkurn
pólitískan ágreining um þetta mikilvæga hagsmunamál
og hefur eining og samstaða alþýðunnar aldrei verið jafn
mikil í nokkurri kjaradeilu. Því fór vissulega mjög fjarri
að af alþýðusamtakanna hálfu væri stofnaö til nokkurra
pólitískra verkfalla.
Ef stjórnarflokkarnir hefðu tekið tillit til þessarar óvé-
íengjanlegu staðreyndar hefði aldrei komið til nokkurra
verkfalla; frestur sá sem verkalýðsfélögin veittu hefði þá
verið hagnýttur til þess aö semja viö verklýðssamtökin um
réttlætiskröfur þeirra. Ef stjórnarflokkarnir hefðu átt
nokkurn einlægan trúnað við lýðræði það, sem þeir hampa
mest við hátíðleg tækifæri, hefði einnig verið samið án
tafar — því þá hefðu forsprakkarnir litið á það sem heil-
aga skyldu sína að fylgja vilja kjósenda sinna.
En þetta hefur ekki verið gert, heldur hefur öllu valdi
Sjálfstæðisflokksins verið beitt til þess að koma í veg fyrir
samninga. Meö þessu hefur verkfallsklíka flokksins gert
verkföllin pólitísk — því það verður að brjóta ofstæki
hennar og hatur á bak aftur til þess að fá nokkra lausn
á deilunni. En valdaklíka flokksins hefur einnig sýnt al-
þýðu allri tilgang' sinn og innræti. Hún lítur ekki á það
sem hlutverk sitt að hlíta í neinu vilja þess sem greiðir
flokknum atkvæði; þegar á herðir verður Sjálfstæðisflokk-
urinn' og allt valdakerfi hans tæki fámennrar og harð-
svíraðrar auðmannaklíku. Það eru milljónararnir í
Reykjavík en ekki kjósendumir sem stefnunni ráða, og í
verkföllunum hefur almenningur rekið sig harkalega á þá
staðreynd. Þetta valdakerfi gi'óðaklíkunnar verður að
brjóta á bak aftur; það er brýnasta nauðsyn verklýðssam-
takanna ef þau eiga að geta háð bráttu sína með fullum
árangri.
Stjórnarblaðið Tíminn segir í gær að það sé fráleit krafa
að ríkisstjórnin segi af sér; verkföll geti aldrei orðið til
þess að velta ríkisstjórn, það sé aðeins á valdi alþingis.
Þessi ummæli sýna glöggt að aðstandendur blaðsins skilja
ekki hvað lýðræði er; þeir binda sig við form en ekki inn-
tak. Þegar ríkisstjórn er komin í andstöðu við vilja megin-
þorra þjóðarinnar, þegar henni hefur mistekizt á herfi-
legasta hátt að leysa brýnustu vandamál þjóðfélagsins,
eins og nú hefur orðið raunin hér á landi, er það skylda
hennar að hlýða vilja almennings og segja af sér, enda
þótt alþingismenn hafi ekki manndóm til þess að gegna
sjálfsögðustu störfum sínum. Það má einnig fullyrða að í
engu lýðræðislandi öðru en íslandi myndu ráðhei’rar
sitja sem fastast eftir að hafa beðið algert skipbrot
frammi fyrir þjóðinni, eftir að þeim hefði mistekizt að
sinna sjálfsögðustu verkefnum sínum.
Verklýðshreyfingin hefur ekki stofnað til pólitískra
verkfalla, en stjórnmálaflokkar afturhaldsins hafa gert
verkföllin pólitísk. Með því móti, hafa þeir getað staðið
gegn sjálfsögðum réttindum verkalýðsins í heilan mánuð,
en þeim er nú að skiljast að þeir hafa lagt inn á hættulega
braut. Þeir munu einnig fá pólitísk svör frá verkalýðnum,
og þau geta á skammri stundu gerbreytt valdaaöstöðunni
í þjóðfélaginu.
SKÁK
VUtstjóris GuSmundur Arnlaugsson
1
DroftningarbragS
Á nýafstöðnu skákþingi Sovct-
ríkjanna var taflmeistarinn Petr-
osjan sá eini keppenda er engTÍ
skák tapaði. Hann vann fjórar
skákir en gerði fimmtán jafn-
tefli, Hér fer á eftir skák hans
við Tajmanoff frá þessu móti.
Hér í dálkunum var einhvern
tíma birt skák frá þinginu í
Ziirich milli þessara sömu
manna. Þar tókst Tajmanoff að
koma Petrosjan á óvart og1 vinna
hann fallega. Hér hefnir Petrosj-
an sín á jafn óvæntan hátt.
DROTTNINGARBRAGÐ
Petrosjan — Tajmanoff
1. d2—ilt Rg8—f6 2. c2—c4 e7—e6
3. Rgl—fS d7—d5 4. Rbl—c3 c7—
c6 5. e2—e3 Rb8—d7 6. Bfl—d3
Bf8—b4
Þessi leikur svarts var sú nýj-
ung er Euwe hafði með sér á
keppnina um heimsmeistaratign-
ina 1948. Hann reyndist ekki
sérstaklega vel þá og hefur lítið
sézt síðan.
7. 0- 0 0 '0 8. Ddl—c2 Bb4—d6
Biskupinn heldur heimleiðis —
Eitt er hugsjón og annað
veruleiki, Moggi sæll!
