Þjóðviljinn - 08.12.1956, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 08.12.1956, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 8. desember 1956 k í dag- er laugardagurinn 8. desember. Maríumessa. — 342. dagur ársins. — Hefst 7. vika vetrar. — Tungl í hásuðri kl. 17.10. — Ár- degisháflæði kl. 8.59. Síð- degisháflæði kl. 21.22. Laugardagur 8. desember Fas.tir liðir eins og venjulega. Kl. 12.50 Óskalög sjúklinga (Bryn- dís Sigurjónsdótt- ir). 14.00 Heimilisþáttur (Þóra -Jónsdóttir). 15.00 Miðdegisút- varp. 16.30 Veðurfregnir. Endur- tekið efni. 18.00 Tómstunda- þáttur bama og unglinga (Jón Pálsson). 16.25 Veðurfregnir. 18.30 Útvarpssaga barnanna: „Leifur“ eftir Gunnar Jörgen- sen; VII. (Elísabet Linnet). 19.00 Tónleikar (plötur); a) Svíta eft- ir John Field (Filharmoniska hijómsveitin í Liverpool leikur; Sir Malcolm Sargent stj.). b) Don Kósakkakórinn syngur; Jaroff stjórnar. 19.40 Auglýs- ingar. 20.00 Fréttir. 20.30 Leik- rit: „Ólíkir heimar“ eftir Hugh Ross Williamsson, í þýðingu Árna Guðnasonar. — Leikstjóri: Þóra Borg. Leikendur: ITerdís Þprvaldsdóttir, Emilía Borg, Rúrik Haraidsson, Valur Gísla- son, Þorsteinn Ö. Stephensen, Sigríður Hagalín og Jón Aðils. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Danslög (plötur). — 24.00 Dagskrárlok. Hiónaband Laugardaginn 1. desember voru gefin saman í hjónabánd á Ak- ureyri ungfrú Karla;. Hildur Kárlsd'óttir og Gunnhallur Sig- freð Antonsson sjómaður. Heim- íli brúðhjónanna er að Klappar- stíg 3 á Akureyri. Miliilandaflug: Gullfaxi fer til Kaupmannahafnar og Hamborgar kl. 8.30 í dag. Flugvélin er vænt- anleg. aftur til Reykjavíkur kl. 16.45 á morgun. Saga er væntanleg kl. 6.00—8.00 frá New York, fer kl. 9.00 á- leiðis til Gautaborgar, Kaup- mannahafnar og Hamborgar. Hekía er væntanleg í kvöld frá Osló, Stafangri og Glasgow, fer eftir skamma viðdvöl áleiðis til New York. Innanlandsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 íerðir), Blöndu- óss, Egilsstaða, ísafjarðar, Sauð- árkróks, Vestmannaeyja og Þórshafnar. Á morg.un er áætlað að fljúga fil Akureyrar og Vestmannaeyja. Basar Kvenfélags sósíalista Á morgun, sunnudaginn 9. des- ember, kl. 3 heldur. Kvenfélag sósíalista basar og efnir til kaffidrykkju í Tjarnargötu 20. Flokksfélagar og aðrir velunn- arar eru beðnir að gjöra svo vel að líta inn. Það eru margir eigulegir munir, og kaffið verð- ur gott. Breiðfirðingar í Reykjavík Spilakvöld og skemmtun til kl. 2 verður hjá Breiðfirðingafélaginu í Breiðfirðingabúð í kvöld, laug- ardaginn 8. desember, og hefst kl. 20.30. Félagar, fjölmennið og takið með ykkur gesti. Þetta getur að Iesa í Morgunblaðinu í gær: „Þetta skeði fyrir nokkrum dögr um í sjúkrahúsi liér í bænum. — Sjúklingur nokkur, sem var Þó allsæmilega liress, hafði orð á því við eina hjúkrunarkonuna, síðdegis, að hann liefði ekkert fengið að borða þann dag. Hjúkrunarkonan minnti haiin á að hann liefði fengið hádegis- matiim á réttum tíma, og einn- ig hefði hann drukkið kaffi á sama tíma og venjulega. Sjúkl- ingurinn liélt samt fast v'ð sitt. Hann bað hana að rétta sér dagblöðin, sem hann raunar var búinn að lesa um morguninn, en hugðist stytta sér hungurstund- irnar(!I) fram til kvöídmatar, með því að fara yfir þau aftur. En er hann hafði litið á blöð- in, rann upp fyrir lionum ljós. 