Þjóðviljinn - 16.11.1956, Qupperneq 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 16. nóvember 1936
tlIÓÐVlLIINN
Útgejandi:
Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokkurinn
Brezka löndunarbannið og
blámið í hnappagatinu
| T>rezka auðvaldið er að af-
■*-' nema löndunarbannið og
! gefast unp í árásarstríði sínu
i Við íslendinga, en það reynir
! að dylja opinberan ósigur
1 Binn og vissir islenzkir aðilar
reyna að hjálpa því til þess.
! Það er nauðsynlegt að r»fja
' upp sögu þessarar árásar
! forezks auðvalds, hinna riku
! Eamtaka brezkra togaraeig-
I enda sérstaklega á oss Is-
! íendinga og réttindi vor til
! Þess að ráða málum vorum
• ejálfir.
I lýegar Islendingar færðu út
I » friðunartakmörkin, hóf-
! ust hinir brezku auðmenn
I ihanda, settu á löndunarbann-
! ið og hugðust þannig koma
! Islendingum á kné og venja
I oss af öllu sjálfstæðisbrölti í
1 friðunar- og landhelgismálinu.
! Brezka stórveldið, margfaldur
1 „bandamaður" Islands, hélt
auðsjáanlega að það gæti
beygt Islendinga rétt eins og
um Kenya, Kýpur eða aðra
nýlendu væri að ræða.
TT'n vopnin snerust í hendi
þess. Það, sem brezkt
auðvald ætlaði að gera oss illt,
snerist oss til góðs.
íslcndingar öfluðu sér mark-
aða fyrir unninn fisk í öðr-
um löndum, fyrst og fremst
í Sovétríkjunum, uku við það
atvinnuna hér heima og gjald-
eyr’stekjur þjóðarinnar. Lönd-
unsrbánn Breta varð Islend-
ing-’.m mjög hagstætt og mátti
oss því nú í léttu rúmi liggja
hvort þeir kysu að afnema
það eða ekki.
i"kg brátt kom að því að
hagsmunir brezkra fisk-
ney^enda knúðu svo á að
bre;:ka auðvaldið sá sitt ó-
vænna og vildi gefast upp í á-
rásnrstríði sínu við Islend-
inga. En það þurfti að fá eitt-
hvert blóm í hnappagatið, svo
hið volduga brezka stórveldi
stæði ekki frammi fyrir heim-
inum bert að hvorutveggja:
því ranglæti, að hafa ætlað
að kúga íslendinga, og þeirri
smán, að hafa ekki með öllu
eínu banni tekizt að brjóta
þesrsa litlu þjóð á bak aftur.
I rphorsararnir og þeir togara-
eigendur, sem áhuga hafa,
af annarlegum ástæðum, fyrir
stniklu.m löndunum í Bretlandi
og lítilli atvinnu á Islandi,
hafa staðið í sífelldu makki
við Breta, — og m.a. um það
aá fórna íslenzkum réttindum
og þjóðarhagsmunum fyrir
sérhagsmuni þeirra og
brezkra auðfélaga.
Eftír kosningarnar í sumar
og myndun vinstri stjórnar,
runnu allar vonir út í sand-
inn um slíka fórn íslenzkra
réttinda.
1 ÍBretar sáu að þeir áttu einsk-
! Ss annars kostar en gefast upp
! ef þeir vildu fá fisk frá Is-
’ landi — og efasamt að þeir
fengju hann samt. Það var
§jví aðeins um það að ræða
fyrir þá að reyna að fá blóm
í hnappagatið, til þess að
verða sér ekki til skammar
frammi fyrir öllum heimi.
Fveir fengu blómið: „samn-
* ing“ við togaraeigendur,
sem ekkert gildi hefur, frek-
ar en íslenzk stjórnarvöld
vilja, og orðsendingu frá Guð-
mundi I., sem óþarfi var að
senda þeim en megna í engu að
hindra oss íslendinga í að
gera það, sem vér vorum og
erum staðráðnir í að gera í
friðunarmálinu, einu þýðing-
armestá hagsmuna- og sjálf-
stæðismáli þjóðarinnar.
A ðstaða brezkra togaraeig-
enda í árásarstríði þeirra
við íslendinga var svo ill orð-
in að þeim var nauðugur einn
kostur að gefast upp og þeir
áttu að fá að gera það skil-
yrðislaust. Svo illur var þeirra
málstaður, svo ljótur þeirra
rógur, er þeir sökuðu Islend
inga um að valda bana
brezkra sjómanna.
Nú munu brezkir togara-
eigendur reyna að slíta úr
samhengi og rangfæra ýmsar
setningar úr bréfi Guðmundar
I. og yfirlýsingu Hans Ander-
sen, til að sýnast miklir menn
og sigurvegarar heima fyrir,
þótt þeir hafi reynzt litlir
karlar og ósigursælir í viður-
eigninni við íslendinga.
170 íslenzka þjóðin og ríkis-
*-J stjórn hennar mun fara
sínu fram í þessu lífshags-
munamáli hennar án þess að
spyrja Iiið brezka auðvald,
sem orðið hefur nú bert að
fjandskap og vanmætti gagn-
vart oss fslendingum.
