Þjóðviljinn - 05.06.1955, Qupperneq 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 5. júní 1955
Sjómannadagurinn
%
er hátíðisdagur íslenzkra sjómanna,
sem sækja björg á miðin, sigla
með ströndum fram og víða um heim
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
óskar öllum s]ómönnum gæfu og gengis I fram-
flSinni i filefni af deginum
5 /
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
I
• «■■■••■■■■■■■■■■■■■■»■■■■■■■■•■»•■■■■■
Tónlistarfélagið og Félag íslenzki’a einsöngvara:
La Bohéme
eftir Giacomo Puccini
Hljómsveitarstjóri: Rino Castagnino
Leikstjóri: Lárus Pálsson 1
Fáir söngleikir haía notið
jafnmikilla ástsælda frá fyrstu
stund og „La Bohéme" eftir
tónskáldið italska Giacomo
Puceini, enda fallegt verk, hug-
þekkt og hlýtt, svo að ber af
öðrum óperum meistarans, þótt
ekki sé verulega dramatískt,
djúpstætt eða stórt í sniðum;
þar er leikið af öruggri tækni
og meistaralegri nærfærni á
viðkvæma strengi. Efnið er
sótt í sígilda sögu franska
skáldsins Henri Murgers um
listamannalíf á vinstri bakka
Signu á fyrri hluta nítjándu
aldar og í ýmsu reist á raun-
sönnum atburðum, þar má
kenna Murger sjálfan, ástkonu
hans og nána vini. Ópera Pucc-
ini er hjartnæmur óður um
horfna æsku, þrungin tilfinn-
ingu fremur en tilfinningasemi.
og efni og tónar í eins góðu
samræmi og bezt má verða —
líf listamannanna ungu stendur
okkur lifandi fyrir hugskots-
sjónum, og þar mega raunar
allir kannast við æskubrek sín
og forna frægðardrauma. Þess-
ir rómantísku listamenn lifa
fyrir líðandi stund, sárfátækir
og tíðast svangir og kaldir, en
þó öðrum meiri auðkýfingar,
að minnsta kosti að eigin
dómi; þeir bera ástarharma
í brjósti og eru þó að jafnaði
með spaugsyrði á vörum. Ro-
dolfo skáldið í hópnum elskar
Mimi, hina trygglyndu og góðu
saumastúlku, af ástríðuþunga
og afbrýði, en kynning þeirra
á sér skamman aldur, brjóst-
veikin leggur hana að velli áð-
ur en varir. Félagi hans málar-
inn Marcello fær sannarlega að
reyna að engin rós er án
Jjyrna, ástmey hans Musetta er
jafn léttúðug og hverflynd sem
hún er fögur; og við kynnumst
líka vinum þeirra, heimspek-
ingnum Colline og tónlistar-
manninum Schaunard, sönnum
fulltrúum æsku, nautna og
listar. Bygging söngleiksins er
með ágætum, þættirnir fjórir
eru sérstæðar heildir og
skemmtilega ólíkar og birta á
Ijósan hátt andstæðurnar í lífi
hins unga fólks, örðugleika og
hryggð og gáskafulla kæti; og
tónskáldið hyllir ástina í Ijúf-
sárum heillandi söngvum.
Með flutningi þessarar óperu
hefur söngfólk vort fært sönn-
ur á, að hér er hægt að flytja
fullgildar óperur með prýði.
Að þessu sinni var einungis
íslenzkt söngfólk að verki, og
komu þar þó ekki fram nærri
því allir, sem hlutgengir eru.
Sérstaklega er athyglisvert,
hversu kostajafn flutningur
söngfólksins var. Þaraa var
ekkert sönghlutverk, sem hægt
væri að segja, að hefði mis-
tekizt. Aðalhlutverkin voru frá-
bærlega vel sungin af Magnúsi
Jónssyni (Rodolfo, tenór) og
Guðrúnu Á. Símonar (Mimi,
sópran). Guðrún hefur áður
margsannað hæfileika sína,
bæði á óperusviði og í hljóm-
leikasal. Um Magnús hefur
bjarmi sviðljósanna sjaldnar
leikið. Fyrir réttu ári eða þar
um bil efndi hann til hljóm-
leika, sem lofuðu miklum og
góðum hlutum í framtíðinni.
