Þjóðviljinn - 05.06.1955, Side 10
10) — ÞJÓÐVIUINN — Sunnudagur 5. júni 1955
MklS'
Á Sjómannadasinn 1955
sendir
Sjómanxtafélag Reykjavíkur
öllum meðlimum sínum og velunn-
urum beirra beztu kveðjur og
*• w ^ * rt rr rrf c
hamingjuóskir.
Stjórnin.
womxoLi
Gf
hefur helgað sjómöimunum þennan
dag, hínn árlega sjómannadag, til
þess að votta þeim þakklæti fyrir
starf þeirra.
Alþýðusamband fslands sendir sjó-
mönnum hamingjuóskir með daginn
og óskir um gæfuríka framtíð
Alþýðusamband íslands
I■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■!
Bóluefni
Framhald af 5. síðu.
Kemur ekki að fullu haldi.
Gallinn á þessu bóluefni er
að það kemur ekki að gagni
við öllum afbrigðum lömunar-
veikivírusar. Það veitir ónæmi
við tveim meinlausari afbrigð-
um en kemur ekki að neinu
haldi við sýkingu við því skæð-
asta. Hefur dr. Meyer látið í
ijós að gott kunni að vera að
gefa nýja bóluefnið ásamt bólu-
efninu sem kennt er við dr.
Salk. Hans efni veitir ónæmi
við öllum afbrigðum lömunar-
veiki en mótefnin eru lengur
að myndazt þegar það eitt er
notað.
lón Árnason
Framhald af 6. síðu.
getið nokkurra af félagsstörf-
um hans, en með þeim hefur
hann, m.a, átt þátt í að skapa
og efla verkalýðshreyfinguna
hér á landi og lagt drjúgan'
skerf af mörkum fyrir Góð-'
templararegluna og bindindis-
og bannhugsjónina yfirleitt,
og fleiri menningarmálum
hefur hann lagt lið sitt.
Ég lýk svo þessari stuttu
afmæliskveðju og árna Jóni
Árnasyni allra heilla þessa
heims og annars.
Guðgeir Jónsson.
l jin tiúuja )íöíj
SJ.RS.
Sjómenn og Alþingi
Framhald af 7. síðu.
maður Sósíalistaflokksins,
flutti fyrst frumvarp um 12
stunda lágmarkshvíld togara-
háseta. Hvað eftir annað hafa
þingmenn Sósíalistaflokksins
flutt málið, og aflað því fylg-
is með blaðakosti sínum.
Samtök starfandi sjómanna
á togaraflotanum létu undir-
skriftaskjölum rigna yfir Al-
þingi, þar sem krafizt var
samþykktar frumvarpsins,
hinna nýju vökulaga.
★
Fyrst var ekki nóg með að
Sjálfstæðisflokkurinn og Fram
sóknarflokkurinn væru and-
vígir málinu. Alþýðuflokkur-
inn lagði því ekki lið og
þvældist fyrir, hjálpaði meira
að segja afturhaldinu í hin-
um flokkunum til að tefja
málið með tilgangslausri
nefndaskipan. l>ó fór svo að
sjómenn létu Alþýðuflokkinn
vita að slik afstaða til nýju
vökulaganna gæti orðið flokkn
um dýr, og tók hann þá það
ráð að flytja einnig frumvarp-
ið um 12 stunda hvíldina og
man nú ekki betur en það
hafi alltaf verið helgasta þing-
mál og áhugamál Alþýðu-
flokksins. (Er það lofsverð
framför á skömmum tíma.
★
En andstaðan kom frá Sjálf-
stæðisflokknum og Framsókn.
Sjálfstæðisflokkurinn var
ekki feiminn að nota enn gegn
réttlætismáli sjómanna sömu
þingmenn sem höfðu hamazt
gegn sex stunda hvild tog-
araháseta (Pétur Ottesen) og
síðar gegn átta stunda hvíld
togaraháaeta á sólarhring (ól.
Thórs), og rökin voru svipuð.
Það eru ekki nema nokkur ár
frá því að fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins og Framsóknar í
sjávarútvegsnefnd neðri deild-
ar lögðu til í nafni flokka
sinna að frumvarp sósíalista
um 12 stunda lágmarkshvild
togaraháseta yrðl fellt. Þá lét
Ólafur Thórs einn bræðra
sinna senda Alþingi þá orð-
sendingu, í nafni Félags ísl.
botnvörpuskipaeigenda, að 12
stunda hvíld togaraháseta
væri óframkvæmanleg og hlyti
að setja togaraútgerðina á
hausinn!
Loks fengu þessir tveir
flokkar því ráðið, að Alþingi
neitaði að verða við réttlætis-
kröfum sjómanna í þessu máli,
og urðu sjómenn í tvennum
löngum verkföllum að sækja
rétt sinn.
Samt þrjózkast Sjálfstæðis-
flokkurinn og Framsóknarfl.
enn við að lögfesta þetta rétt-
lætismál sjómanna, en því
hafa sjómenn óskað eftir, þó
þeir hafi orðið að knýja fram
framkvæmd þess með verk-
föllum.
★
Sjómenn munu halda áfram
að kenna Ólafi Thórs og
bræðrum hans í holdinu og
andanum sitthvað um mann-
gildi og reisn íslenzkrar sjó-
mannastéttar, kenna þeim, að
froðuræður þeirra á sjómanna
daginn og við hátíðleg tæki-
færi munu ekki endast þeim
til langframa, en verk þeirra
dæma þá. Þeir hafa auðgað
sig á arðinum sem sjómenn-
irnir hafa skapað, sogið ofsa-
gróða úr útveginum í lúxuslíf
sitt og herkostnað Sjálfstæðis-
flokksins gegn alþýðu lands-
ins, í herkostnað gegn réttlæt-
ismálum sjómannastéttarinn-
ar. Því mun ekki gleymt.
Alþýðan mun læra að þakka
þeim svo sem þeir hafa til
unnið. Sjómennirnir og sjó-
mannakonurnar munu hætta
að senda á Alþingi menn, sem
rísa eins og veggur gegn rétt-
lætismálum sjómanna, og
nauðsynjamálum sjávarút-
vegsins, og hindra framgang
þeirra áratugum saman. Þess
er hollt að minnast í dag, á
sjómannadaginn, og muna það
enn þegar hægt er að þakka
þessum herrum með krossi á
kjörseðil.
Dívantepp!
Verð kr. 110,00.
:
Toledo j
Fischersundi
:
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■•
aðskomum sumarkápum
ATHUCIÐ
Aðskomar kápur eru rajög
í tízku í ár
MARKAÐURINN
Laugaveg 100