Morgunblaðið heldur áfram
að lofa og vegsama verkfalls-
brjóta og ofbeldismenn á borð
við Guðmund sólarhring. Njóta
bílstjórar þeir sem reynt hafa
að troða illsakir við verkfalls-
vörzluna sérstakrar hylli blaðs-
Þessi hylli er þó ekki sprott-
in af neinni ást Morgunblaðsins
á bílstjórastéttinni, heldur
kemur annað til. Smyglbílstjór-
arnir hafa gert sig seka um
mjög alvarleg afbrot við stétt
sína og samtök. Þeir eru félag-
'ar í Alþýðusambandi íslands og
þeim ber skyldá til að heiðra
skráð og óskráð lög samtak-
anna og samheldni og fórnfýsi
í baráttunni fyrir bættum kjör-
um. Þeir meðlimir verklýðsfé-
laganna sem gerast brotlegir
við stéttarsamtökin eru fyrir-
litlegir svikarar, og því sann-
arlega ekki að undra þótt mál-
gögn atvinnurekenda geri gæl-
ur víð þá.
Sem betur fer hafa bílstjórar
almennt fyrirlitningu á smygl-
urunum og verkfallsbrjótunum
sem Morgunblaðið hampar.
Fjölmargir bílstjórar hafa tekið
þátt í verkfallsvörzlu og lagt
fram bila sína til þeirra þarfa.
Hefur Morgunbiaðið heiðrað
þessa bilstjóra með því áð birta
númerin á bifreiðum þeirra —
og sérstaklega er blaðið
hneykslað á því að þeir skuli
fá benzín á bíla þá sem notaðir
eru til vörzlunnar! Hugsjón
blaðsins er sem sé sú að smygl-
arar og lögbrjótar fái að leika
lausum hala en verkfallsvarzl-
an hafi ekkert benzín á sína
bíla! En eitt er hugsjón og
annað veruleiki, Moggi sæll.
en betra hefði verið d5xc4 fyrst.
9. b2—b3 d5xc4 10. b3xc4 efi—ea
11. Bcl—b2 Hf8—e8 12. Rc3—e4!
Rf6xe4 13. Bd3xe4 h7—h6
Ekki dugar 13. —Rf6 14. dxe5
og hvítur heldur peðinu.
14. Hal—dl e5xd4 15. Be4—h7t!
Kg8—h8 16. Hdlxd4
Þessi óvænta hugmynd að rýma
til fyrir hróknum og beita hon-
um síðan framan við peðin, set-
ur svart í mikinn vanda. Nú
dugar Rf6 augsýnilega ekki: 16.
—Rf6 17. Hfdl Rxh7 18. Hxd6
og Hxh6.
16. — Bd6—c5 17. Hd4—f4! Dd8
—e7 18. Hí4—e4! De7—f8 19.
He4—h4!
Hótar Hxh6 og við þeirri hótun.
á svartur enga viðunandi vörn.
Frekast kæmi til greina að'
reyna 19.—Hefi, en þá kemur
20. Rg5 Hd6 (hxg5 21, Bg8í ! og
mátar) 21. Re4 He6 22. Bf5 Be7
23. Hg4 og vinnur skiptamun.
19. — f7—f6
Með þessu móti kemst svartur
hjá manntjóni, en nú er komið
slæmt skarð í víggirðingarnar
á g6.
20. Bh7—g6 He8—e7 21.Hh4—h5!
Bc5—d6 22. Hfl—dl Bd6—eð 23.
Bb2—a3 c6—c5 24. Rf3—h4 og
svartur gafst upp, því að gegn.
Be4 og Rg6 er engin vörn.
Morgunblaðið áfellist ekki
brennuvarga Heimdallar
Morgunblaðið heykist á pví í gœr að pegja alger-
lega um íkveikju'Heimdellinga á Þórsgötu 1. Birtir
pað litla frétt á öftustu síðu, en reynir að draga
sem allra mest fjöður yfir pað hvílíkan stórglœp
v parna var reynt að fremja og lætur sér ekki til
hugar koma að ileggja nokkurt mat á petta afrek
stuðningsmanna sinna.
Blaðið segir í lokin með greinilegum ánœgjutón:
,,Rannsóknarlögreglunni hefur ekki enn tekizt áð
upplýsa hver innbrotið framdi“. í pví efni gœtu
ýmsir helztu leiðtogar Sjálfstæðisflokksins og að-
standendur Morgunblaðsins eflaust gefið lögregl-
unni mikilvœgar vísbendingar með pví að yfir-
heyra syni sína sem tóku pátt í aðförinni að Þórs-
götu 1, Þjóðviljanum og lögreglustöðinni, eftir
að peim hafði mistekizt að efna til óspekta á úti-
fundi verklýðsfélaganna.
Afstaða sú sem birtist í Morgunblaðinu er mjög
alvarlegs eðlis. Það stóð pví blaði nœst að vanda
um við Heimdallarskrílinn og var raunar skylda
pess. Þetta hefur ekki verið gert og pað talar sínu
skýra máli um pað hversu grunnt er á fasismann
hjá valdamönnum íhaldsins, einnig peim sem
komnir eru til vits og ára.
•MuiimmiitiiHiHNnni
:
ER EKKI EÐLILEGAST
að alþýða Reykjavíkur verzli við sínar
• • 1 o '
eigm buoir:
Verkamenn og aðrir launþegar:
KRON er stofnað og starfrækt fyrst og fremst
ykkur til hagsbóta. Með því að ganga í félagið,
skipta við það og fylgjast af áhuga með rekstri þess,
eflið þið ykkar eigin samtök og bætið jafnf ramt
kjör ykkar.
! IV,
VL-.