Þjóðviljinn - 08.12.1956, Síða 1
T)
Iimi í blaðinu:
H ernámssamningarnir,
leiðari. 6. SÍÐA
Atlanzliafsbandalag allt
aö Indlandshafi.
7. SÍÐA
Bandarísha herstjórnin reiknar með að hún
íái að dveljast hér langt íram yíir 1968!
Ætlur nt.a• nð tryggjn það með því uð bjjóða efnahags^aðstoð^
sem greidtl verði með tehjum af hernámsframhvæmdum
Elnda þótt hinir opinberu hernámssamningar séu nægilega
alvarlegir virðast jafnhliða þeim hafa gerzt atburðir sem eru
ennþá ískyggilegri:
1) í sambandi viö hernámssamningana hefur Banda-
ríkjastjórn boðið íslendingum 160 milljón króna lán til
Sogsvirkjunar, eins og skýrt var frá i blaðinu í gær —
og er ætlunin að íslendingar greiöi það meö hernáms-1
vinnu. Ekkert slíkt tilboð var komið áður en samið var 1
um hernámið, en eftir að samningar eru gerðir eykst ]
allt í einu ,,örlæti“ bandarískra stjómarvalda.
2) Jafnhliða þessu lánstilboði fer herstjórnin á Kefla-
víkurflugvelli fram á aö fá allt að 6.000 árskílóvött til
herstöðvarinnar frá hinni nýju virkjun eftir árið 1960
— eða rúman fjórða hluta af orkumagninu. Sú beiðni
sannar að herstjórnin reiknar með því að frestunin á
endurskoðun hernámssamningsins muni standa árum
saman — a.m.k. langt fram yfir 1960 — og sú áœtlun
hlýtur að byggjast á ákveðnum forsendum.
Eins og Þjóðviljinn hefur áð-
ur skýrt frá birti bandaríska
stórblaðið New York Times
frétt um nýju samningana,
rétt eftir að umræðum lauk.
Auk þeirra atriða sem nú hafa
verið birt opinberlega skýrði
blaðið svo frá að Bandaríkja-
stjórn ætlaði á nýjan leik að
hefja stórframkvæmdir í Kefla-
vík og Njarðvík og myndi veita
Islendingum umtalsverða efna-
Bandaríkjastjom tekur
mljarð dollara lán
Skortir fé til að bjarga Bretum og Frökk-
um úr kröggum eftir stríðsævintýrið
Bandaríska stjórnin hefur ákveðið að taka milljarð
dollara (16,000,000,000 króna) lán innan lands og er tal-
ið að ætlun hennar sé að verja fénu- til að standa undir
ýmsum kostnaði, sem stafar af styrjaldarævintýri Breta
og Frakka í Egyptalandi.
Með þessari lántöku komast
rikisskuldir Bandaríkjanna, sem
eru þegar hátt á þriðja hundr-
að milljarð dollara, nærri því
upp í það hámark sem Banda-
ríkjaþing heífur sett.
Ástæðan til lántökunnar er
sögð sú, að bæði skorti ríkis-
sjóðinn nú nokkurt reiðufé, en
auk þess vilji stjórnin eiga fé
í sjóði vegna þeirra útgjalda
Prófessorar fá
aftur embætti
Allmargir kennarar við
pólska háskóla sem vikið hefur
verið úr embættum fyrir ýms-
ar sakir á undanförnum árum
hafa nú fengið embætti sín aft-
ur, að því pólska fréttastofan
PAP skýrir frá. Eru til dæmis
nefndir fimm prófessorar við
háskólann í Poznan.
Utanríkisverzlunarráðherra
Póllands, Dabrowski, hefur lát-
ið af embætti, en við tekur
Trampcynski, sem verið hefur
forseti bankastjórnar pólska
þjóðbankans.
sem hún býst við að verða fyr-
ir vegna afleiðinga stríðs Breta
og Frakka á hendur Egyptum.
Er þar m.a. um að ræða vax-
andi útgjöld Bandaríkjanna ef
Bretland segir skilið við Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn vegna
örðugleika sinna og einnig ef
bandaríska stjórnin verður við
beiðni brezku stjórnarinnar um
að láta niður falla greiðslur
á vöxtum af brezkum dollara-
lánum.
Gera sér vonir um aðstoð.
Ræða, sem Nixon, varafor-
seti Bandaríkjanna, hélt í
fyrradag hefur vakið vonir
Breta um að Bandaríkin muni
ekki láta þá sigla sinn sjó.
Nixon sagði í ræðu sinni að
það væri í þágu Bandaríkjanna
sjálfra að aðstoða Breta nú.
Sumir telja að Bandaríkja-
stjórn hafi í hyggju að koma
af stað jafnumfangsmikilli
hjálparstarfsemi og „marshall-
aðstoðin" var á sínum tíma,
en aðrir halda, að Bandaríkja-
þing muni aldrei samþykkja að
aðstoð verði veitt með sama
fyrirkomulagi og þá var gert.
hagsaðstoð; — auk þess hafði
blaðið skýrt frá því áður að
Bandaríkjastjóm hefði farið
fram á að herinn fengi að
dveljast hér í 10 ár enn. Guð-
mundur I Guðmundsson utan-
ríkisráðherra hefur hins vegar
skýrt svo frá að ekkert slíkt
hafi borið á góma í umræðun-
um.
Staðreyndir.
Þannig standa ummæli gegn
ummælum, en reynslan er þeg-
ar farin að skera úr um hvað
rétt er. Það er staðreynd að
Bandaríkin hafa samning um
stórframkvæmdir í Keflavík og
Njarðvík, gerðan við fyrrver-
andi ríkisstjórn, og í hinum
nýju erindaskiptum er ekki orð
sem kemur í veg fyrir að sá
samningur verði framkvæmdur.
