Þjóðviljinn - 29.04.1955, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 29.04.1955, Blaðsíða 1
Olíumálið 1 Frásögn af úrslitum Olíu—< málsins í Hæstarétti er *ki 3. síðu blaðsins. Sex vtkna barátfu verklýSsfélaganna lokiS meS mikilvœgum sigri: 16% HÆKKUM m VERKALYÐSMS 11% bein kaupbækkun - 4% atvinnuleysistrygg- ingar -1% orlof - afnám vísitöluskerðingar Verkíöllunum miklu er lokið eítir hugprúða og íórníúsa baráttu alþýðunnar í réttar sex vikur, en í sögu alþýðusamtakanna íslenzku heíur annar eins íjöldi aidrei íyrr háð jafn langt verkfall. Þessarar baráttu mun lengi verða minnzt í sögu alþýðusamtakanna, samheldni og hugprýði alþýðunnar og þess árangurs sem vannst. Það vantar að vísu mikið á að verkafólk hafi fengið öllum réttlætiskröfum sínum fullnægt og heimt þann hlut sem því ber — ea samt er þetta stérfelldasti sigur sem verkalýðshreyfingin hefur unnið í kjaraharáffunni síðan 1944, þegar sókn hennar reis sem hæst áður. Meginatriði nýju samninganna eru á l»essa leið: 11% kauphækkun Almennt kaup meðlima Dagsbrúnar, Hlífar og Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar hækkar umi 11% — en þar af eru 10% grunnkaupshækk- un og 1% greiðsla til að vega upp veikindadaga og greiðist hún á allt kaup, dagvinnu, eftirvinnu og næturvinnu. Grunnkaup Iðju hækkar um 10% og um 15% hjá nokkrum flokkum, hins vegar hafði félagið áður samið um greiðslu fyrir veik- indadaga. Hjá iðnaðarmannafélögunum og á öllum töxtum sem eru hærri en alinenni Dagsbrúnartaxt- inn fellur vísitöluskerðingin niður, og er nú greidd full kaupgjaldsvísitala að viðbættum 10 stigum á allt kaup þeirra félaga sem standa að verkföllunum. Þessi féiög fá einuig grunnkaups- hækkun sem er þannig reiknuð að hún og vísi- töluhækkunin nemi samtals 10% kauphækkun. Þá fá iðnaðarmannafélögin einnig 1% sem renn- ur sjúkrasjóði þeirra, 25% kauphækkun iðnnema Mesta kauphækkun fá iðnneinar, og hefur rétt- lætiskröfum þeirra verið hrundið góðan spöl áleiðis. Lágmark þeirra af sveinakaupi liækkar á fyrsta ári úr 25 i 30%, á öðru ári úr 30 í 35%, á þriðja ári úr 40 í 45% og á fjórða ári úr 45 í 50%. Ofan á þetta bætist svo sarna grunnkaups- hækkun og sveinar fá. Fyrir nema á fyrsta ári samsvarar þetta 25% kauphækkun. 4% í afvinnuleysisfryggingar Verklýðslireyfingin fær framgengt einu stærsta hagsmunamáli sínu frá uphafi vega: stofnun atvinnuleysistrygginga. Til þeirra renna 4% af ár- legum kaupgreiðslum til meðliina Alþýðusam- bandsins — miðað við dagkaup Dagsbrúnar- manna — og greiða atvinnurekendur 1%, ríki 2% og sveitarfélög 1%. Úthlutun atvinnuleysis- bóta er í höndum verklýðsfélaganna. Greiðslur í sjóðinn lief jast 1. júní í sumar, en lög verða sett á þingi í haust. Áætlað er að í atvinnuleysis- tryggingasjóð renni allt að 30 milljónir króna á ári, miðað við það að full atvinna sé í landinu. 1% hækkun á orlofsfé Orlofsfé liækkar um 1%, þannig að orlof verð- ur eftirleiðis 18 virkir dagar eða 6% af kaupi. Hefur þar unnizt sigur í miklu baráttuináli verklýðshreyfingarinnar innan þings og utan. Afnám vísiföluskerðingar Eius og fyrr segir er visitöluskerðingin frá 1951 afnumin, eins og verklýðsfélögin kröfðust í upp- hafi, og full kaupgjaldsvísitala að viðbættum 10 stigum greidd á kaup, en það samsvarar fuUri framfærsluvísitölu eins og nú standa sakir. Sérkröfur Þessi atriði nema samtals 16%, en auk þeirra hafa verklýðsfélögin fengið framgengt ýmsum sérkröfum sínum. Þannig styttist eftirvinnu- tímabil verkamanna um þrjá stundarfjórðunga. Matartími hefst kl. 19.15 og jafnframt nætur- vinnutími, en sérstakt Ieyfi þarf til að láta vinna eftir kl. 20 eins og verið liefur. Ríkisstjórnin er aðili að pessu samkomulagi og hefur