Þjóðviljinn - 05.06.1955, Blaðsíða 7
Sunnudagur 5. júní 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7
Frumkvæði Einars Olgeirs-
sonar og Sósíalistaflokksins
um hina glæsilegu nýsköpun
sjávarútvegsins í stríðlok,
knúin fram gegn tregðu og
trúleysi afturhaldsins í öllum
hinum flokkunum, er nú þegar
atriði sem heyrir til Islands-
sögu.
Broslegt er að heyra Ólaf
Thors og aðra íhaldsmenn
eigna sér það frumkvæði.
Að vísu reyna þeir við hvert
tækifæri að nota sér það til
lofs, að tókst að draga tals-
verðan hluta Sjálfstæðisfl.
með í nýsköpunarstjórnina.
En trú þeirra á nýsköpunar-
togara var ekki meiri en
svo, að voldugasta togarafé-
lag landsins, Kvöldúlfur
dragnaðist til að biðja um
Alþingi stöðvar nauðsynjamál sjávar-
útvegsms og réttlætismál sjómanna
Gegn þeim málum rís þingmeirihluti Sjálfstæðis-
flokksins og Framsoknar eins og veggur
Mörgum sjómanni verður
það undir ræðuflaumi og orð-
skrúði sjómannadagsins að
hugleiða hvernig tveir stærstu
stjómmálaflokkar landsins,
Sjálfstæðisflokkurinn og Fram
sóknarflokkurinn, hafa barizt
þing eftir þing móti þeim rétt-
lætismálum sjómanna sem
flutt hafa verið inn á vett-
vang Alþingis.
Og sú hugleiðing verður
stundum beizkjublandin, þegar
þess er minnzt, að hefðu þessir
tveir flokkar, Sjálfstæðisflokk-
urinn og Framsóknarflokkur-
mn, lagt rettlætismalum sjo-
manna lið, hefðu þau nú fyrir
löngu verið skráð á lögbækur
sem lög íslenzku þjóðarinnar.
Og þó ekki hefði verið nema
að annar þessara tveggja
flokka, annaðhvort Sjálfstæð-
isflokkurinn eða Framsókn,
hefði lagt réttlætismálum sjó-
manna lið á Alþingi, væru þau
löngu orðin að lögum
Eln þama hafa þeir setið,
þessir tveir flokkar, og ýmist
haft að engu réttlætismál sjó-
manna, látið þau sofna vært í
nefndum eða vísað þeim frá
eða beinlínis beitt illafengnum
meirihlutavaldi sínu á Alþingi
til þess að fella framvörp og
tillögur um réttlætismál sjó-
manna.
★
að misbeita illa fengnu valdi
ríkisstjómar og meirihluta
AJþingis til að auðklíkur
flokkanna fái sem jafnasta að-
stöðu til að arðsjúga fram-
leiðsluna. Og þeir samningar
verða sifellt flóknari og um-
fangsmeiri, svo flokkamir
hafa lítinn tíma til annars og
láta Alþingi rorra aðgerðalít-
ið, nema þegar tekinn er kipp-
ur í því skyni að lögfesta ný
helmingaskipti eða reyna að
ræna enn einu ríkisfyrirtæki
handa gróðaklíkunum í innsta
hringnum.
★
Þessum tveimur flokkum
hefur tekizt svo lengi að
blekkja fólk til fylgis við sig,
einnig að láta ótal sjómenn og
gerðar úti um land, frumvörp i
um aukið öryggi sjómanna, ,
skattfríðindi sjómanna, mark- '
aðsmál, baráttan fyrir hlut-
deild sjómanna í bátagjaldeyr-
inum — öll þessi mál fluttu
þingmenn sósíaiista enn inn á
vettvang Alþingis.
Gegn hverju einasta þessara
hagsmunamála sjómannastétt-
arinnar og alþjóðar reis þing-
lið Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknar eins og veggur og
hindraði framgang þeirra.
★
Tvö dæmi um þessi baráttu-
mál Sósíalistaflokksins, hags-
munamál alþjóðar og réttlæt-
ismál sjómannastéttarinnar,
skulum við athuga nokkra
nánar.
