Þjóðviljinn - 05.06.1955, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 05.06.1955, Blaðsíða 6
•IJ I 6) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 5. júní 1955 -----------—- þJÓÐVIUINN Otgefandl: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurlnn. Ritotjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttastjórl: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarnl Benediktsson, Guð- mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfl Ólafsson. A.uglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Kitatjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7600 (3 línur). Áskrlftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 1T annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintaklð PrentsmiSja Þjóðviljanp h.f. K--------—--------------------------------------------/ Hvernig laia verkin? f dag er sjómannadagurinn, og það’ ver'ða mikil hátíða- höld, og fögur orð munu hvergi verða spöruð. Ingólfur Jónsson viðskiptamálaráðherra flytur aðalræðuna, og trú-' lega verður hann sæmdur æðsta heiðursmerki sjómanna- dsgsins á eftir, eins og útgerðarráðherrann Ólafur Thors í fyrra. í ár hefur hins vegar skort framtak til þess að sækja prófessor vestur til Ameríku til þess að koma fram sem fulltrúi sjómanna í tilefni dagsins, og er það mikið saknaðarefni. Ókunnur maður sem fylgist með hátíðahöldum dagsins mun að sjálfsögðu álykta sem svo að íslenzkir sjómenn séu miklir forréttindamenn, einna líkastir þjóðhöfðingj- uní erlendis. Öll þjóðin, og þá ekki hvað sízt ráðamenn hennar, keppist um að hampa þeim og gera hag þeirra sem beztan; þeir njóti þess í ríkasta mæli að vera óska- höm þjóðarinnar. En orðin eru ódýr hér á íslandi, og verkin tala minnis- stæðara máli alla aðra daga en þennan eina. Staöreynd- in er sú að því fer svo fjarri að sjómenn séu förréttinda- nienn að þeir hafa orðið að heyja harða baráttu árum saman til þess að tryggja sér frumstæðustu réttindi. Það kostaði þannig sjómenn verkfall eftir verkfall að hnýja fram svo sjálfsögð réttindi sem 12 stunda hvíld á sólarhring á togaraflotanum. Gegn því réttindamáli stóðu Ólafur Thors — maðurinn með heiðursmerkið — og allir félagar hans á Alþingi árum saman og þeir sóuðu tugum milljóna í gjaldeyri til þess að reyna að koma í veg fyrir, aö sjómenn hlytu þessi sjálfsögðu mannréttindi. Þessir sömu herrar hafa talið það eitt meginverkefni sitt að stela af réttmætum hlut bátasjómanna með báta- gjaldeyriskerfinu. Síðast nú í janúar og febrúar urðu sjó- menn í Vestmannaeyjum að heyja harða baráttu til þess að rétta hlut sinn að nokkru, og voru þá svívirtir látlaust í blöðum þeim sem hrúga munu upp mestum lofsyrðum í dag. Þrátt fyrir þær miklu umbætur á kaupi og kjörum sem sjómenn hafa tryggt sér með harðri baráttu, er það þó staöreynd að útgerð héðan hefur verið stunduð með er- lendri aðstoð; það hefur orðið að flytja inn sjómenn frá Færeyjum. Svo mikil er umhyggja ráðamannanna fyrir sjómennsku, að þjónustustörf 1 þágu erlends hernámsliðs eili látin tryggja betri og eftirsóknarverðari kjör. En auð- vitað munu þeir ekki minnast á það í ræðum sínum í dag. Einnig er það í fersku minni að ráðamennirnír stöðvuöu farskipaflotann lengi 1 vetur 1 vonlausum tilrauninn til að komast fram hjá sjálfsögðum kröfum eins starfshóps- ins, og ekki er útséð um nema þeir kunni að stöðva hann í annað sinn af sömu ástæðu. Þegar rætt er um kjör sjómanna er viðkvæðið