Þjóðviljinn - 07.06.1956, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 07.06.1956, Blaðsíða 4
4) _ ÞJÓÐVILJINN' — Fimíntudagur 7. júni 1956: Enn um Tékkneska bifreiðaumboðið — lítið um varahluti — Verðlag á varahlutum hluta í Skoda og Tátra verð- ur umboðinu. óhagstæður, og<j> GRAMUR skrifar: — Sæll og blessaður, bæjarpóstur minn! f gær (þ. e. föstud. 1. júní) skrifaði einhver góður maður um erfiðleika sina í sambandi við kaup á Skodabifreið. Eg varð ekki rnikið hissa, því slíka. reynslu hef ég af viðskiptum við Tékkneska bifreiðaumboð- ið, að ég yrði fyrst hissa, eí ég heyrði getið um lélegri þjónustu við viðskiptavini en það lætur í té. Eg á sjálfur tékkneska bifreið og hef kom- ið á verkstæði umboðsins, en verð að segja, að þar er ekki um auðugan garð að gresja. SíðastliðiS sumar og haust kom ég þangað oft og spurði um ýmsa varahluti; m. a. dempara, hraðamælissnúru, bolta í kúplingu, ræsi o. m. fl. Það eina sem ég fékk var kveikju- hamar, en það er líka alveg bráðnauðsynlegur hlutur í bif- reið með rafkveikju. Svo er annað, og það er verðið á þeim varahlutum, sem fást. Þegar ég var að leita eftir ræsinum, sem ég ekki fékk, sá ég ræsi í Skoda, og spurði um verðið. „Aðeins fimmtán hundruð krónur, takk.“ Þeir, sem eitt- hvað þekkja til verðs á vara- hlutum í bifreiðar, skilja, hvers vegna ég hraðaði mér .út und- ir bert loft. Þess má geta, að samsvarahdi stór ræsir í Aust- in kostar milli fimm og sex hundruð krónur. Samanburður á verðlagi flestra annara vara- þess vegna spyr ég, og vona að forsjármenn umboðsins svari skilmerkilega: 1) Hvern- ig stendur á þessu geysiverði á þeim fáu varahlutum sem fást?, og 2) hvers vegna fást varla nokkrir varahlutir í Skoda- og sérstaklega Tatra- bifreiðar? Ef umboðsmennirnir geta ekki svarað þessu öðru vísi en þeir hafa gert hingað til; (þ. e. 1) að ræsarnir liafi fyrst verið fluttir frá Sviss til Tékkóslóvakíu og síðan til Is- lands, m. ö. o. komin á þá tollar og álagning í þremur löndum, og 2) að það sé hætt að framleiða fjögura manna Taírabifreiðar og þess vegna ekki til neinir varahlutir í þær), — þá eru þeir ekki snjallir kaupsýsiumenn. Nú verður mér að hugsa: Skyldi það vera tilfellið,. a.ð Tékkar framleiði reiðinnar ósköp af bifreiðum en enga varahluti í þær? Eg held, að óhætt sé að segja blátt nei við þessari hug- dettu; nú, en hvað þá? Eru virkilega allar biíreiðar model 1946—47 komnar úr umferð í Tékkóslóvakíu? Eg svara þessu líka neitandi: En þá hljóta líka að vera til varahlutir í þessar bifreiðar; það vantar aðeins framtakssemi umboðs- mannanna við að útvega þá.“ Gramur.— PÓSTURINN tekur enn senv \ fyrr fram, að hann er reiðu- : búinn að veita viðtöku athuga- ■ semdum frá forráðamönnum ; umboðsins, sem á er deilt, ef ; þær berast. Honum finnst og ■ trúlegt, að hér sé, a. m. k. að ■ einhverju leyti um misskilning að ræða, sem mundi leiðréttast, ef báðir aðilar, umþoðsmenn og ' viðskiptavinir, .skýrðu greinilega írá málavöxtum. Nýít hefti af Nýju HelgafelJi Annað hefti Nýs Helgafells kemur út í dag. Meðal efnis eru ný kvæði eftir Stein Steinarr og Hannes Pétursson, sagan