Þjóðviljinn - 05.06.1955, Page 1
NFundur verður haldinn í sam—
bandsstjórn Æskulýðsfylkingar-
innar þriðjudaginn 7. júní kl. 9-
síðdegis að Tjarnargötu 20.
Dagskrá:
1. 5. heimsmót æskunnar.
2. Sumarstarfið.
3. Önnur mál.
Framkvæmdanefnd.
* •
Yorusynmg
verður haldinhér í næsta mánuði
AUskonar vélar, frá saumnálum til stórra vinnuvéla
sýndar í Listamannaskálanum og Miðbæjarskólanum
Umfangsmikil erlend vömsýning ver'öur haldin hér í
Reykjavík í næsta mánuöi og stendur hún yfir dagana
2.—17. júlí.
Þátttakendur í þessari sýningxi eru Sovétríkin og Tékkó-
slóvakía og er þetta opinber sýning á vegum verzlunarráða
þessara landa. Sýningin verður í Miöbæjarbarnaskólanum
og Listamannaskálanum.
Um svipaö leyti, eöa síöar, mun einnig verða kínversk
vörusýning, og veröur hún í Góðtemplarahúsinu.
Þátttakendur í rússnesku sýn-
ingunni eru 15 útflutningsfyrir-
tæki í Sovétrikjunum og í tékk-
nesku sýningunni 11 tékkneskir
útflutningshringir. Kaupstefnan
— Reykjavík gengst fyrir sýn-
ingunni, en fyrirtæki þetta var
stofnsett í fyrra og er tilgangur
þess að sjá um skipulagningu
vötu- og listsýninga hérlendis og
ennfremur um þátttöku íslenzkra
fyrirtækja i erlendum vörusýn-
ingum, og er þessi vörusýning
fyrsta verkefnið.
30<M) fermetra
sýnlngarsvæði
Vörusýning þessi verður i
Listamannaskálanum og Mið-
bæjarbarnaskólanum. Hafa verið
reistir tveir skálar á lóð Mið-
'bæjarskólans sem einnig verða
notaðir undir sýningarvörur.
Auk þess verða ýmsar vélar og
fiutningatæki sýnd undir beru
lofti í námunda við sýningar-
svæðin. Sýningin verður á sam-
tals 3000 fermetra svæði. Reist
verða hlið að sýningarsvæðinu
og hefur Hans Hansen arkitekt
í Kaupmannahöfn teiknað og út-
búið þau. Verður sýningarsvæðið
m. a. skreytt með innfluttum
trjám. — Aðgöngumiðar að sýn-
ingunni verða þrískiptir, einn
hlutinn fyrir Miðbæjarskólann,
annar fyrir Listamannaskálann
og þriðji hlutinn fyrir bíó.
Knowland
hótar Júgó-
slövum
Einn áhrifamesti þingmaður-
inn í Republikanaflokknum
bamlaríska, Knowiand, hefur
lýst samkomulagi Júgóslavíu
og vSovétríkjanna sem „veru-
legu áfalli“ fyrir Vesturveldin.
Telur hann sjálfsagt að
Bandaríkjastjórn taki tafar-
laust til athugunar, hvort rétt
sé að lialda áfram að styrkja
ríki, sem vinni að því að
„brjóta niður hervaridr Vest
ursins.“
Allt frá saumaálum
til stórra véla.
Vöruval sýningarinnar verður
mjög fjölbreytt, eða ef svo mætti
segja allt frá saumnálum upp
í stórvirkar vinnuvélar.
— Auk þeirra vara sem sýnd-
ar eru verða þama einnig fram-
leiðslumyndir og myndir úr
menningarlífi sýningarþjóðanna.
Sýningarskráin mun verða 120
bls. — í auglýsingu frá Kaup-
stefnunni á öðrum stað í blaðinu
má fá nokkra hugmynd um þá
vöruflokka sem sýndir verða.