jafnan það að útgerðin beri sig ekki; það sé ekki hægt aö tryggja sjómannastéttinni verðuga afkomu. Hversu haldlaus þessi röksemd er sést þó bezt á því að íslenzkir sjómenn eru lang afkastamestu sjómenn í heimi, draga á land sjö- falt meiri afla en þeir sem næstir koma. Ef útgerðin ber sig ekki hér, hvernig í ósköpunum er hún þá rekin í öðrum löndum? Ef íslenzkir sjómenn verðskulda ekki að vera raunverulegir forréttindamenn, við hvers konar kjör ættu þeir þá að búa í öðrum löndum? Enda er staðreyndin sú að íslenzk útgerð er einhver gróðavænlegasti atvinnuveg- ur sem sögur fara af — gróðinn rennur aðeins til annarra en þeirra sem skapa hann. Fyrir nokknim dögum var mikið skrifað um gjaldeyiisspamaðinn af áburðarverk- smiðjunni, og hann er vissulega ánægjulegur. Þó nam hann ekki meiru en gjaldeyristekjunum af veiði þriggja nýsköpunartogara, en fyrir verðið sem áburöarverksmiðj- an kostaði mætti nú kaupa 10 nýtízku toga. Togaraútgerð er því margfalt arðbærari en sú stóriðja sem felst í áburð- arverksmiðju, og er hún þó einnig mjög arðgæf fyrir þjóðina. Þessa ber að minnast í dag er stjórnarvöldin flytja hin- ar fögru og hjartanlegu ræður sínar. Og það mun verða haldið áfram að berjast þar til verkin tala í ögn meira usamræmi við orðaflauminn. Ritstjóri: Guðmundur Arnl&ugsson SKÁKIN BORIS SPASSKl Á síðasta skáþingi Sovét- ríkjanna vakti enginn meiri at- hygli en yngsti keppandinn, hann var í fylkingarbroddi frá upphafi til loka. Séu gerðar upp sakir milli 6 efstu manna innbyrðis verður röðin þessi: 1.-3. Smisloff, Spasskí, Ilviskí, 3 vinninga hver; 4. Petrosjan 2y2; 5- Geller 2; 6. Botvinnik 1%. Spasskí er lesendum skák- dálksins ekki með öllu ókunn- ur, því að hér hefur verið minnzt á hann tvívegis áður og kann ég litlu við það að bæta. Hann er frá Leningrad, er stúdent og talinn 18 ára nú. Hér fer á eftir ein af skákum hans úr þessu síðasta skák- þingi og er andstæðingurinn enginn annar en sá, er vann skákmeistaratitilinn að lokum. Nimzoindversk byrjun Geller Spasskí (Skýringarnar eru eftir Lilienthal) 1. d2—d4 Rg8—f6 2. c2—c4 e7—e6 3. Rbl—c3 Bf8—b4 4. a2—a3 Það má deila um hvort þetta sé bezta framhald hvíts. Hvernig sem því er farið, er þetta eft-^ irlætistilbrigði snjallra leik- fléttumanna eins og -Bronsteins Kotoffs og Gellers. 15. c3xd4 Rc6xd4 16. Rh5xf6 Dd7—e7 17. Ddl—a4 Það er ekki rétt af hvít að draga drottninguna líka úr vöminni kóngsmegin. 17. Ba6—b7 18. Rf6—h5 Hér gat virzt svo sem Geller gæti komið upp flækjum sér í hag með því að leika 18. Rd5 — eftir exd5 hótar hvitur bæði Dxd4 og Dxa7. En Ssasskí hefði áreiðánlega afþakkað boðið og leikið í staðinn 18. — Dh4 með öflugri sókn, t.d. 19. Dxa7 Rf3+ 20. gxf3 Hhg8f 21. Khl Dh3 og mátar, eða 19. Re3 Hhg8 20. Khl f5. 18. Hh8—g8 m^m mmm, ... AB CDEFGH 19. Da4—dl Geller sér, að ástandið er að verða alvarlegt, en nú er hann orðinn of seinn. Svartur hefur nú frumkvæðið og Spasskí kveður það til enda af mikilli snilld. Hvítur gat vitaskuld ekki leikið 19. Dxa7 vegna 19. — Hxg2f 20. Kxg2 Bxe4f 21. Bxe4 Dxa7. 19. f7—f5! 20. Hfl—el De7—h4 21. f2—f4 Þetta er engin yfirsjón, hvítur á ekki betra til! 21. e6—e5! Auðvitað vinnur Dxelf einnig, en leikur svarts er ennþá betri. Ef nú Khl þá Hg4. 22. Hal—cl e5xf4 23. Bd3—fl Dh4xelf 24. Ddlxel Rd4—f.3t 25. Kgl—f2 Rf3xel 26. Hclxel f4—f3! Enn eitt bragð, sem gerir tafl- ið alveg vonlaust fyrir hvít vegna þess að kóngur hans verður gersamlega berskjald- aður. 27. g2xf3 f5xe4 28. f3xe4 Hd8—f8f 29. Kf2—e3 Bb7xe4! 