Þjóðviljinn - 16.05.1956, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 16. maí 1956 — 21. árgangur — 109. tölublað
Kí
Sjálfbialiðar
1
eru beðnir að hafa sambandl
við liosni ngaskrifstufuiia í
Tjarnargötu 20 tíl þess alt
vinna ýnis störf til undir*'
búnings kosningunum.
Gamla vísitalan 737 stig!
Verðbófgan hefur meira en
tvöfaldazt á sex árum
Gamla visitalan — sú sem
var í gildi heim að gengis-
lækkun — væri nú komin upp
í 737 stig, ef húu væri notuð,
en hún var sem kunnugt er
felld úr gildi með gengislækk-
uninni. I»á var gamla vísital-
an 355 stíg. Hækkunin síðan^
er 472 stig; dýrtíðin hefur
tvöfaldast og þriðjungi betur!
Gefur þetta góða hugmynd um
það liversu óhemjulega vrerð-
bólgu stjórnarvöldin hafa leitt
yfir þjóðina. Á henni liaia
verðbólgubraskarar, milliliðir
og skuldakóngar ílialdsins
grætt, en allur almenningur
hefur tapað og atvinnuvegir
þjóðarinnar liafa átt
andi örðugleikum.
Ef kaup væri greitt eftír
gömlu vísitölunni, eins og
gert var [iar til „fyrsta stjórn
Alþýðuflokksins“ batt vísitöl-
una í desember 1947, myndi
tímakaup Dagsbrúnarmanns
nú verða kr. 24,98. Mismun-
urínn er kr. 6,70 um tímann,
kr. 53,60 á dag — eða sem
svarar rúmum 16.000 kr. á
ári. Sú tala gefur góða liug-
mynd um það hvernig kaup-
máttur launanuu hefur verið
skertur með verðbólgunni. Það
birtist m.a. í því að fólk þarf
nú að vinna mun lengur en
1947 til [)ess að hafa hlið-
stæða afkomu.
an vegin nóg að gert. I hirzl-
um ríkisstjórna.rinnar liggja
nú ttllögur hagfræðinganefnd-
ar. I þeim er gert ráð fyrir
gengislæklum, kaupbindingu
og minni framkvæmdum í
landinu, „hæfilegu atvinnu-
Ieysi“. Þessar leynilegu ttllög-
ur eru hin saineigiulega stefnu-
skrá íhaldsins og hræðslu-
bandalagsins — ef kosninga-
úrslitin verða þannig að aft-
urhaldið þori að framkvæma
þær.
Héraðsnefnd Alþýðubandaiagsins í Eyjafirði
Verkamenn og bæmlur eru f jöl-
mennastir í héraðsnefndinni
Akureyri. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Héraðsnefnd Alþýöubandalagsins í Eyjafjarðarsýslu
stvax- hefur nu veriö mynduö og er hún skipuð 20 mönnum, aöal-
lega verkamönnum og bændum.
Þessir eiga sæti í nefndinni:
Eiríkur Björnsson bóndi, Arn-
arfelli i Saurbæjarhreppi, Magn-
ús Hólm Arnason bóndi á
Krónustöðum í Saurbæjar-
hreppi, Jónatan Davíðsson bóndi
á Draflastöðum í Saurbæjarhr.,
Hermann Sigurðsson bóndi á
Litlu-Brekku í Arnarneshreppi,
Árni Jónsson verkamaður, Dal-
vík, Daníel Daníelsson héraðs-
læknir á Dalvík, Jón E. Stefáns-
son byggingameistari, Gestur
Sigurðsson verkamaður, Þor-
steinn Þorsteinsson verkamaður,
Stefán Bjarman kennari, Eiríkur
Líndal gjaldkeri Verkalýðsfé-
En afturhaldinu finnst eng- lagsins ó Dalvík og Hermann
Verðhækkanirnar margfalt
meiri en kaupuppbétin
Eins og Þjóðviljinn skýi’öi frá í gær hefur vísi-
talan nú skammtaö launþegum uppbótina fyrir
þriggja mánaða gegndarlausar verðhækkanir. Upp-
bótin er 5 vísitölustig eða sem svarar tæplega 3 %
kauphækkun. Hér í blaöinu hafa undanfarnar vik-
ur og mánuöi veriö birtar fréttir um verðhækkan-
irnar en þær hafa venjulegast numiö tugum pró-
senta. Hér skulu nokkur dæmi tekin í viöbót, en
þau eru valin úr hópi algengasta neyzluvarnings:
Eitt kíló af hveiti kostaði áður kr. 2.80 en kostar
nú kr. 3.20. Hcelckun 14.3%.
