Þjóðviljinn - 05.05.1956, Qupperneq 4
4) — ÞJÖÐVIUINN — Laugardagur 5. mai 1956
EöSitingar í nánd — Afstaða fólks til pólitísku flokk-
anna — Verkamaður skrifar um Frjálsþýðinga
SSÐLILEGA er þegar farið að
ræða talsvert um væntanlegar
alþingiskosningar, fólk er
góðu heilli farið að endurskoða
dálítið afstöðu sína til póli-
tísku flokkanna, og sú endur-
skoðun hins pólitíska hugar-
fars leiðir án efa í mörgum
tilfellum til annarar niður-
stöðu en þeirrar sem ríkjandi
var við síðustu alþingiskosn-
ingar. En hér fer á eftir bréf
frá verkamanni, sem kveðst
ebki vera í neinum flokki,
'þótt hins vegar komi greini-
lega fram í bréfinu að hann
leggur til að alþýðufólk fylki
sér um sitt eigið bandalag
þann 24. júní í sumar.
★
tfERKAMAÐUR skrifar: —
„Góðan daginn, Bæjarpóstur!
Ég hef verið að hugsa um
Frjálsþýðingana; ætli þeir
haldi að þeir séu svo sniðug-
iega tvöfaldir, að maður sjái
ekki í gegn um þá? Ég er
einn af þeim mörgu, er stóðu
I verkfallsbaráttunni I fyrrá-
vor. Þá sögðust Frjálsþýðing-
ar vera á móti þeirri kjara-
baráttu að liækka kaupið að
Itrónutölu; það ætti aftur á
móti að fara hina leiðina, —
alþingisleiðina, að mér skild-
ist; — þá skyldi ekki standa
á þeim að vera með, já jafn-
vel haia fortístuna. En hvað
segja þeir núna, þegar á að
fara „hina leiðina," eins og
Frjáls þjóð var alltaf að stagl-
ast á í verkfallinu í fjnra. Já,
nú er búið að stofna Alþýðu-
bandalag, einmitt í því skyni
að fara „hina leiðina“. Og
hvað segja Frjálsþýðingar þá?
Nei takk, við getum ekki verið
með. Nú erum við búnir að
uppgötva þriðju leiðina og
förum hana. — Því segi é;
við alla, sem sjáandi sjá o:
heyrandi heyra, að svona lag-
aður undanbragða- og feluleik-
ur gæti haldið áfram til eilífð-
arnóns, og fyrst Þjóðvörn vill
endilega róa ein á báti, er þá
ekki hyggilegast að láta hana
sigla sinn sjó, en kjósa Al-
þýðubandalagið í sumar.“
¥
ÞAÐ ER KANNSKI óþarfi að
taka það fram, að fyrir sina
parta svarar Pósturinn þess-
ari spurningu eindregið ját-
andi. Og ég verð að viður-
kenna, að ég get ómögulega
séð hvernig hægt er að skoða
framboð Þjóðvarnarflokksins
öðruvísi en beina aðstoð við í-
haldið; og mér er nær að
halda að önnur og leiðinlegri
veður en „akademísk heið-
ríkja“ hafi verið ríkjandi í
hugartúnum Bergs og Co.
þegar þessi sprengiframboð
voru ákveðin.
(HMHIMIHIMHnMM
f
í
X
!
ÞJðÐVIUANN vantar uitgling
ti! að bera blaðið til íastra k&upenda við
Grímstaðahoít
1 Talið við aígreiðsluna. — Sími 7500.
■■■■■••■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■I
Ámerískir
V STÓR NÚMER
f MARKAÐURINN
f" Hafnarstrœti 5
Orðsending til alþýðunnar
Eg vii biðja yður, herra rit-
stjóri, að bera kveðju mína til
hr. Hannibals Valdimarssonar
með þökk fyrir allt gamalt og
gott, og fyrir það hvernig hann
hefur unnið í málurn okkar al-
þýðu manna nú eins og fyrr.
Eg kynntist Hannibal Valdi-
marssyni fyrst árið 1932, í deilu
sem háð var milli verkamanna
sem unnu við að taka upp grjót
á Eyrarhlíð fyr.ir Isafjarðarbæ,
og bæjarstjórn Isafjarðar. Fyr
ir hans atbeina vannst sigur í
deilunni verkamönnum í hag,
síðan hef ég fylgzr með verkum
hans bæði hér vestra og síðar,
og verð að segja það að vand-
fundinn mun maður sem vinn-
ur eins vel og drengilega fyrir
verkalýðinn eins og Hannibal
Valdimarsson hefur gert.
Það mun verða Alþýðu-
flokknum til ævarandi hneisu
hvernig hann hefur komið fram
við okkar bezta baráttumann,
sem við verkamenn höfum átt
hér á Vestfjörðum og víðar.
