Þjóðviljinn - 08.12.1956, Side 6
fe) — JÞJÖÐVILJINN — Laugardagur 8. desember 1956
ÞlÓÐVILJINN
Útgejandi:
| SameiningarflokJcur alþýöu — Sósíalistaflokkurtnn
Hernámssamnmgarnir
Það var eitt mikilvægasta at-
riði stjórnarsáttmála vinstri
flokkanna að ríkisstjómin hét
því að framkvæma ályktun Al-
þingis um endurskoðun her-
námssamningsins og brottflutn-
jng hersins. Það eru því alvar-
Jeg tiðindi og slæm að þessum
framkvæmdum skuli nú hafa
verið frestað án þess að frá
því sé gengið hvenær hafizt
skuli handa á nýjan leik. Þó
kemur þessi ákvörðun ekki á
óvhrt, slíkar sem yfirlýsingar
Alþýðuflokksins og Framsókn-
arflokksins hafa verið að und-
anförnu. Þær voru svo alvar-
legar, að augljóst var að ef
hernámssamningurinn hefði
verið endurskoðaður nú hefði
SÚ samningsgerð ekki falið í
sér brottflutning hersins held-
ur áframhaldandi vist hans a
íslandi, og er sízt að efa að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði
lagt hönd að slíku verki af
mikilli áfergju. Það var af
þessum ástæðum einum sem
ráðherrar Alþýðubandalagsins
lýstu yfir því að þeir vaeru
sammála þvi að endurskoðun
hernámssamningsins yrði frest-
að i nokkra mánuði.
Það má segja að ekki skipti
,tlu máli hvort bandaríska
hernámsliðið hverfi af landi
brc i nokkrum mánuðum fyrr
eða síðar, hitt er meginatriði
að endurskoðunin sé fr.am-
kvæ.r.d i valdatíð þessarar
stjórnar. Það er augljóst mál
að til þess þarf þrautseiga og
maikvissa baráttu íslendinga.
Alþ/ðuflokkurinn og Fram-
sók u rflokkurinn rökstyðja af-
stöc u sína nú með því að mikl-
ar viðsjár séu í heiminum,
einkanlega fyrir botni Miðjarð-
arhafs og í Ungverjalandi, og
af' bví stafi íslendingum hætta.
Það er fullvíst að siíkum „rök-
semdum" verður hægt að beita
áfram áratugum saman; það
eru því miður engar líkur á
þvi að veröldin verði eitt sam-
fellt friðarríki á næstunni. Ef
viljann skortir er enginn hörg-
uli á fyrirsláttum. En slíkar
röksemdir eru því miður ekki
góður vitnisburður um heil-
indin. eins og margsinnis hef-
Ur verið rakið hér í blaðinu.
Ekki er það heldur góðs viti
að Alþýðuflokkurinn og
Framsóknarflokkurinn hafa á-
kveðið að stofna nýja „vam-
armálanefnd“ með mjög víð-
tæku hlutverki. Á hún að
verða einskonar hermálaráðu-
neyli. sameiginlega skipað ís-
lendingum og Bandaríkjamönn-
um, og' einnig á hún að tryggja
„að íslendingar taki í ríkara
jmæii en áður að sér störf, er
varða varnir iandsins“ — án
þess að orðað sé í samningn-
um að ekki verði um her-
mennsku að ræða. Slík nefnd-
arskipun virðist vísbending um
það að forustumenn Alþýðu-
fiokksins og Framsóknarflokks-
ins hugsi sér að endurskoðun
hernámssamningsins og bi’ott-
för hersins verði frestað um
alllangt skeið, að öðrum kosti
væru slíkar ráðstafanir fjar-
stæðan einber.
Utanríkisráðherra hefur lýst
yfir því að ekki hafi ann-
að borið á góma í viðræðunum
við Bandaríkjameim en það
sem rakið er í hinum opinberu
samningum, en bandarísk blöð
hafa skýrt svo frá að þar hafi
bæði verið fjallað um stór-
framkvæmdir herliðsins í
Keflavík og Njarðvík- og
bandaríska efnahags„aðstoð“
til íslands. Hins ber að minn-
ast að hernámsliðið hefur
samninga við fyrrverandi
stjórn um stækkun Keflavík-
urflugvallar og hafnargerð í
Njai'ðvík, enda þótt þær fram-
kvæmdir hafi legið niðri vegna
þess að herstjórnin bjóst við
að styttast kynni í vistinni
hér. Verði þessar framkvæmd-
ir nú teknar upp að nýju,
verður það aðeins skýrt með
því að bandaiúska herstjórnin
telur sig hafa ástæðu til að
ætla að dvölin hér framlengist
um alllangt skeið. Það er vert
að vekja athygli á því að enda
þótt ráðherrar Alþýðubanda-
lagsins hafi lýst yfir því „að
ekki komj til mála að frestur
þessi verði notaður til nýrra
hernaðarframkvæmda" hafa
engin slík ummæli heyrzt frá
ráðherrum Alþýðuflokks og
Framsóknar.
