Þjóðviljinn - 18.12.1955, Blaðsíða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 18. desember 1955
LítiSsháttar hugvekja
og áskorun til landsamtaka kvenna
Nú líður áð jólum. Hvar-
vetna eru húsmæður önnum
hlaðnar við jólaundirbúning.
Þær forsjálustu hefjast handa
að taka til í skúffum sínum og
iokuðum hirzlum.
í>á kennir oft ýmsra grasa,
þegar tekið er upp úr þeirri
skúffunni, sem tínt er í allt
það sem til fellst og er á
takmörkum þess, að vera nýti-
legt og ekki nýtilegt.
í annarri skúffunni getur
fundizt eitt og annað, óslitið
og vel útlítandi, sem tízku-
tildrið hefur skipað að leggja
til hliðar.
Með línum þessum skora ég
á stjórnir Kvenfélagasambands
íslands og Kvenréttindafélags-
ins að sameinast um það, að
veita viðtöku slíkum munum
frá bæjarbúum, sem þeir vilja
af hendi láta. Vel getur verið
að þeir finni hvöt hjá sér til
að leggja fram eitt og annað,
j til styrktár góðu málefni, eftir
að ve'tra’rhjálpin hefúr látið
sína safnendur fara um bæ-
inn.
Skólarnir eru nú í þann veg-
inn að tæmast af nemendum og
kennaraliði. Einhverjar stofur
innan þeirra veggja' ætti að
vera auðvelt að fá lánaðar
endurgjaldslaust, til styrktar
góðu málefni.
Allstór hópur nemenda hefur
of lítið starf með höndum
þessa dagana fram að jólum.
Þeir væru væntanlega fáanleg-
ir til að vinna einhverja þá
stundina, sem ella týndist í
fánýtum skemmtunum eða
iðjuleysi, aðstoða við móttöku
munanna og styrkja þannig
gott málefni. —
Og skólabörnin teldu ekki
eftir sér , sporin að skólunum,
með pakka frá mömmu og
pabba —- pakka, sem ætti að
vera lóð á vogarskál góðs mál-
efnis.
Og konumar, innan hinna
einstöku félaga myndu hugsa til
þess með éftirVæntingu, að eft-
ir jólin ætluðu þær að koma
saman og hver fyrir sig að hafa
heim með sér til snyrtingar og
meiri og minni lagfæringar þá
hluti, sem þannig væru út-
lítandi, að stjórnir kvennasam-
takanna þyrftu að senda þá
út til félagsdeildanna. Konum-
ar, fátækar sem ríkar, gleðjast
yfir því, að starfa fyrir gott
málefni. Einhverjar konur
kynnu að geta lagt hönd að
þessu verki fyrir jólin, aðrar
mjög fljótlega eftir jól.
Og þegar svo konurnar setja
upp sölubúðir, þá leggja allir
menn leið sína þangað, bókstaf-
lega allir, sem vettlingi geta
valdið og rólfærir eru, ýmist
til þess að leggja peninga í lófa
kvennanna og þiggja enga af-
greiðslu í staðínn éða í og með
til þess að fá með sanngjörnu
verði nauðsynlega hluti, sem
uppfylli brýnar lífsþarfir.
Það mundi síður en svo
særa alvizkuna og hinn full-
komna kærleika, að verzlun sú
sem hér um ræðir færi fram
annan dag jóla, því að hér
væri um að ræða þjónustu,
sem í fyllsta máta væri sann-
kölluð guðsþjónusta, miklu
sannari en svokallaðar guðs-
þjónustur þeirra presta, sem
hafa engrar afsökunar beðið
opinberlega fyrir það að af-
neita kærleika Jesú Krists og
stinga í sinn - vasa ranglega
fengnum auði.
Og í hverju er guðsþjónusta
kvennanna fólgin og þess stóra
safnaðar, sem tekur þátt í
henni með þeim? Hvað ættu
þær að gera með peningana
sem inn koma þegar athöfnin
fer fram?
