Þjóðviljinn - 07.06.1956, Page 10
gMBBseee!
10) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 7. júni 1956
Björn Sigtryggsson á Brain
Framhald af 6. síðu.
Form. héraðsnefndar Kreppu-
lánasjóðs í 1 ár. í stjórn Spari-
sjóðs K.Þ. mörg ár. f stjórn
Sjúkrahúss Húsavíkur nokkur
ár. Oddviti Reykdælahrepps í
16 ár. Gjaldkeri Húsmæðraskól-
ans að Laugum allmörg ár. í
stjórn búnaðarfélaganna og í
mörgum nefndum öðrum í
sveit og sýslu og iengi í stjórn
Framsóknarfélags Suðurþing-
eyjarsýslu. Af þessu má sjá'
hve mikið traust Björn á Brún
hafði og hversu hann var hlað-
inn störfum auk bústarfa.
Eg sem þetta rita var aðeins
8 ára þegar ég sá Bjöm fyrst
og vakti hann strax athygli
mína. Það er ekki heldur of-
sagt, að það var tekið eftir
Birni, það gerði hið karlmann-
lega og trausta útlit hans og
sú snyrtimennska sem ein-
kenndi alla hans framkomu,
sem einnig hlýtur að mark-
ast af hinum sálræna búskap.
Eg var eitt sinn á ferðalagi
með Birni, og vorum við fjórir
saman. Vorum við að fara með
sauðfé til niðurlags og fórum
hægt yfir. Veðrið var gott
þessa tvo daga og skapið var
eftir því, enda bar á góma sitt
ef hverju, meðal annars innan-
sveitarmál og almenn stjórn-
mál, og langt var frá því, að
við værum allir sammála. Og
á þessum tveimur dögum varð
ég þess vissulega var hve odd-
vitinn okkar, Bjöm, gat verið
gamansamur og léttur I lund,
og ég hef ekki haft skemmti-
legri ferðafélaga. Björn mun
hafa haldið sinni traustu lúnd
og karlmennsku til æviloka
þrátt fyrir áföllin, sem hann
varð fyrir að missa börn sín
þrjú í blóma lífsins og Elínu
konu sína, sinn trausta föru-
naut, þremur árum áður en
hann sjálfur kvaddi.
í þau 25 ár, sem ég var
sveitungi Björns á Brún kom
það alloft fyrir að ég sat fundi,
þar sem ég heyrði Björn leita
málum fylgis. Hann var ekki
hraðmælskur, en talaði skipu-
lega og fylgdi máli sínu vel
eftir hvort sem um var að
ræða sókn eða vörn. Þó mun
ekki örgrannt um, jafnvel í
hópi þeirra, er töldu sig já-
bræður hans á stjórnmálasvið-
inu, að þeim hafi þótt hann
nokkuð harður í horn að taka,
ef marka má skrif í „I’íman-
um“ nú nýverið. Að mínum
dómi var Björn mjög dreng-
lyndur maður sem ábyggilega
vildi ekki troða mannorð og
æru af nokkrum manni. Hitt
er það að hann barðist hart
fyrir því máli sem hann áleit
að ætti rétt á sér og var þá
sama hver í hlut átti. Björn
var frábitinn 'öilu því er kall-
ast undirferii og baktjalda-
makk. Og Björn var einn af
þeim, sem ekki vildi selja sjálf-
stæði lands vors.
Það kann ef til viil, ein-
hverjum að virðast, að bera í
bakkafuilan iækinn, að bæta
við það sem búið er að skrifa
um Björn, en ég hef mínar
ástæður fyrir því, þó ekki sé
nema að þakka góð kynni, góð-
ar viðtökur hjá þeim land-
námshjónum. Svo og fyrir auð-
sýnda ræktarsemi af Björns
hálfu í minn garð, ekki sízt
eftir að ég fór úr héraði. Einn-
ig er það engin goðgá, að ein-
íiver af yngri samtíðarmönnum
Björns úr Reykjadal minnist
hans einmitt nú, er hann hefur
haft ábýlaskipti, fiutt sig frá
Brún inn í bókles sögunnar.
Þetta og fleira varð til þess, að
ég fór fram á ritvöllinn..
Gísli T. Guðmuiulsson.
130verzlaniríFé-
lagi matvónikanp-
manna
Á aðalfundi Félags matvöru-
kaupmanna, sem haldinn var 30.
maí s.l., var stjórnin öll endur-
kosin, en hana skipa: Gústaf
Kristjánssoin formaður, Sigur-
liði Kristjánsson, Björn Jónsson,
Jónas Sigurðsson og Lúðvík
Þorgeirsson. í varastjórn eru
Einar Eyjólfsson, Kristján Jóns-
son og Pétur Kristjánsson. Aðal-
fuiltrúi í stjórn Sambands smá-
söluverzlana var endurkosinn
Kristján Jónsson og til vara
Sigurliði Kristjánsson.
Tíu verzlanir gengu í félag-
ið á árinu og eru nu 130 í fé-
laginu.
Í kosningunum í sumar ....
Opinber sfarfsmaður
Opinber stofnun óskar eftir röskum, glöggum
og reglusömum manni.
Stúdentspróf, verzlunarskólapróf eða hliðstæð
menntun nauðsynleg. Laun samkvæmt VIII. fl.
launalaga.
Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um nám
og fyrri störf afhendist í afgreiðslu blaðsins, merkt
„Opinber starfsmaður“.
Áskorun líðandi stundar
nefnist erindi sem
G. A. Lindsay
flytur í Aðventkirkjunni kl. 8.30 í kvöld.
