Þjóðviljinn - 19.05.1955, Page 4

Þjóðviljinn - 19.05.1955, Page 4
4) — ÞJÖÐVILJINN — Fimmtudagur 19. maí 1955 Gildi íriðarins fyrir íslenzka æsku Það fólk, sem nú er milli tví- tugs og þrítugs, var í síðustu stýrjöld á því aldursskeiði, sem næmast er fyrir allskyns utanaðkomandi áhrifum. Fyrir ungu kynslóðina voru stríðs- árin ár hinna miklu ævintýra þar sem hetjurnar voru hafnar til skýjanna, æfintýra, sem fjarlægðin sveipaði sinum töfraljóma og máði af flesta svarta bletti. Áhrifa þessara tíma gætir ennþá meðal nokk- urs hluta fólks. Eg þekki t. d. pilt sem á geysistóra bóka- hillu, sem inniheldur nær> ein- göngu stríðábókménntir. Hver hillan af annarri er yfirfull af myndablöðum og tímaritum um hernað og aftur hernað frá síðustu styrjöld og fram á okk- ar dag. Flest eru þessi rit ensk eða bandarísk og þau eru ó- neitanlega glæsilega úr garði gerð. Á hverri síðu eru myndir af hernaðartækjum, ýmist í að- gerðarleysi eða í starfi eyði- leggingarinnar. Þar eru t. d. skrautlegar myndir af loftá- rásum þar sem hinar hrundu borgir liggja frammi fyrir manni í rauðum og bláum lit. Á næstu síðu eru svo myndir af ungri stúiku, með einkennis- báí á höfðinu, sem brosandi faðmar piltinn sinn er hann kemur heim að loknum mann- drápunum. Á leiðinni yfir höfin hafa hirsar löngu vegalengdir nriidað staðreyndir þessara fjölda- morða sem við köllum styrj- aldir. Þegar hingað er komið er aðeins eftir ævintýrið sem heillar. Það fólk sem dáir þessi ævintýri er í þeirri ömurlegu aðstöðu að geta ekki gert greinarmun á góðu og illu. Ef þessu fólki er sent það illa í nógu fallegum litum á nógu ævintýralegan hátt, þá er það í augum viðtakandans ekki lengur illt heldur gott. Þetta vita t. d. forráðamenn þeirra afla sem nú halda ein uppi stríðsundirbúningi í heiminum. Þessvegna vinna þessi öfl nú að því að afmennta sitt eigið fólk. Þau vinna að því að út- rýma sem mest skrifuðu máli og bókmenntum í höfuðvígi sínu, Bandaríkjunum. Menntun þegnanna á að framkvæmast sem mest í gegn- um myndablöð og aðra aug- lýsingastarfsemi sem skírskot- ar til þess einfaldasta í mann- inum. Stríðsundirbúningurinn er auglýstur á hinn fáránlegasta hátt. Nýtízku fallbyssur eru málaðar fögrum litum og síðan er velvaxin stúlka í sólbuxum látin ríða klofvega á hlaupinu og brosa sínu blíðasta brosi. Ef einhver skyldi efast um orð mín, vildi ég benda þeim á að sannprófa þau með því að fara suður á Keflavíkurflugvöll, dvelja nokkurn tíma meðal her- mannanna og kynna sér þetta af eigin raun. Þar er hægt að sjá hvorttveggja, áróðurstækin og áhrifin sem þau hafa. — fiem betur fer er mestur hluti íslenzku æskunnar ekki kom- inn á þetta stig ennþá. Hins- vegar er allmikill fjöldi sem skýlir samvizku sinni bakvið áróðursfirrur hinnar nýríku auðstéttar. Þessi stétt ber á borð fyrir íslendinga slíkar rökfærslur að almennri skyn- semi er með því sjáanlega mis- boðið, enda eru þessir herrar nú óðum að heimta þá upp- Þessi ömurlega staðreynd blasir nú við okkur og engar áróðursblekkingar fá hulið nekt þeirra. Eigi þjóðin lífsvon í framtíðinni þá er sú lífs- von fólgin í fólkinu sjálfu. Fólkið verður að velja aðra menn til forustu. Menn sem létu það verða sitt fyrsta verk, með fólkið sem bakhjarl, að koma burt hinu bandaríska Formaðnr lögmaimalélags- Isis vill tiala ••seisi sisest Irjáls- ræði?? í lásiasÉarlgeisti IJár- isfiáflaiBiaiaiia og flilglneslisiga Lárus Jóhannesson, formað- rík þagnarskylda er og fannsc ,,Að þið megið lifa í friði . . . Þess óska ég ykkur“ skeru sem þeir sáðu til, þá uppskeru að fólkið í landinu fylkir sér nú á