íslenzka þjóðin hefur kraf-
izt þess í síðustu kosningum
að friðunarlínan verði færð út,
til þess að tryggja iíf og af-
komu fólks um land allt. Um
ekkert mál voru menn svo
sammála í síðustu kosningum
sem eimnitt þetta. OG ÞETTA
VERÐUR GERT, OG ÞAÐ
SKJÓTT, Á ÞEIM TÍMA, SEM
RÍKISSTJÓRNIN HAFÐI
FYRIRHUGAÐ. Það verður
gert samkvæmt vifja þjóðar-
innar til þess að tryggja lífs-
hagsmuni hennar, og gert hik-
laust og óafturkallanlega.
Tltfærsla friðunarlínunnar er
ótvíræður vilji þjóðarinnar, og
réttur hennar, og í því sjálf-
stæðismáli verður ekki vildð.
Ijjóð vor stendur einhuga í
*■ þessari sjálfstæðisbaráttu
sinni og brezku togaraauð-
valdi þýðir ekkert að reyna
að brjóta hana á bak aftur
með nýju löndunarbanni. Það
er brezkum togaraeigendum
bezt að gera sér Ijóst, þegar
þeir nú hafa beðið algeran
ósigur í löndunarbannsárás
sinni á fslendinga, en fá lítið
blóm í hnappagatið til að
hugga sig við heima fyrir í
hneisu sinni.
Ragnheiður E. Möller:
Ánægjulegt húsmæirakvöld S.I.S.
Sýnihenmsla og hrihmtgndasípting
í Tjarnarbíói á morgun
Samband íslenzkra samvinnu-
félaga bauð s.l. þriðjudagskvöld
formönnum allra kvenfélaga í
Reykjavik til húsmæðrakvölds,
í vistlegum húsakynnum sam-
bandsins. Forstjóri sambands-
ins Erlendur Einarsson, bauð
gesti velkomna og sagði meðal
annars:
„Á liðnum árum hafa sam-
vinnufélögin víða um heim tai-
ið það eitt af hlutverkum sín-
um að sinna sérstaklega áhuga-
málum húsmæðranna. Húsmæð-
urnar hafa líka mikilla hags-
muna að gæta í sambandi við
verzlunina, þar sem það kemur
oftast í þeirra hlut að gera inn-
kaup fyrir heimilin, matbúa og
velja og sauma fatnað á fjöi-
skylduna. Það er ekki óeðlilegt
að húsmæðurnar vilji hafa ein-
hverja hönd í bagga með því,
hvaða vörur eru á boðstólum í
verzlunum. Allir geta samein-
ast um þær óskir, að á boðstól-
um séu góðar vörur og að sjáif-
sögðu sem ódýrastar.
Hér eiga allir neytendur hags-
muna að gæta og fyrir þann
sérstaklega, sem hefur úr litiu
að spila, getur það haft ómet-
anlega þýðingu að heimilis-
innkaupin geti verið hagkvæm.
Það hefur lengi verið eitt af
hugðarefnum Sambands ísl.
samvinnufélaga að geta fetað
í fótspor nágranna okkar og
óskir um það hafa oftar en
einu sinni verið bomar fram
af kvenfulltrúum, sem sæti
hafa átt á Aðalfundi Sambands-
ins.
Þegar við ákváðum að gera
þessa tilraun með húsmæðra-
fræðslu töldum við rétt að at-
huguðu máli að fá aðstoð frá
sænskum samvinnumönnum,
sem á þessu sviði eru komnir
lengra en flestir aðrir. Þegar ég
var í Stokkhólmi í september-
mánuði átti ég viðræður Við
sænska sambandið um mögu-
leika á því, að fá hingað til
lands einhvern, sem gæti leið-
beint okkur í þessu efni. Þessi
málaleitun fékk mjög góðár
undirtektir og var ákveðið, að
forstöðukona við tilraunaeldhús
sambandsina, frú Anna-Britt
Agnsater kæmi hingað heim
og leiðbeindi okkur í þessu
starfi. Tilraunaeldhús sænska
sambantlsins er einn liður í
fræðslu og upplýsingastarfsemi
sænsku samvitmufélaganna
fyrir neytendur. Tilraunaeld-
húsið fæst aðallega við rann-
*
sóknir á matvælum, gerir til-
raunir með matartilbúning, en
auk þess eru þar reynd ýms
búsáhöld og heimilistæki. Nið-
urstöður tilrauna þessara og
rannsókna, sem margar eru
mjög merkilegar eru svo birt-
ar húsmæðrum í sérstöku tíma-
riti, auk þess sem haldnir
hafa verið fundir og sýni-
kennsla farið fram.