)
Uppsetnlng
sýningarinnar.
í sambandi við sýninguna
koma hingað rúmlega fimmtíu
manns frá sýningarlöndunum og
eru það bæði verzlunarfulltrúar
hinna ýmsu útflutningsfyrir-
tækja, fulltrúar verzlunarráð-
anna og ráðuneyta og menn sem
vinna að uppsetningu sýningar-
innar fyrir fyrirtæki sín.
Framkvæmdanefnd og
heiðurssýningarnefnd
Viðskiptamálaráðherra,
Ing-
ólfur Jónsson, er verndari sýn-
ingarinnar og mun flytja ræðu
við opnun hennar, en heiðurs-
sýningarnefnd skipa fulltrúar
frá samtökurh íslenzkra kaup-
sýslumanna, viðskiptamálaráðu-
neyti og Verzlunarráði íslands
og er formaður þess, Eggert
Kristjánsson stórkaupmaður,
formaður heiðurssýningarnefnd-
arinnar. — Auk þess hafa um-
boðsmenn tékkneskra útflutn-
ingsfyrirtækja hér á landi skip-
að sýningarnefnd og er Kristján
G. Gíslason, stórkaupmaður, for-
maður þeirrar nefndar. Fram-
kvæmdanefnd sýningarinnar .
skipa ísleifur Högnason, Haukur1
Björnsson og Áki Jakobsson.
Aukin viðskipti
Það er von sýningarlandanna
að vörusýning þessi megi verða
til þess að efla enn hin ört vax-
andi viðskipti íslands og þessara
stóru markaðslanda. Er enginn
vafi á því að íslenzkir kaupsýslu-
menn og allur almenningur muni
hafa gagn og ánægju af að fá
þannig tækifæri til að kynnast
hinni fjölbreyttu framleiðslu sem
lönd þessi hafa að bjóða.
Kinversk sýning.
Þess skal að lokum getið að
Kaupstefnan g'engst einnig fyrir
kínverskri vörusýningu um svip-
að leyti, sem verður haldin í
Góðtemplarahúsinu og verður
skýrt frá henni bráðlega þegar
undirbúningur er lengra á veg
kominn.
Hefst sjómannaverkfall
á miðvikudaginn?
Sjómenn biðja ekki um skjall
þeir krefjast bœttra kjara
Sjómenn á farskipunum hafa hoðað verkfall frá
og með miðvikudeginum er kemur, hafi samningar
ekki tekizt fyrir pann tíma. Samningar runnu út
1. p.m., en sjómenn frestuðu verkfalli sínu í von
um qð samningar tœkjust.
Útgerðarmenn vísuðu málinu til sáttasemjara og
hafa samnmgaumrœður faríð fram, en ekki borið
árangur. Undirnefndir fjalla nú um sérkröfur far-
manna, en Þjóðviljinn fékk pœr upplýsingar hjá
Sjómannafélagi Reykjavíkur í gœr aö á pessu stigi
yrði ekkert um pað sagt hvort pœr viðræður bœru
tilœtlaðan árangur eða ékki.
Á sjómannadaginn bera sjómennirnir pann hug
sem útgerðarmenn sýna kröfum peirra um kjara-
bætur saman við skjállið sem útgerðarmenn pylja
í eyru sjómanna í dag.
Eins og skýrt hefur verið frá í fréttum tóku íslendingar
í fyrsta sinn pátt í hinni árlegu alpjóðlegu listiðnaöarsýn-
ingu í Múnchen á pessu vori. Myndin sýnir hluta af ís-
lenzku sýningardeildinni: silfurmuni eftir Ásdísi Sveins-
dóttur og Jóhannes Jóhannesson og keramik eftir Ragnar
Kjartansson og Guðmund Einarsson frá Miðdal.
