Þjóðviljinn - 05.05.1956, Síða 12
Páll Sveinsson sandgrœðslustjóri óoöar parna fagnaðarerindi sitt á Leirvogstungu-
melum í gœr, — og staðurinn sem hann stendur á er einmitt sönnunin fyrir boðskap
hans: par sem Páll stendur er gróið tún eftir eins sumars rœktun, en fyrir utan girð-
inguna er melurinn örfoka eins og hann hefur verið undanfarna áratugi.
Það er hægt að breyta öllum
melum á íslandi í gróin tún
Laugardagur 5. maí 1956 — 21. árgangur — 101. tölublað
Aliiieniiur st|óriimála€iiiftdiir
á Sandi og í Ólafsvík í
dag og á uiorgiin
Alþýöubandalagið boðar til tveggja almennra stjóm-
málafunda á Snæfellsnesi um þessa helgi. Verða fundirn-
ir á Hellissandi og í Ólafsvík í dag og á morgun. Fund-
urinn á Sandi hefst kl. 8.30 í kvöld en fundurinn í Ólafs-
vík kl. 2 á morgun.
Framsöguræöur um stjórnmálaviöhorfið og alþingis-
kosningarnar flytja Alfreð Gíslason læknir og Guðmund-
ur J. Guðmundsson, starfsmaður Dagsbrúnar. Fundirnir
eru að sjálfsögðu opnir fyiir alla kjósendur og er þess að
vænta að Snæfellingar fjölmenni.
Breytt dómsmeðferð á stjóm-
málaafbrotum í Sovétríkjunum
Æðstaráð Sovétríkjanna hefur numið úr gildi tvær
stjórnartilskipanir um dómsmeðferð í málum manna,
sem sakaðir em um andbyltingarstarfsemi.
og rœktunarkostnaSur verSur töluvert
minni en þegar mýrum er breytt i tún
Það er hægt að breyta öllum melum á íslandi í tún:
Þetta var inntakið í ræðu sem Páll Sveinsson sand-
græöslustjóri hélt á Leirvogstungumelum í gær.
Og þetta vom engir framtíðardraumórar, staðurinn sem
Páll stóð á var sönnunin fyrir orðum hans.
Tillieyrendur sandgræðslu-
stjórans í gær voru raunar að-
eins nokkrir blaðamenn, en
hefðu gjarnan mátt vera heilt
búnaðarþing.
Austur á Rangárvöllum hafa
sandarnir verið ræktaðir árum
saman með ágætum árangri, og
er það raunar vitneskja sem
ekki aðeins flestir blaðalesend-
ur, heldur og þá sérstaklega
bændur, ættu að vita. En þrátt
fyrir ágætan árangur af ræktun
sánda og mela á Rangárvöllum
virðast margir vantrúaðir enn á
að melar geti orðið frjósamt
land.
Sáð i fyrra
Því var það að sandgræðslan
hvarf að því ráði að sá í Leir-
vogstungumelana (til vinstri
handar við veginn þegar farið
er yfir melana milli ánna fyrir
ofan Leirvogstungu). Wm þenn-
an veg fara tugþúsundir manna
og þarna á það að blasa við,
grænt á gráu holtinu, hvernig
melainii- geta. breytzt í grænt
óg gróið tún.
Kostnaður inínui
Þarna var ekki verið að gera
tilraunír með hvaða áburðar-
hlutfall væri heppilegast eða
minnst hægt að komast af með,
heldur sýna að örfoka melur
væri ræktanlegur. Voru þvi bor-
in 300 kg. af fosfórsýru og
450 kg. af Kjarna á hektarann,
og er það um þriðjungi meira
en venja er að bera á tún. Ekk-
ert kali var borið á, því það
er tilgangslaust á melum, en
melana „hungrar í fosfór“.
Samt er þetta ódýrari rækt-
unaraðferð, þar sem henni
verður við komið, en fram-
ræsla mýra, þar sem hvorki þarf
að ræsa fram né plægja mel-
inn, heldur er hægt að sá í hann
eins og hann er. Kostnaður á
ha. þarna er 1800—2000 kr.
Óherfaði hlutinu betri
tals tugum þúsunda ha, Öllum
þessum melum má breyta í
græn og gróin tún. Að vísu er
rétt að hafa í huga að sumarið
í fyrra var votviðrasamt langt
umfram venju, og melurinn því
ekki eins þurr og í venjulegu
ári. En hitt er jafnframt stað-
reynd að austur á Rangár-
völlum hafa melar verið ræktað-
ir með ágætum árangri í meðal-
þurrum sumrum, — og hvers
vegna skyldi ekki nást sami ár-
angur í öðrum landshlutum.
Nýræktin á Leirvogstungu-
melunum er nú öllu grænni en
gamla tunið. Það mun alger ó-
þarfi að hvetja þá sem um
Leirvogstungumela fara í sum-
ar að gefa gaum að túninu á
1 annan hluta svæðisins sem melnum neðan vegarins —og þá
var ræktað var sáð í melinn jafnframt örfoka melunum of-
eins og hann var, en hinn hlut- an vegarins. Fyrir einu ári leit
inn var herfaður djúpt, eða allt landið eins út báðum megin.
að í 12 þuml. niður. Og einmitt __________________________________:
sá hlutinn sem ekki var sáð i er
miklu grónari.