¥»að er nauðsynlegt að allir
* íslendingar horfist af raun-
sæi í augu við það að atburð-
ir þeir sem nú hafa gerzt eru
alvarlegir og að í þeim felst
meira en ein saman frestun..
En því ber ekki heldur að
gleyma að hemámsandstæðing-
ar hafa mikilvæg tækifæri til
áframhaldandi sóknar og fulln-
aðarsigurs. Ályktun Alþingis
um endurskoðun hernáms-
samningsins og brottflutning
hersins stendur enn óbreytt
sem stefna íslendinga. Það fyr-
irheit ríkisstjórnarinnar að
framkvæma þessa stefnu er
enn óhaggað. En verkefnið er
að breyta stefnunni í veru-
leika, orðum í athafnir. Það
verkefni er í höndum þjóðar-
innar sjálfrar, hún verður að
knýja á kjörna fulltrúa sína
og forustumenn unz markinu
er náð. Það var sívaxandi and-
staða almennings gegn her-
náminu sem olli því að for-
ustumenn Alþýðuflokksins og
Framsóknar lýstu yfir sinna-
skiptum s.l. vor áður en lagt
var til kosninga. Það verður
einnig verk fólksins í landinu
að tryggja það að yfirlýsing-
arnar verði að athöfnum, unz
þjóðin býr ein og frjáls í landi
sínu.
Búnaðarbankinn
stofni útibú að
Egilsstöðum
Á fjórðungsþingi Austfirð-
inga, sem haldið var að Egils-
stöðum í síðustu viku, var sú
ósk ítrekuð að þegar á næsta
ári verði komið upp útibúi Bún-
aðarbanka Islands á Egilsstöð-
um. Skoraði þingið jafnframt á
landbúnaðarráðherra og þing-
menn Austfirðinga að hlutast
til um að stofnun útibúsins
komist í framkvæmd.
Kaplaskjólsræsi
Ihaldsins enn
Á bæjarstjórnarfundi i fyrrad.
minnti Einar Ögmundsson á
samþykkt bæjarstjórnar á til-
lögu þeirra Inga R. Helgasonar
og Geirs Hallgrímssonar um að
bærinn léti leggja holræsi frá
sambyggingunni við Kapla-
skjólsveg. En þrátt fyrir þessa
samþykkt léti íhaldið þetta
saurræsi sitt enn standa opið.
Slíkt mætti ekki lengur til
ganga. Gerði hann kröfu til að
hafizt yrði handa um fram-
kvæmdir strax. — Borgar-
stjóri svaraði feimnislega að
hann vænti greinagerðar bæjar-
verkfræðings um málið.
Háskólatónleikar
Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands
Sinfóníuhljómsveit íslands hef-
ur sýnt háskólanum þá miklu
velvild að bjóðast til að efna
til ókeypis hljómleika fyrir
stúdenta og starfsmenn há-
skólans á morgun, sunnudag-
inn 9. des., og hefjast klukk-
an 5 síðdegis. Flutt verða
Septett, ópus 20, eftir Beet-
hoven og Svíta í h-moll eftir
Johan Sebestian Bach. Stjórn-
andi verður Björn Ólafsson. Er
ekki að efa. að háskólastúd-
enta.r muni með þökkum nota
sér þetta einstæða kostaboð.