'Morgunblaðið vantaði“. Þetta er óstytt og orðrétt frásögli úr Morgunblaðinu í gær, og þarfn- ast ekki athugasemda. Þó ve:t ég ekki hvort ég dáist meira að smekkvísi blaðamannsins. sem setur þessa Múnchhausensögu saman, eða hugkvæmni lians í uppfinningu nýrra fæðutegunda. GENGISSKRÁNING 1 Bandarík j adollar 16.32 100 danskar krónur 236.30 1 Kanadadollar 16.90 100 norskar krónur 228.50 100 sænskar krónur 315.50 100 finsk mörk 7.09 1000 franskir frankar 46.63 100 gyllini 431.10 100 tékkneskar krónur 226.67 100 vesturþýzk mörk 391.30 1000 lírur 26.02 100 belgiskir frankar 32.90 100 svissneskir frankar 376.00 Gullverð ísl. kr.: 100 gullkrónur = 738,95 pappírskrónur. Næturvarzla er í Ingólfsapóteki í Fischer- sundi, simi 1330. •Trá hóíninni Eimskip: Brúarfoss fór frá Vopnafirði í gær til Nor.ðfjarðar, Eskifjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Djúpavogs, Vestmannaeyja og Rostokk. Dettifoss fór frá ísafirði í gær- kvöld til Patreksfjarðar, Tálkna- fjarðar, Keflavíkur og Reykja- víkur. Fjallfoss fer frá Hamborg í kvöld áleiðis til Reykjavíkur. Goðafoss kom til Riga í gær- morgun; fer þaðan til Ham- borgar. Gullfoss fer frá Kaup- mannahöfn i dag áleiðis til Leith og Reykjavíkur. Lagar- foss fór frá Reykjavík s. 1. sunnudag áleiðis til New York. Reykjafoss fór frá Keflavík í gærkvöld til Vestmannaeyja; siglir þaðan til Hull, Grimsby, Bremen og Hamborgar. Trölla- foss fór frá New York S.l. þriðjudag áleiðis til Reykjavík- ur. Tungufoss fór frá Hull í gækvöld áleiðis til Reykjavíkur. Sambandsskip: Hvassafell lestar síld á Norð- ur- og Austurlandshöfnum. Arn- arfell er í Piraeus. Jökulfell er í Kotka. Disarfell er í Stettin. Litlafell losar olíu á Vestur- landshöfnum. Helgafell er á Akureyri. Hamrafell er væntan- legt til Reykjavíkur á morgun. Sólskinsdagar á íslandi sýndir í Gamlabiói Kjartan Ó. Bjarnason hefur undanfarin kvöld sýnt mynd sína, Sólskinsdaga- á íslandi, í Gamlabíói; og hefur aðsókn ver- ið góð. Nú fer sýningum að fækka um sinn — hinar síðustu verða á morgun kl. 3 og 7 í Gamla bíói. Basar Kvenfélags Hallgrímskirkju er á morgun, sunnudag, kl. 2 e. h. í Iðnskólanum nýja á Skólavörðuholtinu. Stjórnin og básarnefndin heitir á alla vel- unnara kirkjunnar, að stuðla að því, að basarinn megi verða sem glæsilegastur. Munir á bas- arinn sendist á Mímisveg 6, til frú Sigríðar Guðmundsdóttur, sími 2501, eða í Blönduhlíð 10, til frú Guðrúnar Ryden, sími 2297. Sæunn ®g Sighvatur — ,,ný" skáldsaga írá nítjándu öld komin út. Bókaútgáfan Fjölnir hefur gefið út skáldsögu frá 19. öld: Sæunn og Sighvatur, eftir séra Eggert Ó. Brím prest á Höskuldsstöðum. Sagan er 242 blaðsíður, með nokkrum teikningum eftir Halldór Pétursson. Sr. Sveinn Víkingur skrifar nokkur orð um höfundinn i sögulok. Hann fæddist að Grund í Eyjafirði árið 1840, vígðist prestur að Hofi í Álfta- firði 1867, en fluttist síðar að Höskuldsstöðum í Suðurmúla- sýslu, fékk lausn frá prestskap fimmtugur að aldri og fluttist þá til Reykjavíkur. Hann and- aðist þremur árum seinna, ár- ið 1893. „Séra Eggert var gáfumað- ur og skáldmæltur vel“, segir enn í þessari höfundarkynn- ingu. Hann sá um útgáfu á Tyrkjaránssögu, Noregskon- ungasögum o. fl. og ritaði auk þess allmargt greina í blöð og tímarit. Leikrit eftir hann,.' er nefnist Gizur Þorvaldsson, kom út í Draupni, 1895—’97. Eftir hann liggur mikið safn af handritum i Landsbókasafn- inu. Þar á meðal er skáldSag- an Sæunn og Sighvatur, sem nú birtist í fyrsta sinn á prenti“. Bókin er snoturlega úr garði gerð, og sýnist fcandið vera öllu vandaðra en gerist og gengur á bókum hjá okkur. MESSUR A MORGUN Dómkirkjan Messa kl. 11 árdegis. Sr. Áre- líus Níelsson. Síðdegisguðs- þjónusta kl. 5. Sr. Óskar