Þjóðviljinn - 24.12.1955, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 24.12.1955, Blaðsíða 8
Atriði úr Hátíð í Napólí (Bæjarbíó) Bæjarbíó Hátíð í Napólí er jólamynd Bæjarbíós í Hafnarfirði. Það er ítölsk litkvikmynd, sem hlot- ið hefur mikla frægð og við- ■urkenningu, m. a. alþjóðlegu verðlaunin á kvikmyndahátíð- ínni í Cannes 1954. í mynd þessari er brugðið upp skyndi- rnyndum úr sögu hinnar lífs- glöðu Napólíborgar á ftalíu. f leikskrá biósins segir að Hátíð í Napólí (Carosello Na- poletano) hafi upphaflega ver- íð samin af Ettore Giannini, Sem dans- og söngleikur, vak- ið óhemjumikla hrifningu á Ítalíu og síðan verið sýndur í flestum stórborgum Evrópu og Ameríku af fjölmennum söng- og dansflokki. Hinn frægi ballettmeistari Leonide Massine samdi dansana í myndinni og dansar hann suma þeirra sjálfur ásamt einum frægasta ballettflokki heims, Grand Ballet du Marquis de Cuevas. í myndinni eru léik- in og' sungin yfir 40 Napolí- lög frá öllum tímum, svo sem St. Lucia, ó Solo mio og Van- þakklátt hjarta. Margir fræg- ustu dansarar og söngvarar ítala koma fram í þessari mynd, t. d. Beniamino Gigli og Carlo Tagliabue. Einnig dansar og syngur hin fræga Sophia Lor- en þar ; í fyrsta sinn í kvik- mynd, en af öðrum leikendum má , fiefna Yvette Chauviré, Maria Fiore, Nadia Gray, Folco Lulli, Clelia Matania o. fl. Leikstjóri er Ettore Giannini. i Jólaleikrit Þjóðieikhússiiis verður eins og Þjóðviljinn hef- ur áður skýrt frá Jónsmessu- draumur Shakespeares undir stjórn enska leikstjórans Walt- ers Hudd. Að- er Hildur Kal- man og hljóm- sveitarstjóri dr. Viktor cic. Erik s t e d ballett- meistari æft flokk barna, er dansa í leiknum, en shakespeare . þau eru öll nemendur í ballettskóla Þjóð- leikhússins. Lárus Ingólfsson málaði leiktjöldin. Leikendur eru Jón Sigur- bjömsson (Þesevs), Valur Gíslason (Egevs), Benedikt Árnason (Lysander), Helgi Skúlason (Demetrius), Jón Að- ils (Fílóstratus), Regína Þórð- ardóttir (Hippólína drottning), Herdís Þorvaldsdóttir (Her- mína, dóttir Egevs), Katrín Thors (Helena), Rúrik Har- aldsson (álfakóngurinn), Guð- björg Þorbjarnardóttir (álfa- drottningin), Lárus Pálsson (Bokki), Gestur Pálsson, Klem- enz Jónsson, Róbert Amfinns- son, Bessi Bjarnason, Baldvin Halldórsson og Indriði Waage (sex handverksmenn). Alls taka þátt í sýningu leiksins um 60 manns, þar af 20 tónlist- armenn úr Sinfóníuhljómsveit- inni. . 24) — ÞJÓÐVILJINN —Laugardagur 24. desember, 1955 — Þjoðleikhúsið =áSS5= Leikfélag Reykjavíkur Leikfélag Reykjavíkur hefur ekki að þessu sinni frumsýn- ingu á nýju leikriti á annan 1 jólum. Undanfarin þrjú ár hafa ástæður ekki leyft að halda uppi hinum gamla sið, að frumsýna leikrit á annan í jólum, enda má segja, að varla sé heppilegt, að frum- sýningar hjá L. R. og Þjóð- leikhúsinu beri upp á sama daginn. Verður engin sýning hjá félaginu á annan í jól- um, en svo stendur á, að Guð- björg Þorbjarnardóttir hefur ráðizt til að leika eitt aðalhlut- verkið í jólaleikriti Þjóðieik- hússins, en hún leikur, sem kunnugt er, aðalhlutverkið í hinum vinsæla gamanleik Agn- ars Þórðarsonar „Kjarnorka og kvennhylli‘\ Mun félagið halda sýningum áfram á þess- um leik og verður 20. sýning á miðvikudag milli jóia og