Þjóðviljinn - 08.12.1956, Síða 7
Talið að Nehru geríst milligöngumaður
milli stjórna Kína og Bandaríkjanna
Rœðir Wð Sjú Enlœ bœSi fyrir og eftir
heimsókn til Eisenhowers forseta
Fréttamenn. í Nýju Delhi, höfuðborg Indlands, segja
að stjórnmálamenn þar geri sér vonir um að Nehni for-
sætisráðherra takist aö bera sáttarorð á milli stjóma
Kína og Bandaríkjanna.
Nehru er væntanlegur til
ÍWashington 16. desember í boði
Eisenhowers forseta. Heim-
sóknin var fyrirhuguð síðast-
Jiðið vor en fórst þá fyrir sök-
Mm veikinda Eisenhowers.
Að draga ár viðsjám
Nehru hefur margsinnis sagt,
að viðsjár í Austur-Asíu geti
ekki lægt að fullu fyrr en sam-
búð Kína og Bandaríkjanna sé
komin í skaplegt horf. Hann lét
nýlega svo um mælt, að á al-
þjóðavettvangi gæti Indlands-
stjórn látið mest gott af sér
leiða með því að gerast „tengi-
liður milli þjóða sem ekki hafa
bein terigsl sín á milli“.
Sjú Enlæ, forsætis- og utan-
ríkisráðherra Kína, er nú á
ferð um lönd í Suður- og Vest-
ur-Asiu. í síðustu viku kom
Iiann til Nýju Delhi og sat á
löngum fundi með Nehru.
Aftur milli jóta og nýjárs
Frá Indlandi fór Sjú til
Burma og síðan mun hann
heimsækja höfuðborgir Pakist-
Telur sig hafa
ftmdið fjórar
reikistjömur
ítalskur stjörnufræðingur,
prófessor Raffaele Bendandi
1 sem stjórnar stjörnuturnin-
um 5 Faenza, telur sig hafa
I fundið fjórar, áður óþekktar
reikistjörnur.
Sú sem næst er jörðinni er
1 að áliti prófessorsins sjö
milljarða kílómetra frá sól-
inni,' sú næsta 12 milljarða,
þriðja. 18 milljarða og fjórða
30 milljarða km frá miðdepli
sólkerfisins. Eftir þessu eru
þessar reikistjörnur hver um
sig 384, 881, 1356 og 2865
jarðár að ganga kringum
sólina.
Það er enn þá þörf
Brottflutningur brezkra og
franskra hermanna frá Egypta-
landi ér hafinn og sagði yfir-
imaður hersveitanna, Stockwell
hershöfðingi, í gær, að honum
mýndi sennilega lokið innan
þriggja vikna.
1 Egyptalandi munu vera
um 13.000 brezkir og 6.000
f ranskir hermenn. Flestir
brezku hermannanna munu
verða fluttir heim til Bretlands,
en Parísarútvarpið sagði í gær,
að frönsku hermennirnir yrðu
fluttir til Alsír, en um 500.000
franskir hermenn eiga þar í
íhÖggi við þjóðfrelsisher Alsír-
foúa.
ans, Nepals, Afganistan og má-
ske fleiri rikja.
Það hefur vakið mikla at-
hygli að eftir þær heimsóknir,
29. desember, kemur hann aft-
ur til Nýju Delhi og ræðir á
ný við Nehru, sem þá verður
kominn aftur frá Washington.
Nehru getur því skýrt Eis-
enhower frá afstöðu Kína-
stjórnar og síðan kynnt Sjú
Enlæ hvemig æðsti maður
Bandaríkjanna lítur á málin.
Ekki snögg breytíng
Indverskir stjórnmálamenn
gera sér að sögn ekki von um
að milliganga Nehrus verði til
þess að nein snögg breyting til
hins betra verði á sambúð
Bandaríkjanna og Kína. Hins-
vegar gera þeir sér ljóst að Eis-
enhower er að byrja nýtt kjör-
tímabil og kann að telja sér
fært að gera ýmislegt sem ekki
þótti fýsilegt að ráðast í rétt
fyrir kosningar. í einkaviðræð-
um hafa bandarískir embættis-
menn alltaf viðurkennt, að fyrr
eða síðar hlyti að því að koma
að Bandaríkjastjórn tæki upp
stjórnmálasamband við stjórn
Kína og gæfist upp við að
mena henni setu meðal SÞ. •
Framtíð Sjangs
Áður en Sjú Enlæ hélt til
Indlands kom hann við í Viet
Nam og Kambodsíu. I Pnom-
penh, höfuðborg Kambodsíu,
ræddi hann við blaðamenn.
