Þjóðviljinn - 04.01.1957, Síða 3
Föstudagur 4. janúar 1957 — ÞJÓÐVILJINN
(3
Kaupfélögin hafa endurgreitt félags-
mösiiiuðn 45 miilj. kr. siðustu 15 árin
SIS hefur frá öndverSu endurgreitf til
kaupfélaganna 26.198.000 krónur
EndurgreiÖsla kaupfélaganna til félagsmanna sinna og
vextir af stofnsjóðainneignum þeirra fyrir ái'iö 1955 námu
samtals 6,9 milljónum króna, aö því er Erlendur Einars-
son, forstjóri SÍS skýrir frá. Hafa kaupfélögin þá á síö-
ustu 15 árum, 1940 til 1955 endurgreitt félagsfólkinu
45.062.000 krónur.
Á síðastliðnu ári fengu
kaupfélögin verulega endur-
greiðslu af viðskiptum sínum
við Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga, og átti sú endur-
greiðsla þátt í því, hve miklu
þau gátu skilað félagsfólkinu
aftur. Var endurgreiðsla SÍS til
félaganna 3.496.000 krónur og
vextir af stofnsjóðsinnistæðum
þeirra fyrir sama ár 2.072.000
krónur, eða samtals 5.568.000
krónur. SlS hefur frá öndverðu
endurgreitt til kaupfélaganna
26.198.000 krónur. ■
Að sjálfsögðu eru ekki með-
taldar í neinum af þessum töl-
um endurgreiðslur Samvinnu-
trygginga (um 10 milljónir) og
Olíufélagsins (um 20 milljónir)
síðasta áratug, nema hvað
kaupfélögin hafa. eftir viðskipt-
um sínum við þessi fyrirtæki
hlotið endurgreiðslur og getað
Bærinn beri Bialiaiin!
Framhald af 12. síðu.
garðyrkjustöð í Laugardalnum
(trjáræktarstöð Eiríks Hjartar-
sonar) — og auk þess væri það
alls ekki nauðsynlegt né á nokk-
urn hátt ákveðið að leigja garð-
yrkjustiiAina í Reykjahlíð þótt
hún væri boðin út til leigu,
Bærinn skal tapa —
einstaklingsframtakið
græða!
Garðyrkjustöðin í Reykjahlíð
var rekin með 24 þús .r. tapi
árið 1955. Hún gegndi m, a. því
hlutverki að ala upp trjáplöntur
í skrúðgarða bæjarins, en það á
nú að framkvæma í Laugardaln-
um. Tapreksturinn var einkum
talinn stafa af því hve dýrt væri
að ala upp trjáplönturnar. Að
sjálfsögðu heldur bærinn áfram
uppeldi trjáplantna, eins og fyrr
segir, og þá — þegar orsök tap-
rekstursins á Reykjahlíðar-
stöðinni hefur vérið upprætt,
og öll líkindi eru til þess að hún
fari að skila hagnaði, finnst
íhaldinu rétti tíminn til að af-
Hæst sala í 5 ár
Togarinn Marz seldi afla sinn
í gærmorgun i Grimsby, 4078 kit
fyrir 15 276 sterlingspund, og er
það hæsta sala ísl. togara í
Bretlandi síðan í jan. 1952 —
en vel að merkja hefur iöndun-
arbannið verið í gildi allengi
þess tíma. -
Svalbakur seldi í Cuxhaven
í gærmorgun 237 lestir fyrir 111
þús. mörk.
Sjómenn
Hafnarfirði
Stjórnarkosning í Sjó-
mannafélagi Hafnarf jarðar
fer fram alla virka daga í
skrifstofu félagsins, Vestur-
gotu 10, frá kl. 5-6 síðdegis.
Sjómenn komið og kjósið.
Muuið að ykkar listi er A-
listí.
I-_____________________
henda stöðina einkaframtakinu
til umráða!!
Af fórnfýsi eða
þekkingu ?
Sami maðurinn óg rak stöðina
fyrir bæinn með 24 þús. kr. tapi
árið 1955, bauðst á s.l. hausti til
að greiða bænum 30 þús. kr.