Eitt kíló af strásykri kostaði áður kr. 3.20 en
kostar nú kr. 3.60. Hælckun 12.5%.
Einn pakki af barnamjöli kostaöi áður kr. 10.95
en kostar nú kr. 13.15. Hœlckun 20%.
Eitt stykki af Lúx liandsápu kostaði áður kr.
4.15 en kostar nú kr. 5.25. Hœkkun 26.5%.
Ein dós af ræstidufti kostaði áður kr. 3.85 en lcost-
ar nú kr. 4.70. Hœkkun 22%.
Ein dós af Manison-bóni kostaði áður kr. 8.45 en
kostar nú kr. 9.50. Hœkkun 12.5%.
Þetta eru sem sagt mjög hversdagslegar neyzlu-
vörur, úr þeim flokkum sem minnst hafa hækkaö.
Samt er hækkunin á þeim öllum fimm- til tí-falt
meiri en kaupuppbótin til launþega. Og íhaldiö
vildi svo bæta gráu ofan á svart með því aö leggja
til aö launþegar fengju alls enga kaupuppbót..
Zophoníasson bó.kavörður, allir
6 síðastnefndu til heimilis á
Dalvík. Ragnar Þorsteinsson
kennarí, Hartmann Pálsson
verkamaður, Balldór Kristins-
son verkamaður, Víglundur Pét-
ursson verkamaður, Gísli Krist-
insson verkamaður, Axel Péturs-
son verkamaður, Líney Jónas-
dóttir húsfrú, Sigríður Pólma-
dóttir formaður verkakvennafé-
lagsins Sigúrvonar í Ólafsfirði.
Þau átta síðasttöldu öll til heim-
ilis í Ólafsfirði.
Formaður héraðsnefndarinn-
ar er Stefán Bjarman kennari.
_
Slitnað uppúr samningum
um sjálfstjórn Singapore
Marshall forsætisráðherra mun segja af sér
Slitnaö hefur uppúr samningum milli brezku stjórn-
arinnai' og fulltrúa frá Singapore um sjálfstjórn borg-
inni til handa.
Samningarnir fóru út um
þúfur vegna þess að brezka
stjórnin vill áskilja sér rétt til
að taka stjórn lögreglumála í
Singapore í sínar hendur hve-
nær sem henni sýnist
Singapore, sem er mikil hafn-
arborg og flotastöð á eyju við
suðurodda Malakkaskaga, ifékk
takmarkaða sjálfstjórn í fyrra.
Flestir borgarbúar eru af kín-
versku bergi brotnir.
Herstöðin illa [>okkuð
David Marshall, fyrsti for-
saátisráðherra Singapore, var
fyrir samninganefnd borgarbúa
í London. Hann er foringi
Verkamannaflokksins, hægfara
sósíaldemókrataflokks.
Marshall sagði í gær, að eftir
þessar málaíyktir í London
myndi hann halda heim hið
skjótasta og biðjast lausnar.
íbúar Singapore vildu fá fujla
stjórn yfir innri málum sinum.
Þeir hefðu boðizt til að láta
Breta ifara áfram með utanrík-
ismálin og landvarnir, enda þótt
þeim væri lítið gefið um her-
Framhald á 5. síðu.