30. Bfl—h3t Be4—f5 31. Bh3xf5 Hf8xf5 og hvítur gafst upp. 4. Bb4xc3f 5. b2xc3 c7—c5 6. e2—e3 Rb8——c6 7. Bfl—d3 d7—d6 8. Rgl—e2 b7—b6 9. 0—0 Dd8—d7 Svart býr sig undir að þrýsta á c4 og undirbýr þar að auki langa hrókun. 10. e3—e4 Bc8—a6 11. Bcl—g5 0 0 0 í skákinni Kotoff—Arnlaugs- son á Ólympíumótinu í Am- sterdam hrókaði svartur langt í nokkum veginn sömu stöðu. Spasskí hefur þó aðra og öfl- ugri áætlun í huga en íslend- ingurinn. 12. Re2—g3 Geller flytur riddarann yfir á kóngsarm. Þessi áætlun er vafasöm, því að kóngur svarts stendur öruggur drottningar- megin. Vilji Geller fórna peð- inu á d4 fyrir sókn, var rök réttara að leika Rcl, eins og Spasskí benti á, að skákinni lokinni. Hugsanlegt framhald væri þá 12. Rcl cxd 13. cxd Rxd4 14. a4 með sókn sem spá- ir góðu. 12. h7—h6! Spasskí er taflmaður, sem er það sízt móti skapi að láta peð eða tvö fyrir sókn. Hér er það Geller sem býður fórn, en ekki hefði verið ráðlegt að þiggja hana: 12. — cxd4 13. cxd4 Rxd4 14. Rh5, og taflið er ó- þægilegt fyrir svart. 13. Bg5xf6 Þessi kaup koma svarti að haldi. Eg skil vel, að Geller sé ekki fús að hætta við áform sitt og leika Be3, en ég held að það hafi ekki verið of seint. 13. g7xf6 14. Rg3—h5 c5xd4 Áttræður í dag: Jón Árnason, prentari Jón Ámason er áttræður í dag, því hann fæddist í Mikla- holtshelli í Hraungerðishreppi 5. júní '1875. Hann hóf prent- nám 18 ára gamall, stundaði prentstörf í Noregi um alda- JÓN ÁRNASON mótin og vánn við iðn sína þar til hann var sjötugur. I prentaratalinu er þess get- ið að Jón sé eini prentarinn hér á lándi, sem hafi lært fastaletrún (eftirsteypu) til hlítar. Jón var einn af stofnendum Hins íslenzka prentarafélags 1897 og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum, sérstaklega á fyrri áram. Þá var Jón einn þeirra tuttugu prentara, er stofnuðu prentsmiðjuna Gutenberg árið 1904, en sú framkvæmd olli tímamótum í kjarabaráttu prentara og varð þar að auki til þess að meiri rækt var lögð við vöndun prentgripa en áð- ur var. í Góðtemplarareglunni hefur Jón starfað áratugum saman, og gegnt þar mörgum embætt- um, bæði í sinni eigin stúku, Umdæmisstúkunni nr. 1 og Stórstúkunni og síðan árið 1939 hefur hann verið umboðs- maður alþjóða-hátemplars hér á landi. Hann var um mörg ár rit- stjóri Templars, sem var mál- gagn góðtemplara á íslandi og háði þá marga orrahríð, með penna sínum, fyrir áfengis- bindindi og áfengisbanni. Þá hefur Jón starfað mikið í Guðspekifélaginu og ritað margt um guðspeki, dulfræði, táknfræði og stjörnuspeki. Jón Árnason var kjörinn heiðursfélagi Hins íslenzka prentarafélags 4. apríl 1937 og Stórstúku Islands 24. júní 1950. Riddari af fálkaorðunni varð hann 15. okt. 1945. Jón Árnason er ákveðinn í skoðunum og ómyrkur í máli og þó að hann sé félagslyndur eins og sjá má af því, sem að framan greinir, og er þó að sjálfsögðu ekki allt talið af því tagi, þá verður þó ekki sagt að hann hafi ætíð bundið bagga sína sömu hnútum og sam- ferðamennirnir. Hann hefur sagt skoðanir sínar á mönnum og málefnum án tillits til þess hvort þær áttu fylgi að fagna eða ekki. Þó að ég hafi haft nokkur kynni af Jóni Árnasyni um meira en 40 ára skeið, tel ég mig ekki svo kunnugan einka- lífi hans að ég treysti mér til að lýsa því á einn eða annan. hátt, ég hefi því hér aðeins Framhald á 10. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.