Þjóðviljinn - 22.05.1955, Page 4

Þjóðviljinn - 22.05.1955, Page 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 22. maí 1955 tlr líf i aiþýðuntwr GOMUL KTOMI Ejtir Björn Magnússon Skömmu eftir aldamótin yar ég samtíða Sveini Jósefssyni um tveggja ára tíma. Við vor- um húskarlar séra Bjarna Pálssonar í Steinnesi. Sveinn var gildur maður til allra verka, en farinn að lýjast af mikilli vinnu en þó duglegur enn og mikill afkastamaður. Ég yar óharðnaður unglingur, seinþroska og pasturslítill 10 —16 ára, ekki baggabær, enda nýsloppinn úr tveggja ára þrældómi, svelti og illu at- læti. Sveinn mun þá hafa ver- ið um fimmtugt, meðalmaður á vöxt, þrekinn og sívalur, herð- arnar nokkuð signar og kúpt- ar, hann var fremur holdugur, rjóður í kinnum og var gráblár fölvi á andlitinu. Ulhryssings- leg vetrai’veðrátta, hríðar og frost höfðu skilið eftir merki á andliti hans. Hárið var dökkt og byrjað að grána, fremur þunnt. Augun gráblá fremur daufleg. Fasið hæglátt. Hann var rólyndur og fáskiptinn og dulur. Hann átti 3 sonu, vaxna; ekki voru þeir honum að skapi, enda var móðerni þeirra ekki gott. Skilið hafði hann samvistum við móður þeirra, en var nú giftur konu er Ingibjörg hét, voru þeirra samfarir góðar, hún var vönduð kona og hæg- lát. Sá var helzti ljóður á ráði Sveins að hann var nokkuð ölkær og gætti lítt hófs, ef lionum varð á að minnast við flöskuna. Ingibjörg hélt hon- um mjög frá víni. ' Þau höfðu eignazt tvær dæt- ur en misst báðar á 1. ári. Yngri dótturina misstu þau í Steinnesi. Ég man þann atburð eftir 50 ár einsog hann hefði gerzt i gær. Litla stúikan lá afturábak í rúminu þeirra. Séra Bjarni kraup við rúm- stokkinn, hélt um handleggi ihennar og gerði ýmist að lyfta þeim eða þrýsta þeim að síð- ' um hennar. Hún opnaði blá ! augun við og við og horfði á ' hann syfjuðum augum. Svona ' leið nokkur stund, barátta ! milli lífs og dauða — án þján- ' ingar. Við rúmstokkinn stóð 1 móðirin hljóðlát og harmi lost- 1 in. Létt andvarp leið frá ! brjósti litlu stúlkunnar, — ’ annað og þriðja — og hún var ' örend. 1 Ekki var Sveinn við dánar- ' beð hennar, hann var ein- 1 hvers staðar úti við vinnu sína f — eða í ferðalagi. Seinna eign- ' uðust þau þriðju dótturina, er 1 hún enn á lífi. í Við Sveinn unnum mikið ■ saman og fór vel á með okk- 1 ur; hlífði hann mér við öllu ' erfiði, sem mér var um megn ’ og var mér hinn bezti vinnu- ' féiagi. f Við unnum að vallarávinnslu, ' hann malaði áburðinn, ég mok- 1 aði uduí kvörnina. Sauðataðið ' sem á þeim árum var brennt 1 stakk hann, krakkar báru til 1 dyra. en ég ók bví í hjólbör- 1 um á burrkvöllinn. Við tókum ' til tófta og bjuggum um öll ' hey. bæði haust og vor, ristum' T heytorf og fluttum það úr 1 flagi. var bað hvortveggja erf- 1 itt verk. Þá voru engar hlöð- 1 urnar. og bnrft.i mikið hevtorf 1 þar sem mikið vaj: hevið. Mik- 1 ill tími fór í að gera við hús, 1 hlaða, unp vegai og gera við 1 bök. Við tókum unn mó. Stakk ' Sveinn móinn og kastaði upp ' úr gröfinni; ég henti hnaus- ' ana á lofti og hlóð þeim í kesti á bakkanum. Eftir 2—3 daga reiddum við hann út í krókum eða á kerru, ef henni varð komið við. Siðan hreykt- um við honum, og fluttum hann heim á haustin í hripum. hripum. Venjulega byrjuðum við vinnu eftir morgunverð. Hafði ég þá verið í ýmsum snúning- um, og unnum til kl. 8—9 á kvöldin. Þá fór ég heim og Sveinn að ganga til ánna — um sauðburðinn til kl. 11—12. Og kl. 7 á morgnana fór hann til ánna og hafði lokið eftir- litinu um kl. 9y2. Bjargaði hann mörgu lambinu og margri lambsmóðurinni sem gat ekki fætt án hjálpar frá kvalafullum dauða. Liti út fyrir hret á kvöldi var smalað óbornum ám og þær hýstar, lömb sem komin voru á spena voru falin forsjá mæðra sinna og sakaði þau sjaldan