Þjóðviljinn - 20.04.1955, Qupperneq 12
Barnadaguriim er á morgun
1200-2000 börn syngja á utiskemmtun
HióÐviumN
Miðvikudagur 20. apríl 1955 -— 20. árgangur — 88. tölublað
í Lækjargöfu á sumardaginn fyrsta
Sumardagurinn fyrsti—barnadagurinn—er á fimmtu-
daginn kemur.
Barnavinafélagið Sumargjöf gengst að vanda fyrir há-
tíðahöldum barnanna, sem verða nú með þeirri nýbreytni
að útiskemmtun barna verður í Lœkjargötu og hefst kl.
liálf tvö.
Auk þess hefur Sumargjöf
daginn.
Formaður Sumargjafar, Arn-
grímur Kristjánsson skólastjóri,
og þeir Bogi Sigurðsson og
Jónas Jósteinsson skýrðu blaða-
mönnum frá fyrirkomulagi há-
tíðahaldanna í gær.
10 heimili
Sumargjöf starfrækti sl. ár
10 heimili, þ.a. 4 dagheimili og
€ leikskóla. Barnafjöldinn á
.heimilum þessum var samtals
á dágheimilunum 541 og.er það
nokkuð meira en árið áður.
Dvalardagar á dagheimilunum
voru rúm 66 þúsund. — Barna-
fjöldi á leikskólunum var sam-
•tals 1035 og er það 80 börnum
fleira en árið áður. Dvalardag-
ar samtals 102 582. — Nánar
verður sagt frá starfsemi Sum-
argjafar síðar.
Sýning í Listamannaskálanum
Sú skemmtilega nýung verð-
ur nú í sambandi við hátíða-
höldin að sýning verður haldin
i Listamannaskálanum á barna-
teikningum, löndurvinnu barna
og leikföngum.
Foreldrum skal bent sérstak-
lega á að sækja þessa sýningu,
Blaiaverkfalli
lckið í London
í gær varð samkomulag milli
700 rafvirkja og vélaviðgerða-
manna og blaðaútgefenda í
London og lauk þar með verk-
falli sem hindrað hefur útkomu
allra dagblaða borgarinnar
nema Daily Worker, blaðs
-kommúnista, í 26 daga. Búizt
er við að blöðin komi út aftur
á morgun. Útgefendur heita
því að taka upp viðræður við
verkfallsmenn um kröfu þeirra
um hækkað kaup.
um 20 inniskemmtanir um
því þar verða aðeins uppeldis-
leikföng, þ.e. leikföng er gefa
börnunum tækifæri til að starfa
og æfa hugsun þeirra. — Ætl-
unin var að sýning þessi byrj-
aði siðasta vetrardag, en hún
getur ekki orðið fyrr en á sum-
ardaginn fyrsta og verður opn-
uð kl. 11 f.h.
Atvinnurekandi
geíur sex þús. kr.
í verkíallssjóð
Enda þótt stjórn Vinnuveitenda-
sambandsins, Thórsararnir og
harðsvíruðustu stóratvinnurek-
endur hafi ákveðið að svelta
verkalýðinn til hlýðni og fá
sjálfir ákvörðunarvald um kaup
og kjör á íslandi er öðru nær en
slíkt sé afstaða allra atvinnurek-
enda.
Það sýnir bezt að ekki bera
allir atvinnurekendur slíkan hug
til verkfallsmanna, að einn at-
vinnurekandi hefur gefið 6 þús.
kr. í verkfallssjóð. I'á er og þess
að geta að á páskunum kom
einn kunnur atvinnurekandi með
góða gjöf til verkfallsmanna við
vegagæzluna.
Sýnir þetta o. fl. að margir at-
vinnurekendur hefðu fyrir löngu
samið við verkamenn ef stjórn
Vinnuveitendasambandins bann-
aði þeim það ekki.
Fer ekki að verða tími til þess
fyrir marga smærri atvinnurek-
endur að liætta að fórna hags-
munum sínum á altari hinna
drottnandi fjandmanna verka-
lýðsins í Vinnuveitendasamband-
inu?
SScíSöskáli KR hrunninn
Skíðaskáli KR í Skálafelli
brann í fyrradag.
Þrír piltar höfðu farið í skál-
ann og hituðu þeir sér hress-
ingu á olíuvél frammi í skál-
anum en fóru svo inn í annað
herbergi. Þegar þeir komu aft-
ur stóð skálinn í björtu báli.
