Þjóðviljinn - 05.06.1955, Side 9
Sunnudagur 5. júní 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9
r
v
* ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRJ. FRÍMANN HELGASON
Heimsókn þýzku knattspyrnumannanna
eftfr skemtiitllegan leik
Albert skoraði tvö mörk af mikilli snilli
Það var ekki laust við að
áhorfendur ættu erfitt með að
átta sig á þeim „Valsmönnum“
sem komu hlaupandi inn á völl-
in í fagurrauðum peysum og
hvítum buxum í fylgd með hinu
liðinu sem var í þverröndótt-
um peysum sem aldrei höfðu
sést hér áður. En þessir Vals-
menn voru Þjóðverjarnir bún-
ir litum Valsbúningsins. Eftir
að liðin höfðu heilsazt og fyrir-
liði Vals afhent fyrirliða Þjóð-
verjanna blómvönd hófst þessi
skemmtilegi leikur.
Gott lið.
Það kom fljótt í ljós að lið
þetta er eftir þessum leik að
dæma betra en þau sem komið
hafa hingað undanfarið. Leikni
Þjóðverjanna er mikil og hreyf-
anleiki og sýndist oft sem þeir
væru fleiri á vellinum. Spyrnur
þeirra eru hreinar, og samleik-
urinn oft mjög góður og vel
upp byggður. Leikur liðsins í
heild með skalla er betri en
flestra liða sem hér hafa kom-
ið i langan tíma. Hraði þeirra
var mun meiri en Valsmanna.
Það var því ekki að furða
þótt lið með svona eiginleika
héldi uppi mikilli sókn meiri
hluta leiksins, og eftir gangi
leiksins hefðu Þjóðverjarnir
átt að fá meiri markamun, en
vörn Vals var sterk og ákveð-
in, sérstaklega Árni og Einar
Halldórsson.
Góður leikur Alberts.
Að ekki varð meiri munur á
mörkum má þakka Albert Guð-
mundssyni. Án hans hefðu
Valsmenn tæpast skorað og
þessi glæsilegu mörk sem hann
gerði voru liðinu mikil örfun.
Albert sýndi leikni sem varla
á sinn líka hér á vellinum,
sérstaklega er hann skoraði
síðara mark sitt, og mun það
lengi minnisstætt. Hann snýr
baki í mark Þjóðverja, fær
knöttinn frá vinstri, löng og há
spyma. Hann stekkur upp, læt-
ur knöttinn snerta vinstri fót
innanverðan svo hann missir
ferð og fer aftur á milli fóta
hans. í sömu andrá snýr hann
sér við í loftinu og snýr nú
andliti að marki Þjóðverja og
knötturinn ,,dauður“ við fætur
hans, hleypur 2-3 skref og
skýtur af 20 m færi og svo
snöggt og óvænt fyrir mark-
mann Þjóðverja að hann hafði
enga möguleika að verja, enda
fór knötturinn í bláhornið upp
við þverslá! Þessa marks verður
lengi minnst. Sendingar Alberts
voru mjög nákvæmar og gerð-
ar af skilningi. Hann er þó
sýnilega ekki í fullri þjálfun,
miðað við sitt bezta. Þó Vals-
menn berðust rösklega var sókn
arleikur þeirra of laus i reip-
um og sendingar of ónákvæm-
ar. Þó komust þeir oft allnærri
marki Þjóðverja en aldrei
hættulega.
Gangur leiksins.
Á 10. mín. gefur Sclieuman
Georges knöttinn en hann
hafði komizt frír inn á vítateig
og skorar óverjandi. Á 24.
mín. fær Alhert sendingu frá
Herði sem leikur á Þjóðverja
hleypur að marki en spyrnir
óvænt í bláhorn marksins.
Markmaður hafði hendur á
knettinum en skotið var svo
fast að hann hélt honum ekki
og hann hrökk inn í markið
1:1.
Á 29. mín. er Scheuman kom-
inn út á hægri jaðar, sendir vel
fyrir og enn er það Georges
sem skorar.
Á 30. mín. er Scheuman, mið-
herjinn kominn inn fyrir alla
en misheppnast skotið.
Á 42. mín. gerir svo Albert
annað mark sitt eins og lýst
hefur verið.
Á 50. mín. átti Hilmar skot
framhjá marki Þjóðverja.
Á 60. mín. átti Georges skot
rétt fyrir ofan þverslá.
Litlu síðar er Sigurður kom-
in inn fyrir en er of seinn að
skjóta, bakvörður bjargar í
horn.
Á 69. mín. skorar hægri út-
herjinn, Fesser, eftir góða
sendingu frá Ziebs.
Á 76. mín. bjargar Helgi
meistaralega. Hörður og Sig-
urður áttu á 80.. og 82. min.
skot á mark Þjóðverja en þau
voru laus og varði Bolchert það
auðveldlega.
Á. 84. min. munaði litlu að
skot frá Fesser hafnaði ekki
í neti Vals.
3:2 gefa ekki rétta mynd af
gangi leiksins og tækifærum.
5:2 hefðu verið nær sanni.
Liðin.