Jari>- ur eftir Þórberg Þórðarson, ís- land þúsund ár eftir Kristján Eldjárn, svör Finnboga Rúts Valdimarssonar, Hermanns Jón- assonar, Ólafs Thors og Valdi- mars Jóhannssonar við fyrir- spurn tímaritsins um utanríkis- mál. Grein er eftir Arthur Ko- estler, greinar um bókmenntir, leiklist, tónlist o. fl. Einn af ritstjórum Nýs Helgafells, Ragnar Jónsson, skýrði blaðamönnum frá því í gær, að í undirbúningi væri mik- il útgáfustarfsemi á vegum tímaritsins og annars forlags hér í bænum, og yrði markmið hennar að lyfta undir nýja, þjóðlega bókmenntavakningu meðai æskunnar. Óskum að ráða rafvirkja til raflagna í húsum. \ Ennfremur rafvirkja eða vana línumenn til raf- | veituvinnu. Rafveita Hafnarfjaröar. HANDBÓKIN 1956 fæst í bókaverzlunum og blaðasölum j Hvernig varast má óþarfa jslit á hfólbörSunum Fáir bílar hafa vakiö meiri athygli upp á siðkastið en hin nýja gerö Citxoens, DS19, og pað er sannarlega eigu- legur bílí. pó ekki sé nema vegna. útlitsins. Þegar komið er út fyrir Hringbr. hér í Reykjavík er ó- algengt, að götur séu malbik- aðrar og finnst mörgum mal- bikun gatna í höfuðborginni .ganga furðu seint, svo ekki sé talað um þjóðvegi þá sem mest umferð er um. Malar- vegirnir hafa þann kost að þeir eru að ýmsu leyti greið- farnari í vetrarfærð með frost- um og ísingu og slysahætta þá minni á þeim, er. þá eru kostir þeirra líka taldir. En gallar malarveganna eru margir og er sá helztur hve mjög þeir slíta hjólbörðum bíl- anna. Það er því sennilega hvergi meiri þörf á því en hér á landi, að bifreiðaeigendur geri allt sem í þeirra valdi stendur til að slitið verði sem- minnst og það er hægt að koma í veg fyrir óeðlilegt slit á hjólbörðum, ef aðgát er höfð. Það er þá fyrst, að þess ber jafnan að gæta, að loftþrýst- ingurinn í hjólbörðunum sé sá sem framleiðandi bílsins segir til um í hverju falli. Sú þjón- usta sem veitt er ókeypis á benzínstöðvunum er oft mjög af handahófi og afleiðingin oft sú, að allt of mikið loft er í hjólbörðunum. í þessu sem öðru er méðalvegurinn beztur. Of lítill loftþrýstingur er ó- heppilegur hvemig sem á er litið, þar sem hann hefur bæði í för með sér aukið slit á gúminu og þráðarívöfunum, auk þess sem þyngra er að stýra bílnum og hann lætur verr að stjóm í beygjum. Of mikill loftþrýstingur í börðun- um getur hins vegar vissulega dregið úr slitj á börðunum sjálfum, en gerir bílinn of hastan og styttir endingartíma hans, Stilling hjólanna er annað atriði sem skiptir máli í þessu sambandi. Framvagninn er þannig smíðaður, að hægt sé að aka beint áfram án þess að stýrið sé í stöðugri hreyfingu, að bíllinn sé léttur í stýri á beygjum og að stýrið „rétti sig af“ af sjálfu sér eftir beygjum- ar. Bílíinn verður einnig að vera stöðugur og láta vel að stjórn þegar hratt er ekið. Það er hin sérstáka afstaða hjól- anna og framásanna til vegar- flatarins, sem gerir þetta að verkum, hin svonefndu ,,cam- ber- og easterhom“ og „toe-in stilling" hjólanna. Annað atriði í síýrisútbúnað- inum er hin svonefnda „beygju- stilling" hjólanna. Þegar beygt er, fara framhjólin í misjafn- lega krappar beygjur. Innra hjólið verður að