Þjóðviljinn - 19.05.1955, Blaðsíða 12
25 ára afmælis Tónlistarskólans minnzt
með svningum La Boheme eftir Puccini
TénlisSarféiagið ©g Félag íslenzkza einsöngvara efna til sýninganna í
Þjóðleikhúsinn — Stjórnandinn verðnr ítalskur en söngvararnir íslenzkir
í tilefni af 25 ára afmæll Tónlistarskólans hafa Tón-
listarfélagið og Félag íslenzkra einsöngvara ákveðið aö
flytja óperuna La Boheme eftir Puccini í næsta mánuöi.
ítalski hljómsveitarstjórinn Rino Castagnino stjórnar
flutningi óperunnar en einsöngvarar verða eingöngu ís-
lenzkir.
auk þess fjöldi söngvara úr Fé-
lagi ísl. einsöngvara, Þjóðleik-
húskórnum og fleiri kórum.
Búninga fá félögin alla leigða
frá Kaupmannahöfn, en leiktjöld
verða gerð í Þjóðleikhúsinu eft-
ir teikningum Lothars Grund.
Mikill kostnaður
Þar sem kostnaður við flutn-
ing' óperunnar er afarmikill hafa
félögin ákveðið að skipta með
sér hinni fjárhagslegu áhættu,
þannig að Tónlistarfélagið legg-
ur til hljómsveit og hljómsveit-
arstjóra en enginn söngvari fær
greitt kaup nema nægilegt fé
komi inn. Ef allir eiga að fá
sitt er reiknað með að kostnaður
við hverja sýningu sé um 40
þús. kr. til 45 þús. kr. Mörg fyr-
irtæki hafa þegar veitt fjárhags-
legan stuðning með auglýsing-
um í leikskrá en þó mun verða
að selja miða á fyrstu sýningu á
55—-100 krónur og hafa forsölu,
Brennivín kækkað
í fen opinberra
starfsmanna!
— segir Eyslelnn
Þjóðviljanum barst í gær svo-
hljóðandi frétt frá fjármála-
ráðuneytinu: „Verð á áfengi
hefur verið óbreytt síðan 1950.
Það hefur nú verið hækkað
nokkuð til þess að afla tekna
upp í útgjaldaaukningu vegna
afnáms vísitöluskerðingar á
laun opinberra starfsmanna
o.fl.“
Ríkisstjórnin fylgir þannig ó-
trauð í spor kaupsýslumanna
sem notað hafa kaupliækkanir
til átjdlu til nýrrar féflettingar.
Hækkunin á launum opinberra
starfsmanna á að vera tilefni til
hækkunar á brennivíni ( !!) og
er laun þeirra hækka um 5%
skal brennivinið hækkað um allt
að 20%.
Aiisturríkismönn-
um samfagnað
Forseti íslands sendi hinn 15.
mai s.l. Dr. Körner, forseta
Austurríkis, heillaskeyti í til-
efni af endurheimt fullveldis
Austurríkis.
Dr. Körner, forseti, hefur
þakkað kveðjuna.
Björn Jónsson, Ragnar Jónsson
og Bjarni Bjarnason skýrðu
fréttamönnum frá þessu í gær.
Afbragðs stjórnandi
Þeir létu þess getið, að stjórn-
ir Tónlistarfélagsins og Fél. ísl.
einsöngvara hefðu verið sam-
mála um að freista þess, þó til
þess yrði miklu að kosta, að fá
fyrsta flokks stjórnanda frá
Mílanó eða Róm til að stjórna
verkinu. Fyrir milligöngu Primo
Montanari og konu hans hefði
tekizt að fá hingað hljómsveit-
arstjórann Rino Castagnino, sem
þau eru bæði þaulkunnug og
hafa sungið með. Castagnino er
búsettur í Mílanó á Ítalíu og
hefur stjórnað óperusýningum
þar, en einnig víðar í Evrópu
t. d. í Brussel, Helsingfors, Var-
sjá og París. Hann kom hingað
10. maí s.l. og hefur síðan æft
hljómsveit og söngvara af mikl-
um krafti. Hann segir að söng-
kraftarnir séu framúrskarandi
og gætu komið fram í óperum
hvar í heiminum sem væri.
)
Lárus Pálsson leikstjóri
Þjóðleikhússtjóri og þjóðleik-
húsráð hafa sýnf félögunum þá
velvild að lána Þjóðleikhúsið
til sýninganna og fá þau einnig
Sinfóníuhljómsveitina til umráða
frá Ríkisútvarpinu.