Af Þjóðverjum vakti vinstri
innherjinn Georges, og útherj-
arnir Kallermann og Fesser
mesta athygli. Miðherjinn
Scheuman var líka góður og
hreyfanlegur. Miðframvörður-
inn Hoffman var sterkur. Ann-
ars er liðið jafnt og enginn
veikur hlekkur í því.
Bezti maður Vals og e. t. v.
vallarins var Albert. Einar
Halldórsson átti mjög góðan
leik og sama er að segja um
Árna Njálsson sem var sá eini
sem gaf ekki Þjóðverjum eftir
með hraða og baráttuvilja.
Halldór Halldórsson er nú kom-
inn í fulla þjálfun og átti ágæt-
an leik. Helgi í markinu var á-
gætur. Gunnar er ekki enn í
sínu bezta og Hörður var ó-
venjudaufur og ónákvæmur með
sendingar. Vömin sem heild
var sterkari hluti liðsins. Sem
sagt þetta var mjög skemmti-
legur leikur frá upphafi til
enda þar sem sjá mátti oft
listir knattspymunnar leiknar
með prýði.
Veður var ákjósanlegt í alla
staði. Áhorfendur 6-7 þús. —
Dómari var Hannes Sigurðsson
og dæmdi vel. — Næsti leikur
Þjóðverjanna verður á morgun
og keppa þeir þá við KR.
Gunnar M. Magnúss: J
Börnin frá Víðigerði
að fólkið gat flutt í það. Og um það leyti vaf'vinn-
an við veginn að byrja, svo að þeir fóru þangað
með Stjána og Geira.
Þeir unnu í fyrstu mjög langt frá heimili sinu,
en þarna fengu þeir peninga fyrir vinnuna og'
mat upp á veturinn fyrir vinnuna. Vinnan stóð
langt fram á haust. En svo kom óveður, svo að
ekki var hægt að vinna. Hver hélt heim til sín
og fór inn í sinn bjálkakofa. Og óveðrið hamaðist
þarna í Ameríku, engu vingjarnlegar en á íslandi.
Stormurinn æddi, það gerði blindþreifandi hríðar-
veður og það undarlega var, hvað snjókornin
voru stundum stór og hörð. Vatnið fraus og ána
lagði, landið var hvítt og ömurlegt, rétt eins og á
Islandi. Skógurinn gránaði, og það hvein ömur-
lega í honum. Bjálkahúsin næddu og það varð að
troða í rifurnar og klessa því, sem til náðist í þær.
Það var amerískur vetur inni í auðninni.
Tíminn leið. Erfiðleikar landnemanna s’tóðu
árum saman, og aldrei mátti mannshöndin hvíl-
ast frá skóflu eða öxi. — Það líða átta ár. Og
margt brey’tist. Börnin eru vaxin upp til vinnu.
Sum fara burt úr nýlendunni og fólkið er alls
ekki ánægt með Jandskosti. Það vill fly’tja burtu.
Geiri hefur verið einn af hinum kappsömustu
við alla vinnu og hjálpað foreldrum sínum. Hann
er nú orðinn fulltíða maður og hefur verið eitt ár
í öðru byggðarlagi, til þees að kynnast háítum
innfæddra manna. En hann hefur alltaf hugsað
heim til gamla landsins. Og hann hefur alltaf
sagt foreldrum sínum, að hann skyldi einhvern-
tíma fara heim, til þess að aftra fólki frá að fara
MATRÁÐSKONA
■
■
■
■
Dugleg matráðskona óskast að mötuneyti voru í
á Keflavíkui’flugvelli.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um [
fyrri störf sendist skrifstofu vorri. Sími 82563.
■
■
■
■
Islenzkir aðalverktakar s.f.
■
■
■
■■■MaaMmÉHÍMWataMBPaMmMaMMMMMsaaMaBMMaHMaaMaMBaauaMHBUMnnMMMMMam
|
S
.• . ’ - •■ ■ ' •• y' \
I Á SJÖMANNADAGINN
K.R.B.
K.S.S.
Knattspyrnuheimsókn H.S.F .V.
2. ieikur
Heykjavíkurmeistaranisr
KJR. gegn Neðra Saxlandi
verður á íþróttavellinum annað kvöld, mánu-
dag, klukkan 8.30.
Dómari: Ingi Eyvinds
Aðgöngumiðasala hefst á íþróttavellinum
sama dag kl. 4. — Verð: stúkusæti kr. 30,00,
stæði kr. 15,00 og kr. 3,00 fyrir börn.
Forðizt biðraðir — kaupið
miða tímanlega
Móttökunefndin
«B*MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMaMM«MMMMMMMMMMMMMIMMMMMMMMMMMMMMMMMUI
sendum við íslenzkum sjómönnum, hvar
sem peir eru staddir og aðstandendum
peirra, beztu óskir um framtíðina og
pakkir fyrir störf á liðnum árum.
Akurgerði h.f.,
Hafnarfirði.
Félag ísl, kjötíWarmaniia
heldur fund mánudaginn 6. júní kl. 8.30 í veitinga-
húsinu Naust, uppi.
Pundarefni: SAMNINGARNIR.
Stjórnin.
«MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMBMMMMMMMMMMMMMMM«