Þjóðviljinn - 22.05.1955, Side 12
Erlendar fréttir í stuttu máli:
Molotoff. Dulles, og Pinay
til San-Francisco í júní
þlÓÐVIUINN
^ Sunnudagur 22. maí 1955 — 20. árgangur — 114. tölublað
Hvítasunnuiefð Æskulýðsfylkingarínnar:
Það verður tjaldað í Húsaíells-
skógi, gengið þaðan í Surtshelli
Hvítasunnuferð Æskulýðsfylkingarinnar veröur aö þessu
sinni farin upp í Húsafellsskóg, en þaðan veröur gengið
í Surtshelli og Stefánshelli á hvítasunnudag.
Molotoff, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, hefur þegið boð
um að vera viðstaddur hátíða-
höldin í San Francisco sem
halda á í næsta mánuði í tilefni
af tíu ára afmæli Sameinuðu
þjóðanna.
Utanríkisráðherrar Banda-
ríkjanna og Frakklands, Dulles
og Pinay, verða þar einnig.
Handtökur í Vietnam
Stjórnin í Suður-Vietnam hef-
■ur látið handtaka fjölda stjórn-
arandstæðinga og eru í liópi
hinna handteknu hershöfðingjar
og stjórnmálamenn.
i
Grikklandsstjórn kærir
Gríska stjórnin hefur mót-
mælt til Atlanzhafsbandalags-
ins meðferð grískra flugmanna,
er komu við á Kýpur, á heim-
leið frá vigstöðvunum i Kóreu.
Nýlendukúgun Breta
Nýlenduher Breta í Kenya
hefur hafið enn nýja árásar-
herferð gegn heimamönnum,
sem báðu um frest til að athuga
skilyrði Breta fyrir uppgjöf.
Lét toringi brezka nýlendu-
hersins svo ummaelt, að lands-
menn muni láta sér segjast ef
þeir séu beittir nægri hörku.
Mál austurþýzku stjórn-
arinnar
Á fundi hernámsstjóra fjór-
veldanna í Berlín, þar sem rætt
var um hækkuð flutningagjöld
Bridgespilarar
fara á mét
Ársþing Bridgesambands Is-
lands var haldið í Reykjavík
föstudaginn 13. maí s.l. Mættir
voru 23 fulltrúar frá 8 félögum.
Forseti sambandsins fyrir næsta
tímabil 'var kjörinn Ólafur t>or-
steinsson og meðstjórnendur:
Rannveig Þorsteinsdóttir og Egg-
ert Benónýsson Reykjavík.Björn
Sveinbjarnarson Hafnarfirði, Óli
Örn Ólafsson Akranesi, Sigurður
Kristjánsson, Siglufirði og Karl
Friðriksson Akureyri.
Eins og vitað er, fara flokkar
héðan í næsta mánuði á norður-
landamót í bridge, og þingið á-
kvað að legaja áherzlu á að héð-
an verði send sveit á Evrópu-
mótið 1956.
á leiðum til Berlínar og frá,
lýsti fulltrúi Sovétríkjanna yfir,
að það mál lieyrði undir stjórn
Austur-Þýzkalands, og bæri því
að hef ja samninga við hana.
Menon vongóður
Krisna Menon fór frá Peking
í gær áleiðis til Indlands.
Lét hann svo ummælt að þó
hann gæti ekki skýrt frá við-
ræðunum við kínverska forsæt-
isráðherrann að svo stöddu,
vildi hann taka undir þau um-
mæli Sjú Enlæ, að viðræðurnar
hafi verið hinar ánægjulegustu
og gefi góðar vonir.
Moníaomery í Noregi
Mongomery marskálkur kom
til Ösló í gær og ræddi við
landvarnaráðherra og stjórn-
endur norska hersins.
Á mánudaginn flytur hann er-
indi í Góðtemplarahúsinu, á
þriðjudaginn heimsækir hann
.Hafnarfjarðarstúkurnar, á mið-
vikudaginn verður hann á fundi
í stúkunni Einingunni, á fimmtu-
daginn hjá stúkunni Frón, en
laugardag fyrir hvítasunnu fer
hann til Akurevrar til funda-
halda.
Wennberg ræddi nokkuð við
blaðamenn um alþjóða góð-
templararegluna. Enda þótt hún
væri upprunnin í Ameríku kvað
hann bindindishreyfinguna nú
veika þar. Sterkust væri hún
í Svíþjóð, þar væru í henni
160 þús. Einnig væri hún sterk
í Noregi, en í tvennu lagi í Danr
mörku. Þá kvað hann bindindis-
hreyfingunni vera að vinnast
fylgi i Asíu, einkum Tyrklandi.
Ilefðu stúdentar menntaðir í Sví-
þjóð beitt sér fyrir bindindismál-
um er þeir komu heim til Tyrk-
lands. Einnig væri nokkur út-
breiðsla í Afríku, t. d. væri
kóngurinn í Nígeríu stórtempl-
ar þar í landi.
Sænskir templarar hafa nú að
mörgu að hyggja þar sem login
um vínskömmtun ganga úr gildi
Þýzka kórnum Singgemein-
schaft des Stadtischen Gymna-
siums Bergiscli Gladbach var
ágætlega tekið á samsöngnum
í fyrrakvöld. — í dag syngur
kórinn í Austurbæjarbíói kl.
3, og er söngskráin fjötbreytt
og skemmtileg. Verður sam-
söngur þessi ekki endurtek-
inn. — Myndin er af kórnum,
tekin hér í Reykjavik.
--------------------------—t
Félag rafvirkja-
meistara
Nýlega var haldinn aðalfundur
í Félagi löggiltra rafvirkjameist-
ara í Reykjavík. Úr stjóm félags-
ins gekk Ólafur Jensen en í hans
stað var kosinn Árni Brynjólfs-
son.
Stjórnina skipa nú þessir
menn:
Formaður Árni Brynjólfsson,
Hallv.stíg 2, Gjaldkeri Júlíus
Björnsson, Ægissíðu 101, Ritari
Halldór Ólafsson Rauðarárstíg
20.
þar 1. okt. n.k.
Wennberg flutti íslendingum
kveðju alþjóðahátemplarsins, Ru-
bens Vagnssonar, landshöfðingja
í Kalmar í Sviþjóð.
Framhald af 1. síðu.
Glataðist þá dýrmætur tími sem
ella hefði verið unnt að nota
til að flýta fyrir afhendingu
byggingarlóða, a. m. k. þeirra
sem þegar hafði verið úthlutað,
en margar þeirra eru enn ó-
byggingarhæfar, jafnvel lóðir
sem úthlutað var í fyrrasumar!
íhaldið mat hinsvegar meir að
bærinn styddi atvinnurekenda-
valdið í baráttu þess gegn rétt-
lætiskröfum verkamanna og hirti
ekki um bótt sú afstaða hlyti að
torvelda og tefja þau verk sem
eru í beinu sambandi við íbúða-.
byggingarnar og bænum ber að
inna af hendi.
Það er svo táknrænt fyrir ó-
skammfeilni Sjálfstæðisflokksins
að á sama tíma og sú óstjóm
sem þrífst undir forustu hans og
vrernd leiðir til þess öngþveitis
Lagt verður af stað n.k. laug-
ardag kl. 4 frá Tjarnargötu 20.
Ekið verður fyrir Hvalfjörð og
beinustu leið í Húsafellsskóg þar
sem tjaldað verður á laugardags-
kvöldið. Leggur Fylkingin til
stórt tjald, ennfremur kaffi og
hitunartæki; en nesti þurfa menn
að hafa með sér að öðru leyti. Á
hvítasunnumorgun verður gengið
í áðurnefnda hella. Er það all-
langur gangur, og er því betra
fyrir þátttakendur að vera vel
skóaðir. Þeir sem ef ti! vill kysu
að hafa hægara um sig geta
skoðað nágrennið, en náttúrufeg-
urð er mikil á þessum slóðum
eins og kunnugt er.
Gist verður í tjaldiriu einnig'
síðari nóttina, en að morgni ann-
ars í hvítasunnu værður haldið
af stað niður í Borgarfjörð, ekið
niður Hvítársíðu og yfir í Hreða-
vatn. Þaðan liggur leiðin heim.
Væntanlegir þátttakendur eru
vinsamlega beðnir að gefa sig
fram á skrifstofu Æskulýðsfylk-
ingarinnar, Tjarnargötu 20, en
hún er opin daglega kl. 6,30 til
Rithöfimdafélag
kýs nýja stjórn
Sunnudaginn 15. maí s.l. var
aðalfundur í Rithöfundafélagi
íslands haldinn í Naustinu við
Vesturgötu.
í stjórn voru kjörnir: Helgi
Hjörvar formaður, Einar Bragi
ritari, Friðjón Stefánsson gjald-
keri, Tómas Guðmundsson og
Elías Mar meðstjórnendur.
