Þjóðviljinn - 09.10.1956, Síða 9
RITSTJÓRI: FRtMANN HELGASON
*
Þriðjudagur 9. október 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (9
Fraiii
Hanstmótið:
Yíking 4r0
Vilhjálmur Einarsson setur
Norðurlandamet í þristökki
Hann stökk 15,83 metra á íþróttamóti
í Karlstad í Svíþ|óð sl. laugardag
Bezta afrek Islendings í frjálsum íþrótt-
um — 11. bezti árangur í þrístökki
Á sunnudaginn komu hing-
að til landsins nokkrir ís-
lenzkir frjálsíþróttamenn, sem
að undanförnu hafa kepp't
í Austur-Evrópu við ágætan
orðstír, þ.e.a.s. þeir sem
kepptu á minningarmótinu
um Rudolf Harbig í Dresden
og Vilhjálmur Einarsson, sem
tók þátt í alþjóðlegu móti í
Búkarest ásamt Hilmari Þor-
bjömssyni en fór síðan til
Svíþjóðar.
Þegar þeir félagar stigu
úr flugvélinni höfðu þeir þær
fréttir að færa, að Vilhjálm
ur hefði unnið það einstæða
afrek á íþróttamóti í Karl-
stad í Svíþjóð s.l. laugardag
að stökkva 15.83 níetra í þrí-
stökki og setja þar með nýtt
Norðurlandamet. Vilhjálmur
átti sem kunnugt er fyrra
íslenzka metið í þrístökki;
var það 15,32 og sett í. Búka-
rest fyrir skömmu. Eldra
Norðurlandametið var 15,79,
sett af Finna fyrr í sumar.
Vilhjálmur stökk aðeins
tvisvar á mótinu í Karístad
og náði þessum frábæra ár-
angri í fyrstu tilraun. Upp-
hafsstökk lians var 6,05 m,
miðskrefið 4,50 m og loka-
stökkið 5,28 m. Síðar stökk
hann 15,37 metra, sem einn-
ig er betra en gamla met
hans.
Árangur Vilhjálms Einars-
sonar í þrístökki er bezta af-
rek sem íslendingur hefur
iiökkru sinni unnið í frjáls-
naiiuuuiiHavKOMavRaiaiHUMWHaH""*"1
Engtnn lands-
leikur við
Bandaríkifl
íslenzka landsliðið í knatt-
spyrnu flaug til Bandaríkj-
anna sl. föstudag og í fyrra-
dag háði það fyrsta kapp-
leik sinn í Fíladelfíu, lék
þá gegn bandarísku meist-
urunum (atvinnuliði). Úr-
slit urðu þau að jafntefli
varð, 3 mörk gegn 3. Þeir
sem skoruðu fyrir íslenzka
liðið voru Þórður Þórðar-
son, Sígurður Bergsson og
Ríkarður Jónsson.
Bandaríkjamenn munu ekki
hafa fallizt á að fram færi
opinber landsleikur í knatt-
spyrnu milli landanna að
þessu sinni, en næst leika
íslendingarnir í Boston á
morgun eða fimmtudag.
um íþróttum. Samkvæmt
stigateflunni gefur met hans
1179 stig, kringlukast Þor-
steins Löve (54,28 m) gefur
1142 stig, 100 m hlaup Finn-
bjorns Þorvaldssonar, Hauks
Cláusen, Ásmundar Bjarna
sonar og Hilmars Þorbjöms-
sonar (10,5 sek.) gefur 1129
stig, kúluvarp Gunnars
Huseby (16,74 m) gefur
1106 stig, 1500 metra hlaup
hann þátt í langstökkskeppni
í Bofors og Halstadhamn i
Svíþjóð. Á fyrri staðnum
stökk hann 7,08 m, en á
þeim síðari 6,94. í keppni í
Gautaborg stökk hann 6,92
metra og sigraði þá m.a.
Svíann Bengt Johannson,
sem lengst hefur stokkið
17,15 metra.
Strax þegar Valur og Þróttur
höfðu lokið leik sínum, átti leik-
ur Fram og Víkings að hefjast,
en þegar til átti að taka vildi
svo til að sami dómari átti að
dæma báða leikina þennan dag.
Þeir aðilar sem eiga um þetta
að sjá höfðu ekki fylgzt betur
með en þetta, og nú voru komnir
22 leikmenn auk varamanna til
að hefja leik, en þar sem dómar-
inn var ekki tiltækur leit út
fyrir að þeir yrðu að fara heim
við svo búið. Eftir nokkra stund
fannst maður sem tók að sér
að dæma. Þetta er ein sagan
um dómaramálin eins og þau eru
í dag.