Allir velkomnir
Framhald af 1. síðu.
ráðstafanir verða auðvitað í
sama anda, ef afturhaldsflokk-
arnir fá að ráða stefnunni.
Hvað myndu launþegar gera?
Setjum svo að gengið verði
lækkað um 30%. Það samsvar-
ar því að allt kaupverð á er-
lendum varningi hækkar um
42%, og innlendú vörurnar
munu hækka einnig sem því
nemur. Ef kaupið væri bundið
myndi slík ráðstöfun jafngilda
mjög verulegri kauplækkun.
Hvað myndu verkamenn gera ef
atvinnurekendur ákvæðu einn
góðan veðurdag að Iækka kaup-
Aðalfundur
Tmusfa, félags sendifell-
stjéra
Aðalfundur Trausta, félags
sendibílstjóra, var haldinn laug-
ardaginn 26. maí s.l. Formaður
flutti skýrslu stjórnarinnar, en
á árinu hafði verið unnið að
ýmsum hagsmunamálum félags-
manna, t. d. útvegun á innflutn-
ingsleyfum fyrir nýjum bifrefð-
um. Þá má geta þess að á sið-
asta Alþingi voru samþykkt lög
um að allar sendibifreiðar, sem
aka frá stöð, skuli hafa gjald-
mæla.
í stjóm voru kosnir Valdi-
mar Valdimarsson formaður,
Amar Guðmundsson gjaldkeri
og Jóhannes Brynjólfsson með-
stjórnandi. Fyrir í stjórninni
voru Sæmuiiduj Sigtryggsson
varáformaður og Sigurður Þorð-
arson ritari.
Gefst kostur að
kynnast þýzlimn
niöursuðuionaoi
Að tilhlutun menntamála-
ráðuneytisins hefur mennta-
máladeild Evrópuráðsins ný-
lega veitt styrk að fjárhæð
660 þúsund franskra franka,
til þess að greiða fyrir gagn-
kvæmum ferðum verka- og iðn-
aðarmanna miíli íslands og
einhvers annars aðildarríkis
Evrópuráðsins.
Samkomulag hefur verið gert
við ríkisstjórn Sambandslýð-
veldisins Þýzkalands um þessi
starfsmannaskipti og verða
þau með þeim hætti, að héðan
eiga kost á að fara, aúk far-
arstjóra, fjórir menn, sem
starfa við niðursuðuiðnað.
Munu þeir dvelja í Þýzkalandi
una hálfsmánaðar skeið. Þar
verða þeim sýndar niðursuðu-
verksmiðjur og kynntar ýmsar
nýjungar í niðursuðuiðnaði
Þýzkalands. Ennfremur verða
heimsóttar ýmsar stofnanir,
sem starfa í sambandi við
þýzka niðursuðuiðnaðinn, þ. á.
m. skólar.
Gert er ráð fyrir að héðan
verði farið síðari hluta júní-
mánaðar.
Þeir starfsmenn við niður-
suðuiðnað hér á landi, sem hug
hafa á þátttöku í þessari ferð,
skulu senda umsókn til mennta-
málaráðuneytisins fyrir 15. júní
næst komandi.
1 umsókn skal greina frá
fyrri störfum, starfsaldri og
reynslu við niðursuðustörf.
Meðmæli skulu fylgja ef til
eru.
(Frá menntamálaráðuneytinu)
ið beinlínis sem þessu nemiir,
spurði Hannibal Valdimarsson.
Þeir myndu auðvitað standa
hlið við hlið sem einn maður
og berjast þar til árás atvinnu-
rekenda væri brotin á bak aft-
úr, og þeir myndu njóta stuðn-
Sngs yfirgnæfandi meirihluta
þjóðarinnar. En þetta er það
sem um er kosið 24. júní í
sumar, og ]>að er enn sem fyrr
samstaða alþýðu manna um
kjarabaráttu sína sem ræður
úrslitum, hvað sem öllum skoð-
anaágreiningi líður. Eina leiðin
ti! sigurs er að efla þau sam-
tök sem stofnuð hafa verið fyr-
ir atbeina verkalýðssamtak-
anna, Alþýðubandalagið.
Litprentanir
Framhald af 1. síðu
til sýnis almenningi bráðlega.
í Nýju Helgaielli er nánar
skýrt i'rá fyrirkomulagi sölu á
litprentunum þessum: Af hverri
mynd verða aðeins prentuð 500
eintök til sölu hér innanlands,
og eru þau öll tölusett og árituð
af listamanninum sjálfum, Af
þessari tölu mun allt að helm-
ingur fara í skóla, opinber söfn
og einkafyrirtæki, sem skip'ti
eiga við erlenda menn, en ,250—■
300 myndir verða seldar ein-
staklingum. Verður sölufyrir-
komulágið þannig að mynöirnar
eru afgreiddar beint frá af-
greiðslu tímaritsins til kaupend-
anna, og getur enginn fengið
nema eitt eintak, og aðeins einn
maður í hverjum hreppi —, sá
sem fyrstur befur lagt inn pönt-
un. Þó verða allt að 5—10 éin-
tök seid í stærstu bæiná og
nokkru fleiri í Reykjavík.
Myndin sem fullprentuð hefur
verið er í sömu stærð og fram-
myndin, 60x75 sm og verða allar
myndirnar í svipaðri stærð.
Verð hverrar myndar er 400 kr.
án ramma.
Nýbakaðar kökur
með nýmöiuðu kaffi.
RÖÐULSBAR
Stuttkápur
Stuttjakkar
Hanzkar
Ný sending
MARKAÐURINN
Laugavegi 100.
Kápuefni — Dragtarefni
Kjólaefni — Hanzkar
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 11