Þjóðviljinn - 18.12.1955, Síða 5
Sunnudagur 18. desember 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Coliath og Skoda spar
neytnastir miðað við
AthyglisverSar niSurstöSur afkeppni i Hanagd <og léðrablásfur
sparneytni sem fór fram i Danmörku
í akstursképpni sem fram fór nýlega í Danmörku voru
verðlaun veitt eftir pví hve lítil benzínneyzla vagnanna
var, og kom í Ijós að pýzki Goliath og tékkneski Skoda
voru sparneytnastir pegar tillit vax tekið til punga bílanna
sem pátt tóku í keppninni.
Aksturskeppni þessi fór
fram á vegum eins af olíu-
félögunum í Danmörku og
undir eftirliti Konunglega bif-
reiðaeigendafélagsins. Ekið
var eftir þjóðvegum við ýms
skilyrði og var vegalengdin
1400 km.
Bílunum var skipt í fjóra
flokka eftir þyngd þeirra.
Spameytnustu bílarnir í hverj-
um flokki voru verðlaunaðir
og einnig voru veitt sérstök
verðlaun þeim bíl sém skaraði
fram úr öllum hinum, þegar
þungi þeirra var ekki tekinn
með í reikninginn.
Fíat 20,4 km á lítra.
FyrÚL bilaeigendur skiptir
mestu®máli að vita hvaða
teguíid reyndist sparneytnust.
Og þar skaraði smábíllinn
Fiat 600 framúr, hann fór
20,4 km að meðaltali á hvem
benzínlítra. Næstur í röðinni
var Goliath, sem fór vega-
lengdina á skemmstum tíma,
með 19,4 km á lítra, þá Aust-
in A 30 með 18,7 krn á lítra
og síðan Morris Minor með
18,6 km á lítra.
Sænski bíllinn Saab sem
Stanclard vann í
Golden Trial
í áströlsku aksturskeppn-
inni Golden Trial, sem er ein-
hver sú harðasta sem um get-
ur, urðu tveir vagnar af gerð-
inni Standard 10 í efstu sæt-
unum. Ekið var 1034 mílur
eftir vegum og vegleysum og
sýnir það bezt hve hörð
keppnin var að aðeins 53 bílar
af 129 komust alla leið.
var sparneytnastur í sínum
þyngdarflokki ók einnig 18,6
km á lítra, síðan kom Volks-
wagen með sérstakri yfir-
byggingu (Ghia, til að draga
úr loftmótstöðu) með 18,5 km
á lítra. 7. og 8. í röðinni voru
tveir bílar af gerðinni Ren-
ault 4 CV með 18,0 og 17,4
,km á lítra. Síðan komu Volks-
wagen-bílar með venjulegri
yfirbyggingu og þrír Skoda-
bílar ráku lestina með um 15
km á lítra.
Goliath og Skoda sparneytn-
astir miðað við þyngd.
En þessi upptalning segir
ekki alla söguna. Þegar þyngd
bílanna er tekin með í reikn-
inginn verður útkoman önnur
og sérstaklega miklu hagstæð-
ari fyrir Skoda. Þar verður
Goliath efstur á blaði, en
Skodavagnarnir þrír eru í 2.,
3. og 4. sæti.
Það er sérstaklega eftir-
tektarvert að allir þeir þrír
bílar af Skoda-gerð sem tóku
þátt í lceppninni skyldu ná
svo jafngóðum árangri. Það
bendir til þess að hér sé ekki
um neina tilviljun að ræða,
ekki því að þakka að sérstak-
lega hæfir menn hafi setið
við stýrið, en það getur skipt
höfuðmáli í aksturskeppni sem
þessari. Allir ökumenn ættu
að geta náð svo góðum ár-
angri með Skoda.
Ástæðan fyrir yfirburðum
Goliaths.
Hinn
Goliaths
sérstaka
þess að
annarra
hugsunarefni, þar sem hann
er sjálfsagt fyrst og fremst
því að þakka að Goliath-
hreyfillinn er nokkuð frá-
brugðinn hreyflum annarra
bíla. í honum er benzininu
nefnilega spýtt inn í eldhólf-
ið og blöndungnum sleppt.
Hefur áður hér í þættinum
verið sagt frá þeirri nýjung
og kostum hennar. Vitað er
að margir bílaframleiðendur
hafa verið að hugsa um að
taka hana upp og líklegt að
reynslan af Goliath ýti á eftir
því.
Víða á meginlandinu berst
lögreglan af mikilli þraut-
seigju gegn umferðarhávað-
anum. Margar fréttir hafa
t. d. borizt af baráttu frönsku
lögreglunnar, en þar var líka
hávaðinn meiri en annars
staðar. Lögreglustjórinn í
París, Dubois, varð svo fræg-
ur af viðureign sinni að hann
var gerður að landstjóra í
Marokkó.
I Róm hefur lögreglan al-
gerlega bannað bílstjórum að
nota lúðurinn og það jafnvel
þótt hætta sé á ferðum. Ef
bílflautan er notuð kostar það
sekt. Mörgum þykir þetta
bann ósanngjarnt og hafa
sumir þeirra gripið til ýmissa
bragða til að sniðganga það.
Það er ekki óalgengt að bíl-
stjórar hafi með sér trompet
og blási í hann þegar þeim
þykir ástæða til. Slíkt er ekki
bannað í lögreglusamþykkt-
inni. Aðrir nota rafmagns-
bjöllur og nýlega ók splúnku-
nýr Alfa Romeo um götumar
og galaði eins og hani! Lög-
reglan hefur farið fram á að
ný ákvæði verði sett í lög-
reglusamþykktina.