Það er einnig staðreynd að
Bandaríkin eru þegar búin að
bjóða Islendingum efnahags-
,,aðstoð“ í sambandi við hina
nýju samningsgerð. Og í þriðja
lagi er það staðreynd að
bandaríska herstjómin reiknar
með því að fá að hagnýta her-
stöðina í Keflavík iangt fram
yfir 1960.
Hvernig á að borga?
Islendingar þekkja það mæta-
vel hvernig Bandaríkin reyna
að fjötra Islendinga efnahags-
lega til þess að koma hernáms-
fyrirætlunum sínum í fram-
kvæmd. Viðskiptum Islendinga
og Bandaríkjamanna er þannig
háttað að lán eru ákjósanleg
aðferð til að binda Islendinga.
Hvernig eiga Islendingar að
fara að því að greiða 160 millj.
króna lán í Bandarík junum ?
Viðskiptum er þannig háttað
að árlega er ca. 100 millj. kr.
halli á þeim; svo treg hafa
Bandaríkin verið til að kaupa
afurðir okkar. Þessi halli hefur
verið jafnaður með tekjunum
ar Keflavíkurflugvelli. Hugsa
þeir menn, sem nú hafa rætt
um lántökur við Bandaríkin,
sér ef til vili að þannig skuli
lialdið áfram, að einnig þetta
nýja lán skuli greitt með tekj-
uin af hernámsframkvæmdum
um langt árabil? Eða hvernig
hugsa þeir sér að Islendingar
eigi að fara að því að standa
í skilum ? Enginn efi er á því
að Bandaríkin hugsa sér slík
viðskipti.
Sé það ekki hægt............
Það er íslendingum lífsnauð-
syn að fá erlend lán. Þjóðia
skuldar mjög lítið og hefur
alltaf getað staðið við allar
Framhald á 5. síðu
Búdapestför Hammarskjölds er
enn á dagskrá í New York
Allt var með kyrrum kjörum í Búdapest
í gær, — nokkrir ílóttamenn snúa heim
Imre Horvarth, utanríkisráðherra Ungverjalands, sem
er formaður ungversku nefndarinnar á allsherjarþingi
SÞ, hefur enn samband við Dag Hammarskjöld, fram-
kvæmdastjóra SÞ, um fyrirhugaða ferð -hans til Búda>-
pest.
Formælandi nefndarinnar
skýrði frá þessu í gær og and-
mælti um leið þeim ummælum
bandariska fulltrúans, Cabot
Lodge, í fyrradag, að ungverska
nefndin hefði reynt að villa fyrir
þinginu. Horvath hafði í upphafi
talið all.ar líkur á því að Hamm-
arskjöld gæti farið til Búdapest
16. þ. m., en ungverska stjórnin
hafnaði siðar komu hans þá.
Allt með kyrrum kjörum
Stokkhólmsútvarpið sagði frá
því í gærkvöld að í gær hefði
allt verið með kyrrum kjörum
í Búdapest, en þar hefur verið
róstusamt fyrr í vikunni.
í öðrum fregnum var sagt frá
Rétta leiðin að legg ja niður all-
ar herstöðvar, segir Nehru
Nehru, forsætisráðherra Indlands, mælti í gær gegn tillögu
sem borin hafði verið fram i efri deild indverska þingr.tns um
að Indland segði sig úr brezka
samveldinu. Hann kvað það
skoðun sína að öll tengsl milli
þjóða, eins og þau sem væru
milli þjóða samveldisins, væru
til að bæta friðarhorfur í heim-
inum.
Hann kvaðst vera algerlega
andvígur ölluin hernaðarbamla-
lögum, ekki sízt vegna þess að
sumum þeirra væri beinlínis
beint gegn Sameinuðu þjóðumiin. Rétta Ieiðin væri sú, að af-
nema allar erlendar herstöðvar og flytja burt allan her af
erlendri grund, hvar sein væri í heiininum, Haian bætti við að
hann gerði sér grein fyrir að slíkt yrði ekki gert á einum degi.
því, að allmargir menn hefðu
verið handteknir i borginni und-
anfarna sólarhringa, meðal
þeirra fulltrúar úr verkamnna-
ráðunum. Hefði miðstjórn þeirna
gefið út ávarp þar sem skorað
væri á ríkisstjórnina að hætta
handtökum, ella mætti hún eiga
von á nýjum verkföllum og
blóðbaði og verkamenn myndui
snúa við henni baki.
Málgagn ríkisstjórnarinnar,
Nepszabadszag, sagði i gær, að
komið hefði til nokkurra átaka
í fyrradag milli verkamanna og
gagnbyltingarmanna og hefðui
hinir síðarnefndu drepið einn
verkamann og einn liðsforingja,
en annar hefði særzt hættulega.
Um 50 menn hefðu verið hand-
teknir.
Flóttamenn snúa heini
Skýrt var frá því í Belgrad
í gær að 50 flóttamenn frá Ung-
verjalandi hefðu samkvæmt eig-
in ósk verið fluttir heim til
Ungverjalands aftur og annar
hópur, sem í væri 91 maður,
Framhald á i. síðu.
Vinnuvikan stytt í
A-ÞvzkalanfTI
Austurþýzka stjór lin hefur*
gengið frá frumvarpi að lög-
um um almenna styttingu
vinnutímans í landinu. Verður
vinnuvika verkamama stytti
úr 48 stundum í 45 og er þetta
fyrsta skrefið í á' t til 4 ð
stunda vinnuviku. Bú:zt er við
að frumvarpið taki gildi 1.
febrúar.