Þjóðviljinn - 29.04.1955, Side 11
Föstudagrur 29. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (11
Erich Maria IlEMAItQUE:
Að elsha ...
9
*. o og dey ja
113. dagur
„Já“.
Maöurinn ýtti til hans tveim eyöublöðum. ,,Undir-
ritiö hér. Skrifiö undir nafn yöar: Eiginmaöur Elísa-
betar Kruse. Og bætiö viö dagsetningu og staösetningu
hjónavígslunnar. Hitt eyöublaöiö getiö þér tekið meö
yður“.
Gráber undirritaöi með hægö. Hann vildi ekki láta
á þv.í bera aö liann væri aö lesa það sem á skýrslunni
stóð, en hann vildi ekki undirrita neitt óséð heldur. Á
meðan rótaöi maöurinn í einum skjalaskápnum. „Hver
fjandinn! Hvar er þessi aska?“ hrópaöi hann loks.
„Holtmann, þú ert 'búinn að róta öllu einu sinni enn.
Komdu meö Kruse pakkann“.
Einhver heyröist táuta bakviö skilrúmiö. Gráber sá
aö hann haföi undirritaö kvittun fyrir móttöku ösku
Bernhards Kruse, fanga í verndargæzlu. Auk þess sá
hann aö tekiö var fram aö Bernharö Knise heföi látizt
úr hjartasjúkdómi.
Skrifstofumaöurinn haföi brugðiö sér bakviÖ skil-
rúmiö. Nú kom hann aftur meö vindlakassa sem of litlu
brúnu bréfi haföi veriö vafiö utanum og bundiö um
meö seglgarni. Á hliöunum stóð orðið „Clar^“ og þaö
skein í litskrúöug vörumerkin á vindlakassanum; þar
var rautt og gyllt skjaldarmerki, sem pípureykjandi
indíáni hélt á lofti.
„Hér er askan“, sagöi skrifstofumaöurinn og leit syfju-
lega á Gráber. „Þér eruö hermaöur og ég þarf því varla
að taka þaö fram aö fullkomin þögn er áskilin. Engin
dánartilkynning — hvorki í blööum né póstsend. Engin
minningarathöfn. Þögn. Skiljiö þér?“
„Já“.
Gráber tók vindlakassann og fór.
Hann ákvaö strax aö segja Elísabetu ekkert. Hann
ætlaði aö eiga þaö á hættu aö hún kæmist á snoöir um
þetta seinna. Þaö var ólíklegt, því að Gestapo endurtók
sjaldnast tilskipanir. Honum fannst nóg aö þurfa aö
yfirgefa hana innan fárra daga; þaö var óþarfa harð-
ýðgi aö tilkynna henni andlát fööur hennar að auki.
Hann gekk hægt til Katrínarkirkjunnar aftur. Líf
virtist hafa kviknaö á götunum að nýju. Ógnunin var
liðin hjá. Hún haföi breytzt í dauða; en þaö var dauöi
ókunnugs manns. Hann haföi aöeins þekkt fööur Elísa-
betar þegar hann var barn.
Hann hélt á vindlakassanum undir hendinni. Senni-
lega var aska Kruse alls ekki í honum. Holtmann hefði
hæglega getaö villzt á kössum, og aennilega var starfs-
fólk fangabúðanna ekki of nákvæmt í þessum sökum.
Auk þess var algengt að mai’gir væru brenndir í einu.
Einhver starfsmaður mokaði út nokkrum lófum af ösku
og setti hana í kassa. ÞaÖ var allt og sumt. Gráber
skildi ekki hvers vegna haft var fyrir þessu. Þetta var
sambland af kaldhæöni og skriffinnsku sem geröi mann-
úðarleysið’ enn ómannuölegra.
Hann fór áö hugsa um hvaö hann ætti aö gera við
öskuna. Hann gæti grafið hana einhvers staöar í rúst-
unum. Hann hafð’i ótal tækifæri til þess. Hann gæti líka
reynt aö grafa hana í kirkjugarði, en til þess þyrfti
hann leyfi og gröf og Elísabet kæmist að öllu.
