Þjóðviljinn - 05.05.1956, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 05.05.1956, Blaðsíða 4
4) — ÞJÖÐVIUINN — Laugardagur 5. mai 1956 EöSitingar í nánd — Afstaða fólks til pólitísku flokk- anna — Verkamaður skrifar um Frjálsþýðinga SSÐLILEGA er þegar farið að ræða talsvert um væntanlegar alþingiskosningar, fólk er góðu heilli farið að endurskoða dálítið afstöðu sína til póli- tísku flokkanna, og sú endur- skoðun hins pólitíska hugar- fars leiðir án efa í mörgum tilfellum til annarar niður- stöðu en þeirrar sem ríkjandi var við síðustu alþingiskosn- ingar. En hér fer á eftir bréf frá verkamanni, sem kveðst ebki vera í neinum flokki, 'þótt hins vegar komi greini- lega fram í bréfinu að hann leggur til að alþýðufólk fylki sér um sitt eigið bandalag þann 24. júní í sumar. ★ tfERKAMAÐUR skrifar: — „Góðan daginn, Bæjarpóstur! Ég hef verið að hugsa um Frjálsþýðingana; ætli þeir haldi að þeir séu svo sniðug- iega tvöfaldir, að maður sjái ekki í gegn um þá? Ég er einn af þeim mörgu, er stóðu I verkfallsbaráttunni I fyrrá- vor. Þá sögðust Frjálsþýðing- ar vera á móti þeirri kjara- baráttu að liækka kaupið að Itrónutölu; það ætti aftur á móti að fara hina leiðina, — alþingisleiðina, að mér skild- ist; — þá skyldi ekki standa á þeim að vera með, já jafn- vel haia fortístuna. En hvað segja þeir núna, þegar á að fara „hina leiðina," eins og Frjáls þjóð var alltaf að stagl- ast á í verkfallinu í fjnra. Já, nú er búið að stofna Alþýðu- bandalag, einmitt í því skyni að fara „hina leiðina“. Og hvað segja Frjálsþýðingar þá? Nei takk, við getum ekki verið með. Nú erum við búnir að uppgötva þriðju leiðina og förum hana. — Því segi é; við alla, sem sjáandi sjá o: heyrandi heyra, að svona lag- aður undanbragða- og feluleik- ur gæti haldið áfram til eilífð- arnóns, og fyrst Þjóðvörn vill endilega róa ein á báti, er þá ekki hyggilegast að láta hana sigla sinn sjó, en kjósa Al- þýðubandalagið í sumar.“ ¥ ÞAÐ ER KANNSKI óþarfi að taka það fram, að fyrir sina parta svarar Pósturinn þess- ari spurningu eindregið ját- andi. Og ég verð að viður- kenna, að ég get ómögulega séð hvernig hægt er að skoða framboð Þjóðvarnarflokksins öðruvísi en beina aðstoð við í- haldið; og mér er nær að halda að önnur og leiðinlegri veður en „akademísk heið- ríkja“ hafi verið ríkjandi í hugartúnum Bergs og Co. þegar þessi sprengiframboð voru ákveðin. (HMHIMIHIMHnMM f í X ! ÞJðÐVIUANN vantar uitgling ti! að bera blaðið til íastra k&upenda við Grímstaðahoít 1 Talið við aígreiðsluna. — Sími 7500. ■■■■■••■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■I Ámerískir V STÓR NÚMER f MARKAÐURINN f" Hafnarstrœti 5 Orðsending til alþýðunnar Eg vii biðja yður, herra rit- stjóri, að bera kveðju mína til hr. Hannibals Valdimarssonar með þökk fyrir allt gamalt og gott, og fyrir það hvernig hann hefur unnið í málurn okkar al- þýðu manna nú eins og fyrr. Eg kynntist Hannibal Valdi- marssyni fyrst árið 1932, í deilu sem háð var milli verkamanna sem unnu við að taka upp grjót á Eyrarhlíð fyr.ir Isafjarðarbæ, og bæjarstjórn Isafjarðar. Fyr ir hans atbeina vannst sigur í deilunni verkamönnum í hag, síðan hef ég fylgzr með verkum hans bæði hér vestra og síðar, og verð að segja það að vand- fundinn mun maður sem vinn- ur eins vel og drengilega fyrir verkalýðinn eins og Hannibal Valdimarsson hefur gert. Það mun verða Alþýðu- flokknum til ævarandi hneisu hvernig hann hefur