Samið um friðun
fiskimiða
Skýrt var frá þvi í Moskva
í gær að náðst hefði samkomu-
lag um fiskveiðisamning milli
Sovétríkjanna og Japans. Hafa
Japanir fallizt á að virða frið-
unaraðgerðir Sovétríkjanna á
laxfiskimiðum á Kyrrahafi
norðvestanverðu.
Árás hrundið
Tvvining hershöfðingi, for-
seti herráðs bandaríska flug-
hersins sagði í gær að í
Bandaríkjunum væri farið að
smíða vetnissprengjur sem ekki
væru stærri en það að tveggja
hreyfla sprengjuflugvélar gætu
borið þær.
Dulles argur yfir
afvopnun í Sovét
Segir fækkun hermanna um 1.2 milljónir
engin teljandi áhrif hafa á hernaðarmáttinn
Ákvörðun sovétstjórnarinnar áö fækka í herafla sínum
um 1.2 milljónir manna var aöalumræöuefni blaöa og
stjórnmálamanna um heim allan í gær.
Áberandi var að fregninni var^
öðruvísi tekið í London og París
en í Washington.
Ráðuneytisf uiul ur
Talmaður brezka utanrikis-
ráðuneytisins komst svo að orði,
að brezka stjórnin fagnaði á-
kvörðun Sovétstjórnarinnar og
teldi að hún myndi draga úr
viðsjám í heiminum.
Eden forsætisráðherra kall-
aði tarezka ráðuneytið á fund í
gær og var fullyrt í London að
umræðuefnið þar hefði verið
fækkunin í herafla Sovétríkj-
anna.
Blöð í París bentu á að til-
kynningin um fækkunina var
gefin út daginn áður en for-
sætisráðherra og utanríkisráð-
herra Frakklands komu í opin-
bera hemisókn til Moskva.
Töldu þau það benda til að sov-
Framhald á 5. síðu.
Alþýðan á nú
mikið tækifæri
Sósíalistafélag Reykjavíkur
liélt fjölsóttan fund í Þórskaffi
í gærkvöld. Starfsmenn og
trúnaðarmenn félagsins skýrðu
frá undirbúningi kosningannai
Aðalræðuna flutti Eðvarð Sig-
urðsson mn liið mikla tældíæri
íslen/.krar alþýðu að saineinast
nú á stjórnmálasviðinu og
vernda á þann hátt það sem
verkalýðuriim hefur áunnið
og sækja frain tíl nýrra sigra.
Baráttan hér stendur í þessum
kosningum milli tveggja afla,
Alþýðubandaiagsins, samtaka
alþýðumiar, og íhaidsins, sem
Framhald á 11. síðu
Guy Mollet
Mollet, Pineau
í Moskva
Fol-sætisráðherra Frakklands,
Mollet, og Pineau utanríkisráð-
herra komu í gær í opinbera
heimsókn til Moskva. Þeir eru
fyrstu forustumenn vestræns
stórveldis sem koma til Moskva
síðan Churchill var þar á
stríðsárunum.
Á flugvellinum í Moskva
sagði Mollet að þeir félagar
myndu ræða við æðstu menn
Sovétríkjanna undir merki frið-
arins. Franska stjórnin myndi
halda tryggð við bandamenn
sína, en það væru sameiginlegir
hagsmunir Frakklands og Sov-
étríkjanna að greitt yrði fram-
úr ýmsum alþjóðlegum vaiida-
málum.
í gær hófust viðræður MolletS.
og Pineau við Búlganín for-
sætisráðherra og Molotoff ut-
anríkisráðherra. Verða viðræð-
urnar á hverjum degi þangað
til á laugardag, en þá heldur
Mollet heim. Pineau mun heim-
sækja Leníngrad, Kíeff oa
Érevan, höfuðborg Armeníu,