Hann gekk gegnum kirkjuna. Fyrir framan skriftastól
séra Biedendiecks nam hann staöar. Spjaldið sem á stóö
„Fjarverandi11 hékk á honum. Hann ýtti græna tjaldinu
til hliöar. Jósef horföi á hann. Hann var vakandi og sat
þannig aö hann heföi getaö sparkaö í magann á Gráber
og hlaupiö burt þegar í staö. Giíáber gekk framhjá áö
stúkunni skammt frá skrúöhúsinu. Eftir stundarkorn
kom Jósef. Gráber benti á vindlakassann. „Þaö var þetta.
Aska fööur hennar“.
„Ekkert meira“.
,,Þaö er nóg. Hefurðu frétt nokkuð af Pohlmann?“
,,Nei“.
Þeir litu báðir á pakkann. „Vindlakassi“, sagöi Jósef.
„Venjulega nota þeir gamla pappakassa, niöursuðudósir
eðá bréfpoka. Vindlakassi er næstum eins og líkkista.
Hvar ætlaröu aö láta hann? Hér í kirkjuna?“
Gráber hristi höfuöiö. Honum haföi allt í einu dottiö
annaö í hug. „í garöinn við súlnagöngin“, sagöi hann.
„Þaö er eins konar kirkjugaröur“.
Jósef kinkaöi kolli.
„Hvaö um þig? Get ég gert nokkuö fyrir þig?“ spuröi
Gráber.
„Þú getur fariö út um hliöardyrnar þarna og aðgætt
hvort nokkuð grunsamlegt er aö sjá á götunni fyrir utan.
Ég verö aö fara; gyöingahatarinn er á yakt eftir eitt. Ef
þú kemur ekki innan fimm mínútna geri ég ráö fyrir
aö öllu sé óhætt“.
Gráber stóö í sólskininu. Eftir stundarkorn kom Jósef
út urn dyrnar, Hann gekk þétt við Gráber. „Gangi þér
• vel! “- tautaöi -hann.
„Gangi þér vel“.
Gráber gekk til baka. Garöurinn var tómur um þetta
leyti dags. Tvö gul fiðrildi meö rauöa díla á vængjun-
um voru aö flögra kringum runna, þakinn örsmáum
hvítum blómum. Runninn stóö hjá gröf Aloysius Blumer,
kirkjufööur og kennimanns. Gráber gekk nær. Þrjár graf-
ir .höfðu hruniö saman, en gröf Blumers á þann hátt
aö holrúm haföi myndazt undir grasinu. Þaö var góöur
staöur.
Hann skrifaöi á miða að þetta væri aska kaþólsks
fanga úr fangabúöum. Hann geröi þaö, ef ske kynni aö
vindlakassinn fyndist. Hann stakk miöanum undir brúna
bréfiö. Meö byssusting sínurn skar hann sundur gr^s-
svöröinn og stækkaði holrúmiö varlega, þangað til.kass-
inn komst fyrir. Þaö var auövelt verk. Hann tróö mold-
inni sem hann haföi rótaö út úr holunni inní hana aftur
og lagöi grassvörðinn til aftur. Bernharð Kruse, ef þetta
var hann, hafði fengiö hvíldarstaö í helgri jörö, viö fætur
mikils metins kirkjuhöföingja.
Gráber gekk til baka og settist á múrvegginn. Stein-
arnir voru heitir af sól. Ef til vill hef ég framiö helgi-
spjöll, hugsaöi hann, eöa ef til vill var þetta tilgangs-
laust viökvæmnisverk. Bemharö Kruse hafði veriö kaþ-
ólskur. Líkbrennslur voru bannaöar meö kaþólskum; en
kirkjan yröi aö fyrirgefa þaö vegna óvenjulegra aö-
stæðna. Og ef þetta var alls ekki aska Kruses, heldur
aska fjölmargra fórnardýra, þar á meöal mótmælenda
og trúaöra gyðinga, þá væri þetta samt sem áður rétt-
lætanlegt. Hvorki Jahve né guö mótmælenda né guö
kaþólskra gæti haft mikiö viö þaö aö athuga.
