Þjóðviljinn - 29.04.1955, Page 9
I
Föstudagur 29. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9
# ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRl. FRÍMANN HEUGASON
•-- -----------------------
Da Silva ætlaði að hætta 1952
V. M. Hermandez Cubu 15.60
Miko Oda Japan 15.58
í>að þófti engin smáfrétt þeg-
ar það barst út um heiminn, að
Olympíumeistarinn frá 1952 í
Helsingfors hefði bætt heims-
metið um 34 cm.
I rauninni hafði Da Silva á-
kveðið að hætta eftir Olympíu-
sigurinn og heimsmetið í Hels-
ingfors og snúa sér að því að
mennta sig. En svo kom Rúss-
inn Tsérbakoff og bætti heims-
met hans um 1 cm. Þetta varð
til þess að hann fór að velta
fyrir sér að byrja aftur á harðri
þjálfun og gera tilraun til að
endurheimta met sitt og þetta
tókst eins og áður hefur verið
frá skýrt hér.
Ademar Ferreira da Silva en
svo heitir hann fullu nafni er
nú 28 ára gamall, byrjaði að
æfa frjálsar íþróttir 1947. Þeg-
ar á því ári stökk hann vfir 15
m. Þetta varð til þess að hann
var valinn til að keppa á O.L. í
London 1948. Þar náði hann
ekki þeim árangri sem hann
hafði gert ráð fyrir, stökk 14.49
og varð í 6. sæti. En hann gafst
ekki upp og árið 1951 setur
hann svo fyrsta heimsmet sitt
sem var 16.01 eða 1 cm betra
en met Japanans Tajimas.
Á þessum árum hafði hann
harða keppni af landa sínum
H. Coutinho da Silva (þeir eru
samt ekkert skyldir). Hann
hafði lengst stokkið 15.90 en
fótbrotnaði um það leyti og
varð að hætta.
Ferreira da Silva er fæddur
í braselísku borginni Sao Paulo
og vann þar að iðnaði í mörg
ár.
Hann var ágætur knatt-
spyrnumaður, en frjálsar íþrótL
ir og þó sérstaklega þrístökk
tók allan áhuga hans.
Hér fara á eftir nöfn og ár-
angur 20 beztu þrístökkvara í
heiminum:
A.F. da Silva Brasilíu 1*6.56
L. Tsérbakoff Sovétr. 16.22
A. Devonish Venezuela 16.13
N. Tajima Japan 16.00
H. C. da Silva Brasilíu 15.99
Kenshi Togami Japan 15.86
Kenshi Oshima Japan 15.82
Chenkong Kin Japan 15.78
Jack Metcalfe Ástralíu 15.75
Masao Harada Japan 15.72
Chuhei Nambu Japan 15.70
Lloyd Miller Ástralíu 15.70
B. Samorinborts Sovétr. 15.66
Basil Dickinson Ástralíu 15.64
Masahiko Omiro Japan 15.63
V. Dementjeff Sovétr. 15.63
Keizo Hasagova Japan 15.62
Brian Oliver Ástralíu 15.61
Ágæturárangurá
innanfél.-mót KR
Laugardaginn 8. apríl s.l. hélt
KR innanfélagsmót í kúluvarpi
og kringlukasti. Árangur í kúlu-
varpi hjá Guðmundi Hermanns-
syni var mjög góður, varpaði
kúlunni 14,77 metra, og var
styzta kast hans 14,38 metrar,
sem sýnir hversu jafn hann er,
ög ætti hann því hð vera
öruggur 15 metra maður í sum-
ar, ef hann æfir vel.
í kringlukastinu var Þorsteinn
Löve beztur og kastaði 45,70
metra, en búast má við því
að hann bæti þann árangur veru-
lega bráðlega.
Úrslit:
Kúluvarp:
Guðm. Hermannsson KR 14,77
Friðrik Guðmundss. KR 12,97
Þorsteinn Löve KR 12,67
Pétur Rögnvaldsson KR 12,47
Kringlukast:
Þorsteinn Löve KR 45,70
Friðrik Guðmundsson KR 42,85
Guðm. Hermannson KR 40,40
NámskeiS fyrir
UFiglingaþjálfara |
í knattspyrnu
TiSboð óskast
í neðangreindar bifreiðar:
1. Plymouth fólksbifreið smíðaár 1952
2. Plymoutli fólksbifreið smíðaár 1951
3. Vauxhall fólksbifrcið smíðaár 1953
Knattspyrnusamband íslands
og Iþróttakennaraskóli íslands
gangast í sameiningu fyrir nám-
skeiði vegna unglingaþjálfara í
knattspyrnu og verður það
haldið að Laugarvatni dagana
16.—22. maí n.k.
Það sem tekið verður fyrir á
námskeiðinu er í höfuðatriðum
eftirfarandi: Leikfræði (taktik),
leiktækni, leikir, leikreglur,
hlaup og æfingar, félagsstarf og
fundarstjórn, sálfræðilegar leið-
beiningar, þjálfunarfræði og
heilsufræði o.fl. Á kvöldin er
fyrirhugað að sýna kennslu-
kvikmyndir og að umræður fari
fram.
Fjöldi þátttakenda verður að
þessu sinni takmarkaður við 15.
Umsækjendur verða að hafa náð
17 ára aldri, vera lreilsuhraust-
ir reglusamir. Taka skal fram
í umsókninni íþróttaárangra, ef
fyrir hendi eru, svo og ef um-
sækjandi hefur starfað að
knattspyrnukennslu eða ung-
lingaleiðsögn og þá hvar. Hafi
umsækjandi í hyggju að starfa
hjá einhverju félagi eftir að
námskeiðinu lýkur, .skal taka
það fram sérstaklega.
