Þjóðviljinn - 13.05.1956, Side 3

Þjóðviljinn - 13.05.1956, Side 3
Fiskccflinn töluvert minni nú en á sama tíma á s. 1. óri bátar hœttir eða að hœtta Aflatregða er'nú í verstöðunum á Suðvesturlandi. Tölu- vert er síðan að í Vestmannaeyjum var eins og um ver- tíðarlok: bátar hættir veiðum og fjöldi aðkomufólks far- inn eða á förum. Af verstöðvunum á Reykjanesi er sömu söguna að segja og allmargir aðkomubátar í Keflavík eru hættir veiðum og farnir eða á förum heim. Margir veiðum Simnudagur 13. mai 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Tímaritið Eimreiðin skiptir um eiganda og ritstjóra Komið er út 1. hefti 62. árgangs Eimreiðarinnar, og eru orðin eiganda- og ritstjóraskipti á tímaritinu. Hefur Fé- lag íslenzkra rithöfunda keypt ritið af Sveini Sigurðs- syni, en Guðmundur Hagalín hefur gerzt ritstjóri í stað hans. Hið nýja hefti hefst á kvæð- inu Kveðju eftir Valtý Guð- mundsson. Þá skrifar Guðm. G. Hagalín ritstjóri greinina Eim- reiðin fyrr og nú. Næst er rit- gerð um Valtý Guðmundsson, stofnanda ritsins, eftir Jónas Jónsson. Andrés Bjömsson birt- ir kvæðið Fjallið heima. Þorleif- ur Bjarnason á smásögu er hann nefnir Fylgdarmaður. Þórir Bergsson skrifar endurminning- ar úr Fremribyggð og Tungu- sveit. Birt eru þrjú kvæði eftir Þorgeir Sveinbjarnarsctn. Ivar Orgland skrifar ritgerð um norska skáldið Tarjei Vesaas. Þá éru erlendar bókafregnir og að lokum ritsjá eftir Þorstein Jónsson og Helga Sæmundsson*. Ánægjuleg breyting hefur ver- ið gerð á fyrstu kápusíðu ritsins. Nainsdvöl i aöalstöðvuni Saineinuöu þ|óöaniia í N. V- Sameinuðu þjóðirnar munu á næsta ári bjóða 20 ung- um körlum og konum til námsdvalar í aðalstöðvunum í New York. Hér fer á eftir skýrsla Fiski- félags íslands um aflabrögðin á Suðvesturlandi í síðasta mánuði. í marzmánuði var aflinn 15 þús. lestum minni en á sama tíma fyrra. Togararnir (í apríl): Sama fiskitregða var á tog- aramiðum fyrri hluta apríl og hefur verið síðan fyrir áramót. Skipin voru dreifð um suðvest- ursvæðið, en nokkur voru á mið- um fyrir Norðurlandi. Um 9. mánaðarins kom allgóð hrota á Selvogsbanka en stóð stutt eða einungis 10 daga. Flot- inn var það tímabil mest aliur á þeim slóðum og var um ágætan afla að ræða. Gæftir voru Ofi góðar. Síðari hluta mánaðarins hefur verið lítill afli á Selvogs- banka og á suðvestur- og vestur- miðum almennt. Reytingsafli hefur aftur á móti verið fyrir Xiorðan land, en fiskurinn smár. Flestir togararanna voru á saltfiskveiðum eða veiddu bæði í salt og ís. Um 14 skip voru ein- göngu á ísfiskveiðum. SUÐVESTURLAND (1.—15. apríl) Hornafjörður. Frá Hornafirði reru 5 bátar með net. Gæftir voru ágætar; voru flest farnir 15 róðrar. Aflahæstu bátar á tímabilinu voru Gissur hvíti með 196 lestir í 15 róðrum og Hvanney með 151 lest einnig í 15 róðrum. Afli bátanna á tíma- bilinu var 582 lestir í 65 róðrum. Á sama tíma í fyrra var afli 5 báta 465 lestir í 56 róðrum. V estmannaey jar. Frá Vest- mannaeyjum reru um 90 bátar, þar af voru um 80 bátar með net, en hinir með handfgeri og línu. Afii var rýr á línu, en góð- ur á handfæri, eða allt að 15 lestir í róðri, með 4 mönnum á bát. Mikill hluti handfæraaflans var ufsi. Afli var góður hjá netjabátum fyrstu viku mánað- arins, en mjög rýr síðan. Mestur afli í róðri varð 2.