Þær ættu að skipta þeim að
jöfnu i1 tvo sjóði. — Og ann-
an sjóðinn á að nota til styrkt-
ar hinum lömuðu af völdum
mænuveikisfaraldursins og
hinn sjóðinn á að leggja sem
hornstein að einskonar Reykja-
lundi Kleppsspítala.
Sérhver heilbrigð móðir og
sérhver sá, sem mannsnafn vill
bera, vill leggja sitt lið til
styrktar þeim, sem lamazt hafa
á einhvern hátt — í húsum
inni eða úti í ólgusjó mann-
lífsins.
Almætti þeirrá sámtaka, sem
eru samræmd kærleikslögmáli
lífsins, verðúr ekki betur lýst
en með þessum Ijóðlínum Jón-
asar Hallgrímssonar:
Bera bý
bagga skoplítinn
hvert að húsi heim.
En þaðan koma Ijós
hin logaskæru
á altari hins göfga Guðs.
Minnist þess allir landsmenn,
að: „Sameinaðir stöndum vér,
en sundraðir föllum vér.“
Gleðileg jól.
16.-12. — ’55
Guðrún Pálsdóttir.
P.s. Ef svo fer, að tillögur
mínar, eins og þær eru fram
bornar í grein þessari, falla
ekki í góðan jarðveg hjá
stjórnarkonum kvennasamtak-
anna, þá vona ég eigi að
síður, að þeim verði það ljóst,
að hér er um að ræða málefni,
sem samtökum kvenna er sam-
boðið að taka að sér og skap-
að gæti miklu heilbrigðari
félagsanda en ýmislegt það,
sem um er þráttað á fundum
þeirra.
Ég hefði viljað senda þetta
mál mitt til ritstjóra allra
aðaldagblaðanna hér í bæ, en
ritvél er engin við höndina og
engan tíma má missa til að
umskrifa mörg eintök. — Það
eru því vinsamleg tilmæli mín
að ritstjórarnir endurprenti
þetta í sínum blöðum.
Af eðlilegum orsökum af-
henti ég það nú þeim ritstjór-
anum, sem aldrei hefur úthýst
mér, þegar ég hef til hans
leitað.
G. P.
Viljirðu hagnast velájþví
að vera í kaupum natinn
kemurðu Skj óla-kj ötbúð í
og kaupir jólamatinn
:
i
Skjólakj ötbúðin,
Nesvegi 33 —Sími 82653
Tflkynning
Nr. 10/1955.
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi há-
marksverð á brauðum í smásölu:
Franskbrauð, 500 gr........... kr. 3,20
Heilhveitibrauð, 500 gr....... kr. 3,20
Vínarbrauð, pr. stk........... kr. 0,85
Kringlur, pr. kg............. kr. 9.30
Tvíbökur, pr. kg............. lcr. 14.20
Rúgbrauð óséydd 1500 gr...... kr. 4.40
Normalbrauð 1250 gr........... kr. 4.40
Séu nefnd brauð bökuð með annarri þyngd en að ofan
greinir, skulu þau verðlögð í hlutfalli við ofangreint
verð.
Á þeim stöðum, sem brauðgerðir eru ekki starfandi,
má bæta sannanlegum flutningskostnaði við hámarks-
verðið.
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má verðið á rúg-
brauðum og normalbrauðum vera kr. 0,20 hærra en að
'framan greinir.
Söluskattur er innifalinn í verðinu.
Reykjavík, 17. desember 1955.
Verðgæzlustjóriim.
Mokkasínur»
karlmanna nýko Gói S K ( mnar — Góðir jólaskór Hr jólaskór 0DEILD H) <ro ty
Sara Barton
h j úkrunarkona
Þetta er
jólabókin fyiir
ungu stúlkurnar
* ^
í ar
■MMMMMMMqMMM""M"Bai ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■ .....................
Tandur þvær aSSf
Tandur þvottalögur er ódýr, hreinsar undursamlega og íærir með sér ferskan ilm
Tandur gerir tandurhreint
■ ••■■■■MMMMMMMMMMi
■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■BB ■■■■ .........................