Þjóðviljinn - 10.05.1956, Síða 1
VILIINN
Fimmtiidagur 10. maí 1956 — 21. árgangur — 105. tölublað
80832 1
Skrlfstofa Alþýðubandalagslffli
í Hafuarstrœti 8 hefur nú feng«
ið nýtt símanúmer til viðbótao
við nr. 65G3 sem hún hafði áSS<
ur. Er það númer 8 083 2. j
Hefur Sambcmdið fengið 6,5
millj. kr. úr framlelðslusjóði?
Almenningur skattlagður til þess eins að hægt sé
að gefa með dilkakjöti til Bretlands!
Eins og Þjó'ðviljinn skýi’öi frá í gær hafa útgeröarmenn
og framleiðendur bátafisks ekki enn. fengið einn einasta
eyri úr Framleiöslusjóði þeim sem var stofnaöur meö risa-
álögrmum miklu s.l. vetur. En á sama tíma og þeir sem
sérstaklega átti aö bjarga hafa ekki fengiö neitt, mun
Samband íslenzkra samvinnufélaga hafa fengiö eina upp-
hœöina af annarri úr pessum sjóöi, og munu þœr nú nema
samtals 6V2 milljón króna.
Eins og kunnugt er námu
risaálögurnar miklu um 250
milljónum króna. Af þeim áttu
um 100 milljónir að renna í rík-
issjóð, en 152 milljónir átti
Japaiti ræðir
viA Búlganín
f gær hófust í Moskva við-
ræður milli Kono, landbúnaðar-
og fiskveiðaráðherra Japana, og
Búlganíns, forsætisráðherra Sov-
étríkjanna. Var Kono sendur út
af örkinni til að reyna að fá
Sovétríkin til að slaka á höml-
um á laxveiðum við austur-
strönd Síberíu.
Læknar rannsaka
Eisenhower Bandaríkjaforseti
skýrði fréttamönnum frá því í
gær að hann yrði tekinn til
gaumgæfilegrar skoðunar á her-
sjúkrahúsi í Washington í dag.
Skýrsia um skoðunina verður
að líkindum birt á laugardaginn.
Framleiðslusjóður að fá. Úr
Framleiðslusjóði áttu 137 millj-
ónir að renna til útgerðarinnar
í ýmsum myndum, en 15 millj-
ónir til landbúnaðar, einkanlega
sem uppbætur á dilkakjöt sem
flutt er til útlanda og selt þar
á 9 kr. kílóið.
Öunur svör
Útgerðarmenn hafa fengið
þvert nei þegar þeir hafa farið
fram á fé úr Framleiðslusjóði
samkvæmt lögum, og því hefur
verið borið við að féð innheimj;-
ist svo seint að engir peningar
væru orðnir handbærir. Hins
vegar hefur Þjóðviljinn fregnir
af því að hið auðuga stórfyrir-
tæki, Samband ísl. samvinnu-
félaga, hafi fengið önnur svör
þegar það hefur sótzt eftir fé
úr sjóðnum til þess að standa
straum af kjötútflutningi.
Hafi sambandið a.m.k. þrívegis
fengið stórupphæðir úr sjóðn-
um og nemi þær samtals hálfri
sjöundu milljón króna.
Fjarstæðukennd bjargráð
Fróðlegt væri að fá skýring-
Alþýðubandalagið heldur fund
á Skagaströnd nlí. sunnudag
Kristján Gíslason
Einar Olgeirsson
-k Alþýðubandalagið heldur almenuan stjórnmálafund a
Skagaströnd n.k. sunnudag, 13. maí, kl. 2 e.h. Á fundinum mæta
Einar Olgeirsson alþingisnuiður og Kristján Gíslason fram-
kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins og flytja framsöguræður um
stjórnmálaviðliorfið og alþingiskosningarnar.
★ Allir alþingiskjósendur eru velkomnir á fundinn, og er
lieitið á Skagstrendinga og aðra Húnvetninga að fjölmenna.
ar stjórnarvaldanna á því hvers
vegna Sambandið nýtur ann-
arra kjara en útvegsmenn í
sambandi við þessi mál. Og ó-
neitanlega mun almenningi
finnast það einkennileg fjár-
málastefna að hafa þegar orð-
ið að greiða milljónatugi í
hækkuðu vöruverði í því skyni
einu að styrkja Samband ís-
lenzkra samvinnufélaga, svo að
það geti selt Bretum dilkakjöt
á gjafverði, en hér verði fljót-
lega kindakjötsskortur! Voru
bjargráðin sannarlega nógu
fjarstæðukennd fyrir þótt þetta
bættist ekki við.
Eden heifir að refsa þeim
er sendu Crabb að njósna
Sver fyrir að ríkisstjórnin hafi nokkuð vit-
að um tiltækið
Eden, forsætisráöherra Bretlands, játaði á þingi í gær
aö froskmaöurinn Lionel Crabb heföi veriö aö njcsna um
farkost Búlganíns og Krústjoffs þegar hann hvarf.