Dregið éffir örfáa
daga um 2 bíla
ÞaS kostar litiS að bjóða heppninni heim
í
glæsilegi árangur
hlýtur líka að vekja
athygli og ætti auk
verða fraanleiðendum
bifreiða nokkurt um-
Miðinn kostar 10 krónur
Annar billinn
kostar 67.000.00 k?
Gerið skil — Drcetti ekki frestað
Bílahappdrætti Þjóðviljans
ÓUPPLÝSTUR skrifar: „Kæri
Bæjarpóstur! Bið þig fyrir litla
orðsendingu! í kaupstað úti á
landi, fyrir alllöngu síðan, var
Ijósastaur skírður tignárheit-
inu prófessorinn. Tilefni þess-
arar nafngiftar eru mér ókunn.
Um svipað leyti hlaut rithöf-
undur á staðnum sömu nafnbót PrÓíeSSOIÍnn
frá viðkomandi stjórnarvöld-
um. í sambandi við þessa pró-
fessora, rithöfundinn og Ijósa-
staurinn, varð til gáta: IIverH
er munurinn? Gátan var ráð-
in á þessa leið: Annar er upp-
lýstur. — Við íbúar þeirra
svaéða hér í bæ, sem að flestu
leyti eru vanrækt, m. a. hvað
götulýsingu snertir, við eigum
vel upplýstan prófessor fyrir
borgarstjóra. Nú vildi ég beina
þeim tilmælum til réttra aðilja,
áð þeir sæmdu oklcur eins og
einum ljósastaur í austanvert
Breiðholtshverfi. Hér eru graf-
ir djúpar og torfærur einna
mestar á vegum manna. Það
mundi verða okkar ánægja að
gefa vel upplýstum ljósastaur
- Rithöfundurinn og ljósastaur -
Tilmæli til bæjaryfirvaldanna — Það vantar
söngfólk
tignarheitið prófessor, í þakk-
lætis- og virðingarskyni við
borgarstjórann okkar. Hátt-
virtu ráðamenn og væntanlegu
ljósgjafar! Ef ykkur, af ein-
hverjum ástæðum, er illa við
að setja upp ljósastaur okkar
vegna, íbúanna, mætti minna
á þá staðreynd að eigi sjaldan
ganga ýmsar skepnur hér
lausar og hlýtur að vera þeim
til mikilla leiðinda.“ — Bæj-
arpósturinn vonar að ráðamenn
bæjarins taki sig á og setji upp
Ijósastaura í Breiðholtshverf-
inu, þó ekki væri nema vegna
skepnanna. Annars er götu-
lysingunni í úthverfum bæjar-
ins vægast sagt mjög ábóta-
vant, og torveldar það alla um-
ferð um þau. Það er oft erfið-
leikum bundið að finna rétta
götu og rétt húsnúmer eru oft
næsta ógreinileg. En í sam-
bandi við prófessorsnafnbót
ljósastaursins dettur Bæjar-
póstinum í hug sagan um
prestinn, sem spurði bílstjór-
ann, hvers vegna staurarnir
(vegvísarnir) meðfram vegun-
um væru kallaðir prestar. —
Það er af því að þeir vísa öðr-
um rétta veginn, án þess að
fara hann sjálfir, svaraði bíl-
stjórinn. — En nú langar Bæj-
arpóstinn til að segja fáein
orð við sönghneigða alþýðu-
fólkið. Söngfélag verklýðssam-
takanna er að auglýsa eftir
söngfólki, það vantar sem sé
fleira fólk í kórinn. Þetta er
dálítið ótrúlegt, og þegar söng-
stjórinn sagði mér frá þessu,
varð ég dálítið hissa. En hann
sagði, að fólk hefði ekki tíma
til að æfa söngskrá, mæta á
æfingum tvö kvöld í viku eða
svo. Það hélt ég að myndi
aldrei koma fyrir, að fólk hefði
ekki tíma til að syngja, og
sannast að segja held ég, að
fólk hafi tíma til alls, sem
það á annað borð vill gera.
Fólk hefur tíma til að fara í
bíó, á dansleiki, á snakkráð-
stefnu við kunningjana, o. s.
frv. og hví skyldi það þá ekki
hafa tíma til að taka þátt í
þessari þjóðlegu menningar-
starfsemi? Nei, þeir kæru
saumakonur og afgreiðslu-
dömur, — það vantar nokkrar
raddir í sópraninn. Og þið á-
gætu verksmiðjustúlkur og
virðulegu húsmæður, — það
vantar sömuleiðis nokkrar
raddir í altinn. Mér finnst, að
þið ættuð að gefa ykkur fram
til þátttöku í ykkar eigin söng-
félagi og syngja a. m. k. af
hjartans lyst, hvað sem hinni
listinni líður. Og vonandi láta
karlmennirnir þá ekki sinn
hlut eftir liggja með bassann
og tenórinn. Og þið, sem voruð
kannski með í fyrra eða hittið-
fyrra, en gleymduð að mæta
í vetur, ættuð að bæta úr því
fyrir áramótin. Það eru mikil
verkefni framundan hjá Söng-
félagi verklýðssamtakanna, og
Bæjarpósturinn skorar á söng-
hneigt alþýðufólk að gefa sig
sem fyrst fram við söngstjór-
ann; hann hefur sima: 82246.