Þo eru þeir síður en svo at-
hafnalausir í sjávarútvegs- og
sjómannamálum, þessir tveir
flokkar. Þeir gera ýmislegt
fleira en vatna músum af við-
kvæmni á sjómannadaginn.
Þeir hafa á milli sín skapað
dularfullt kerfi atvinnuhátta,
sem er þannig í framkvæmd að
sjávarútvegur íslendinga, hinn
glæsilegi lífsbjörgunarvegur
íslenzku þjóðarinnar, á við
stöðuga rekstrarerfiðleika að
búa, en mestum hluta þeirra
gífurlegu verðmæta, sem þjóð-
in eignast vegna vinnu sjó-
mannanna, er stolið í ofsa-
gróða milliliða og okurfélaga,
sem lifa eins og sníkjudýr á
því að arðsjúga aðalfram-
leiðsluatvinnuveg íslendinga.
Og það era gerðir um það
samningar milli flokkanna,
Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins, hvernig þess-
um flokkum megi bezt takast
] Ólafur Tryggvason
sjómannakonur lyfta sér til
vaJda, að hroki þeirra kann
sér orðið ekkert hóf. Erkifífl
á borð við Ólaf Tryggvason
Jensen Thors þykist þess um-
kominn að fara háðsyrðum um
vandræðin, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn og Framsókn hafa
komið sjávarútveginum í, tala
um togaraútgerðina sem ó-
maga á þjóðfélaginu. Öllum
fórst að tala um ómaga á
þjóðfélaginu, mun * einhver
mæla, sem þekkir feril Ólafs
þessa og fjölskyldufyrirtækja
hans.
★
Þess mun einnig minnzt á
sjómannadaginn, að allt frá
stofnun sinni hefur Sósíalista-
flokkurinn barizt jöfnum
höndum fyrir eflingu íslenzka
flotans og heilbrigðri skipan
útgerðarmála og fisksölumála
og fyrir bættum kjöram sjó-
manna. Ár eftir ár hafa þing-
menn Sósíalistaflokksins flutt
réttlætismál sjómanna inn á
Alþingi, barizt fyrir þeim þar
og í blöðum sínum, þa.r til þau
hafa brennt sig svo í vitund
þjóðarinnar, [ að réttmæti
þeirra varð ekki véfengt.
Þess er skemmzt að minn-
ast af þinginiu . í vetur hve
mjög þingflokkur sósíalista
lét sjávarútvégsmálin og rétt-
lætismál sjómanna til sín taka.
Mál eins og endurnýjun tog-
araflotans, lögfesting 12
stunda hvíldar togaraháseta,
uppbygging fiskiðnaðar og út-
einn þeirra, þegar nýsköpunar-
togararnir, sem taldir era með
beztu fiskiskipum í heimi,
vora boðnir falir. Þar sást
stórhugur Ólafs Tryggvason-
ar Thors og hans ættmenna,
sú pöntun er minnismerki um
trú íhaldsins á nýsköpun sjáv-
arútvegsins. Enda hafa þeir
fundið að Sjálfstæðisflokkur-
inn h.f., saltfisksala ogolíuok-
ur var ólíkt arðmeiri fyrirtæki
en togaraútgerð.
★
Togaraútgerðin er stórvirk-
asti framleiðsluatvinnuvegur
íslendinga. Það veltur því á
miklu fyrir þjóðina alla að
togaraflotinn sé stóraukinn.
Þá aukningu hafa ríkisstjórn-
ir Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknar vanrækt með öllu,
og ekki einu sinni séð fyrir
nauðsynlegri endurnýjun flot-
ans. Til að bæta úr brýnustu
þörf á þessu sviði fluttu fjór-
ir þingmenn sósíalista, Karl
Guðjónsson, Lúðvík Jósepsson,
Gunnar Jóhannsson og Einar
Olgeirsson, á þinginu í vetur
framvarp um smíði togara inn-
anlands og aukningu togara-
flotans. Var þar kveðið á um
byggingu tveggja togara í ís-
lenzkum skipasmiðastöðvum
og ríkisstjórnin keypti erlendis
frá átta fullkomna togara.
Skyldi miða undirbúning
þeirra framkvæmda við það,
að smíði þessara 10 skipa Ijúki
á tveimur næstu árum, 1956
og 1957. Sams konar frumvarp
hafa þingmenn sósíalista einn-
ig flutt á undanförnum þing-
um.