Foreldrablaðið
Foreldrablaðið, 1. tbl. ár-
gangsins hefur borizt, en það
er gefið út af Stéttarfélagi
bamakennara. Jónas B. Jóns-
son ritar þar greinina Má ég
skoða. .. . ?, nokkrar húsmæður
lýsa skoðunum sínum á við-
horfi heimila til skóla, Mar-
teinn M. Skaftfells á greinina
Stiklað á stóru, Jónas Jósteins-
son: Er skólaskyldan hefst,
Þorsteinn Matthíasson: Vor yf-
ir landi, Hannes M. Þórðarson
ritar um Austurbæjarskólann
og Ragnheiður E. Möller um
Foreldraf élag Laugamesskóla;
þá er sagt frá skóla ísaks Jóns-
sonar, störfum barnaskólanna í
Reykjavík, og birtar em álykt-
anir sameiginlegs fundar stjóm-
ar Foreldrafélags Laugames-
skóla og fulltrúa frá Mæðrafé-
lagi skólans um helztu leiðir
til samstarfs og skilnings for-
eldra og kennara. Margt fleira
er í blaðinu, m. a. fjölmargar
myndir frá skemmtunum og:
leikstarfi í skólunum.
STEPHANS G.
Andvökur, III bindi,
komnar í bókaverzlanir
BRÉF OG RITGERÐIR I,—IV.
Á árunum 1938—1948 komu út hjá Bókaútgáfu Menning-
arsjóðs og Þjóðvinaféiagsins Bréf og ritgerðir Stephans
G. Stephanssonar. Þorkell Jóhannesson sá um útgáfuna.
Þetta er heildarútgáfa af ritum skáldsins í óbundnu máli,
alls 1471 bls. með lö sérprentuðum mýhdum. — Bréf og
ritgerðii- kostp1 samtals kr. 140,00 heft, kr. 300,00 í skinn-
bandi.
ANDVÖKUR I — III.
Ný heildarútgáfa á kvæðum skáldsins, í sama broti og
„Bréf og ritgerðir". Verður alls 4 bindi. Þorkell Jóhann-
essson býr til prentunar.
Þrjú bindi eru þegar komin út.
I. bindi, stærð 592 bls. Verð kr. 82,00 heft, kr. 110,00 í
bandi, kr. 135,00 í skinnbandi.
II. bindi, stærð 538 bis. Verð kr. 85,00 heft, kr. 112,00 í
bandi, kr. 140,00 í skinnbandi.
III. bindi, stærð 610 bls. Verð kr. 95,00 heft, kr. 125 00 í
bandi, kr. '160,00 I skinnbandi.
Euginn íslendingur, sem bera vill það nafn með fullri
sæmd, má láta undir höfuð leggjast að eignast og lesa
rit Stephans G. Stephanssonar.
Bréf og ritgerðir og Andvökur Stephans G.
Halldór Kiljan Laxness um Stephan G.:
„Norræn tunga á einn sinna sterkustu máttarviða í
Stephani G. iStephanssyni. Mun ýkjulaust að enginn ein-
stakur höfundur hafi auðgað tungu vora í svipuðum
mæ!i sem hann .... Hefur málminni Stephans ekki að-
eins verið með afbrigðum sterkt, heldur má svo segja að
islenzk tunga hafi lifað í honum sem einn þáttur persónu
hans. Hann var Mídas konungur islenzkra nútíðarbók-
mennta. Hvei't hugtak verður ,aó gullaldaríslenzku í
penna hans. Nánara samlíf er eigi hægt að eiga við mál
en ljóð hans hin beztu bera vott um. Sköpun nýgBr'liitw*»
fellur honuin jafn eðlilega og notkun ritaldarmálsfrií eðá
hins rammþjóðlegasta í máli alþýðu. Þekking hans á
smágérvasta ilmgróðri alþýðumálsins gegnir furðu, þegar
tekið er tillit til þess að skáldið dvelur langvistum í
framandi landi. .. .
Hann var mikið fyrirbrigði þessi íslenzki vökumaður,
þessi’ norriæni landnemi í óbyggðum Vesturálfu, og er
það oss í senn stolt mikið og upphefð að hafa átt hann.
Lúður hans sem langspil túlka hið aeðsta og háleitasta
í eðlisfari hins norræna rnanns".
Félagsmean í Bókaútgáfu Menningarsjóðs:
Minnizt þess, að þér fáið aukabækur útgáfunnar með af-
slætti, Eflið yðar eigið bókmenntafélag með því að
kaupa Menningarsjóðsbækur til jólagjafa. —- Reykvík-
ingar! Vitjið félagsbókanna að Hverfisgötu 21.
BÖKAOTGAFA
MENHINGABSIÖÐS 0G HÖDVINAFÉLAGSINS —