Bauð forstjóri síðan gesti vei-
komna og óskaði þess að þetta
fyrsta húsmæðrakvöld mætti
verða vísir að meira starfi á
þessu sviði í framtíðinni. Þá
var sýnd kvikmynd um ná-
kvæmni í matargerð og jafn-
framt mælingatæki sem Svíar
nota mikið við matreiðslu. Þá
talaði frú Anna-Britt Agnsat-
er, forstöðukona tilraunaeld-
húss KF í Stokkhólmi. Hún tal-
aði um næringargildi síldar,
um þessar mundir stæðu yfir
miklar umræður í dagblöðum
á Norðurlöndum um fituneyzlu
og þessi óhóflega fituneyzla
væri álitin orsaka kölkun í
stórum stíl; hinsvegar væri fita
síldarinnar mjög holl og auð-
meltanleg, því hún væri sem
kallað er ómettuð.
Svíar neyttu ekki eingöngu
síldar frá íslandi, heldur einnig
frá Noregi og sjáifir veiddu
Svíar líka síld heima fyrir, en
íslenzka síldin væri mjög eftir-
sótt vara í Svíþjóð og þegar
byrjað væri að selja hana á
haustin mætti oft sjá langar
biðraðir við búðirnar.
Þá ræddi hún hvernig
hreinsa ,ætti síldina og taldi að
til þess að gera hana að lysti-
legri fæðu þyrfti að ná öllum
beinum úr herini, Kryddið væri
mjög mikilsverður liður í mat-
reiðslu síldarinnar og það
skipti öll umáli að það væri 1.
flokks, og fylgt væri uppskrift
um það atriði svo sem frekast
væri unnt. Útvötnun síld-
arinnar væri mjög mikilsvert
atriði, að hún væri mátulega
sölt. Nægilegt mundi að af-
vatna hana einn sólárhring. Þá
talaði hún um að ýms smáá-
höld væru mikilvæg fyrir nú-
tímaheimilishald. Meira mætti
vinna á heimilum með einum
góðum búrhníf, en. smærri
vélaáhöldum sem venjulegast
eru þá ekki nema fyrir eitt-
hvert eitt verk ætluð. Fundar-
gestir höfðu fengið í hendur
smá bækling með uppskriftum
af sænskum síldarréttum frá
tilraunaeldhúsi K, F.
Þá hófst sýnikennslan og
sýndi forstöðukonan síld mat-
reidda með ýmsu móti, eftir
forskriftum bæklingsins, og
fylgdust konumar af áhuga
með matartilbúningnum. Meðan
frúin og aðstoðarmaður henn-
ar önnuðust fx-ekari undir-
búning frammi við til að
geta gefið öllum kost á að
smakka réttina var sýnd afar
falleg mynd um frystingu mat-
væla sem sænska samvinnu-
sambandið hefur látið gera.
Hverjum rennur ekki tií'rifja
hve illa við stöndum okkur hér
heima á matvælamarkaðinum,
þegar við sjáum þær dásam-
legu vörur sem renna fratnhjá
okkur á léreftinu. Margskonar
fiskur, ekki óhreinn og slepj-
ugur eins og oft hér í búðum.
heldur glænýr og unninn og
pakkaður með það fyrir augurn
að gera alla matreiðslu sem
auðveldasta og fullkomnasta á
hvaða tíma árs sem er.. Alls
konar grænmeti sem hraðfrysfc
er og pakkað á þann hátt að
vítamíninnihald þess megi hald-
ast sem bezt.
Við sjáum ánægðar húsmæð-
ur að starfi á léreftinu, mat-
vælaástand í Svíþjóð og mat-
væladreifingu er líka allt öðru-
vísi háttað þar en hér.
Anna-Britt Agnsáter sýnir
okkur nú hina girnilegu rétti
og býður viðstöddum að bragða.
Eg vil færa fram þakklæti tii
forstjóra Sambandsins og
Fræðsludeildar SÍS fyrir þetta
fróðlega og ánægjulega kvöld,
og ég veit að mörgum okkar
hefur verið það í huga, að
fyrr en varði mundi ef til vill
sá mikli sköpunarmáttur sem
samvinnuhreyfingin í landinu
býr yfir geta lyft því grettis-
taki að stórbæta matvælafram-
leiðsluna og sníða hana jafnan
eftir nútímakröfum.
Á laugardaginn kemur efnir
Samband íslenzkra samvinnufé-
laga til sýnikennslu í Tjarnar-
bíó kl. 2,30. Forstöðukona til-
raunaeldhúss sænsku sam-
vinnufélaganna í Stokkhólmi
frú Anna-Britt Agnsáter mun
sýna matreiðslu ýmsra síldar-
rétta. Jafnframt fá konur ó-
keypis prentaðan bækling með
uppskriftunum.. Þá verða sýnd-
ar tvær matreiðslukvikmyndir
afar fróðlegar, og fjallar önn-
ur um meðferð og hraðfryst-
ingu ýmiskonar matvæla og
jafnframt matreiðslu. Myndin
er afbragðsvel tekin og í fögr-
um litum. Reykvískar húsmæð-
ur ættu ekki að láta þessa
fræðslu ganga sér úr greipum,
heldur fjölmenna í Tjarnarbíó
á laugardaginn.
Ragnheiður E. Möller,
Konurnar sem SÍS bauð á húsmœðrakvöldið bragða á
síldarréttunum.