Dsvanar
Ödýrir dívanar fyrirliggjandi
Fyrst til okkar — það
borgar sig.
Verzl ÁSBRÍl,
Grettisgötu 54,
sími 82108
T I L
LIGGUR LEIÐIN
eimilisþáttnr
Kostir og gallar á plastmálningu
Barnasokkar
háir, verð frá kr. 4,75.
Hosur, verð frá kr. 6,00.
Toledo
Fischersundi.
P
Plastmálning hefur náð all-
mikilli útbreiðslu upp á siðkastið
og þar sem hún hefur baeði góða
og slæma eiginleika miðað við
aðrar málningartegundir, skaðar
Fjörleg doppótt
samstæða
Doppóttur hattur og tilheyr-
andi hálsklútur fer vel við lát-
lausu sportkápuna, sem einmitt
ekki að vita hverjir þeir eru. í
danska ritinu „Nýtt hús“ skrifar
P. Jörgensen rannsóknardeildar-
forstjóri meðal annars:
„Meðal hinna góðu eiginleika
plastmálningarinnar eru þeir að
hún þornar fljótt, gefur sáralitla
lykt frá sér eftir að hún er
þornuð og mjög létt að mála
með henni. Hún er gljúp, þannig
að raki í nýjum veggjum getur
óhindrað gufað út gegnum hol-
urnar. Hægt er að smyrja henni
beint á næstum hvaða "flöt sem
er. Góð plastmálning mislitast
ekki af sólskini og maður getur
þess vegna hengt myndir á vegg-
inn — það þarf ekki að mála
þótt myndir séu færðar til. Um
endingu er það að segja að plast-
málningin eldist á annan hátt en
olíumálning og lakk, því að hún
verður ekki stökk eins og þau
og flagnar ekki af — plastmáln-
ingin heldur teygjanleika sínum,
en enn er þó of snemmt að segja
nokkuð um endingu plastmáln-
ingar miðað við þá málningu
M.s. Dronning
Alexandrine
fer frá-Kaupmannahöfn laugar-
daginn 30. þ.m., til Grænlands,
Reykjavíkur og Færeyja. — I
Reykjavík verður skipið 15. maí
Flutningur óskast tilkynntur
skrifstofu Sameinaða í Kaup-
mannahöfn. —
Skipaaígreiðsla
Jes Zimsen
Erlendur Pétursson
an — pensilförin sjást — þó er
hægt að komast hjá þessu með
hinum ágætu málningarvöltur-
um.
Ennfremur skal þess getið að
plastlitirnir eru máttir — þeir
hafa silkigljáa þegar bezt lætur,
og þess vegna ættu þeir að vera
góðir grunnlitir undir lakk, en
þarf á einhverju upplífgandi að
halda ef hún á ekki að verða
leiðigjörn. Kápan er saumuð úr
vicuna, gerviefni sem minnir
mjög á kamelull. Kápan er tví-
hneppt og ekki háðari tízkimni
en svo að hún getur dugað í
mörg ár án þes að verða úrelt.
þó skyldi aðeins nota þá þegar
sem áður er þekkt. Ennfrémur er J agrjr iitlr koma ekki til greina
plastmálning ekki eins móttæki- j tímans vegna, því að flöturinn
leg fyrir óhreinindum og aðrar
gerðir veggmálningar og þar sem
hún þolir einnig þvott er það
mikill kostur.
En það eru líka neikvæðar
hliðar á plastmálningu. Hún
þolir ekki of langa snertingu við
vatn og auk þess hefur hún þann
leiða galla að hún loðir illa sam-
verður ekki fyrsta flokks, m.a.
vegna þess að plastmálning er
minni fyrirferðar en grunnmáln-
ing.
Þessi gerð málningar hefur því
sína galla eins og aðrar málning-
ar og eiginleikar plastmálning-
arinnar gera hana fyrst og fremst
hentuga veggmálningu.“