Sluppu piltarnir út en skálan-
um varð ekki bjargað.
Skálinn var 138 fermetrar. Á
KR nú engan skíðaskála, því
skáli félagsins í Hveradölum
brann á sínum tíma.
Tveggja ára barn ferst er
skriða fellur á sveitabæ
í fyrradag vildi það sorglega slys til þegar aurskriða féll
á bæ uppi í Kjós að tveggja ára barn grófst í skriðuna og
lézt.
Skriðan féll um sexleytið á
Hjalla, nýbýli undir Meðalfelli
í Kjós. Kom skriðan ofan úr
Meðalfelli og skall á húsinu að-
^ldyramegin, braut hurðina og
rann skriðan inn. Varð aurinn
í húsinu um hálfan metra á
þykkt.
Telpan sem fórst var dóttir
Helgu og Ingólfs Guðnasonar í
Eyjum. Var telpan þarna hjá
föðurbróður sínum Hans Guðna-
syni og konu hans, en þau eiga
9 börn og var því 12 manns í
húsinu er skríðan féll á það.
Ríkisstjómin önnum kaf-
In yíÖ Kópavogsmálfö!
Önnur þingmál látin víkja!
Meöan mestu nauðsynjamál þjóðarinnar liggja ósnert
og óafgreidd viröist ríkisstjórnin eiga eitt áhugamál ein-
ungis, Kópavogsmálið.
Ctiskemmtun
Skrúðgöngur verða frá Mela-
skólanum og Austurbæjarskól-
anum. Mun vorið, þ.e. lítil
telpa, koma ríðandi í farar-
broddi. Veturinn kemur frá
Austurbæjarskólanum. Skrúð-
ganga frá Austurbæjarskólan-
um kemur niður Skólavörðustig
nú, því útiskemmtun verður
fyrir börn í Austursíræti og
kemur því önnur skrúðganga
með Tjörninni, en hin að norð-
an og mætast á götunni.
Ræðuhöldum við Austurvöll
er nú sleppt. í Lækjargötu
verður kórsöngur barna, með
aðstoð lúðrasveitar, verða 1600
til 2000 börn í kórnum. Þá
verða og leikfimi- og þjóð-
Hófst 2. umræða málsins um
tvöleytið í fyrrinótt, og fluttu
þá framsögumenn nefndar ræð-
ur sínar. Leggja stjórnarþing-
menn til að frumvarp Ólafs
Thórs, Steingríms og Emils Jóns-
sonar verði samþykkt tafariaust,
en Hannibal Valdimarsson telur
málið ekki tímabært.
Hélt umræðan áfram á fundi
neðri deildar í gær, og deildi
Lúðvík Jósefsson fast á hin ó-
svl'fnú vinnubrögð ráðherranna
og hjálparmanna þeirra í þessu
máli, sem látið væri taka tíma
þingsins dag og nótt, meðan
stórmál biðu afgreiðslu.
Var málið enn rætt á kvöld-
fundi í gærkvöld.
Framhald á 3. síðu.
Nýtt hefti Réttar koniið út
Réttur, 1.—4. hefti 38. árgangs er nýkominn út og flyt-
ur að vanda efni er allir sósíalistar þurfa að lesa.
Sérstaklega skal öllum bent
á að lesa grein ritstjórans, Ein-
ars Olgeirssonar: Nokkrar hug-
leiðingar um leið Islendinga til
þjóðfrelsis og sósíalisma. Einar
hefur um undanfarin ár skrif-
að hverja greinina annarri betri
um helztu vandamál þjóðarinn-
ar, og á þessi grein ekki sízt
erindi til allra góðra íslend-
inga nú.
Annað efni er: Ragnarök
nýlendukúgunarinnar, eftir Ás-
mund Sigurðsson, Guatemala og
ísland, eftir Ásgrím Albertsson,
Getur lýðræði þróazt í borgara-
legu þjóðfélagi eftir Bjöm Þor-
steinsson sagnfræðing, Innlend
víðsjá eftir Brynjólf Bjarna-
son alþm. Þegar menn eru
vondir, heitir smásaga eftir
Sigurjón Einarsson. Þrjú kvæði
eru í heftinu, Brást þér værð,
eftir Jakobínu Sigurðardóttur
og Marþöll og Að Bæjarstað
eftir Þorstein Valdimarsson.