—6. apríl, en þá fengu nokkrir bátar 55—60 lestir í lögn. Ekki er enn vitað með vissu um aflamagn ein- stakra báta, en aflahæstu bátar hafa um 200 lestir á þessu tíma- bili. Afli bátanna á þessum tíma var um 10.500 lestir. Á sama tíma í fyrra var aflinn um 10.000 lestir. Aflahæstu bátar hafa fengið alls um 700 lestir, það sem af er vertiðar; þeir eru Gullborg, Ófeigur III, Freyja, Reynir og Leo I., og eru allir þessir bátar með net. Stokkseyri. Frá Stokkseyri reru 5 bátar með net. Gæftir voru ágætar. Voru flest farnir 15 róðrar. Mestur afli í róðri varð þann 5. apríl, 21 lest. Afla- hæsti bátur á þessu þessu tíma- bili var Hólmsteinn með 119 lestir í 15 róðrum. Afli bátanna S tímabilinu var 350 lestir í 54 Sí&örum. Á sama tíma í fyrra var afli 4 báta 214 lestir í 25 róðr- um. Eyrarbakki. Frá Eyrarbakka reru 4 bátar með net. Gæftir voru ágætar; voru flest farnir 14 róðrar. Mestur afli í róðri var 20,6 lestir þann 5. apríl. Aflahæsti bátur á tímabilinu var Jóhann Þorláksson með 135 lest- ir í 14 róðrum. Afli bátanna á þessu tímabili var 482 lestir í 53 róðrum. Á sama tíma í fyrra var afli 5 báta 206 lestir í 25 róðrum. Þorlákshöfn. Frá Þorlákshöfn reru 7 bátar með net; gæftir voru góðar; voru flest farnir 12—13 róðrar. Mestur afli í róðri var 32 lestir, þann 5. apríl. Afla- hæstu bátar á þessu tímabili voru Þorlákur með 211 lestir í 12 róðrum og Friðrik með 204 lestir í 13 róðrum. Afli bátanna á þessu tímabili var 1170 lestir (óslægt) í 101 róðri. Á sama tíma í fyrra nam afli 6 báta 1063 lestum í 65 róðrum. Grindavík. Frá Grindavík reru 18 bátar, þar af voru 4 með línu, en 14 með net. Gæftir voru góðar, voru flest farnir 13 róðr- ar. Aflahæstu bátar voru: Arn- firðingur með 180 lestir í 9 róðr- um, Hrafn Sveinbjarnarson með 173 lestir í 12 róðrum, Þorbjörn með 171 lestir i 13 róðrum. Allir þessir bátar voru með net. Afli bátanna á þessu tímabili var 2252 lestir (slægt) í 197 róðrum. Á sama tíma í fyrra var afli 19 báta 1594 lestir í 159 róðrum. Sandgerði. Frá Sandgerði reru 19 bátar með línu. Gæftir voru góðar; flest voru farnir 11 róðr- ar. Mestur afli í róðri varð 4. apríl, 16,1 lest. Aflahæstu bátar á tímabilinu voru: Víðir með 104,6 lestir í 11 róðrum, Mummi með 100,6 lestir í 11 róðrum, Muninn með 90,5 lestir í 11 róðr- um. Afli bátanna á tímabilinu var 1409 lestir í 199 róðrum. Á sama tíma í fyrra var afli 18 báta 1025 lestir í 142 róðrum. Keflavík. Frá Keflavík reru 49 bátar. þar af voru 41 með línu, en 8 með net. Gæftir voru góðar; flest vpru farnir 11 róðr- ar. Mestur afli í róðri á línu var 10. apríl, 16,2 lestir, en mest- ur afli i net var 6. apríl, 19,1 lest. Aflahæstu línubátar eru: Guðm. Þórðarson með 100 lestir í 11 róðrum, Kópur með 90 lestir í 11 róðrum, Bára með 85 lestir í 11 róðrum. Aflahæsti netjabátur er Ing- ólfur með 140 lestir í 11 róðrum. Afli bátanna á þessu tímabili var 3414 lestir í 517 róðrum. Á sama tíma í fyrra var