Spurði þá bandarískur frétta-
maður hann, hvað verða myndi
um Sjang Kaisék ef samningar
tækjust milli stjórnarinnar í
Peking og stjórnar Sjangs á
Taivan.
„Verður gert við hann eins
og Fú Tsoji?“ spurði blaða-
maðurinn. Fú var hershöfðingi
í her Sjangs, samdi um upp-
gjöf herjanna i Peking og ná-
grenni hennar í borgarastyrj-
öldinni og er nú vatnsnýting-
arráðherra í kínversku alþýðu-
stjóminni.
Ráðherrastaða of lág
Sjú brosti og svaraði: „Ráð-
herrastaða væri of lág“.
Síðan ræddi hann um kynni
sín og Sjangs; benti á að þeir
hefðu verið nánir samverka-
menn og vinir við herskólann í
Vampóa og barizt saman fram
til 1927, þegar Sjang réðst
á kommúnista.
Eftir að þessi ummæli höfðu
vakið miklar bollaleggingar
meðal blaðamannanna lét Sjú
þeim í té eftirfarandi yfirlýs-
ingu:
„Engum sem nú dvelur á
Taivan verður meinað að hverfa
aftur til meginlands Kína. Hvað
Sjang Kaisék varðar er nú
ekki um ráðherraembætti að
ræða, heldur friðsamlega samn-
inga“.
Fréttaritari frönsku frétta-
stofunnar AFP í Nýju Delhi
segir, að þar sé talið að við-
ræður þeirra Sjú og Nehrus
hafi einkum snúizt um afstöðu
Kínastjórnar til Sjang Kaiséks.
---Laugardagur 8. desember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (7
Atlanzhafsbandalag
allt að Indlandshafi
krala ríkjanna í Bagdadbandalaginu
Á fundi utanríkisráðherra Atlanzhafsbandalagsins í
París 11. til 14. desember verður að öllum líkindum bor-
in fram tillaga um að bandalagið, sem kennt er við'
Norður-Atlanzhafssvæðið, verði látið ná allt að Indlands-
hafi.
Fréttaritari frönsku frétta-
stofunnar AFP í London segir,
að eitt erindi Ethem Menderes,
utanríkisráðherra Tyrklands, til
London um síðustu helgi hafi
verið að fá brezku stjórnina til
að styðja tyrkneska tillögu um
að Bagdadbandalagið verði inn-
limað í A-bandalagið.
Bagdadbandalagið nær til
fjögurra Asíuríkja, Tyrklands,
Iraks, Irans og Pakistan, auk
Bretlands.
Hinn franski fréttaritari seg-
ir, að í London sé álitið að
brezka stjórnin sé hlynt hug-
mynd Tyrkja. Telji hún að
Bandaríkjastjórn muni ekki
fást til að ganga formlega í
Bagdadbandalagið frekar hér
eftir en hingað til, og því sé
vænlegast að t-engja það A-
bandalaginu.
Eldgos á
sjávarbotni
Gullí MontBlanc?
Tveir franskir fjallaleið-
sögumenn hafa áskilið sér
námaréttindi á 43 hektara
svæði í hliðum Mont Blanc,
hæsta fjalls Evrópu. Svæðið
er í 2970 metra hæð.
Fjallagarpamir segjast
sannfærðir um að þaraa sé
gull að finna, þeir hafi þeg-
ar fundið kora sem séu
hreint gull að 99 hundraðs-
hlutum. , . v , .
Sjú Enlæ í rœðustól á ráðstefnu fulltrúa
Asíu- og Afríkuríkja.