nema hretið væri því verra. Sveinn þekkti allar ærnar með nafni og vissi um burðardaga þeirra og leitaði þeirra þangað til hann fann þær, hafði hann oft mikið fyrir þessu, en dyggð hans og húsbóndahollusta var meiri en í meðallagi; átti við hann, sem bóndi nokkur sagði um vinnumann sinn, að hann gréti af dyggð. Stæði ær yfir dauðu lambi varð að koma henni í hús, leita síðan að tvílembingi og venja undir hana. Var þá skinnið fengið af því dauða og saumað á það lamb sem venja átti undir ána. Gott var að rjóða blóði hins dauða á höf- uð og rass hins, var ærin síðan byrgð í dimmu húsi; tókst þá venjulega að blekkja ána, sem hélt það vera sitt er hún hafði þefað af því. Væri ærin lamb- elsk tók hún lambið fljótt, en væri hún stygg og kaldlynd gekk oft illa að sætta hana við lambið. Ég gekk sjaldan til ánna með Sveini, var latur að vaða blauta flóana og kunni engin tök að koma lambi á snena eða veita fæð- ingarhjálp; — það er þó hin mesta nauðsyn hverjum bónda áð kunna á þessu góð skil. Frá einum atburði ætla ég þó að segja, þar sem ég gat orðið að liði — og sýnir hörku sauðkindarinnar og hreysti. Við Sveinn vorum að smala ánum og skyldu lömbin mörk- uð. Rakst ég þá á unga á, sem lá afvelta milli þúfna með lamb í burðarliðnum. Fyrir aftan hana var þúfa og þrýsti hún svo að henni að höfuð lambsins rakst í þúfuna svo að fæðing var vonlaus. Ég hag- ræddi nú veslings ánni, sem var svo nauðulega stödd. En hún var slegin slíkum ótta að hún spratt upp og hljóp eins og hún væri hundelt. Lambið þrýstist smátt og smátt út úr burðarliðnum og skall fremur óþyrmilega á jörðina. Hin unga, óttaslegna, móðir sinnti ekki lambinu og hljóp áfram skelfingu lostin. Ég lagðist niður milli þúfna og beið þess að hún áttaði sig og vitjaði lambsins. Brátt stanzaði hún og hljóp til lambsins, sem var að reyna að brölta á fætur. Hún þefaði af því og tók að kara það. Ég beið þangað til lambið var komið á spena. Móðurástin hafði sigrazt á hræðslunni. Lífi móður og lambs var borgið. Hér segir frá einni kaup- staðarferð okkar Sveins. Áður en Kaupfélag Hún- vetninga tók að hafa opna sölubúð allt árið höfðu bændur um nokkur ár starfrækt pönt- unarfélag og pöntuðu matvöru og aðrar nauðsynjar; kom varan á vorin nokkru fyrir slátt og var skipt milli fé- lagsmanna. Húsakostur var fyrst lítill eða enginn; varan geymd undir segli og vakað yfir henni. Pöntunarsvæðinu var skipt í deildir eftir hrepp- um og vörunni úthlutað vissa daga í hverri deild undireins og hún var komin. Laugardaginn í 10. sumar- viku sendi séra Bjarni okkur Svein með 10 hesta undir reið- ingi að sækja vörur. Við fór- um Húnavatn á vaðinu fyrir vestan Akur. Er um hálftíma reið yfir vatnið sem er sjald- an grynnra en á síðu og dýpra um flóð og í norðan- kuli. Við vorum með" tvær fol- aldshryssur; þær eru alltaf vandmeðfarnar, hætt við klumsi ef þær hitna í rekstri og látnar standa í rétt. Þegar í kaupstaðinn kom, létum við þær á gras. Sveinn var hraðhentur við að taka út vöruna og binda uppá hest- ana og hjálpaði ég honum eftir megni. Tókum við síð- an hestana, löguðum á þeim reiðingana og girtum þá. Sveinn var handfljótur að snara upp vörunum. Ég varð að láta mér nægja að standa undir, þótti þó minnkun að; það var stolt hvers stráks að verða snemma baggafær, fyrr gat hann varla talizt maður með mönnum og ekki hlut- gengur í hópi kvenna, því . hreysti og karlmennsku dáðu konur þá jafnvel meira en nú. Þegar við vorum komnir inn fyrir Blöridu bað Sveinn mig að sjá um lestina og láta hana rölta suður veginn meðan hann skryppi til Möllersverzlunar og fengi sér á vasapelann. Nokkru fyrir sunnan Drangagil náði hann lestinni og hafði tveggja potta blikk- brúsa á hnakknefinu með brennivíni, var hann búinn að taka úr