Áætlaður kostnaður fvrir
hvern þátttakanda er kr. 300,00
og éru ferðir, Reykjavík-Laug-
arvatn-Reykjavík þar innifald-
ar.
Umsóknir skulu sendar for-
manni K.S.Í. hr. Björgvin
Schram, Hafnarhvoli, Reykja-
vík, eigi síðar en 30. april n.k.
(Frá K.S.Í.)
■
£ Bifreiðarnar verða til sýnis hjá Ara-stöðinni við Háteigs-
veg, föstudaginn 29. þ.m. kl. 1-3 e.h. — Tilboðin verða
: opnuð í skrifstofu vorri sama dag kl. 4.
Sala setuliðseigna ríkisins.
«■■■■■■■■■■»*■*■■■»*■■»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i
Vélbáturiiui Ingólíur KE-96
£ er til sölu. Tilboð óskast í bátinn eins og hann er
I við vestari bryggjuna í Hafnarfiröi.
Tilboðum sé skilaö til' undirritaös fyrir 5. maí n.k.
Réttur áskilinn til aö taka hvaöa tilboði sem er
[ eöa hafna öllum.
Ingi R. Helgason,
lögfrœðingur, Skólavörðustíg 45.
Sími 82207.
:
■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■'
HlégarSur Hlégarður
Verkalýðsfélagið Esja
heldur 1. maí-fagnaö aö Hlégaröi laugardaginn 30.
apríl 1955 kl. 9 e.h.
Ræða: Hannibal Valdimarsson forseti A.S.Í.
Dansað til kl. 2 e.m.
FerÖir frá bifreiöaafgreiöslunni kl. 9 e.h.
Ölvun bönnuö Húsinu lokað kl. 11.30.
S
■■■■■■■■■■■■■■■■■■»■■■»«■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■»■■■■■■
Cunnar M. Magnúss: . j
Börnin frá Víðigerði
Stjáni fór aftur upp, þegar hann var búinn
að borða nægju sína. Hann fann, að hann var
búinn að koma sér út úr húsi hjá Víáigerðis-
bændunum og kannske öllu fólkinu, krökk-
unum líka. Nú var um að gera, að vera ráða-
góður og komast aftur í sætt með góðu
eða illu.
Stjáni gaf sig fyrst á tal við nokkra Aust-
firðinga, sem stóðu við borðstokkinn. Meðal
þeirra var aldraður maður, vel búinn, þéttur
á velli og gráhærður. Hann tók upp silfur-
búinn tóbaksbauk og sló honum við borð-
stokkinn. Stjána datt brátt í hug, að maður
þessi myndi eiga töluvert til, úr því að hann
hafði svona fínan bauk. Hann notaði tæki-
færið, greip upp blað, sem hafði dottið úr
vasa mannsins og ávarpaði hann:
„Fyrirgefið, þér misstuð þetta úr vasanum”,
og rétti fram blaðið.
„Þakka góðurinn, en þetta er víst einskisvirði".
svaraði maðurinn.
„Það er varasamt að taka margt upp úr vasa
sínum á ferðalagi“, hélt Stjáni áfram, „sérstaklega
meðal útlendinga. Hafið þér nokkuð kynnzt út-
lendingum?“
Maðurinn leit á Stjána dálítið hissa og bros-
leitur: „Jæja, svolítið kannski“.
„Fyrirgefið, er fjölskylda yðar; stór“, sagðí
Stjáni enn. „Hvernig líður fólkinu? Er það sjó-
veikt? Kann fólkið yðar að biðja um vatn hérna'
um borð? Hafið þér nokkurn til snúninga?“
Auglýsing
um skoðun bifreiða í lögsagnar-
umdæmi Keflavíkurflugvallar
Samkvæmt bifreiöalögunum tilkynnist aö aöal-
skoöun bifreiöa fer fram frá 2. til 10. maí n.k., aö
báöum dögum meötöldum, svo sem hér segir:
Mánudaginn 2. maí.......... J-1 — J-50
ÞriÖjudaginn 3. maí........ J-51 — J-100
MiÖvikudaginn 4. maí....... J-02001 — J-02050
Fimmtudaginn 5. maí........ J-02051 — J-02100
Föstudaginn 6. maí........... J-02101 — J-02150
Mánudaginn 9. maí............ J-02151 — J-02200
Þriöjudaginn 10. maí fer fram skoöun á bifreiö-
um er hér eru í notkun, en skrásettar annars staö-
ar.
Bifreiöaskoöunin fer fram viö lögreglustööina
hér ofangreinda daga frá kl. 9-12 og 13-16.30.
Viö skoöun skulu sýnd skilríki fyrir því aö lög-
boöin vátrygging fyrir hverja bifreiö sé í gildi og
fullgild ökuskírteini skulu lögö fram.
Vanræki einhver aö færa bifreiö til skoöunar á
áöur auglýstum tíma, veröur hann látinn sæta á-
byrgð samkvæmt bifreiöalögunum og bifreiöin tek-
in úr umferö hvar sem til hennar næst.
Geti bifreiöaeigandi eöa umráöamaöur bifreiöar
ekki fært hana til skoöunar á áöur auglýstum tíma,
ber honum aö tilkynna mér þaö bréflega.
Athygli er vakin á því, aö umdæmismerki bif-
reiða skulu vera vel læsileg, og er því þeim er þurfa
aö endurnýja númeraspjöld bifreiða sinna ráðlagt
aö gera svo nú þegar.
Þetta tilkynnist öllum er hlut eiga að máli.
Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli,
26. april 1955.
Björn Ingvarsson
I
,■■■■■■■»■■■■■■■■■■■»■■■■•■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■»■■■■•■■'•■■■■■■■■■■■»■■■■■■■■■■•■■•■■■■■■■■■•