afli 45 báta 2565 lestir. Hafnarfjörður. Frá Hafnarfirði reru 23 bátar; þar af voru 8 með línu, en 15 með net. Afli línubátanna var 331 lest í 79 róðrum, en afli netjabátanna 1986 lestir. Aflahæsti línubátur- inn var Örn Amarson með 54 lestir i 9 róðrum. Afiahæstu netjabátar voru: Fagriklettur með 178 lestir Ársæll Sigurðss. — 175 — Fiskaklettur — 172 — Heildaraflinn á tímabilinu var 2317 lestir. Á sama tíma í fyrra var afli 5 línubáta 223 lestir í 35 róðrum. Reykjavík. Frá Reykjavík reru 26 bátar, þar af voru 20 bátar með net,' en 6 með línu. Gæftir voru góðar; voru flest farnir 12 róðrar. Afli línubátanna á þess- um tima var um 300 lestir í 67 róðrum. Afli netjabátanna var um 1900 lestir. Aflahæstu netja- bátar á þessu tímabili voru Helga, Hafþór og Valgeir; fengu þeir um 220 lestir hver. Afli annarra netjabáta var yfirleitt góður, en misjafn eftir stærð þeirra. Á sama tímabili í fyrra var sama sem ekkert róið frá Reykjavík, en þá stóð verkfall yfir. Akranes. Frá Akranesi reru 22 bátar, þar af voru 5 með net, en 17 með línu. Gæftir voru góðar; voru flest farnir 10—13 róðcar. Mestur afli í róðri á línu varð 5. apríl 9,5 lestir, en mestur afli í net varð 6. apríl 38,7 lest- ir. Aflahæsti bátur á línu á þessu tímabili var Reynir með 67 lestir í 10 róðrum. Aflahæsti bátur í net á sama tíma var Böðvar með 220 lestir í 13 lögn- um. Afli bátanna á tímabilinu var 1832 lestir í 230 róðrum. Á sama tíma í fyrra nam . afli 20 báta 1166 lestum í 177 róðrum. Sandur. Frá Sandi reru 5 trillubátar á þessu tímabili og öfluðu 23.3 lestir í 20 róðrum. Rif. Frá Rifi reru 6 bátar með línu. Gæftir voru góðar; voru flest farnir 10 róðrar. Mestur afli i róðri varð 14. apríl, 9 lestir. Aflahæsti bátur á þessu tímabili var Ármann með 47 lestir i 10 róðrum. Afli bátanna á tímabilinu var 233 lestir í 53 róðrum. Ólafsvík. Frá Ólafsvík reru 9 bátar með línu. Flest voru farn- ir 11 róðrar. Mestur afli í. róðri varð 14. apríl, 11 lestir. Afla- hæsti bátur á þessu tímabili var Fróði með 54 lestir í 11 róðr- um. Afli bátanna á tímabilinu var 478 lestir í 76 róðrum. Á sama tíma í fyrra var afli 8 báta 442 lestir í 58 róðrum. Grundarfjörður. Frá Grundar- firði reru 9 bátar með línu. Gæftir voru góðar; voru farnir 8—11 róðrar. Mestur afli i róðri varð 10 lestir, hinn 6. apríl. Aflahæsti bátur á þessu tímabili var Farsæll með 73 lestir í 11 róðrum. Afli bátanna á þessu tímabili var 537 lestir í 96 róðr- um. Á sama tíma í fyrra var afli 6 báta 341 lest í 37 róðrum. Stykkislióhnur. Frá Stykkis- hólmi reru 7 bátar með línu. Gæftir voru allgóðar; voru flest farnir 9 róðrar. Mestur afli í róðri var 12. apríl, 7,7 lestir. Afli bátanna á þessu tímabili var 280 lestir í 60 róðrum. Á sama tíma í fyrra var afli 6 báta 224 lestir í 34 róðrum. Tilgangur þess er sá að kynna starfsemi SÞ. — Hverj- um námsgesti verður fenginn leiðbeinandi, er mun skýra fyr- ir honum störfin. Eitt " af skylduverkum náms- gesta verður að leiðbeina gest- um, sem koma til þess að skoða húsakynni SÞ. Umsækjendur um námsdvöl verða að vera ríkisborgarar í landi, sem er i samtökum SÞ. Þeir verða