sveigjast lengra í beygjuáttina en það ytra, ef það á ekki að skríða til á veginum og verða með því móti fyrir óþarfa sliti. Framleiðendur bílanna segja til um hver beygjustilling hjól- anna á að vera og hún á ekki að breytast, nema einhver hluti útbúnaðarins hafi slitnað eða aflagazt. _____ Sama máli gegnir oftast um hin hjólhornin, „camber", „caster“ og „toe-in“, en þessi horn eru venjulega viðkvæm- ari fyrir höggum og óvenju- legu álagi, sérstaklega vegna breytinga á fjöðrunum, bæði að framan og aftan. Það er þess vegna g'óð regla, að láta athuga stillingu framhjólanna einu sinni á ári og leiðrétta hana, ef hún ekki í lagi, og það er einmitt heppilegt á þessum tíma árs. Að lokum skulu hér teknar upp leiðbeiningar úr Bókiniii um bílinn (Leiftur, 1952) um meðferð bílgúmsins: Eftirfarandi atriði ætti hver bílstjóri að festa sér í buga: 1. Athuga skal þrýstinginn í hjólbörðunum með hæfilegu millibili. Of lítill þrýstingur eykur erfiði barðans, sérstak- lega reynir á hann til hlið- anna, en þetta veldur hita, sem getur orsakað að lög barðans losna hvert frá öðru og barð- inn rifni. Of mikill þrýstingur gerir hreyfingar bílsins hastar og ó- þjálar. Barðarnir hoppa á veg- inum, en það veldur óeðlilegu sliti. 2. Ofhleðsla á bílnum hefur mjög slæm áhrif á hjólbarðana. Þekkt hjólbarðaverksmiðja seg- ir, að 100% yfirhleðsla hafi það í för með sér, að barðinn endist ekki nema fjórða hluta af þeirri vegalengd, sem hann ætti að geta enzt við eðlilegt álag. 3. Af eðlilegum ástæðum slitna þeir barðar mest, sem eru á hjólbörðunum, sem knýja bílinn áfram, en það eru venjulega afturhjólin. Vegna öryggis við aksturinn ber hins vegar að hafa sem bezta barða á framhjólunum. Eftir hverja 10.000 km, sem ekið er, ætti að færa barðana milli hjóla, þann- ig að framhjólabarðarnir komi á afturhjólin og öfugt. Þegar barðamir eru færðir þannig á milli, ætti ávallt að setja vinstri hjóls barða á hægra hjól og hægra hjóls barða á vinstra hjól. 4. Stilling framhjólanna verð- ur að vera alveg rétt. Slitni framhjólabarðarnir óeðlilega mikið eða kantar þeirra mis- jafnlega, er orsökina að finna í rangstilltum framhjólum. 5. Við hemlun slitnar gúmið mikið. Óþarflega snögga heml- un ætti því að varast. Ekki ætti heldur að aka hratt af stað. 6. Við akstur i kröppum beygjum reynir mikið á gúmið, sérstaklega ef ekið er hratt og bíllinn skríður til í beygjunni. 7. Á holóttum og ósléttuml vegi skal aka hægt. 8. Aldrei skal aka á loíth-.usu hjóli. 9. Leggið ekki bílnum svo nærri gangstétt, að hjólbarð- arnir núist við hana. 10. Verndið vel gúmið íyrir olíu og benzíni. Gætið þess, að olía sé ekki á gólfi bílskýlisíns. 11. Hiti og sólskin þurrkar hjólbarðann um of og veldur það sprungum á yfirborði hans, ber því að vernda hann gegia þessu eftir föngum. 12. Rispur og sprungur í yf- irborði hjólbarðans skal bæta svo fljótt sem þeirra verður vart. 13. Hraður og langur akstuB slítur hjólbörðunum mikið, sérstaklega ef heitt er í veðri. Hjólbarðaverksmiðjur segja, að 50 km/std. akstur slíti barð- anum tvöfalt á við 30 km/std*

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.