Þessi leikur var ekki eins
spennandi og fyrri leikur-
inn, og stafar það af því að
Framarar höfðu leikinn alltaf
meira í hendi sinni og áttu auð-
veldara með að skapa sér tæki-
færi til að skora. Þeir gerðu
líka tvö mörk í hvorum hálfleik,
og áttu nokkur önnur sæmileg
tækifæri sem ýmist voru mis-
Haustmótið:
Þróttur og Valur skíldu jöín 1:1
í meistaraflokki
á sunnudaginn.
Vilhjálmur Einarsson
Svavars Markússonar (3.51,2
mín.) gefur 1080 stig.
En afrek Vilhjálms er ekki
einungis bezta afrek íslenzks
frjálsíþróttamanns, heldur
einnig 11. bezti árangur sem
náðst hefur í heiminum í
þrístökki frá upphafi og 4.
bezta afrek Evrópubúa. A
þessu ári hafa aðeins fimm
menn í öllum heiminum
stokldð lengra en Vilhjálm-
ur, þe. Tsérbakoff frá Sov-
étríkjunum 16,46, Da Silva
Brasiiíu 16,21, Kreel Sovét-
ríkjunum 15,91, Kogaghe
Japan 15,88 og Tsén Sovét-
ríkjunum 15,87.
Enn má geta þess, að
15,83 metrar í þrístökki jafn-
gikla samkvæmt stigatöfl-
unni því að stokkið sé í
langstökld 7,94 metrar og á
stölng 4,63 metrar, 100 metr-
arnir hlaupnir á 10,4 sek,
200 metrarnír á 20,8 og 400
metrarnir 46,5 sek. og kúl-
unni varpað 17,18 metra.
Áður en Vilhjálmur Ein-
arsson keppti í Karlstad tók
rrr> NNvruAaoM r >
rTr* GTGT&min 'rrf
Haustmótið
hélt áfram
Kepptu þá fslandsmeistaramir
og Þróttur, og skildu liðin jöfn
eftir nokkuð jafnan leik. Lið
Vals varð að leika án þess að
hafa sterkasta ljð sitt þar sem
fjórir varnarmenn þeirra voru
meðal þeirra sem fóru til Banda-
ríkjanna í s.l. viku. Þó Valur
aigi góða varamenn þá má gera
ráð fyrir að fjarvera þeirra
iandsliðsmanna hafi haft veikj-
andi áhrif á liðið í heild,. og
svo gat farið að Þróttur ynni
'eik þennan. Liggur næst að á-
líta að jafntefli hafi verið sann-
gjörn úrslit eftir marktækifær-
um.
Valsmenn náðu ekki þeim tök-
um á lelknum sem ætlast mætti
til af svo leikvönum mönnum
leikur þeirra var of stórbrotinn
og langspyrnur notaðar í tíma
og ótíma, og ef til vill er það
óstæðan fyrir því að þeim gekk
svo illa að sameinast um góðan
og jákvæðan samleik.
Vera má að lið Þróttar hafi
komið þeim nokkuð á óvart, því
til ,að byrja með áttu Þróttarar
meira í leiknum og voru nær-
göngulir við mark Vals. Og þeg:
ar á 5. mín. á Þróttur fyrsta
tækifærið til að skora, en Guð-
mundur Axelsson er ekkert að
flýta sér og verður of seinn að
skjóta.
Á 13. mín er það Þróttur sem
skorar fyrsta markið í leiknum,
og var það vinstri útherjinn,
Ólnfur Gíslason, sem skoraði
af stuttu færi og óverjandi fyr-
ir Svein í markinu.
Rétt áður hafði vörnin truflazt
nokkuð og onnazt, og notaði Ól-
afur þá tækifærið.
Þetta setti dálítið líf í Vals-
menn, sem gerðu nú áhlaup við
og við, en Þróttarmenn gáfu sig
ekki og á 26. mín skora þeir
annað mark sitt. Var það nokk-
uð vel undirbúið og kom eftir
að þrír menn höfðu sent knött-
inn á miili sín án þess að stöðva
hann og lóna með hann eins og
knattspyrnumenn hér vilja alltaf
gera, og eyða dýrmætum tíma.
Bill sendir út til Ólafs, sem
sparkar strax fyrir markið til
Guðmundar Axelssonar, sem
tekst að skora.
Valsmenn taka nú að skjóta
meira en áður, en allt kemur
fyrir ekki. Ægir á gott skot af
löngu færi, en það fer rétt utan
við stöng. Nokkru síðar átti Sig-
urður mjög góðan skalla á mark
Þróttar en Alexander varði vel.
Hálfri mín. fyrir leikhlé kem-
ur löng sending frá Val fram
völlinn, markmaðurinn hleypur
fram, en nær ekki að handsama
knöttinn sem hrökk til Ægis.
Hann spyrnir á markið, og kem-
ur knötturinn innaná stöng jpg
í netið. Þannig lauk hálfleiknum
fyrri.