að leggja fram skil- ríki um það, að þeir hafi stund- að a.m.k. 2 ára nám í viður- kenndum háskóla. Þeir verða að vera vel færir í enskri tungu. Um námsdvöl geta sótt bæði konur og karlar, 20—26 ára að aldri. Námsdvölin hefst 15. ágúst 1956 og varir í 12 mánuði. Vinnutími er að jafnaði frá kl. 9,30 f.h. til kl. 6 e.h., fjmm daga i viku. Sameinuðu þjóðirnar greiða í dvalarkostnað $ 50 á viku. Að auki verða hverjum námsgesti greiddir $ 100.00 við komu Sænskur náms- styrkur Samkvæmt tilkjmningu frá sænska sendiráðinu hafa sænsk stjórnarvöld ákveðið að veita námsmanni frá Danmörku, Nor- egi, Finnlandi eða íslandi fjög- urra mánaða námsstyrk háskóla- árið 1956—1957. Styrkurinn er einkum ætlaður mönnu.n, er hafa hug á að stunda sjálfstætt framhaldsnám við sænskan há- skóla. Til mála kemur, að styrknum verði skipt milli tveggja umsækjenda og fengi hvor umsækjandi þá styrk til tveggja mánaða námsdvalar. Umsóknir um styrkinn sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 15. maí næstkomandi. í umsókn skal taka fram fullt nafn og heimilisfang, fæðingarár og stöðu, ennfremur fylgi umsókn- inni staðfest afrit af prófskír- teinum, vottorð um sænsku- kunnáttu, nákvæm greinargerð um, hvernig umsækjandi hyggst verja námstímanum, svo og með- mæli ef til eru Svenska institutet annast val styrkþega. (Frá menntamálaráðuneytinu) hans til New York, upp i kostn- að við að koma sér fyrir. Námsgestir munu fá 2 vikna frí á árinu með fullu kaupi. Þeir munu hafa sömu réttar- stöðu og starfsmenn SÞ, meðan þeir eru þar, og verða að hlíta starfsreglum, sem þar gilda. Ekki er þeim veittur neinn á- dráttur um atvinnu síðar í skrifi- stofum SÞ. Umsækjendur hér á landi skulu senda umsóknir sínar til skrifstofu SÞ í Kaupmannahöfn. Utanáskrift: The Director, Unit- ed Nations Information Centre, 37, H. C Andersen Boulevard. Umsóknir skal skrifa á ensku, og skal æviágrip umsækjanda fylgja með. Umsóknir skulu vera komnar til skrifstofunnar ekki síðar en á hádegi 10. maí. Ymsar nánari skýringar veitir skrifstofa Háskóla íslands. Templarar fara til Akraness \ Framhald af 12. síðu. kirkju kl. 11 f.h. og hlýtt messu hjá sóknarprestinum sr. Jóni Guðjónssyni. Ræða hans var framúrskarandi góð og áhrifarík. Að messu lokinni var gengið til borðhalds á Hótel Akraness. — Kl. 2 e.h. hófst bindindismálafundur í Bíóhöll- inni. Fundarefni var þetta: Öðinn Geirdal æt. stúkunnar Akurblómið flutti ávarp. Þor- steinn J. Sigurðsson umdæmis- templar flutti ræðu. Frú Sigrún Gissurardóttir og Þórketill Sig- urðsson fluttu leikþátt. Björn Magnússon prófessor flutti fræðsluerindi um bindindismál. Einar Þ. Guðmundsson leikari las upp. Jóhannes Jóhannesson lék einleik á harmoniku. Maríus Ólafsson skáld las frumsamin kvæði. Þorleifur Bjarnason námsstjóri flutti lokaorð. Kjam- ir var Þórður Steindórsson um- dæmiskanslari. Góður rómur var gerður a5 þeim atriðum, sem fram fóru 4 fundinum. Sérstaklega ánægju- legt var hve margt ungmenna var meðal fundarmanna, er fylgdist af miklum áhuga og prúðmennsku með því sem frana fór.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.