Leikstjóri verður Lárus Páls-
son en kór og einsöngvara
hafa þeir nú æft um alllangan
tíma Primo Montanari, Fritz
Weisshappel og Ragnar Björns-
son. Aðalsöngvarar verða Guð-
rún Á. Símonar, Þuríður Páls-
dóttir, Magnús Jónsson, Guð-
mundur Jónsson, Kristinn Halls-
son og Jón Sigurbjörnsson en
Óvenjulegur
lambadauSi
Neskaupstað í gær.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Maður einn hér í bæ, Guðjón
Magnússon, sem stundar kvik-
fjárrækt sem aðalatvinnu, hef-
ur orðið fyrir miklu og tilfinn-
anlegu tjóni. Ær hans fæða flest-
ar dauð lömb. 37 ær sem hann
á hafa borið 56 dauðum lönib-
um. Af 60 lömbum lifa aðeins 4.
Ekki vita menn hvað veldur
þessum óvenjulega lambadauða,
en talið er líklegt að einhvers-
konar sýki eigi sök á hönum.
Guðjón hefur af þessum á-
stæðum misst mikinn hluta eðli-
legra árstekna sinna.
Ötlendinga til landbúnaðarstarfa —
fslendinga í hernaðarvinnu!!
Að því er búnaðarmálastjóri
skýrði blaðamönnum frá í gær
hafa verið ráðnir hingað til
landbúnaðarstarfa 40 Danir.
Eru flestir þeirra komnir en
hinir koma á föstudaginn. Þá
verður reynt að fá kvenfólk
frá Þýzkalandi, en ekki vitað
hve margt það verður.
Danirnir eru ráðnir til 1. nóv.
Er vinnudagur þeirra miðaður
við 9 stundir og að þeir hafi
frí annan hvorn sunnudag.
Helming kaups síns fá þeir yfir-
færðan í danska peninga.
IIIÓÐVILIINN
Fimmtudagur 19. maí 1955 — 20. árgangur — 112. tölublað
Kvöldvökur leikara á
mánudag og þriðjudag
Féalg íslenzkra leikara heldur hina árlegu kvöldvöku
sína n.k. mánudag og þriðjudag kl. 9 e.h. og- er þétta í 12.
skiptið sem félagið efnir til slíkrar skemmtunar.
Allur ágóði af skemmtunun-
um rennur i menningarsjóð
leikara en honum er varið til
son, Láras Pálsson ofl.
Skemmtun leikaranna mun
aðeins geta orðið þessi tvö
þess að styrkja leikara til náms kvöld vegna anna, og mun ör-
Rino Castagnino
það er að segja selja miða sem
pantaðir verða fyrirfram á fyrstu
sýningarnar á hærra verði.
Treysta félögin því að almenn-
Framhald á 3. síðu.
og kynnisferða og til þess að
styrkja sjúka og aldraða leik-
ara.
Skemmtiskráin verður mjög
fjölbreytt að vanda, leikþættir,
gamanvísur, kvartettsöngur,
einsöngur og eftirhermur. —
Munu um 30 listamenn koma
fram, en á meðal þeirra eru
Haraldur Á. Sigurðsson, Lárus
Ingólfsson, Guðmundur Jóns-
son, Karl Guðmundsson, Har-
aldur Björnsson, Valur Gísla-
Forsetahjónin leggja af
stað í Noregsförina 21. þ m
Eins og áður hefur verið tilkynnt, koma forseti íslands,
herra Ásgeir Ásgeirsson, og frú hans í opinbera heimsókn
til Noregs hinn 25. maí næstkomandi.
Forsetahjónin fara utan með hjónin í ferðalag um Noreg í
Gullfossi 21. maí, en á meðan boði norsku ríkisstjórnarinnar,
á hinni opinberu heimsókn
stendur, dagana 25.-—26. mai,
dvelja forsetahjónin í Osló, sem
gestir Hákonar konungs. í
fylgd með forsetahjónunum í
Osló verða, dr. Kristimi Guð-
mundsson, utanríkisráðherra,
Henrik Sv. Björnsson, forseta-
ritari og kona hans, Guðmund-
ur Vilhjálmsson, framkvæmda-
stjóri og kona hans og Bjarni
Guðmundsson, blaðafulltrúi.
Hinn 28. maí fara forseta-
Svavar Guðnason
formaður FÍM
Aðalfundur Félags íslenzkra
myndlistamanna var haldinn
síðastliðiim mánudag.
Stjórn félagsins var endur-
kosin en hana skipa: Formaður
Svavar Guðnason, ritari Hjör-
leifur Sigurðsson, gjaldkeri Val-
týr Pétursson. I sýningarnefnd
voru kosnir: Þoivaldur Skúla-
son, Sigurður Sigurðsson, Karl
Kvaran, Kjartan Guðjónsson og
Jóhannes Jóhannesson.