Brotm bem límd saman
Sjúklingar geta farið að hreyfa sig eftir
þrjá daga í stað sex mánaða
Farið er að reyna á mönnum lím sem styttir legu
sumra beinbrotssjúklinga úr sex mánuðum í þrjá daga.
Michael P. Mandarino, sem
starfar við Hahnemann sjúkra-
húsið í Philadelphia, skýrði frá
þessu á fundi bandarískra sér-
fræðinga í beinalækningum fyr-
ir skömmu.
Þýðingarmikið fyrir gamalt
fólk
Einn sérfræðinganna lét svo
um mælt, að notkun þessa líms
kynni að valda byltingu í með-
ferð beinbrota.
> Einkum gæti það verið mik-
ilsvert fyrir aldrað fólk, sem
oft yrði ósjálfbjarga fyrir ald-
ur fram af völdum lærbrota
sem ekki vildu gróa.
Stálbent steypa
Dr. Mandarino vildi ekki láta
úppi að svo stöddu, hvaða efni
væru í lími hans. Hann kvaðst
Eldgos kom upp á sjávar-
botni við norðausturströnd
Nýju Gíneu 5 síðustu viku. Eld- ,
stöðvar þessar eru áður kunn-
ar og nefnast Tuluman. Eld-
f jallið rekur nú tindinn upn úr
vatnsskorpunni og strók gufu
og ösku leggur upp úr gígn-
um. Vikur þekur hafið um-
hverfis eldfjallið og undirbún-
ingur er hafinn að brottflutn-
ingi fólks frá nærliggjandi eyj-
um ef nauðsyn krefur.
Bandaríkin móti
þríveldafundi nú
Alphand, sendiherra Frakk-
lands í Bandaríkjunum, ræddi í
fyrradag við Dulles utanríkis-
ráðherra og reyndi að fá hann
til að fallast á að skjótlega yrði
haldinn fundur stjórnarleiðtoga.
Bandaríkjanna, Bretlands og
Frakklands.
Dulles er sagður hafa tekið
dauflega í þá tillögu og í gær
var tilkynnt að af slikum fundi
myndi ekki verða fyrr en í
lok janúar eða byrjun febrúar.
Verðhœkkanir
í Bretlandi
Verðlag fer hækkandi I
Bretlandi vegna hækkunar á
olíuverði og verði annarra að-
fluttra nauðsynja.
Samband 17.000 vörubílaeig-
enda, sem samtals eiga 100.000
bifreiðar, hefur hækkað taxta
félaga sinna um 10%. Brezka
flugfélagið BEA hefur hækkað
flug á innanlandsleiðum um
5%. Loks hafa verið hækkuð
lægstu fargjöld með neðjan-
jarðarlestum í London. Hækk-
un á benzínverði mun auka út-
gjöld lestanna og strætisvagna
af þeim. Annar hafði verið i þar j borg um 40 000 sterlings-
hafa reynt það árum saman
á tilraunadýrum.
Eftir þá reynslu tók hann
að reyna það á mönnum. Sér-
fræðingafundurinn skoðaði tvo
gipsi í ár vegna beinbrots sem
ekki vildi gróa. Fimm dögum
eftir að beinið var límt gat
hann farið að hreyfa sig. Ung-
ur maður með fótbrot gat stig-
ið í fótinn þrem dögum eftir
að brotið var límt.
Aðferð dr. Mandarino er að
gera gróp í beinið beggja vegna
brotsins. Siðan eru ryðfríir
stálvírar lagðir í grópið og það
fyllt með lími. Vírarnir hafa
sömu áhrif og jám í jámbentri
steinsteypu.
Límið þenst ört út og harðn-
ar í grópinu áður en hálftimi
er liðinn. Þá er hægt að skafa
burt það sém afgangs er.
pund á viku, eða nálægt 100
milljón krónum á ári.
Ræðismaður vahn
bókmennts-
verðlaun
Ræðismaður Frakklands í
Los Angeles í Bandaríkjunum,
Romain Gary, hefur unnið eft-
irsóttustu bókmenntaverðlaun
Frakklands, Goncourt-verðlaun-
in. Voru honum vcitt vorðlaun-
in fyrir skáldsögu sem nefnist
Rætur himinsins.
r.