Endurskoðendur voru kosnir
Jóhann Kúld og Kristján Bend-
er.
Fulltrúar félagsins í Bandalagi
íslenzkra listamanna voru endur-
kjörnir Halldór Kiljan Laxness,
Tómas Guðmundsson, Svanhild-
ur Þorsteinsdóttir Helgi Hjörvar
og Sigurður Grímsson.
að Reykvíkingar geta hvergi
fengið lóðarblett í bæjarlandinu
undir íbúðarhús, er Morgunblað-
ið látið hefja mikinn lofsöng um
„heilladrjúga forustu“ hans í
byggingamálunum! í reynd er sú
„forusta“ sem sagt þannig, að
ekki er einungis lítið eða ekkert
gert til þess að leysa vanda
þeirra sem verst eru settir í hús-
næðismálum, umbótalöggjöf ný-
sköpunaráranna afnumin og al-
menningur ofurseldur vaxtaokri
og gróðahyggju, — heldur er
einnig komið í veg fyrir athafn-
ir þeirra sem treysta sér til að
byggja þrátt fyrir hve illa er
að þeim búið í lánsfjármálum,
með þeirri einföldu aðferð að
hafa engar lóðir tiltækar í bæj-
arlandir.u og koma þannig í veg
fyrir að menn geti hafið fram-
kvæmdir.
7,30. Vegna bíiapöntunar og ann-
ars undirbúnings er æskilegt að
menn tilkynni þáttöku sína sem
allra fyrst.
Félag pípulagn-
ingarmanna í
Hafnarfirði
6. marz s.l. var stofnað Félag
pípulagningarmanna í Hafnar-
firði. I fyrstu stjóm voru kjöm-
ir ÍBror Westerlund formaður,
Jón Hansson ritari og Jón Ás-
mundsson gjaldkeri.
íslandsglíman
að Hálogalandi í kvöld
Íslandsglíman, hin 45. í röð~
inni, fer fram í kvöld kl. 8,30 í
íþróttaliúsinu að Hálogalandi
Keppendur eru 12 frá þrem fé-
lögum.
Keppt er um Grettisbeltið, en
fyrst var keppt um það fyrir 49
árum og vann þá Ólafur Davíðs-
son það, en alls hafa 18 menn
unnið það. Núverandi handhafi
er Ármann J. Lárusson UMFR.
Keppendur eru nú 12, þ. a. 8
frá Ungmennafélagi Reykjavík-
ur, 3 frá Ármanni og 1 frá UMF
Stjarnan í Dalasýslu. Af kepp-
endum má nefna' handhafa
Grettisbeltisins Ármann J. Lár-
usson, Karl Bjarnason, Kristján
Heimi Lárusson, alla f-rá UMFR
og Rúnar Guðmundsson og Gísla
Guðmundsson frá Ármanni.
Er það eltt af
ákvæðum leyni-
reglnanna?!
Sundhallargestir kvarta
undan því að þar séu að
flækjast fyrir þeim banda-
rískir tuggujórtrarar. Þykja
flestum þetta livimleiðir gest-
ir, og nærvera þeirra þvx
furðulegri sem meira er tal-
að um að byggja þurfi fleiri
sundlaugar til að fullnægja
eftirspurn íslendinga. En
máske er það eitt ákvæðið í
leynireglum Framsóknar-
flokksins um dvöl hernáms-
liðsins, að það skuli flækjast
fyrir fslendingum, einnig í
sundhöllinni. Sundhallargestir
spyrja hinsvegar: geta ekki
þessir skírlífu pabbadrengir
bandaríska heimsveldisins
þvegið af sér skítinn í eigin
vatni heima í Bandaríkjun-
um? Enginn íslendingur
myndi hafa neitt að athuga
við þótt þeir hrintu hver
öðrum, breimuðu og jórtruðu
tuggugúmmí vestur í „guðs-
eiginlandi“.
Er ekki hægt að vera laus
við þennan óþverra á sund-
stöðum íslendinga?
Eriireks alþjéða hástákunnar-
kominn hingað tíl lands
Hingað til lands er kominn erindreki alþjóða hástúkunn-
ar, Karl Wennberg aö nafni, en hann er skrifstofustjóri
sænsku stórstúkunnar. Hann mun flytja hér erindi og
sýna kvikmyndir og skuggamyndir.
Lóðaúthlutun stöðvuð