Þau loforð hefur hann vissu-
lega haldið, og er þó ekki þar
með sagt, að hann kunni ekki
<k
að eiga eftir að gera það enn
betur síðar. Rödd Magnúsar
reyndist fyllilega hlutverkinu
vaxin, flutningur hans í alla
staði smekklegur og vandaður.
Minnisstæður er samsöngur
hans og Guðrúnar í fyrsta og
síðasta þætti. Leikarar eru þau
ekki enn sem komið er, einkum
er leikræn túlkun, Magnúsar
svipminni og dauflegri en efni
standa til, en mjög geðfeld
og látlaus er framkoma
beggja. — Nokkru minni, en þó
hliðstæð, eru hlutverk Guð-
mundar Jónssonar (Marcello,
baritón) og Þuríðar Pálsdóttur
(Musetta, sópran). Sérstök á-
stæða er til að geta ágæts
söngs Þuríðar í atriðinu fyrir
framan Momus-veitingahúsið í
öðrum þætti. Og hún leikur
einnig skýrt og skemmtilega,
mjög glæsileg stúlka, aðsóps-
mikil ,og óskammfell in sem
Musettu sæmir, og túlkar ekki
sízt Ijóslega góðvild þá og
hjálpsemi er dylst að baki allr-
ar léttúðarinnar. Þeir Guð-
mundur Jónsson og Kristinn
Hallsson (Schaunard, baritón),
sem höfðu annars mjög svipuð-
um hlutverkum að gegna, eru
báðir alkunnir söngvarar, og
nægir að taka það fram hér, að
söngur þeirra réttlæti algerlega
þá lofsamlegu dóma, sem þeir
hafa áður getið sér. Að leik
þeirra er óþarft að f inna — Guð-
mundur er myndugur og mynd-
arlegur og dálítið þóttafullur
eins og Marcello á að vera, og
Kristinn fjörugur og frjáls-
legur og lýsir vel léttlyndi og
lífsgleði hins ungá listamanns.
Um félaga þeirra Jón Sigur-
björnsson (Colline, bassi) er
það að segja, að hann lét' ekki
sitt eftir liggja, og hin mikla
rödd hans naut sín ágætlega
í því hlutverki, sem hann hafði
þarna að leika. Gerfi hans og
framganga var einnig vel við
hæfi, Colline er traustur mað-
ur, ihugull og geðfeldur í með-
förum hans. Gunnar Kristins-
son l(Benolt, baritón); Ólaf-
ur Magnússon (Alcindoro,
bassi) fóru einnig mjög vel
með sín aukahlutverk, þó hú»-
eigandinn hefði raunar mátt
verða drjúgum skoplegri. Kór-
söngurinn i miðþáttunum tókst
ágætlega, og ber vitni vönduðu
undirbúningsstarfi Ragnars
Björnssonar.
En þá er eftir að geta hljóm-
sveitarinnar, Til þess að stjórna
henni hafði að þessu sinni ver-
ið fenginn hingað ítalskur tón-
listarmaður, Rino Castagnino.
Þarna var auðheyrilega á ferð-
inni gagnmenntaður stjórnandi,
og það leynir sér ekki, að hann
þekkir auk þess til hlítar þá
tegund hljómlistar, sem hér er
um að ræða, og kann með hana
að fara. Nákvæmur og blæ-
brigðarikur flutningur hljóm-
sveitarinnar undir stjórn hans
var slíkur, að unun var á að
hlýða.
Lárus Pálsson setti óperuna
á svið af alkunnum dugnaði
og listfengi, og varð ekki á
sýningunni séð að tími væri
naumur til æfinga, svo háttvis
og lýtalaus var framkoma
söngfólksins alls, hvort sem
margir voru eða fáir á svið-
inu. Hinir skrautlegu og vönd-
uðu búningar eru fengnir að
láni í Kaupmannahöfn, og
starfsfólk Þjóðleikhússins hef-
ur veitt margvíslega aðstoð og
ekki legið á liði sínu. Leiktjöld
Lothars Grund eru falleg og
vönduð í hvívetna — vinnu-
stofa listamannanna hæfilega
hrörleg en áþarflega lág und-
ir loft, og bæði götusviðin gerð
af skilningi á efni leiksins,
litirnir samvaldir og línurnar
hreinar, og eiga sinn þátt í
að skapa hinn rétta hugblæ;
Framhald á 11. síðu.