ársleigu fyrir hana!
Hvort skyldi það tilboð hafa
verið grundvallað á fórnfýsi
mannsins fyrir hag bæjarfélags-
ins, eða þekkingu hans á því
hvað hægt væri að hafa upp
úr garðyrkjustöðinni?!
Óbreytt afstaða
Á bæjarstjómarfundinum 6.
sept. s.l. fluttu þau Petrína Jak-
obsson og Alfreð Gíslason til-
lögu um að bærinn ákvæði að
starfrækja garðyrkjustöðina að
Reykjum áfram. Jafnframt fluttu
þau varatillögu þess efnis, að
yrði samþykkt að leigja stöðina
skyldi hún boðin út og það sett
að skilyrði að unglingar barna-
heimilisins skyldu hafa forgangs-
rétt að vinnu við garðyrkjustörf
þau er væri við þeirra hæfi.
Á fundinum í gær endurtóók
Petrína rök sín frá fyrri fundin-
um gegn leigu stöðvarinnar og
benti m. a. á að barnaheimili
bæjarins keyptu mikið af af-
urðum garðyrk.iustöðva, og
mætti undariegt heita ef hag-
kvæmara væri að kaupa slíkt
af einstaklingum en hjá garð-
yrkjustöð bæjarins sjálfs.
Hrakið á undanhald
Aðaltillaga þeirra Petrínar og
Alfreðs var ,,ekki studd“ á fund-
inum í gær, þ. e. fékk 4 atkv.
en ekkert mótatkv. (Alfreð var
þá ekki kominn á fundinn).
Varatillagan var hinsvegar
samþykkt með 8 atkv. gegn 1.
Þar með hafði íhaldið verið
hrakið á það upndanhald að
bjóða leiguna út í stað þess að
afhenda hana í laumi. — Og
borgarstjórinn segir að enn sé
alls ekki víst að hún verði leigð,
enda þótt tillaga íhaldsins að
bjóða stöðina til leigu væri sam-
samþykkt. — Það sést síðar hve
alvarlega hann meinar það.
aukíð sínar eigin endurgreiðsl-
ur til félagsmanna, sem því1
nemur.
(Frá SlS).
Cvo&aites fórst
við Færeyjar
Framhald af 1 síðu.
og gekk björgun þá nokkuð
greiðlega.
Kl. 6.25 eftir íslenzkum tíma
brotnaði skipið. Vorum við þá
sex um borð og fengum stól-
inn út í síðasta sinn.
SÍÐASTA VERK SKIP-
STJÖRANS.
Þegar skipstjóri er að hjálpa
tveim mönnum í stólinn og
binda, þá sekkur afturhluti
skipsins, en loftskeytamaður
hafði haft samband við björg-
unarskipin þar til togarinn
brotnaði.
Fimm okkar er vorum á
skipinu þegar það sökk kom-
umst í litla trillubáta sem að-
stoðuðu við björgunina.
Á Goðanesi voru 24 menn,
17 íslendingar, þar af 14 Norð-
firðingar, og 7 Færeyingar.
Skipið var eign Bæjarsjóðs
Neskaupstaðar. Það var smíðað
í Bretlandi og kom hingað til
lands 2. jóladag 1947.
Missir þessa togara er þungt
áfall fyrir Norðfirðinga, en
þeir misstu hinn togara sinn,
Egil rauða. í fyrra.
Sósíalistar
Reykjavík
\insamlega komið í skrif-
stofu Sósíalistafélagsins I
Tjarnargötu 20 og greiðið
félagsgjöld ykkar.
Kosin nefnd tii ú athuga öngþveitið
í skólamálum oggera tillögur
Samkvæmt upplýsingum er borgarstjóri gaf á bæjar-
stjórnarfundi í gær eru líkur fyrir að fjöldi barna og
unglinga á skólaaldri veröi meiri á næstu árum en hald-
ið hefur verið, og þörf skólabygginga því meiri.
Bæjarstjórn kaus í gær nefnd til að gera tillögur um
skólahverfi og stærð skóla sem byggja þarf.