Eg vona að verkalýðurinn
skilji hvað er að gjörast í okkar
baráttu í verkalýðsmálunum
Nú er um að gera að standa sam-
an og fylkja sér um forseta Al-
þýðusambandsins í kosningun-
um. Því það er vitað mál að
nú gjöra hinir flokkarnir, Al-
þýðuflokkurinn, Framsóknar-
flokkurinn og Ihaldsflokkurinn
það sem þeir geta til að kaupa
og selja hver annan, vegna
hræðslu við sameinaðan verka-
Iýðinn, að maður tali ekkí um
sundrungarstarfsemi Þjóðvarn-
arflokksins.
Hver getur treyst flókki eins
og Alþýðuflokknum? A sama
tíma sem hann rekur úr flokkn-
um einn bezta baráttumann
okkar, sem jafnframt er forseti
Alþýðusambands Islands, fyrir
samstarf við sósíalista í verka-
Iýðsmálum, fer formaður AI-
þýðuflokksins til fundar við for-
mann sösíalista, ög biður um
hlutleysi þeirra við stjórnar-
myndun Alþýðuflokksins og
Framsóknar, en sú stjórn átti að
sítja fram yfir kosningar í vor.
Einmitt þess flokks sem þeir eru
marg búnir að lýsa yfir að þeir
vilji ekkert samstarf við.
Hvernig á að skilja svona
pólitík? Við ættum, verkamenn
og alþýðan öli í Iandinu að vera
farin áð sjá þessi hrossakaup um
embætti, þau eru Iátin ganga
fyrir heill verkaíýðsins. En sá
maður sem vill vinna fyrir okk-
ur verkamenn, hann skal ekki
vera í Alþýðuflokknum, því
hvað varðar Alþýðuflokkinn
um velferð fólksins?
Góðir verkamenn og konur,
treysmm aðstöðu okkar á AI«
þingi og fylkjum okkur um AI-
þýðubandalagið við næsrn
kosningar, hvar sem er á land-
inu, og sýnum að við viljum
að okkar mál nái fram að ganga
á Alþingi. Sýnum forseta AI-
þýðusambandsins að við kunn-
um að roeta verk hans á um-
liðnum árum og kjósum öíl
lista alþýðunnar.
Hafið liugfast að atvinnurek-
endur vinna ekki fyrir okkar
málstað í kaupgjaldsmálum.
Alþýðan öll ætti að muna að
sameinaðir stöndum vér erk
sundraðir föllurn vér.
Gamall Álftfirðingnh
Berklavörn í Reykjavík
heldur spilakvöld í Skátaheimilinu í kvöld kl. 8.30.
Heildarverðlaun verða afhent.
Mœtiö stundvíslega.
Stjórnin
«■■■■■■■■■■■*■■■••» ...ai
I
■
■
■
:
■
■
■
■
■
■
:
8
:
.tnMIIHHHHHC
B.F.S.R.
B.F.S.R.
ByggingasahlVilinufélags starfsmaníia Reykja-
víkm'bæjar, ei* gerðu ibúðir sínar fokheldar á s.l.
ári eða fýrr og háfa ekki fengið lán hjá félaginu,
eru beönir áð hafa tal af Jóni Þóröarsyni c/o
Sjúkrahúsi Hvitabandsins fyrir 13. j>.m.
Stjómin
Lítið hús
til sölu í B-götu 42 í
Kringlumýri.
Til sýnis kl. 1-—4 í dag.
■ ■
II Rúllugardínur
• m
■ ■
• ■
■ ■
■ ■
■ ■
* ■
Við framleiðum rúllu-
gardínur.
Fornbók&veizluniit
Ingóllsstmti 7
Sími 80062.
•^•■■*■■■■■"■■*■■*■*■*■*■■■•**•■•■■*■■■■■««■*» ■■■■■■ ■ ■■■*■■■■ ■■■*■■■■■■*■’(*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■*■■*■■■■■■■■■■■■■* ■***■■■* *■■■■*■■••■• ■«*«i,
:imii>miimmnmtnii«MiiiimHtiiimiaiiiK»mc«iiii«iii
45
Hér méð eru auglýst til sölu
45 íbúðarhús (sambyggð einbýlis-
hús) við Réttarholtsveg og í ná-
grermi hans.
Umsóknareyðublöð méð upplýs-
ingum um söluskilmála verða
afhent í Hafiiarstræti 20 í dag,
laugardag’, kl. 1—7 e.h., og síðan
daglega vírka daga til 16. maí, kl.
9—12 f.h. og 1—7 e.h., og veröa
þar veittar nánari upplýsingar.
Umsóknum skal skilað á sama
stað eígl síðar en kl. 7 e.h.
miðvikudaginn 16. maí.
SKRITSTOFA B0R6ARSTIÖRANS I BEYKIAVIK,
5. maí 1956
mimimiiiiimuiiimmKincmiu