Flutningsmenn lögðu á það
áherzlu, að með frumvarpi
þessu væri ,,stefnt að því
tvennu, að bæta afkomu þjóð-
arinnar með eflingu þeirrar
höfuðatvinnugreinar, sjávar-
útvegsins, sem telja má hyrn-
ingarstein undir allar meiri
háttar framfarir á íslandi,
eins og nú er háttað málum,
og blása lífi í hinn unga iðnað,
sem áreiðanlega á eftir að
vinna hér stórvirki þegar tím-
ar líða, ef hann fær að glíma
við verkefni, sem honum eru
samboðin," eins og togara-
smíðar.
★
Þarna var ekki farið fram
á mikið, en fáum sem þekkja
til íslenzkra atvinnuhátta mun
blandast hugur um að þjóðar-
nauðsyn var að Alþingi tæki
slíku máli af skilningi og festu.
En gegn slíkum nauðsynja-
málurn rís veggur þingmeiri-
hluta SjálfstæðisfIokksins •. og
Framsóknarflokksins. Enginn
rödd úr þeim flokkum tók und-
ir þetta nauðsynjamál þjóðar-
innar allrar, enginn þingmað-
ur úr þeim flokkum vírtist
hafa á því skilning né vilja
Ieggja því lið.
Enda miðast stefna þeirra í
atvinnumálum við annað en
heilbrigða framleiðsluatvinnu-
vegi íslendinga. Þeirra hug-
sjón virðist vera að sópa þús-
undum íslendinga til Suður-
nesja, til Hornaf jarðar, Langa-
ness, til Aðalvíkur, að byggja
ný og ný pestarbæli erlendra
herstöðva á íslenzkri grand —
og fá síðan útlendinga til að
manna fiskiskip Islendinga og
að framleiðslustörfunum i
sveitum landsins.
★
Annað dæmi, augljóst rétt-
lætismál sjómannastéttarinn-
ar: 12 stunda hvíldin, nýju
vökulögin.
Að vísu eru þau enn ekkl
orðin lög. En 12 stunda hvíld-
in á toguranum er þó orðinn
veruleiki, sjómennirnir urðu
að heyja löng og fórnfrek
verkföll til að koma henni á.
Gegn þessu sjálfsagða rétt-
lætismáli hefur hinn illa
fengni þingmeirihluti Sjálf-
stæðisflokksins og Framsókn-
ar risið eins og veggur, þing
eftir þing.
Það eru nú liðin 13 ár sið-
an ísleifur Högnason, þing-
Framhald á 10. síðu.
Minnisblað á sjómannadaginn
★ íslenzku þjóðinni er það lífsnauðsyn að
hér eftir sem hingað til veljist fjöldi hinna
vöskustu æskumanna Islendinga til starfa á
fiskiflotanum.
-ár Þess vegna á sjómannastéttin að vera
forréttindastétt á íslandi, þjóðfélagið verður
að kappkosta að búa svo að sjómönnum sínum,
að þeim sé á allan hátt boðlegt að starfa að
sjómennsku, að þess megi vænta að ungir
menn þyrpist til þeirra starfa.
★ Islenzkum togarasjómönnum verður að
tryggja stóraukin landfri með fullu kaupi;
fátt mæðir meira á þeim nú en fjarvistir frá
heinúlum og ástvinum allt að því árið um
kring.
★ Til þess að ná rétti sínum verða sjó-
menn að hefja stéttarfélög sín til vegs, gera
aðalfélag sitt, Sjómannafélag Reykjavíkur.
að því forystufélagi ^ið hlið Verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar, sem það ætti að vera.
En það er ekki nóg. Á Alþingi rís meiri-
hluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar-
flokksins eins og veggur gegn nauðsynjamál-
um sjávarútvegsins og réttlætismálum sjó-
mannastéttarinnar. Sjómenn, konur þeirra og
aðrir vandamenn geta ráðið miklu um það
hvort sá afturhaldsveggur Ihalds og Fram-
sóknar á einnig framvegis að hindra fram-
gang þeirra mála, sem sjómönnum er brýn
nauðsyn að nái fram að ganga.