17 ára ísfirðiiigur hlýtur af-
reksverðlaun sjómannadagsins
Sýndi fádæma dugnað við björgun skips-
hafnarinnar af Agli rauða
í dag veröa afreksverölaun sjómannadagsins afhent á
ísafiröi og hlýtur þau Gísli Jónsson, 17 ára gamall ísfirzk-
ur piltur, sem sýndi fádæma dugnaö viö björgun skips-
hafnarinnar af togaranum Agli rauöa í janúarmánuöi s.l.
Gisli er fæddur og uppalinn á
Sléttu í Jökulfjörðum og þaul-
kunnugur þeim slóðum er togar-
inn strandaði á undir Grænu-
hlíð. Var hann því fenginn til
að vera leiðsögumaður björgun-
arsveitarinnar, sem gekk á land
hjá Hesteyri og tókst að bjarga
16 skipverjum. Það er einróma
álit þeirra sem til þekkja að
björgunarsveitin, sem skipuð var
ísfirðingum og skipverjum af
Austfirðingi, hafi unnið hér ein-
stætt afrek en enginn björgunar-
mannanna hafi þó sýnt meiri
dugnað og þrek en Gísli Jóns-
son. Kannaði hann fyrst við
fjórða mann leiðhia á strandstað,
leið sem var geysierfið og stór-
hættuleg eins og veðri-var hátt-
að um nóttina, sneri síðan tii
baka og sótti aðalhóp björgunar-
manna. Verðlaun þau sem Gísli
hlýtur er veglegur silfurbikar.
Hátíðahöldin í dag
Eins og áður hefur verið
skýrt frá verða hátíðahöld 18.
sjómannadagsins hér í Reykja-
vík með liku sniði og í fyrra.
Aðalhátíðin hefst kl. 14 við Dval-
arheimili aldraðra sjómanna í
Laugarósj að lokinni hópgöngu
frá Borgartúni 7. Fyrir göngunni
fer skrautbúið víkingaskip,
mannað eldri sjómönnum, og
hornaflokkur.
Við Dvalarheimilið verður
fyrst minnzt drukknaðra sjó-
manna: Guðmundur Jónsson
óperusöngvari syngur og Ás-
mundur Guðmundsson biskup
talar. Síðan flytja ávörp: sjávar-
útvegsmálaróðherra, Ásberg Sig-
urðsson fulltrúi útgerðarmanna
og Þórhallur Hálfdánarson skip-
stjóri í Hafnarfirði fulltrúi sjó-
manna.
5 aldnir sjóinenn heiðraðir
Þá fer fram afhending j-
þróttaverðlauna og heiðurs-
rnerkja sjómannadagsins. Verða
5 eldri sjómenn heiðraðir, þeir
Gísli Ásgeirsson frá Álftamýri
í Arnarfirði, Ellert Schram
Reykjavík, Sigurður Jónsson í
Görðum Reykjavík, Einar Ólafs-
son Hafnarfirði og Guðjón Jóns-
son, elzti skráði sjómaður hér
á landi. Guðjón er 74 ára og
Framhald á 12. síðu.
Bandaríkjaher í
hanni franska
STEFs
Hingað hafa nú borizt fregnir
frá franska STEFI um að ríkis-
stjórn Frakklands hafi bannað
útvarp og sjónvarp Bandarikja-
hers í Frakklandi og nýlendum
þess, af því að herinn hefur
ekki fengið leyfi franska félags-
ins og höfundanna, en flutt
verndaða tónlist í óleyfi. Áður
fréttist hingað, eins og frá hefur
verið skýrt, að franska ríkis-
stjórnin hafði af sömu ástæðum
bannað hljómleika herhljóm-
sveitar Bandaríkjahers (stjórn-
andi Mr. Howard), enda þótt
hljómleikana ætti að halda til
ágóða fyrir mannúðarmál.
(Frá STEFI)
Það er á valdi almennings að afstýra kjarnorkustyrjöld
— Undirritið Vínarávarpið.