Snemma í síðari hálfleik er
dæmt hom á Þrótt, og spyrnir
Gunnar Gunnarsson vel fyrir
markið til Sigurðar sem vörn
Þróttar lætur standa frían, og
hnitmiðar hann rólega skalla í
mark, — mjög vel gert. Örlaga-
ríkt fyrir hægri bakvörðinn að
gleyma sér svo sem þarna átti
sér stað.
Fieiri mörk voru ekki skoruð.
Valsmenn voru heldur ágengari
við mark Þróttar í síðari hálf-
leik og áttu nokkur skot að
marki Þróttar, en flest voru þau
of há og ónákvæm.
Síðasta tækifærið í leiknum
átti Þróttur. Jón Magnússon
er kominn inn fyrir til hliðar
við markið. Sveinn gerir rétt í
því að hlaupa út og tekst að
verja.
Bezti maður varnar Vals var
Magnús Snæbjörnsson, en of
stórbrotinn í spyrnum og stund-
um of óvæginn og harður í ná-
vígi, en hann var miðframvörð-
ur. Sigurður Ólafsson var vinstri
bakvörður og var undraöruggur
í spyrnum og staðsetningum.
Framlínan í heild er hin veika
hlið Valsliðsins í dag. Björgvin
er eini maðurinn með baráttu-
þreki, en stu.ndum full harður.
Gunnar Gunnarsson er ekki eins
góður og oft áður, af hverju sem
það stafar.
Framhald á 10. síðu
notuð eða Ólafur bjargaði og
það stundum með mikilli prýði.
Fyrsta markið fékk Fram þó
ódýrt þar sem varnarmaður Vík-
ings ætlar að skalla til mark-
manns, en hann er þá farinn út
til að hirða knöttinn, og fer
hann yfir Ólaf og í markið.
Næsta mark skoraði Dagbjartur
með þrumuskoti af stuttu færi
sem ómögulegt var að bjarga.
Þriðja markið gerði Guðmundur
Óskarsson með þrumuskoti sem
strauk stöngina innanverða og
í netið. Halldór Lúðvíksson skor-
aði síðasta markið.
Leikurinn var ekki eins ójafn
eins og mörkin benda til. Vörn
Víkings var oft nokkuð virk
og einstaklingar hennar dug-
legir, en þó henni tækist að
hreinsa frá markinu kom knött-
urinn alltaf- fljótt aftur. Varð
hún þar að gjalda þess að fram-
línan var ekki samtaka, og þeim
tókst illa að halda knettinum
og að vinna jákvætt með hann.
Þrír þeirra eru nýliðar, og því
varla von að þeir sleppi við
byrjunarörðugleika.
Gissur var ekki eins ágengur
og sækinn og hann hefur oft ver-
ið í leikjum, og var ekki sá leið-
togi sem hann hefði þurft að
vera. Björn Kristjánsson var
duglegur, en hann heldur knett-
inum of lengi og á til að spyrna
út í loftið án þess að hugsa.
Ef Björn tæki leikinn með meiri
alvöru en hann gerir mundi
hann hækka mjög í gengi sem
knattspyrnumaður, en í honum
hefur alltaf verið góður efni-
viður.
f heild hefur Víkingsliðinu
farið aftur síðan í vor, og er
það slæmt, en einmitt nú er
nauðsyn að berjast fjrrir til-
veru sinni.
Þrátt fyrir yfirburði Rram
var leikur þeirra of sundurlaus
miðað við þá mótstöðu sem
þeir höfðu. Margir þeirra ráða
yfir það mikilli leikni að þeir
ættu að geta verið nákvæmari
í sendingum en Þeir voru. Svo
er galli á leik þeirra, og er það
raunar sameiginlegt með flesta
knattspyrnumenn hér: hvað þeir
vilja halda knettinum á lofti og
jafnvel stutt sending er látin
fara loftleiðis sem gerir þeim
sem við tekur miklu erfiðara
fyrir að hemja knöttinn og er
beinlínis til þess að tefja leik-
inn. Þetta ættu hinir ungu
Framarar að taka til íhugunar.
Liðið rheild er jafnt. Aftasta
vömin er örugg, og Steinn virð-
ist lofa góðu sem miðvörður.
Reynir lék ekki með að þessu
sinni. Halldór Lúðvíksson lék
í hans stað. Framlína Framar-
anna gerði margt laglega, en
hún á eftir að slípast og falla
betur saman, þeir eru ekki enn
búnir að finna verulega . lagið
á því að opna vörn mótherj-
anna.
Einar og Guðmundur Óskars-
son voru beztu menn framlín-
unnar, og munar þó litlu. Björg-
vin kann sýnilega ekki eins ve)
við sig sem útherji og miðherji.
Eftir þennan leik hefur Fram
5 st. og á eftir einn leik, við Val.
Þróttur hefur 5 st. og hefur leik-
ið alla leiki sína. Valur hefur 3
st., en á eftir að leika við Fram
og Víking. KR hefur 3 st., og
hefur leikið alla leiki sína. Vík-
ingur hefur ekkert stig, en á é-
leikið við Val.