æ breiðara grundvelli til baráttu fyrir varðveizlu íriðarins i heimin- um. En verk þeirra manna sem köl'uðu bandaríska herliðið inn í landið hafa gert það að verk- um að nú er ekki lengur hægt að tala um sérstakan frið á íslandi af því að um leið og heimsfriðurinn er á enda verð- ur ísland einn af vígvöllum komandi styrjaldar. Þá menn sem kölluðu herinn inn í landið ber ekki að með- höndla sem fullábyrga einstakl- inga. Þeim var á sínum tíma att fram af auðstéttinni sem lét þá misnota umboð sitt til að brjóta fjöregg hins unga lýðveldis, stjórnarskrána. Eftir örfárra ára sjálfstæði landsins sem kostað hafði aldalanga baráttu, var frelsinu aftur glat- að og þá í miklu hættulegri hendur en Dana, í auðvalds- hendur hrynjandi þjóðskipu- lags sem riðlast nú í sínum eigin andstæðum. — Sá eld- móður og bjartsýni sem þjóðin öðlaðist við lýðveldisstofnunina var, í gegnum ólgandi athafna- líf og nýsköpun, að koma þeim langþráða draum í framkvæmd að byggja upp traust og sjálf- stætt atvinnulíf í landinu. Jafn- framt því að þessi draumur var að rætast, jókst hræðsla auð- stéttarinnar við að fólkið, sem var að framkvæma hann myndi einnig vakna og krefjast síns fulla frelsis. Þessvegna lét þetta auðvald nokkra einstakl- inga, sem fólkið hafði sýnt traust á kjördegi, misnota þetta traust og kalla hingað hina bandarísku hermenn og banda- rísku vígvélar, sem nú hvíla eins og dökkur skuggi yfir hamingju og framtiðartilveru þjóðarinnar. herliði. Það er meiri lífsnauð- syn en menn almennt hafa gert sér grein fyrir, Þó að ís- lendingar hafi orðið flestum öðrum þjóðum harðara úti, í síðustu styrjöld, miðað við fólksfjölda, hafa þeir ekki al- mennt nein kynni af hörmung- Framhald á 11. síðu. ur Lögmannafélagsins, hefur sent Þjóðviljanum eftirfarandi yfirlýsingu sem staðfestir í öllu frásögn blaðsins um af- skipti hans af Blöndalsmálinu: ,,í 111. tölublaði Þjóðviljans, miðvikudaginn 18. maí 1955, birtist grein með yfirskriftinni „Yfirheyrslum í Blöndals- málinu að mestu lokið“. Grein þessari er skipt í nokkra kafla með áberandi fyrirsögnum. I 3. kafl. stendur: „Formaður Lögmannafélags- ins studdi þá“, og stendur und- ir þeirri yfirskrift, að tveir héraðsdómslögmenn hafi neit- að að gefa upp nöfn láneig- enda „og mun Lárus Jó- hannesson, formaður Lög- mannafélagsins og þingmaður ~ Sjálfstæðisflokksins hafa stutt þá í þeirri afstöðu1'. Þar sem þetta kann að valda misskilningi vil ég taka það ■ greinilega fram, að það eina sem ég sjálfur og sem formað- ,i ur Lögmannafélagsins hafði á-1 huga á, er að vita og fá úr- t skurð Hæstaréttar um, hve rík þagnarskylda málafærslu- manna er gagnvart skjólstæð- ingum sínum. Eins og kunnugt er hljóðar 1. gr. laga um málflytjendur nr. 61, 4. júlí 1942 þannig: „Héraðsdóms- og hæstaréttar-] lögmenn eru opinberir sýsl- unar menn og hafa skyldur og réttindi samkvæmt því,| meðal annars þagnarskyldnj um það, er aðili trúir þeimrj fyrir í starfa ]æirra“. g Vafasamt hefur verið hve® mér sjálfsagt að fá úr því skorið af Hæstarétti og skrif- aði því greinargerð með kæru þeirri sem annar héraðsdóms- lögmaðurinn sendi til Hæsta- réttar, en því máli lauk eins og segir í blaðagreininni. Þagnarskylda lögíræðinga er stérkostlegt þjóðfélagslegt atriði sem ekki er sett til hags- muna málflutningsmönnum heldur skjólstæðingum þeirra til þess að þeir hafi þó eitt- hvert athvarf, þar sem þeir geta trúað rnönnum fyrir leyndarmálum sínum án þess að hægt sé að kref ja þá vitn- isburðar fyrir rétti. Það er því jafn nauðsynlegt fyrir málaflutningsmennina og almenning að vita tim takmörk þeirrtir skyldu. Hitt er svo allt annað mál, að ég álít að hin svonefndu okurlög frá 1933 sem aðeins beinast að peningalánum en ekki að kaupum og sölu verð- bréfa, álagning á vörur og vinnu séu algjörlega úrelt og hagkvæmast mundi öllum að hafa sem mest frjálsræði á þeim sviðum sem öðrum. Með þakklæti fyrir birtinguna, Reykjavík, 18. maí 1955, Lárus Jóh;tnnesson.