Forsætisráðherrann neitaði að að með Búlganín og Krústjoff.
svara fyrirspurnum Verka-
mannaflokksþingmanna um
hvarf Crabbs berum orðum, en
auðskilið var, hvert hann var
að fara.
Neitar að leysa frá skjóðuuni.
Brezka flotamálaráðuneytið
hefur tilkynnt, að Crabb, sem
var færasti froskmaður Bret-
lands, muni hafa drukknað við
köfun í höfninni í Portsmouth
daginn eftir að sov.ézka beiti-
skipið Ordsjonikidse kom þang-
Franska stjórnin samþykk-
ir kröfur landnema í Alsír
Fær þeim vopn og lofar liðsauka
Mollet, forsætisráöherra Frakklands, lét í gær undan
kröfum franskra landnema í Alsír um að fá þeim vopn í
hendur.
Skýrt var frá því í París í
gærkvöldi að Mollet forsætisráð-
herra hefði fallizt á tillögu La-
coste Alsírmálaráðherra um að
fá frönskum landnemum vopn
í hendur og mynda af þeim
heimavarðlið. Hingað til hafa
franskar stjórnir skirrzt við að
vopna landnema sökum þess að
óttazt hefur verið að þeir myndu
koma fram af slíkum frunta-
skap við Serki að ástandið í Al-
sír myndi versna um allan helm-
ing.
hinu landshorninu. Réðust þeir
á 40 þorp og búgarða í hér-
aðinu Constantine nærrt landa-
mærum Túnis. Nákvæmar frétt-
ir af bardögunum þar höfðu
ekki borizt í gærkvöldi.
Eden fórust svo orð, að ríkis-
stjórnin hefði ekki liaft minnstu
vitneskju um það sem gert hefði
verið í Portsmouth. Þeim sem á-
byrgð bæru á atburðunum þar
yrði refsað. Að öðru leyti teldi
hann ekki samrýmast þjóðar-
hagsmunum að láta uppi. við
hvaða aðstæður talið væri að
Crahb hefði beðið bana.
Algerlega ófullnægjaudi.
Gaitskell, foringi stjómar-
andstöðunnar, lýsti yfir að hanu
teldi ummæli Edens þau óviðun-
anlegustu sem nokkur forsætis-
ráðherra hefði haft fram að
færa á þingi í slíku alvörumáli
sem þessu. Hann hlyti að gera
sér ljóst að blöðin myndu halda
áfram að bollaleggja um málið.
Skoraði Gaitskell á Eden að
V
segja berum orðum, hvort
leyniþjónusta flotans hefði ver-
ið að reyna að njósna um far-
kost iRúlganíns og Krústjoffs
meðan þeir voru í opinberri
heimsókn í Bretlandi.
Ekien svaraði, að þingheimur
og þjóðin yrðu að draga sínar
ályktanir af því sem hann hefði
sagt og látið ósagt. Orð sín bæri
að taka eins og þau væru töluð
án allrar útleggingar.
Liðsauka lofað
Lacoste sat lengi dags í gær
á fundi með Mollet. Eftir fund-
inn sagði hann að bón sín um
50.000 manna Jiðsauka í viðbót
við 330.000 manna herlið, sem
fyrir er í Alsír, hefði verið veitt.
í gær hertu skæruliðar í Alsír
sóknina gegn Frökkum. Undan-
farna daga hefur franska vara-
Jiðið hópast til vesturhéraðanna
milli Oran og landamæra Mar-
okkó, sökum árása skæruliða á
búgarða Frakka þar. í gær
Jögðu skæruliðar til at.lögu á
Karlamagnúsi
veitt vernd
Mikill viðbúnaður verður í
vestúrþýzku borginni Aachen í
dag til að hindra fyrirhugaðan
mótmælafund flóttaíólks frá
héruðum sem nú tilheyra Pól-
landi gegn veitingu Karlamagn-
ússverðlauna til Wiinstons
Churchills. Hefur varalögreglu
verið boðið út. Churchill er
væntanlegur til Aachen í dag.
Með
kveðju
4r> r <
frá íhaldi og Framsókn
Appelsínur hækka
um 70 af hundraói
Þeir Gregory-frœndur í ríkisstjórninni halda á-
fram aö senda almenningi kveöjur sínar. Vörurnar
hœkka dag frá degi, milljónir á milljónir ofan eru
teknar af almenningi til pess aö bjarga útgerö-
inni — og pó liefur útgeröin ekki fengiÖ einn ein-
asta eyri.
Stórfelldasta hœkkunin síðustu dagana er sú aö
appelsínukílóiö hefur hœkkað úr kr. 10,70 í kr.
18,00 — eða nœrri pví um 70%. Þeir Eysteinn og
Ólafur Thors lögöu sem kunnugt er alveg sérstak-
an okurskatt á ávexti og mun paö hafa veriö hitgs-
aö sem sérleg vinarkveðja til barnanna í landinu.
Almenningur hefur tœkifœri til pess í dumar aö
kvitta fyrir pessa endalausu veröhœkkanir og
eru íslendingar skaplausir menn ef ekki munar. œr-
lega um pá kvittun. )