komið fram við okkar bezta baráttumann, sem við verkamenn höfum átt hér á Vestfjörðum og víðar. Eg vona að verkalýðurinn skilji hvað er að gjörast í okkar baráttu í verkalýðsmálunum Nú er um að gera að standa sam- an og fylkja sér um forseta Al- þýðusambandsins í kosningun- um. Því það er vitað mál að nú gjöra hinir flokkarnir, Al- þýðuflokkurinn, Framsóknar- flokkurinn og Ihaldsflokkurinn það sem þeir geta til að kaupa og selja hver annan, vegna hræðslu við sameinaðan verka- Iýðinn, að maður tali ekkí um sundrungarstarfsemi Þjóðvarn- arflokksins. Hver getur treyst flókki eins og Alþýðuflokknum? A sama tíma sem hann rekur úr flokkn- um einn bezta baráttumann okkar, sem jafnframt er forseti Alþýðusambands Islands, fyrir samstarf við sósíalista í verka- Iýðsmálum, fer formaður AI- þýðuflokksins til fundar við for- mann sösíalista, ög biður um hlutleysi þeirra við stjórnar- myndun Alþýðuflokksins og Framsóknar, en sú stjórn átti að sítja fram yfir kosningar í vor. Einmitt þess flokks sem þeir eru marg búnir að lýsa yfir að þeir vilji ekkert samstarf við. Hvernig á að skilja svona pólitík? Við ættum, verkamenn og alþýðan öli í Iandinu að vera farin áð sjá þessi hrossakaup um embætti, þau eru Iátin ganga fyrir heill verkaíýðsins. En sá maður sem vill vinna fyrir okk- ur verkamenn, hann skal ekki vera í Alþýðuflokknum, því hvað varðar Alþýðuflokkinn um velferð fólksins? Góðir verkamenn og konur, treysmm aðstöðu okkar á AI« þingi og fylkjum okkur um AI- þýðubandalagið við næsrn kosningar, hvar sem er á land- inu, og sýnum að við viljum að okkar mál nái fram að ganga á Alþingi. Sýnum forseta AI- þýðusambandsins að við kunn- um að roeta verk hans á um- liðnum árum og kjósum öíl lista alþýðunnar. Hafið liugfast að atvinnurek- endur vinna ekki fyrir okkar málstað í kaupgjaldsmálum. Alþýðan öll ætti að muna að sameinaðir stöndum vér erk sundraðir föllurn vér. Gamall Álftfirðingnh Berklavörn í Reykjavík heldur spilakvöld í Skátaheimilinu í kvöld kl. 8.30. Heildarverðlaun verða afhent. Mœtiö stundvíslega. Stjórnin «■■■■■■■■■■■*■■■••» ...ai I ■ ■ ■ : ■ ■ ■ ■ ■ ■ : 8 : .tnMIIHHHHHC B.F.S.R. B.F.S.R. ByggingasahlVilinufélags starfsmaníia Reykja- víkm'bæjar, ei* gerðu ibúðir sínar fokheldar á s.l. ári eða fýrr og háfa ekki fengið lán hjá félaginu, eru beönir áð hafa tal af Jóni Þóröarsyni c/o Sjúkrahúsi Hvitabandsins fyrir 13. j>.m. Stjómin Lítið hús til sölu í B-götu 42 í Kringlumýri. Til sýnis kl. 1-—4 í dag. ■ ■ II Rúllugardínur • m ■ ■ • ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ * ■ Við framleiðum rúllu- gardínur. Fornbók&veizluniit Ingóllsstmti 7 Sími 80062. •^•■■*■■■■■"■■*■■*■*■*■*■■■•**•■•■■*■■■■■««■*» ■■■■■■ ■ ■■■*■■■■ ■■■*■■■■■■*■’(*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■*■■*■■■■■■■■■■■■■* ■***■■■* *■■■■*■■••■• ■«*«i, :imii>miimmnmtnii«MiiiimHtiiimiaiiiK»mc«iiii«iii 45 Hér méð eru auglýst til sölu 45 íbúðarhús (sambyggð einbýlis- hús) við Réttarholtsveg og í ná- grermi hans. Umsóknareyðublöð méð upplýs- ingum um söluskilmála verða afhent í Hafiiarstræti 20 í dag, laugardag’, kl. 1—7 e.h., og síðan daglega vírka daga til 16. maí, kl. 9—12 f.h. og 1—7 e.h., og veröa þar veittar nánari upplýsingar. Umsóknum skal skilað á sama stað eígl síðar en kl. 7 e.h. miðvikudaginn 16. maí. SKRITSTOFA B0R6ARSTIÖRANS I BEYKIAVIK, 5. maí 1956 mimimiiiiimuiiimmKincmiu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.