J. Þorláksson. Laugarneskirkja Messa kl. 2. Barnaguðsþjónusta kl. 10.15 árdegis. Sr. Garðar Svavarsson. Bústaðasókn Messa í Háagerðisskóla kl. 2. (Aðalfundur safnaðarins verður eftir messu). Barnasamkóma kl. 10.30 árdegis sama stað/ Sr. Gunnar Ámason. Hallgrínisprestakall Messa kl. 11 árdegis. Ræðuefni: Bölsýni heimsins og hughreyst- ing kristinsdómsins. Sr. Jakob Jónsson. Barnaguðsþjónusta kl. 13.30. Sr. Jakob Jónsson. Messa kl. 5 síðdegis. Sr. Sigurjón Þ. Ámason. Langholtsprestakall Messa í Dómkirkjunni kl. 11. árdegis. Sr. Árelíus Níelssonj Fríkirkjan Messa kl. 2. Sr. Þorsteinn Bjömsson. eftir Jakobínu Johnson Þingeysk kona segir m.a. í formála: Sú litla bók, sem nú hefur göngu sina á vit íslenzkra Ijóðvina, er gestur sem fagna ber af hverjum þeim, er ann tungu vorri og þjóðerni. — Það mætti líkja henni við ís- lenzka jurt,. sem gróðursett hefur verið í erlendan jarðveg, vaxið þar og dafnað, en ber þó að vitum okkar angan íSlenzkra heiða. — Þótt það yrði hlut- skipti Jakobínu að yfirgefa ættjörð sína, hefur hún ekki orðið vegalaus. —Með lífi sínu og ljóðum hefur hún sannað styrkleik íslenzks þjóðernis; með 1 jóð- þýðingum sínum fært út lönd íslenzkrar óðlistar, hafið andle^a yíw^- ,svp mætti að orði kveða. HMELfU- F R ð IN eftir Alexander Dumas; í þýðingu Björgúlfs Ólafs- sonar læknis. Alexander Dumas er heimsfrægur rithöfundpr, og þó mun Kamelíufrúin vera það verkið, sem mest hefur haldið nafni háns á lofti. -— Kamelíúfrúíh er ástarsaga, sem aldfíái fyrnist. LEIFTUR Pósturinn skoðar "bækur — Eigulegar bækur — Kunnir höíundar — Hátt verðlag PÓSTURINN LAGÐI leið sína inn í nokkrar bókabúðir í gær, ekki þó til að kaupa bækur, því að hann var blankur eins og endranær, heldur til að forvitnast um nýjar bækur og verðlagið á þeim svona yfir- leitt. Margt girnilegra bóka er nýkomið út eða í þann veginn að koma út. Ný kvæðabók eftir Davíð Stefáns- son; íslands er það lag, safn ritgerða og sagna eftir kunn- ustu höfunda þjóðarinnar; Við uppspretttimar, rit- gerðasafn eftir Einar Ól. Sveinsson; Við, sem byggðum þessa borg, einskonar viðtöl við nokkra þekkta Reykvík- inga; Enn á heimleið eftir Vilhjálm Finsen, og mætti svo lengi telja. Allt eru þetta bækur, sem Jiklegar em til mikilla vinsælda hjá almenn- ingi; við, sem vomm ung og rómantísk fyrir tuttugu ámm, unnum. ljóðum Davíðs og freistumst gjarnan til að ” kaupa. nýja Ijóðabók frá hans hendi. Einar Ól. Sveinsson er 1 f: <yriT ? Töjv þjóðkunnur rithöfúndur, og ritgerðir hans- hafá. mér-jafn- an þótt hvorttveggja í senn, skemmtilegar aflestrar og vandaður fróðleikur. Nýja út- gáfu af Þorpinu eftir Jón úr Vör sá ég líka, og er það vel, því það er sérstæð og hugþekk Ijóðabók, þótt hún sé órímuð. Loks skal þess getið, að ný bók eftir Stefán Jónsson, hin vinsæla kennara og rithöfund, er nýkomin út; heitir hún Hanna Dóra. Vill Pósturinn ráðleggja þeim, sem hug hafa á að eignast hana að tryggja sér eintak í tíma, því að bækur þessa höf- undar, a.m.k. „Hjaltasögurn- ar“ náðu miklum vinsældum og áttu tiltölulega skamma dvöl i bókaverzlununum. Auk nefndra bóka og fjölmargra annarra eftir ísl. höfunda, var á boðstólum fjöldinn allur af þýddum bókum, einkum skáldsögum eftir ýmsa höf- unda, þekkta og lítt þekkta. En það var m. a. verð bók- anna, sem Pósturinn var að ,,stúdera“. Það var að vonum mjög misjafnt, allt frá 60 krónum og upp í 150 krónur eða meira. Ég man ekki til, að ég sæi nokkra nýja bók, Framhakl á 11. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.