“ m inninqarápiolci <? a /? e Hví þegja menn um fyrirhugaða Skálholtskirkju? — Þeir stóðu sig með sæmd SKIPUÐ HEFUR verið nefnd til að undirbúa hátíðahöld í Skál- holti að sumri, en þá eru liðin 900 ár síðan biskupsstóll var reistur þar, hinn fyrsti á fs- landi. Síðan Skálholtsfélagið hófst handa um að vekja at- hygli á sögustaðnum Skálholti, í því skyni að hefja hann aftur til fornrar vegsemdar með ein- hverjum hætti, hefur staðurinn mjög oft verið á dagskrá: og hugmyndaríkir menn, sem þangað til hafði láðzt — sum- um hverjum — að gefa öðrum hlutdeild í þeirn auði, hafa birt þúsund tillögur um framtíð Skálholtsstaðar. Ekki þarf þó að taka fram að teikning sú, er húsameistari rikisins hefur gert af kirkju þeirri sem á að rísa í Skálholti, er „hlutlægasta11 tillagan sem fram hefur komið — sú sem einna auðveldast ætti að vera að átta sig á, taka afstöðu til. Liðið mun nú á annan mánuð síðan blöðin birtu mynd af teikningunni, og fylgdi með hálfskrýtið plagg frá kirkjunefndinni, eða hvað hún nefndi sig. ÞAÐ FANNST manninum sem hringdi í Bæjarpóstinn í gær- morgun, í tilefni þess að há- tíðarnefndin hafði verið skip- uð, ifndarlegast af öllu að enginn virðist hafa neitt til málanna að leggja um þessa fyrirhuguðu Skálholtskirkju. Er ástæðan sú að menn séu svo hneykslaðir á henni að þeim fallist öll orð, eða eru þeir svo hrifnir af henni að þeir séu alveg dolfallnir? Maðurinn minntist þess að. ekki kom vanþóknun manna á Vatnsber- anum hér um árið í veg fyrir að máltól þeirra gengju, og var jafnvel haft við orð að láta hendur skipta. Sjálfur sagðist hann vilja koma þeirri per- sónulegu skoðun sinni á fram- færi að sér virtist kirkjan fremur stílhrein og látlaus, en hann sagðist ekki hafa þekk- ingu til að rökræða þá skoðun sína — hún væri bara svona innblásin eins og hann komst að orði. Vissulega væri það vel til fundið að einhverjir létu eitthvert álit í Ijós um teikn- inguna. SKÁKMÓTINU í Lyon er lokið, og íslenzkir skákmenn sýndu enn einu sinni að þeir eru eng- ir aukvisar: urðu hæstir' vest- urevrópumanna sem tóku þátt í mótinu og sigruðu sterkar skákþjóðir eins og Júgóslava og Tékka. Þetta var alþjóðlegt skákmót stúdenta, og voru því eingöngu ungir menn í þess- ari sveit. En það mætti segja mér að íslenzka stúdentasveit- in yrði ennþá minna lamb að leika við á næsta móti; þá verður Friðrik Ólafsson orðinn stúdent — hann er einmitt núna að lesa undir stúdents- próf — en hann er sá skák- maður okkar sem mestrar frægðar hefur getið sér undan- farin ár, enda telja sumir hann snjallasta skákmann sem við höfum eignazt. Það gæti rétt farið svo að Rússarnir mættu vara sig á íslenzku stúdent- unum á næsta skákmóti þeirra; en hvað sem um það er, skyld- um við sýna skáklistinni og þeim sem hana iðka fyllstan sóma og gefa þeim sem mesta hæfileika sýna hagkvæma möguleika til að stunda skák- listina. Hér vildum við skjóta því inn, að skákin heyrir ekki undir íþróttir, þó svo sé oft talið. Að tefla er andlegt starf, hugsunarstarf. Skák stendur ekki nær íþróttum en til dæm- is skáldsagnagerð eðá leiklist. Hitt er annað mál að öllum mönnum er hagkvæmast að hafá sem hraustastan skrokk.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.