Husvíkingar fagna
Norðlendingi
Húsavík í gær. Frá frétta-
ritara Þjóðviljans.
Togarinn Norðlendingur sem
Húsvíkingar eiga hluta í legg-
ur hér upp afla í dag í fyrsta
skipti. Er aflinn 140 tonn, Er
allstaðar flaggað í bænum í til-
efni af komu togarans. SæmUeg-
ur afli er á vélbáta hér.
r _
Ihald og Framsókn fella fjár-
öflun til verkamannabústaða
Jóhann Hafstein lýsir yfir að byggingarlán sam-
kvæmt húsnæðisfrumvarpi stjórnarinnar séu ekki
ætluð láglaunafólki!
Jóhann Hafstein lýsti því yfir á Alþingi í gær, fyrir
hönd stjórnarflokkanna, að lánakerfi það sem komið væri
á fót með húsnæðisfrumvarpi Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknar, væri ekki ætlaö lægst launaða fólkinu í
landinu. Það hefði aðgang að öðru lánakerfi, þar sem
væru lánin til verkamannabústaða!
Nokkrum mínútum síðar fór fram atkvæðagreiðsla í
neöri deild Alþingis, sömu deildinni og Jóhann var aö tala
í, og felldu þá þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknar tillögu um að 12 milljón króna lánsfé skyldi árlega
renna til byggingarsjóös verkamanna, sama upphæö og á-
kveöið er að byggingarsjóður sveitanna fái.
Áður en þessi atkvæðagreiðsla
fór fram minnti Gylfi Þ. Gísla-
son á, að heita mætti að ríkis-
stjórnin hefði lokað þeim leiðum
að verkamenn gætu notið kjara
laganna um verkamannabústaði,
og að engin bót væri á því ráð-
in með lánafrumvarpi ríkis-
stjórnarinnar.
Þessir alþingismenn felldu til-
löguna um fjárframlög í bygg-
ingarsjóð verkamanna til jafns
við byggingarsjóð sveitanna:
Björn Ólafsson,
Kristín Sigurðardóttir,
Jóhann Hafstein,
Magnús Jónson,
Eiríkur Þorsteinsson,
Pétur Ottesen,
Sigurður Ágústsson,
Skúli Guðmundsson,
Steingrímur Steinþórsson,
Einar Ingimundarson,
Páll Þorsteinsson,
Gísli Guðmundsson,
Halldór Ásgrímsson,
Helgi Jónasson,
Ingólfur Jónsson,
Jón Pálmason,
Gunnar Gislason,
Jónas Kafnar,
Jörundur Brynjólfsson,
Sigurður Bjarnason.
Með tillögunni greiddu atkvæði
þingmenn Sósíalistaflokksins, Al-
þýðuflokksins og Þjóðvarnar-
flokksins. — Reykvíkingum mun
verða starsýnt á að sjá þrjá af
Reykjavíkurþingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins taka þessa af-
stöðu, að nýgefinni yfirlýsingu
Jóhanns Hafstein sem áður getur.
Stjómarliðið felldi allar til-
lögur þeirra Gylfa og Karls um
endurbætur á frumvarpinu, en
þeim tillögum er lýst í nefndar-
álitinu, sem birt er á 7. síðu
blaðsins í dag.
Nafnakall var haft um þá
breytingartillögu, að svo yrði
kveðið á í lögunum, að „þeir
lánbeiðendur, sem lvafa fyrir
stærstri fjölskyldu að sjá, skulu
að öðru jöfnu sitja fyrir lánsfé.“
Gegn þeirri reglu greiddu þess-
ir þingmenn atkvæði:
Magnús Jónsson, Páll Þor-
steinsson, Pétur Ottesen, Sigurð-
ur Ágústsson, Skúli Guðmunds-
son, Steingrímur Steinþórsson,
Björn Ólafsson, Einar Ingimund-
arson, Eiríkur Þorsteinsson, Gísli
Guðmundsson, Ingólfur Jónsson,
Jóhann Ilafstein, Jónas Rafnar,
Sigurður Bjarnason, Kristín Sig-
urðardóttir, Haldór Ásgrímsson,
Helgi Jónasson.
Var tillagan felld gegn atkvæð-
um sósíalista, Alþýðuflokks-
manna og Þjóðvarnarflokks-
manna.
Verkfallsmenn! Hafið daglega samband við bækistöðvar verkfallsstjómarinnar!