Þessir voru kosnir til að mæta
sem fulltrúar félagsins á aðal-
fundi Bandalags íslenzkra lista-
manna: Ásmundur Sveinsson,
Svavar Guðnason, Karl Kvaran,
Kjartan Guðjónsson og Jóhann-
es Jóhannesson.
en halda síðan heim flugleiðis
frá Stavangri 11. júní.
Elzti borgart
Neskaupstað-
ar láÉiitn
Neskaupstað í gær.
Frá fréttaritara Þjóðvil.ians.
í gær anðaðist hér í bæ
Kristjana Jacobsen nær hálf tí-
ræð að aldri.
Hún var elzti borgari Nes-
kaupstaðar, færeysk og fædd í
Þórshöfn 11. september 1860.
Hún hafði átt heima hér á
Norðfirði í meira -en 60 ár.
Kristjana var gift Jóni Einars-
syni í Naustahvammi og lifir
hann konu sína ásamt tveim son-
um þeirra hjóna, Einári og Sig-
urði, en þriðji bróðirinn, Þor-
steinn, lézt af slysförum um
borð í b.v. Agli rauða fyrir 3 ár-
HMradapriiin
er á sunnudaginn
Mæðradagurinn er á sunnu-
daginn og verður þá blómasala
með svipuðum liætti og undan-
farin ár. Því fé sem þannig
safnast er varið til styrktar
mæðrum er við erfið kjör eiga
að búa. Hafa Revkvíkingar æv-
inlega brugðizt vel við og svo
mun enn verða.
uggara fyrir fólk að tryggja
sér miða í tíma, því kvöldvök-
umar hafa verið mjög vinsælar
á undanförnum árum. Hefst að-
göngumiðasalan á laugardag í
Þjóðleikhúsinu.
Indverskir stúdentar
Framhald af 1. síðu.
þegar verið birt í „World stud-
ent news“, 9. árg. 2. hefti 1955.
Þessari gjöf frá íslenzkum stúd-
entum og æsku var innilega
fagnað af öllum stúdentadeiid-
um hér“.
Til viðbótar þessari fregn
Stúdentaráðs skal þess getið að
blöð og útvarp í Kalkútta
minntust þessarar gjafar ís-
lenzkra sútdenta rækilega og
þökkuðu hana. Morgunblaðið
hefur sem kunnugt er stundað
lygaáróður um þessa lýsisgjöf í
tvö ár samfleytt og nú síðast
haldið því fram að lýsið hafi
verið sent til Kína! Er þetta
enn eitt dæmi þess að menn
skyldu aldrei trúa nokkurri
fregn Morgunblaðsins án þess
að sannreyna hana annarsstað-
ar.
Stillur en svalt
veður á Norlfirði
Neskaupstað í gær.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Eftir langvarandi ótíð eru nú
stillur og bjart veður á Norð-
firði en svalt. Kl. 11 í gærkvöld
var t. d. 5 stiga frost. Þótt sólr
skin sé hlánar lítið og liggur
allmikill snjór á jörðu. Sauðburð-
ur stendur nú sem hæst og
þurfa bændur að hafa allt lamb-
fé og raunar allt fé í húsum.
Afli sá, er hér varð vart,
er nú horfinn af miðunum og
fisklaust að kalla. Sjö bátar héð-
an stunda nú handfæraveiðar
við Langanes, en ekki hefur
frétzt af afla þeirra eftir ó-
gæftakaflann.
Hefur þú skrifað undir Vínarávarpið?
Þeim íslendingum fjölgar nú daglega sem gera sér gxein
fyrir þeini hættu sem íslenzku þjóðinni stafar af notkun
kjarnorkuvopna. Meö hverjum degi bætast því fleiri í
þann hóp sem ótilkvaddir taka aö sér aö safna undirskrift-
um undir Vínarávaj.'piö gegn undirbúningi kjarnorkustyrj-
aldar.
Fyrir utan mörg dæmi er áð-
ur hefur veiið sagt frá í Þjóð-
viljanum má geta þess að í gær
bánist listar með 330 nöfnum,
flestir úr Reykjavík. Utan af
landi barst listi með 26 nöfn- ÆC Ð
um, frá Flatey á IBreiðafirði listi * OlO / Lm i l\
með 31 nafni. Maður frá Bíldu-
dal sendi lista með 29 nöfnum
og lét fylgja 100 kr. frá sér og
dóttur sinni og segir í bréfi að
þau geri það, eins og hann kemst
að orði: „því við vitum og það
ættu allir að vita og skilja að
þetta er gott og guði þóknan-
legt málefni".
Hvitasunnu-
Hvitasunnuferð ÆFR verður
að þessu sinni farin um Borg-
arfjörð, upp í Húsafell og Surts-
helli. Verður lagt af stað annan
laugardag, en vegna mikilla.
þrengsla í blaðinu verður nán-
ari frétt að bíða helgar.