Þetta kemur í framhaldi af
játningu borgarstjóra 4, okt s.l.
um öngþveitið í skólamálum
Reykjavíkur. Fræðslufulltrúi
hefur athugað málið betur síðan.
I samráði við hann flutti borg-
arstjóri svo þá tillögu á fund-
inum í gær að kjósa nefnd til
að gera tillögur um skóiahverfi
og athuga stærð væntaniegra
skóla sem byggja þarf.
Borgarstjóri kvað 7 ára börn
hafa verið 2% af íbúum Reykja-
víkur árið 1950, en hlutfailstal-
an hefði hækkað síðan. Hefði
Framhald á 10. síðu.
Atriði úr kvikmyndinni Heiðið hátt. Dan Roman (John
Wayne) og Sullivan (Rdbert Stack) rœðast viö á flug-
piljunum.
Kvikmvndin Heiðið hátt
sýnd í Austurbæjarbíói
í þessum mánuöi hefur Austurbæjarbíó væntanlega
sýning'ar á bandarískri kvikmynd, sem gerð hefur verið
eftir hinni vinsælu framhaldssögu Þjóð'viljans, Heiðinu
háa.
Mynd þessi var gerð af
Warner Bros. kvikmyndafélag-
inu árið 1954 og miklu til
hennar kostað. Him er t.d. tek-
in með cinemascope-aðferðinni
Er ekkert svo lélegt að Morgun-
blaðið telji það ekki boðlegt
sjómönnum og sveitafólki?
Morgunblaðið hneykslað-
ist mjög í gær yfir því
smekkleysi Útvarpsins að
bjóða landsmönnum til
skemmtunar á gamlárskvöld
hina útþvældu reviu, Svart-
ur á leik, og er Morgun-
blaðið ekki eitt um að undr-
ast hve fátækt Útvarpsins
var mikil og sár að það
skyldi ekki geta fundið neitt
annað betra á gamlárskvöld.
Morgunblaðið segir um
þetta efni að það hafi verið
„með öllu ótækt“, það hafi
verið „fyllirí, kvennafar og
framhjáhald .... þar sem
hver þóttist vera öðrum
snjallari sem gat látið harð-
ari klúrvrði fjúka.“
Þegar Morgunbiaðið hef-
ur þannig lýst skemmtiefn-
inu finnur það tvær stéttir
manna, sem slíkt efni sé
samboðið: sveitamenn — „á
réttarballi uppi í sveit“, og
þó sérstaklega „gott á árs-
hátíð togarasjómanna“.
Slíkar eru kveðjur Morg-
unblaðsins til sjómanna-
stéttarinnar, manna af gerð
skipstjórans á togaranum
Goðanesi, sem vann að
björgun félaga sinna þar til
liann sökk sjálfur í hafið.
Fyrir slíka menn telur Morg-
unblaðið ekkert svo lélegt að
það sé ekki nógu gott.
og sýningartími hennar óstyttr-
ar hálf þriðja klukkustund.
Höfundurinn, Emest K. Gana,
hefur sjálfur búið sögu sina til
kvikmyndunar, en leikstjóri er
William A. Wellman. Margir
kunnir leikarar fara með aðal-
hlutverkin. John Wayne leikur
Dan Roman, Claire Trevor:
May Holst, Laraine Day: Lvd-
ia Rice, Robert Stack: SullivaB,
Jan Sterling: Sally McKee,
Phil HaxTis: Ed Joseph, Ilobert
Newton: Gustave Pardee, Da-
vid Brian: Ken Childs.
Kaupf élagsst jóra -
skipti í Vest-
mannaeyjum
Vestmannaeyjum. Frá
fréttaritara Þjóðviljans.
Kaupfélagsstjóraskipti urðu
hér við Kaupfélag Vestmanna-
eyja um áramótin.
Jóhann T. Bjarnason, sen ver-
ið hefur kaupfélagsstjóri hér ura
nokkur undanfarin ár lætur af
störfum og tekur við kau; féiagi
ísfirðinga. Við stjórn kaupféiags-
ins hér tekur Jón er áður stjórn-
aði útibúi Kaupfélags Héraðs-
búa á Egilsstöðum.