honum tappann og svala sárasta þorstanum og lét nú verða stutt á milli sopa. Varð ég hræddur um að hann drykki sig ófæran og Björn Magnússon fékk hann til að láta dunkinn í poka og binda hann við hnakkinn. Sveinn var nú orðinn ör af víni og kvað við raust. Ég spurði hann hvort Ingibjörgu, konu hans, félli ekki illa, ef hann kæmi fullur heim. Hann sagði að nú yrði ekki farið að því, nú væri hann sinn eigin herra; kæmi hann lestinni heim og vörunni óskemmdri varðaði kerlingu sína ekkert um þó hann væri góðglaður, og ekki mætti minna vera en hann létti af sér þrældómsokinu einusinni á ári — og sæi til sólar. Sagði hann mér, að einu sinni hefði hann verið staddur á Blönduósi og var búinn að fá sér þriggja pela flösku af brennivíni. Stóð hann á ár- bakkanum rétt norðan við Möllersbúðina, var búinn að taka tappann úr flöskunni og var að bera stútinn að vörum sér og hlakkaði til að fá sér vænan teig. Veit hann þá ekki fyrri til en læðst er aftan að honum, þar sem hann stóð grandalaus á árbakkanum og horfði til Strandafjalla og Húnaflóans sem sindraði í skini kvöldsólarinnar í júní, og flaskan þrifin af lionum og kastað út í Blöndu. „Vár Ingibjörg mín þarna komin, og þá langaði mig til að berja hana“, sagði Sveinn og hló við og kenndi klökkva og kjökurs í röddinni. „En svo mikið vald hafði ég yfir mér, lagsmaður, að ekki keypti ég aftur á /flöskuna 'í þeirri ferð, og hefði hún þó átt það skilið fyrir böivaða frekj- una. En Ingibjörg hefur ver- ið mér góð kona og viljað mér vel. Eg var ógæfusamur mað- ur áður en ég kynntist henni, en nú tel ég mig gæfumann, þó ég hafi misst litlu stúlk- urnar okkar. En nú langar mig til að fá mér kot og fara að hokra. I vinnumennsk- unni má ég aldrei um frjálst höfuð strjúka, kaupið lítið og verkin oft vanþökkuð þó mað- ur reyni að leggja sig fram og vinni af dyggð og trú- mennsku". „Ö1 er innri maður“, segir máltækið. Víst var það, að vínið örvaði hann, svo að hann sagði hug sinn allan. Nú ’var hann ekki hinn duli og fáláti Sveinn. Við höfðum farið lestamannaleiðina inn Hjalla- bakkamela inn að Laxá, nið- ur með henni og yfir hana þar sem hún fellur niður á sandinn, skammt frá sjó, suð- ur Húnstaða- og Skinnastaða- sand, suður að Akursmelum og vestur með þeim í áttina til Húnavatns. Hestarnir voru heimfúsir og stigu greitt. Nokkrum sinnum hafði Sveinn farið af baki og hresst sig á víninu en var enn ekki miðg drukkinn Þegár við komum vestur fýrir meiana og beygðum inn með vatninu, verður Sveini litið um öxl og sér þá að pokinn er horfinn frá hnakknum. Sveinn bað mig að líta eftir lestinni meðan hann leitaði pokans. Brennivínið mætti hann ekki missa. Eg sagðí að svo yrði að vera. Bað ég hann að hraða för sinni því óvíst væri að ég gæti haldið aftur af hestunum. Og ef ég missti þá í vatnið gæti svo farið að þeir veltu af sér böggunum og væri þá varan ónýt. Sveinn var óðar horfinn úr augsýn fyrir melbarð. En brátt sá óg hvar hann kom þeysandi, kveðandi við raust, með fiaks- andi kápuna og jakkann, bað- andi út öllum öngum og með dunkinn í annarri hendi. Þá sá ég Svein glaðastan. Við löguðum á hestunum og lögðum í vatnið. Það var grynnra en um morguninn, því nú var fjara. Sveinn reiddi nú dunkinn á hnakknefinu, vildi hann vita hvað lionum leið úr þessu — ekki eiga neitt á hættu. En helzt til oft þótti mér hann taka úr honum tappann, það sem eftir var leiðarinnar. Gerðist hann nú alldrukkinn; oft lá nærri að hann dytti af hestbaki. Hann slagaði sitt á hvað út á hliðamar. En það var eins og hesturinn skildi ástand riddarans og gekk undir hann svo hann gat rétt sig við. Segir svo ekki af ferðum okkar fyrr en við komum í hlað í Steinnesi. Sveinn tók Framhald á 10. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.