pannig á óbeinan hátt skuld- bundið sig til pess að framkvœma ekki hótanir sínar um gengislækkun og aðrar ráð- stafanir gegn kjarasigrum verkálýðsfélaganna. Auk pess eru í samningunum ákvœði um pað að peir séu uppsegjanlegir með eins mánaðar fyrirvara ef gengi krónunnar verði lœkkað. Annars gilda samningarnir til 1. júní 1956, og eru pá uppsegjanlegir með eins mánaðar fyrirvara, en framlengjast í sex mánuði sé peim ekki sagt upp. Samningarnir voru undirritaðir með yfirlýsingu um að öll klögumál vegna fram- kvæmdar verkfallsins skuli niöur falla. 3960 kr. hækkun á árskaupi Dagsbrúnarmanns. Kauphækkun sú um 11% sem samið er um jafngildir því að Dagsbrúnarkaup hækkar úr kr. 14.88 á klukkustund í kr. 16,53. Hækkunin er þannig kr. 1,65 á klukkustund miðað .við Samþykkt atvinnuleysistrygg- inga er einn mikilvægasti á- fangi sem náðst hefur í sögu þá vísitölu sem nú gildir, eða kr. 13,20 á dag af átta tíma vinnu. Á ári nemur kauphækk- unin kr. 3.960 ef reiknað er með núgildandi vísitölu og dag- vinnu í 300 daga. alþýðusamtakanna frá uppliafi vega. Samkomulag það um tryggingarnar sem gert var hljóðar í lieild á þessa leið: „Aðiljar gera með sér síðar- greindan kjarasamning á grund velli þess, að ríkisstjómin heiti því, að lög verði sett um at- vinnuleysistryggingar, enda feli lögin í sér eftirfarandi atriði: 1. Stofna skal atvinnuleysis- tryggingasjóð og um hann sett löggjöf á þinginu, sem kemur saman n.k. haust, í sami'áði við verkalýðssamtökin og samtök atvinnurekenda. 2. Framlög til sjóðsins vegna hvers tryggðs aðilja verði sem Framhald á 10. síðu átvinnuleysislryggingar: eiff mikilvægasla hags- munamál verklýðshreyfingarinnar frá upphafi Stærsti sigur verk- lýðshreyfingarinii- ar síðan 1944 Enda pótt verkamenn hafi ekki fengið allar pœr réttarbœtur sem peir áttu heimtingu á er sigur peirra samt mjög mikilvægur; petta er stœrsti sig- ur sem verkalýðshreyfingin hefur unnið í kjara- baráttunni síðan 1944 en pá fengust 16,6%. Þetta sést glöggt ef rifjuð eru upp verkföll pau sem Dags- brún hefur háð síðan og úrslit peirra. Sá saman- burður lítur pannig út: 1946 ......................... 8,2% 1947 5,7% , 1949 10,0% 1951 9,0% 1952 7-10% 1955 .......................... 16,0% Sum verkföllin voru mjög hörö og langvinn, eins og verkfallið 1947 sem stóð í fimm vikur. Við petta bœtist að nú hefur verkalýðshreyfingin fengið framgengt einhverju mikilvœgasta og brýnasta hagsmunamáli sínu, stofnun atvinnuleysistrygg- inga, en fyrir pví hefur verið barizt um langt ára- bil og pingmenn sósíalista hafa ár eftir ár flutt um pað frumvörp og nú síðast ásamt pingmönnum Alpýðuflokksins. Sá sigur mun reynast verkalýðs- hreyfingunni mun mikilvægari en pau 4%, sem renna eiga í sjóöinn, gefa til kynna. Samningarnir samþykktir Verkalýðsfélögin héldu fundi um samningana í gær; voru þeir mjög fjölmennir og samningariiir livarvetna sam- þykktir svo til einróma. Dags- brúnaríundurinn var í Gamla bíói og er nánar sagt frá lion- um á 12. síðu blaðsins. Iðja hélt mjög fjölmennan fund í Iðnó og var þar mikil ánægja yfir þeim árangri sem náðst liefði í kjarabaráttu félagsins tvívegis á nokkrum mánuðum. Önnur félög sem að samning- unum slóðu í Reykjavík og samþykktu þá í gær voru fé- lög múrara, skipasmiða, flug- Framhald á 10. siðu. Verkfallssjóðurinn 547 sund kréfinr í gær bættust 17 púsund krónur í verkfallssjóð- inn. Þessi framlög bárust: Söfnun frá Akranesi kr. 3200,00. Söfnun frá Keflavíkurfélögu,num kr. 7510,00. V erkalýðsfélag Austur-Húnvetninga, framlag kr. 1000,00 og söfnun kr. 1025,00. Verka- lýðsfélag Dalvíkur kr. 1200,00. Verkalýðsfélag Bolungavíkur kr. 3000,00.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.