Tilskipanir þessar voru
numdar úr gildi 15. apríl sl. en
það var fyrst tilkynnt i Moskva
í gær.
Önnur tilskipunin var gefin
út í desember 1934, en hin í
september 1937. 1 þeim var
ákveðið, að dómsmeðferð í mál-
um manna sem sakaðir voru
um andbyltingarstarfsemi
skyldi vera frábrugðin dóms-
meðferð í öðrum málum. Þeir
skyldu leiddir fyrir dómara tíu
dögum eftir handtökuna og
saksóknarinn skyldi hafa á-
kæruskjalið í höndum einurn
degi áður. Mönnum sem dæmd-
ir voru til lífláts fyrir slík af-
brot skyldi óheimilt að sækja
um náðun og líflátsdómnum
skyldi fullnægt þegar í stað.
Með afnámi þessara tilskip-
ana verður dómsmeðferð í slík-
um málum í framtíðinni eins og
í öðrum sakamálum og þau
rekin fyrir sömu dómstólum.
Túnvingullimi myndar mold
t annan hluta svæðisins var
aðallega sáð túnvingli en í
nokkurn hluta herfaða svæðis-
ins var sáð sandfaxi. Þegar eft-
ir fyrsta sumarið er óherfaða
svæðið, þar sem túnvingullinn
er aðaljurtin, orðið eins
og tún og hefur þegar mynd-
azt nokkurt moldarlag undir
grassverðinum. Þar sem tún-
vingullinn er í herfaða svæðinu
er árangurinn töluvert verri, en
þar sem sandfaxið er eitt ér
árangur minnstur og gróðurinn
gisnastur.
Tugþúsundir ha
Um flestar byggðir landsins
eru melar og nema þeir sam-
SÍMABREYTINGAR
7510 — Sósíalistafélag Reykjavíkur
7811 — Kosníngaskrifstofa Alþýðubanda-
lagsins, opnuð eftir helgina.
7512 — Miðstjóm Sósíalistaflokksms.
7513 — Æskuíýðsfylkingin.
Almennur stjórnmálafundur
haldinn á Dalvík í dag
Alpýðubandalagið héldur almennan stjórnmálafund á
Dalvík í dag.
Á fundinum mæta Hannibal Valdimarsson alpm. og
Þorsteinn Jónatansson varaformaöur Verkamannafélags
Akureyrarkaupstaðar og flytja þeir framsöguræöur um
aðdraganda að stofnun Alþýðubandalagsins, stjórnmála-
viðhorfið og Alþingiskosningarnar.
Fundurinn er að sjálfsögðu öllum opinn og eru Dal-
víkingar og nágrannar hvattir til aö fjölmenna á fund-
inn og taka þátt í umræðum um hin nýju viðhorf í stjórn-
málunum.
Almennur stjórnmálofundur
á Húsavík á morgun
Almennan stjórnmáláfund heldur Alpýöubandalagiö d
Húsavík á morgun.
Fundurinn hefst kl. 8.30 e.h. Frummælendur Hannibal
Valdimarss. alpm. og Þorsteinn Jónatansson varaformað-
ur Verlcamannafélags Akureyrarkaupstaöa,i'. Munu þeir
ræöa um stofnun og markmiö Alþýðubandalagsins.
Að sjálfsögðu eru allir alþingiskjósendur velkomnir á
fundinn. Eru Húsvíkingar og Þingeyingar hvattir til að
fjölmenna og taka þátt I umræðunum.
Sýning á verkum nokkurra beztu
iistamanna landsins opnuð i Eyjum
Þar verða m.a. málverk eftir Kjarval 09
höggmyndir eftir Ásmund Sveinsson
í dag verður opnuð í AKOGES-húsinu í Vestmanhá-
eyjum sýning á málverkum og höggmyndum eftir nokkra
af kunnustu listamönnum íslenzkum. Er slík sýning nýr
viðburður í Vestmannaeyjum.
_____i____________________§ AKOGES-félagið í Vestmanna-
eyjum bauð Félagi íslenzkra
myndlistamianna að halda sýn-
ingu þessa í húsi félagsins.
Verður sýningin opnuð í dag
kl. 5 síðdegis.
Á sýningunni verða málverky
eftir þessa málara: Jóhannes
Kjarval, Snorra Arinbjarnar.j
Sverri Haraldsson, Jóhannes
Jóhannesson, Sigurð Sigurðs-
son. Valtý Pétursson og Krist-
ján Davíðsson.
Höggmyndir verða eftir Ás-
mund Sveinsson, Magnús Á.
Árnason og Ólöfn Pálsdóttur.
Þeir Kjartan Guðjónsson og
Jóhannes Jóhannesson annast
uppsetningu sýningarinnar í
Vestmannaeyjum.
Það er ánægjuleg nýbreytni að
halda úti á landi sýningar á
verkum beztu listamaima þjóð-
arinnar og kannske mætti vona
að þetta sé upphafið að því að
slíkar sýningar verði haldnar á
fteiri stöðum á landinu.
Eitthvað af myndunum á
sýningunni er til sölu — og hver
veit nema einhverjum höfðing'-
lunduðum Vestmannaeyingum
detti í hug að kaupa nokkrar —
og stofna með þeim listasafn
fyrir Vestmannaeyinga.