nýárs. Leikurinn hefur verið mjög vel sóttur og hafa um 5500 manns séð leikinn, Félagið undirbýr nú sýn- ingu á „Galdra Lofti, hinu stórbrotna skáldverki Jóhanns Sigurjónssonar, Gunnar R. Hansen er leikstjóri og er það í fyrsta sinn sem hann sviðsetur leikrit eftir Jóhann Sigurjónsson hér á landi. Að- alhlutverkin, Loft og Steinunni, leika þau Gísli Halldórsson og Erna Sigurleifsdóttir. Nýja bíó Jólamynd Nýja bíós verður Litfríð og Ijóshærð (Gentlemen Prefer Blondes), allkunn r.andarísk músík- og gaman- viynd. Segir þar frá tveim ungum og fallegum dansmeyj- um, ljóshærðri og dökkhærðri, og ýmiskonar ævintýrum þeirra í París og víðar. Á eíðinni yfir Atlanzhafið kynn- ; . t t. d. sú Ijóshærða forríkum karli og tekst með brögðum að komast yfir dýrindis höfuð- djásn konu hans. Þetta djásn ar. En sú dökkhærða reynist vinur í raun, setur upp ljósa hárkollu og lætur taka sig fasta í stað hinnar; vinnur sú Ijósa við það tíma og tekst að ganga frá þessu og öðrum aðkallandi málum — en ekki verður sagan rakin frekar hér. í aðalhlutverk myndarinnar hafa hvorki verið valdar hor- grindur né jússur: Marilyn Monroe leikur þá ljóshærðu og Jane Russel hina dökku. Charles Coburn leikur ríka karlinn og Norma Varden Jane Russel, Charles Coburn og Marilyn. Monroe (Nýja bíó). s þó eftir að koma henni og konu háns. Hinn héimsfrægi vinkonunni í vanda, því að sú ^ leikstjóri Howard Hawks hef- gamla þykist að vonum illa Ur stjórnað gerð myridarinnar. gvikin og leitar til lögregiunn- sem að sjálfsögðu er í litum. f eiksýningar Þjóðleikhúss- ^ins og Leikfélags Reykja- víkur hafa legið niðri nú nokkra daga í mestu jóla- önnunum; eins fella kvik- myndahúsin niður sýningar sínar þrjá daga um jólin: á Þorláksmessu, aðfangadag og jóladag. Enn á 2. í jól- um eru skemmtistaðirnir onaðir að nýju: Þjóðleikhús- ið frumsýnir leikrit eftir William Shakespeare og kvikmyndahúsin sýna nýjar myndir, að venju íburðar- meiri og skrautlegri en þær sem sýndar eru dags dag- lega. Reykjavíkurbíóin eru öll með bandarískar kvik- myndir, en bíóin í Hafnar- firði sýna ítalska mynd og þýzka. Birtist hér í opnunni stutt yfirlit um það sem leikhús- in og bíóin bjóða gestum sín- um upp á annan jóladag. á anna Sjóliðarnir þrír og stúlkan (Austurbœjarbíó). Sjóliðaruir þrír og stúlkan verður jólámynd Austurbæjar- bíós, bandarísk dans- og söngvamynd í litum. í skránni er upphaf söguþráðarins rakið á þessa leið: „Kafbátur úr ameríska sjóhernum kemur í höfn í New York eftir átta mánaða útivist. Sjóliðarnir eru ólmir að komast í land og bíða þess með óþreyju að geta eytt kaupinu sínu í konur og vín. Einn þeirra, Jones að nafni, hefur þó annað í hyggju. Hánn burðast með þykka bók eftir þekktan kaupsýslumann, nefnist bókin „Lærið að græða fyrstu milljónina“ og er þar mönnum gefið það ráð að leggja aleiguna í kauphallar- brask. Þegar Jones segir félög- um sínum inntak bókarinnar, renna á þá tvær grímur, því enginn hefur á móti því að græða peninga. . .“ Og verður áframhald þessarar sögu ekki rakið frekar hér* Aðalhlutverkin leika Jane Powell, Gordon MacRae og Gene Nelson. Ýms þekkt dæg- urlög eru sungin í myndinni og mikið um dans og skraut- sýningar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.